Morgunblaðið - 09.05.1936, Síða 5
Laugardaginn 9. maí 1936.
MORGUNBLAÐIÐ
5
250 ferðir til íslands.
í stórviðrum, hafís og
hernaðarógnum.
50 ár í siglingum.
T^EGAR íslandið kom hingað í fyrrakvöld, var
^ það í 250. skifti, sem Lydersen skipstjóri
kom hingað í þjónustu Sameinaða gufuskipaf je-
lagsins.
48 ár eru liðin síðan hann kom hingað í fyrsta
skifti.
Af erlendum farmönn-
um, þeim sem hjer hafa
siglt við land, mun Lyder-
sen vera einhver sá vinsæl-
asti meðal alls almennings,
hjálpfús og greiðvikinn og
maður við alþýðuskap.
Morgunblaðið hitti hann að
máli í gær í tilefni þessa far-
mannsafmælis. Bar ýmislegt á
góma um ferðir hans.
Honum fórust m. a. orð á
l>essa leið:
— Jeg er ættaður frá Læsö,
af farmannaætt. Forfeður mínir
hafa verið í íslandsferðum svo
lengi sem ætt mín er rakin. Áð-
ur en jeg fór til sjós, þóttist jeg
viss um, að þangað myndi og
leið mín liggja, enda heyrði jeg
margt um ísland í uppvexti
mínum.
Jeg fór að heiman í siglingar
26. apríl 1886, með tíu krónur
í farareyri. En tveim árum síðar
kom jeg í fyrsta sinn til íslands
á skipi Clausens kaupmanns í
Stykkishólmi, Svaninum. Það
var traust skip en fornfálegt,
bygt árið 1777.
Svanurinn var á fiskveiðum
um sumarið þangað til hann tók
haustvörurnar.
12 íslenskir fiskimenn voru á
vskipinu auk venjulegrar skips-
hafnar. Jeg var matsveinn.
Potturinn, sem jeg eldaði í, var
svo stór, að jeg þurfti að standa
uppi á eldavjelinni, ef jeg átti
að geta lyft honum einn míns
liðs.
Það gerði jeg ekki nema einu
sinni. Síðan kom altaf einhver
Islendinganna til að hjálpa
mjer. Þá lærði jeg að þekkja
lunderni íslendinga, hjálpfýsi
og fjelagslyndi. Síðan hefir sú
góða viðkynning aldrei brugðist
mjer.
Síðan árið 1902 hefi jeg altaf
komið einhverntíma á árinu til
íslands. Þá var jeg 1. stýrimað-
ur á Vestu.
En skipstjóri varð jeg 1911,
fyrst á ýmsum aukaskipum er
hingað komu frá Sameinaða.
— Mikil breyting hefir orðið
: á siglingum hjer við land síðan.
— Já, þá voru vitar á Reykja
nesi, Garðskaga, Gróttu og svo
við Seyðisfjörð.
Þá þurftum við að sigla eftir
ljósunum í íbúðarhúsum manna.
Margir settu upp ljós fyrir okk-
ur farmenpina. Popp kaupmað-
ur á Sauðárkróki ljet t. d. alt-
af loga stóran lampa á bak við
rautt gluggatjald, þegar hann
.átti von á okkur. Við þurftum
að vísu að vera komnir nokkuð
nálægt til að sjá ljósið hjá
Popp. En þetta var betra en
ekkert.
— Oft hafið þjer lent 1 mann-
raunum í sjóferðum hjer. Hverj
ar ferðir munið þjer verstar?
— Það var t. d. á Ceres á
Húnaflóa í október 1907. Við
vorum á Blönduósi er ofviðrið
skall á af norðri. Við urðum að
leggja út á flóann. Það tókst af
því hversu Ceres hafði sterka
vjel. Við höfðum 200 farþega
innanborðs. I tvo sólarhringa
velktumst við á flóanum og
altaf að því komnir að farast.
— Hve lengi voruð þjer á
Ceres?
— Þ. 18. júní 1917 kl. 7.33
að morgni rann upp sú skilnað-
arstund. Þá vorum við 180 sjó-
mílur vestur af írlandi á leið til
íslands. Þannig var siglinga-
leiðin fyrirskipuð þá. Tundur-
skeyti kom í skipið gegnum
vjelarrúmið • og drap þá tvo
menn sem þar voru. Þar sem
skotið kom út úr skipshliðinni
var gatið svo stórt, að leiða
hefði mátt hest í gegnum það.
Skipið sökk sjö mínútum
seinna. Þá var skipshöfn og far-
þegar komnir í bátana, 20 í
öðrum, 7 í hinum.
Við bundum bátana saman,
til þess að hafa samflot, undum
upp segl og sigldum til Hebrida-
eyja 180 mílur á 53 klukku-
stundum. Jeg sat við stýrið all-
an tímann og frk. Thora Frið-
riksson hallaði sjer upp að
hnjám mjer. Hún var farþegi,
svo og þeir feðgar Thor Jensen
og Richard Thors.
Er við nálguðumst vestustu
eyna var þar brim við lága
strönd. Fólk kom á móti okkur
og veifaði til að banda okkur
frá hinni hættulegu lendingu.
Við fundum lendingu bak við
höfða á eynni, og komumst
klakklaust í land. 'Jafnvel þeir
sem voru á sokkaleistunum voru
þurrir í fæturna.
— Skeytti kafbáturinn ekk-
ert um ykkur?
— Hann kom upp á yfirborðið
snöggvast. Fjórir menn komu á
þilfar. Þeir veifuðu til okkar í
kveðjuskyni. Það var það síð-
asta sem spurðist til þessa kaf-
báts. Hann kom aldrei fram.
— Og í hafíshrakningum haf-
ið þjer lent?
— Jeg held nú það. T. d.
vorið 1902. Þá komum við með
vörur til Norðurlands. Þetta var
í mars.
Lydersen skipstjóri.
Ekkert viðlit var að komast
til Norðurlands. Við urðum að
skipa vörunum upp í Hafnar-
firði. I júní vorum við komnir
með vörurnar til Skagafjarðar.
Við höfðum legið á Hófsós í
marga daga. Þar var dálítið ís-
laust lón.
Svo einn dag fór ísinn að
greiðast dálítið í sundur. Þá
sáum við jóreyk mikinn á veg-
inum suður með firðinum. Þar
voru komnir kaupmennirnir á
Sauðárkróki. Þeir komu um
borð og báðu okkur að reyna
að komast yfirum fjörðinn. Sú
sigling tók okkur sex tíma. En
þegar við lögðumst utarlega á
skipalegunni á Sauðárkróki
heyrðum við að mannfjöldi í
landi hrópaði margfalt húrra
til okkar. Þá var orðinn þar
vöruskortur mikill.
Lydersen skipstjóri kann frá
mörgu að segja frá ferðum sín-
um hjer við land, sem of langt
yrði upp að telja. Hann hefir,
sem fyr segir, í 50 ár verið á
sjónum. Og næsta ár nær hann
aldurshámarki skipstjóra.
— Þá er starfstími minn úti,
segir hann. Jeg hefi haft mikla
ánægju í starfinu, enda hefir
heilsan aldrei bilað, en óbilandi
heilsa er nauðsynleg fyrir far-
menn við íslandsströnd.
— Ekki veit jeg hvort mjer
sýndist rjett, en svo var að sjá,
sem hinn 50 ára farmaður hugs-
aði með lítilli ánægju til þess
að kveðja Island.
— Jeg skal segja yður, sagði
hann, að sá er munurinn á, að í
Danmörku á jeg vin og vin á
stangli. En þegar jeg er kominn
til Vestmannaeyja verð jeg alt-
af íslendingur, og þá finst mjerr
allir vera vinir mínir.
Gestur.
Á bæjarstjórnarfundi í fyrra-
kvökl tilkynti borgarstjóri að nú
mvndi á ný hefjast grjótnám í
grjótnámu bæjarins.
Nf bók:
Innijurtir
eftir
Óskar B. Vilhjálmsson,
garðyrkjufræðinR.
Þetta er bókin, sem íslenskar húsmæður hefir
lengi vantað; leiðbeiningar um hirðingu og meðferð
S'luRRablóma or innijurta. í bókinni eru 80 fallegar
myndir, eftir ljósmyndum frá konunglega Landbún-
aðarháskólanum í Kaupmannahöfn.
Fæst í öllum bókaverslunum.
Margfaldur hagnaOur 1
Með aukinni neyslu á MJÓLK, SKYRI og OSTUM •
sparið þjer kaup á erlendum vörum og aukið jafn- l
framt líkamlega og andlega hreysti yðar og barna •
yðar. — ÞESS VEGNA: l
Meiri MJÓLK — meira SKYR — meiri OSTA. •
Grimur Thomsen.
F. C. S. F. C. S.
Heiiiidallur.
Fundur á sunnudag kl. il/2 síðd.
DAGSKRÁ:
Sánianjésnirnar.
Náitar auglýst síðar.
Fyrtrlflggjandi:
Hrísgrjón frá Spáni í 50 kg. tvöf. pokum.
Hrísgrjón frá Hollandi, W.R.O.L., í 50 kg. pokum.
5ig. i?. 5kjalöberg.
(Heildsalan).
Laukur
og
Kartöflur.
Verslunin Vísir,
Fermingarúrin
nýjustu gerðir.
Ódýrust og best hj'i
Sigurþór.
Hafnarstræti 4.
Hvítkál.
Rauðkál.
Laukur,
• Kartöflur.
12 Appelsínur
1 króna.
Reyktur Rauðmagi.
Kæfa í 1. v. góð.
Sundmagi í gl.
G-affalbitar í gl.
. auuuöUL
Ódýrt!
Egg og
Bögglasmjör
og margskonar
annað góðgæti
á kvöldborðið.