Morgunblaðið - 08.05.1936, Blaðsíða 7
í'östudaginn 8. maí 1936.
(•q-. r í(% • ■ : • • . ' .
MORGUNBLAÐIÐ
Vertíðin í Vest-
mannaeyjum.
Samtal við Ólaí Auð-
unsson útgerðar-
mann.
lafur Auðunsson útgerð
armaður í Vestmanna-
eyjum var nýlega staddur
hjer í bænum.
Morgunblaðið átti tal við Ólaf
■og spurði bann mn ver.tíðina í Eyj
mn.
— Vertíðin byrjaði, sem kunn-
ugt er með verkfalli, er stóð til
22. febrúar, sagði Ólafur. Hvað
mikið tjón hlotist hefir af verk-
fallinu er ekki gott að segja, en
sumir formenn í Eyjum telja að
mikill fiskur hafi verið þá. —
Er þá tjónið gífurlegt, því eins og
kunnugt er brást línuvertíðin að
heita má alveg. En línufiskurinn
er langdýrasti fiskurinn.
Netavertíðin byrjaði miklu fyr
í Eyjum nú en vant er, sem stafar
af því, að línuvertíðin brást.
— Menn tala mikið um vöntun
á netum í Eyjum, hvað er hœft
í því?, spyr tíðindamaður blaðs-
ins.
— Því miður hefir verið tdfinn-
anleg vöntun á netum, sem staf-
ar af því, að netaverfíðin byrjaði
óvenjule'ga snemma og sumpart af
því, að treglega svo jeg ekki
segi meira — hefir gengið að fá
innflutningsleyfi á nefum, a. m.
k. framan af vertíðinni. 0 g það
hafa margir útgerðarmenn sagt,
að þeir hafi engn nýju getað
bætt í net sín síðan fyrir páska.
Og nú er svo komið, að
margir bátar hafa orðið að
hætta veiðum vegna neta-
skorts,
þrátt fyrir sæmilegan afla.
Svo er hins að gæta, að jafnvel
þeir bátar sem hafa getað haldið
áfram með hálfónýt net, hafa
ekki fengið hálfan afla. móts við
það, ef þeir hefðu haft góð veiðar-
færi.
— Hver verður útkoman yfir-
leitt eftir vertíðina?
— Aflinn á bátana c,r afar mis-
jafn og sennilega aldrei meiri en
nú. Línubátarnir fá ekki upp í
kostnað og afli netabátanna er
mjög misjafn, sem stafar af því,
að margir bátar hafa haft lje'leg
net. Nokkuð hefir það bætt úr, að
fiskurinn er óvenjulega stór og
lifrarmikill.
Ileildaraflinn í Eyjum var 15.
apríl s. 1. 3629 tonn (miðað við
þurfisk), en á sama tíma í fyrra
4829 tonn.
— Er ekki fjöldi aðkomumanna
í Eyjum nú eins og vant er á ver-
tíðinni f
Dagbók.
I.O.O.F. 1 = 118588V,=
jXÍ Helgafell 5936597—IV/V—2.
Veðrið (fimtud. kl. 17) : SA- og
S-átt um alt land, víðast hæg. Suð-
austanlands hefir rignt mikið í
dag, en lítíð annars staðar á land-
inu. Hiti er 4—9 st. austanlands,
annars 7—12 st. Lægð er yfir S-
Grænlandi en hæð yfir Norður-
löndum.
Veðurútlit í Rvík í dag: S-kaldi
Dálítil rigning öðru hvoru.
Þingannir Sig. Einarssonar. Til-
kynt var í útvarpinu í gærkvöldi,
að erindi það, sem Sig. Einarsson
átti þá að flytja, felli niður vegna
þinganna hans. Sig. Einarsson kom
ekki á fundi í Alþingi, eftir kl. 2
í gærdag og mætti heldur ekki á
nefndarfundum, en fundir stóðu í
þinginu fram á nótt. Fjárlögin
voru til umræðu og var forseti við
og við að gefa Sig. Einarssyni
orðið, en hann fanst hvergi.
Bálfarafjelag íslands heldur að-
alfund sinn í Kaupþingssalnum
næstkomandi föstudag. — Auk
venjulegra aðalfundarstarfa er á
dagskrá ýms önhur mál. Dr.
Gunnl. Claessen flytur og erindi á
fundinum um Bálstofu Reykjavík-
ur og sýndar verða nýgerðar
teikningar af Bálstofunni.
Mýgrútur af lögum fæðist nú
daglega á hinu háa Alþingi og er
mikið flausturverk þar á. Ýms þess
ara laga eru breytingar á lögum,
sem samþykt voru á haustþinginu
síðasta og er það ekki góður vitn-
isburðui' um lagasmíðina. Mörg
erú hin nýju Uig ný árás á einka-
framtakið og persónulegt frelsi
manna, en þetta eru aðalbjargráð
rauðu flokkanna. Ríkiseinokun er
komin á skólabækur. Nokkrir
stjórnargæðingar komast þar að
jötu. Jarðræktarlögin, með öllu
sem þeim fylgir verða sennilega
lögfest í dag .
Mar Pemberton var væntanlegur
af veiðum í gærkvöldi.
Nemendur Verslunarskólans, sem
útskrifuðust nú í vor halda fund
með sjer í skólahúsinu kl. 8% í
kvöld.
P. Dahl, fyrv. kirkjumálaráð-
herra Dana, er látinn, 67 ára. að
aldri.
Hjúskapux. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband af síra Garð-
ari Þorsteinssyni, ungfrú Katrín
Guðjónsdóttir frá Breiðdalsvík
og Helgi Sigurjónsson, Hverfis-
götu 45, Hafnarfirði.
Guðspekifjelagið. Lótusfundur
verður sameiginlegur hjá Reykja-
víkurstúkunum föstudag 8. maí,
sama stað og á sama tíma og
venjulega.
Ríkisstjórnin í Noregi hefir lagt
frarn tillögur til breytinga á lög-
jum um leyfi til þess að veita á-
fenga drykki. Samkvæmt tillögum
ríkisstjórnarinnar verður hinum
einstöku bæjar- og' sveitarfjelög-
um heimilað að ákveða, að undan-
genginni atkvæðagreiðslu, hvort
veita skuli leyfi til þess að selja
öl og vín, en samkvæmt gildandi
ákvæðum ná slíkar atkvæðagreiðsl
ur aðeins til sterkra drykkja.
(NRP—FB).
Alþingi verður slitið á morgun.
Á ísafirði hefir veðrátta verið
ágæt undanfarna daga, en afli
hefir verið mjög tregur.
Hjálpræðisherinn. í kvöld kl.
8y2 verðúr helgunarsamkoma. All-
ir velkomnir.
Eimskip. Gullfoss er í Kaup-
mannahöfn. Goðafoss var væntan-
legur til Hull í gær. Dettifoss er
á leið til Vestrnannaeyja frá Hull.
Brúarfoss er í Reykjavík. Lagar-
foss fór frá Fáskrúðsfirði í fyrra-
dag á leið til Leith. Selfoss er á
leið til íslands.
Leiksýning á „Síðasti víkingur-
inn“, sem halda átti í kvöld, fell-
ur niður vegna veikinda eins leik-
arans.
Ferðafjelag íslands efnir til
tveggja skemtiferða næstkomandi
sunnudag, ef veður leyfir. Önnur
ferðin er austur að Sogi. Verður
ekið að Ljósafossi og þar skýrir
Steingrímur Jónsson rafmagns-
stjóri frá fyrirkomulagi Bogsvirkj-
unarinnar, mesta mannvirkinu, sem
ráðist kefir verið í hjer á landi, Á
eftir verour gengið á Búrfell og
líklega ekið upp að Kaldárhöfða,
en þaðan er örskamt að Þingvalla-
vatni. Líka verður gengið frá
Ljósafossi niður nieð Soginu, að
Irafossi, Axarhólma og Kistufossi.
Hin ferðin verður farin suður og
til baka um Stórhöfðastíg til Hafn-
arfjarðar, en þaðan með bílum til
Reykjavíkur. Farmiðar fást í
Bókaversl. Sigf. Eymundssonar til
kl. A á laugardag.
Dagheimili ætlar „Sumargjöfin"
að starfrækja í Grænuborg og í
Stýrimannaskólanum í sumar.
Læknablaðið, 2. tbl. þessa ár-
gangs, er komið út. Efni ér m. a.
Takmörkun barneigna, eftir Guð-
mund Thoroddsen prófi.; Gæsla
kvartslampa eftir dr. med. Gunn-
laug Claessen; Ur útlendum lækna-
ritum o. m. fl.
„Því dæmist rjett vera“ heitir
bókarkorn, sem Vernharður Egg-
ertsson hefir ritað og kom á mark-
aðinn í gær. í bók þessaxi lýsir
Vernharður veru sinni í hegning-
arhúsinu hjer og' á Litla-Hrauni,
en aðallega er þó bókin lýsing á
æfintýrum, sem hann og Magnús
Gíslason meðfangi hans lentu
í er þeir struku frá Litla-Hrairni
s.l. sumar.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ,
afh. af Sn. Jónssyni, áheit frá ó-
nefndri konu í Skagafirði 5 kr.
Með þakklæti móttekið. Guðm.
Gunnlaugsson.
Er viðurkendur
mÁ Siesti.
Jú; svipað og undanfarið.
Það er móðins
að aka
í bifreiðum
frá ojkliur.
Bifreidastöð Islands
Sími 1540
(vær línur. —
Aðeins 1. fl.
vagnar
fyiiT sann-
gjarnt'Verð.
F. U. S. F: U. S.
Heimdallur.
Fundur á sunnudag kl. 4y2 síðd.
DAGSKRÁ:
Síman)ósnlrnar.
Nánar auglýst síðar.
Betanía, Laufásveg 13. Sauma-
fundur á morgun, fimtudag 7.
maí, kl. 4 síðdegis. Konur vel-
komnar.
Mæðrastyrksnefndin hefir upp-
lýsingaskrifsofu sína opna mánud.
og fimtud. kl. 8—10 e. h. í Þing-
holtsstræti 18, niðri.
Hestamannafjelagið „Fákur“
hefir fengið framlengda leigu á
beitarlöndum í Geldinganesi, Ár-
túni, og Breiðholti, sem fjelagið
hefir leigt undanfarin ár fyrir
800 krónur.Bæjarráð synjaði beiðni
fjelagsins um að lækka leiguna.
Sænskukensla sænska sendi-
kennarans er í háskólanum kl. 6
í kvöld.
Útvarpið:
Föstudagur 8. maí.
7.45 Morgunleikfimi.
8,00 íslenskukensla.
8.25 Þýskukensla.
10,00 Veðurfregnir.
12,00,. Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Þingfrjettir.
19.45 Frjettir.
20.15 Bækur og inenn (Vilhj. Þ.
(Gíslason).
20,30 Erindi: Um sænskan æsku-
lýð (Jónas Jónsson fimleika-
kennari).
20,55 Hljómplötur; íslensk lög.
21.15 Upplestur; Þýdd saga (Þór-
arinn Guðnason stud. med.).
21.25 Erindi: Enn um Henry Ford
(Ólafur Friðriksson, f. ritstjóri).
21,35 Hljómplötur: a) Lög við
íslenska texta; b) Danslög (til
kl. 22.3n\
öif Þór
fást aðeins h}á
Sigurþór.
FIX
sjöífvlrfct
þvottaefm
þvær íarað
yðar rneðan
þjer gofið og
hvílist. —
Hofum nú (illiúna
hina ni a ry' efir-
spurðu
ú$»f(»ppuðu
körfuslóla.