Morgunblaðið - 15.05.1936, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 15.05.1936, Qupperneq 3
Föstudaginn 15. maí 1936. MORGUNBLAÐIÐ 3 Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins mótmæiir gerræði ríkisstjórnarinnar. _ - Harald Gtið- Enginn Sjðlfstæðismaflur i stjórn sfldarverksmiðjanna! Miðstjórn Sjálístœðis- fiokksins tilkynnir: Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins mótmælir harðlega J>ví þingræðisbroti, sem framið hefir verið með setningu bráðabirgðalaga um Síldar- vérksmiðjur ríkisins, og þeirri ósæmilegu aðferð, sem höfð hefir verið, til að koma þingkosnum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins út úr stjórn verk- smiðjanna. Jafnframt skorar miðstjórnin á alla Sjálf- stæðismenn að taka undir þau mótmæli, með því að neita þátttöku í stjórn Síldarverksmiðjanna. MIÐSTJÓRN SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS. Þingræðisbrotið. Eftir Ólaf Thors. Mjer þykir rjett að fyl'gja úr hlaði þessari yfirlýsingu Mið- atjórnar Sjálfstæðisflokksins með nokkrum athugasemdum. Það er í almæli, að virðingin fyrir Alþingi fari þverrandi. — Sumpart er þetta bein afleiðing þess vonleysis, sem löggjöf og stjórnarfar 9 undanfarinna ára hefir fært yfir hugi alls þorra þjóðarinnar, og skal sú hlið málsins eigi rakin hjer. En á hinn bóginn rekur þetta rætur sínar til hinna breyttu starfs- hátta Alþingis, sem teknir hafa verið upp undir forystu núver- andi ríkisstjórnar. Á þrem síðustu þingum, hefir afgreiðsla fjárlaganna verið þannig, að þingmeirihlutinn hefir á flokksfundum tekið fullnaðarákvörðun um hvern einasta lið fjárlaganna, og frá þeim samþyktum hefir ekki verið hvikað, þegar inn á þing- ið hefir komið. Margir hafa kunnað þessu illa, en þó má færa því nokkuð til gildis. Hitt hefir að vonum þótt verra, að venjan er orðin sú, að í flestum málum eru nær allar tillögur stjórnarandstæð- inga feldar. Hefir þetta hvað eftir annað komið fyrir, enda þótt sýnt væri með Ijósum rök- um, að orðalag einhverrar greinar eða einhverra frum- varpa stjórnarliðsins, næði ekki yfir þá hugsun, sem til grun- vallar lá fyrir frumvarpinu. Samfara þessu er það mjög títt, að lög eru samþykt, enda þótt vitað sje, að sá hluti þjóð- arinnar, sem sjerstaklega á við þau að búa, sje þeim algerlega andvígur, og án þess að því sje svo mikið sem haldið fram, að þau sjerstöku lög sjeu sett vegna þjóðarheildarinnar. — Glegst dæmi þessa á síðasta Alþingi, er breytingin á jarð- ræktarlögunum, ásamt meðferð inni á frumvarpinu um niður- fellingu Fiskimálanefndar. Af allri landbúnaðarlöggjöf síðari ára telja bænduf sjer tví- mælalaust mestan feng að jarð- ræktarlögunum, og af öllum fjelagsskap bænda í landinu, telja bændur að sjálfsögðu Búnaðarfjelag íslands mikil- verðast. Hin nýju jarðræktar- lög; gerbreyta hvorutveggja í senn, grundvelli jarðræktarlag- anna og byggingu og starfsemi Búnaðarfjelagsins. Að sjálf- sögðu var þess nú krafist á Al- þingi, að slík ákvörðun yrði ekki lögfest, nema hún áður væri fengin bændum landsins til umsagnar. En við það var ekki komandi, heldur voru lög- in knúð í gegn á örfáum dög- um, með öllu því harðfylgi, sem hin nýju þingsköp lögðu ríkis- stjórninni upp í hendurnar. Gg það sem verra er: til þess benda a. m. k. sterkar líkur, að þetta sje gert beinlínis vegna þess, að þingmeirihlutinn vissi að bændastjettin í landinu myndi rísa eindregið gegn því, að slík Iöggjöf yrði sett á. — Þetta skilst ef til vill best á því, að í aðalatriðunum eiga ákvæði laganna ekki að komast á fram kvæmd fyr en að tveim árum liðnum. Þá er og alkunn krafa út- vegsmanna um að leggja niður Fiskimálanefnd, en fela stjórn S. I. F. störf hennar, og færa þannig yfirstjórn fiskimálanna úr 17 mönnum niður í 10, og er hvorutveggja, að með þessu sparast beinlínis 60—70 þúsund VarpatS fyrir bortS. Stahremberg fursti, með foringjum úr Heirnwehrliðinu. Um alt land: Mótmæli gegn bráðabirgOalögunum. Ríkisútvarptð notað til blekkinga. Hvorki Hafsteinn Bergþórsson nje Sig. Kristjánsson í stjorn verksmiðjanna. Tl/T álgagn atvinnumálaráðherrans og Ríkisútvarpið birtu í fyrradag bráðabirgðalögin um Síldarverk- smiðjur ríkisins og skýrðu samtímis frá því, að hin nýja verksmiðjustjórn væri fullskipuð. Var þá skýrt frá því, að Sigurður Kristjánsson kon- súll á Siglufirði væri skipaður í stjórn verksmiðjanna og varamaður hans Hafsteinn Bergþórsson útgerðarmaður í Reykjavík. En báðir þessir mejm hafa neitað að taka þátt í stjórn verksmiðjanna. FRAMH. Á SJÖTTU ÍÐU. Hvaðanæfa að streyma nú mótmælin gegn gerræðinu og þingræðisbrotinu. Ríkisútvarpið. Miðstjórn S|jálfstæðisflokksins boðaði þá þingmenn flokksins, sem staddir em í bænum, á fund, þegar eftir að bráðabirgðalögin voru birt. Á þeim fundi tók flokkurinn þá ákvörðnn, er fram kemur í til- kynningu Miðstjórnarlinnar, sem birt er á öðrum stað í blaðinu. Þessa tilkynningu óskaði Mið- stjórnin að fá birta í útvarpintt á hádegi í gær og auðvitað gegn fullri greiðslu, en Ríkisútvarpið neitaði að lesa tilkynninguna! Þessi framkoma útvarpsins er því furðulegri, þar sem það hafði kvöldið áður lesið bráðabirgðalög- in, með hinum röngu forsendum o'g einnig skýrt rangt frá um skip- Un hinnar nýju verksmiðjustjórn- ar. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Landsdóm! Eindreginn fund- ur í Verði ut af þingræðisbroti stjórnarinnar. í andsmálafjelagið Vörðtu: ^ helt fund í gærkvöldi, þar sem formaður Sjálfstæð isflokksins, Ólafur TborS, hóf umræður um síðasta gerræði ríkisstjórnarinnar í síldarmálunum. íu - ; n Aðsókn var svo mikil að fQfLdr inum, að salurinn var þjettskipaðt ur, og stóðu fleiri, éna,fcátu:t á Ólafur rakti í ntnttú jaaálj ýnis afglöp núverandi stjórnarflokka- á Alþingi og hneykslanlogii'’imeðferð mála, sem mjög beinast í oinræð- iáátt. Færði haníá' í iJangri ; rök- studdri ræðn sönnur á að* setning bráðabirgðalaganna væri J>6 öllum þinghneykslum verri og alVaÁ legri. ’ ' 4-' -í •'S'SV Sveinn Benediktsson tók ti] máls óg ræddí aðaílega Úm'1 afstöðu stjórnarflokkánna, Vinkiitn Fráin- sóknar, til þess, hVéfnig sftdSi1- verksmiðjur ríkisi'ns grei$&! lájo- mönnum og útgerða'ftíiíjíiiítlhi'' ir síldina. Frahi^okn11 ^tfeKr* aftái ■ .f r- viljað greiða hluta' áf áæthinar- verðí, svo vefksmiðjústjðrni& hefði yfir ríflegu fje a,ð ráða. reglan hefír verið að hin loia$á verðuppbót á síldinni liefír aklrei fengist. En Sjálfstæðiámenn liáfá viljað a,ð verksmiðjan greiddi sem hæst verð og full greiðsla færi fr.am vio móttöku. , Sýndi hann frani á, hvefnig þessi ágreiningur yærj Undirrótin að, gerræði stjórnarí^rjar og 'jr’fir- ráðafrekju yfir verks^Li^unum. Magnús Jónsson rakti f allítar- legri ræðu, hverrpg núyerandi stjórnarflokkar grafa. smátt og smátt undan iý,ðþ|þði. lan^smanna, fara með lömhun ö|i.pf^ra' alt í einræðisátt., , ,, ^ Bjami Benediktssjpj talaði m. a. um hið alvarlegji^ýjStand,. sem nú ríkti í opinberu, jífi >ar og brýndi fyrir um hve þýðingarmikið, ,það yæri fyrir flokkinn og frayntíð ..þjþðarr innar, að flokkorin.n^^æfjy, sem órjúfandi heild í einþ|^ri> and- stöðu sinni við m'iverand}u ^jþrn- arflokka. Að lokinni ræðu Magnúsar Jóns- sonar var svohljóðandi tillaga;-þor- in fram: ,, (ll,,, a*ro „Út af hneyksli því, sem framió hefir verið af ríkisstjórpinni með mnr ísmonn ,t> i'J framh á sjöt^u síðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.