Morgunblaðið - 26.07.1936, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.07.1936, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudaginn 26. júlí 1936. VopnaburSur stjórnarblaðanna. ■T 7opnabnrður stjórnarblaðanna " hefír aldrei verið heiðarleg- nm mönnnm samboðinn. Bn þó liefir orðið þar breyting nú npp á síðkastið — til hins verra. Síðan samfylkingarhugmyndin náði festu, er sýnilegt að stjórnar- blöðin hafa ekki hugsað sjer að verða eftirbátar byltingamannanna 1 Kommúnistaflokknum um aví- virðilegan rithátt. Stjórnarblöðin telja sjer auðvitað skylt að halda uppi látlausum á- vásum á andstæðingana. Og af því nð ekki eru fyrir hendi raunveru- legar sakargiftir, sem hægt sje að finna nokkum stað, þá er gripið til hins að búa til sakargiftirnar. í þessum iðnaði er nú daglega háð sú kepni í stjómarblöðunum, iað hvergi mun vera hægt að benda á hliðstæðu í lýðfrjálsn landi. „Dauðinn og allsleysið“. T^að er öllum vitanlegt að helm- ingur íslensku þjóðarinnar •er í stjórnarandstöðu. En stjórnar- andstæðingar heita feinu nafni „í- haldið“ á máli stjórna'fblaðanna. Stjómarblöðin slá því föstu að þessi helmingur íslensku þjóðar- innar sje ekki einungis hættulegir menn vegna, stjórnmálaskoðana sinna, heldur sje þeir beinlínis upp til hópa landráðamenn og óþokkar. Gott dæmi þessarar baráttu er greinin „Hin eina von þeirra er Hauðinn og allsleysið“, sem nýlega hirtist í Alþýðublaðinu. Þar er talað um „von íhalds- manna ,um vaxandi vandræði manna, minkandi atvinnu og lok- aða markaði“. Hjer er því slegið föstu, að helm- ingur íslensku þjóðarinnar sje svo innrættur, að hann óski þess heitt og innilega að öll þjóðin svelti. fmyndunarafl, sem gerir svona uppgötvanir er borið uppi af sjúk- legri illgimi. Rógurinn hefir orðið að þeim lesti hjá þeim sem þannig rita, að þar er ekki batavon. Heimskan og illgirnin. "CJ,a slík skrif sem þetta eru vott- ur um annað og meira en sjúklega illgimi. Þau eru jafn- framt vottur um svo rótgróna og magnaða heimsku, að slíkt bull hefir aldrei verið borið á borð fyrir íslenska lesendur. Því segjum nú svo að helming- ur þjóðarinnar sjeu slík illmenni, sem stjómarblöðin vilja vera láta. Þá er þó hitt eftir, að koma mönn- um í skilning um, að þessir vondu menn vilji ekki að þeim vegni sjálfum vel. Eftir kenningu Al- þýðublaðsins liggur „íhaldsbónd- inn“ á bæn, og biður þess, að ekki spretti gras á jörðu. „íhaldsverka- uiaðurinn“ biður þess að hann fái -enga vinnu. „fhaldsútgerðarmaður- ínn“ að ekki komi bein úr sjó, og ullir markaðir lokist. Nú er það vitað að flestir at- vinnurekendur landsins eru í „í- haldinu". Það er ennfremur vitað hvað stjórnarblöðin eru viðkvæm fyrir því að lánstraust landsins Tými ekki erlendis. Ætli það styrki ekki lánstraustið, þegar sá úrskurð- ur er gefinn frá hæstu stöðum að atvinnurekendur landsins þrái ekk- «rt nema „dauðann og al'sleysið“? Fyrirlitningin á les- endunum. reinar eins og „dauðinn og allsleysið“ hafa auðvitað á- — Keykjavíhurbrjef — mmmmmmmmmmmmœmmmmmm 25. jÚlí. hrif. En þær hafa ekki tilætluð á- hrif. Þeim er ætlað að æsa lesend- urna gegn ákveðnum stjórnmála- flokki, en þær segja svo skýrt til um innræti þess, eða þeirra sem að slíkum samsetningi standa, að and- úðin snýst gegn þeim sjálfum. Því fer ákaflega fjarri að ís- lenskir verkamenn taki því yfirleitt með þökkum, að hálf þjóðin sje í þeirra nafni stimpluð sem land- ráðamenn og varmenni. Mörgum þeirra finst það hreip og bein móðg un að þeim sje ætlað að gleypa við rógsgreinunum alveg gagnrýni- laust. Þeir fá skömm á slíkum vopnaburði. Líkið í fararbroddi. rjettirnar frá Spáni eru býsna sundurleitar eins og skiljan- legt er, þegar þannig stendur á. Meðal þeirra fregna af einstökum atburðum, sem einna mestum hryllingi veldur, er sú, að upp- reisnarmenn hafi grafið upp lík fallins foringja síns og haft það í fararbroddi við árásina á Madrid. Þetta óviðfeldna athæfi er ekki með öllu óþekt. Og það má meira að segja finna hliðstæður þess í íslensku stjórnmálalífi, þótt ekki sje í bókstaflegum skilningi. Menn muna það víst, að árum saman var varla deilt svo á Tímamenn, að ekki kvæði við frá þeim, að þarna væri verið að ráðast á einhvern framliðinn flokksmann. Eftir að Tímamenn frjetta nú um aðferð spönsku uppreisnarmannanna, láta þeir sjer máske skiljast, hversu ógeðsleg sú bardagaaðferð er, að vera :altaf með lík í fararbroddi. Flugvjelar og fiskur. A nnað er það, sem menn festa hugann við úr spönsku borg- arastyrjöldinni, en það er að spánska stjórnin hefir snúið sjer til erlendrar þjóðar og beðið hana að leigja sjer flugvjelar til notk- unar heimafyrir. Þessari beiðni var að vísu synjað. En það þykir vott- ur um alveg óskaplegt öngþveiti spönsku stjórnarinnar, að hún skyldi snúa sjer til erlendrar þjóð- ar með slíka málaleitun. Aftur verður huganum hvarflað til íslensks stjórnmálalífs. Hefir það ekki gerst hjer, að ríkisstjórnin hefir snúið sjer til erlendrar þjóðar um leigu á flugvjel? Jú, og ís- lenska stjórnin hefir meira að segja lýst því yfir að engin skyn- samleg ástæða væri til að amast við þessu. í tíð núverandi stjórnar hafa Spánverjar nálega hætt að eta ís- lenskan fisk. En gott er til þess ast á banaspjótum í föðurlandi sínu, hafa eitthvað til okkar að sækja. Stjórnarflokkarnir okkar geta miklast af því, að fordæmi þeirra eru að verða fitflutnings- vara. Danska flugvjelin. n úr því minst var á flugvjel- ar, mætti kanske spyrja: Hvað líður dönsku flugvjelinni? Menn hafa daglega verið að búast við því, að sjá Dannebrog svífa úr lofti, alveg eins og í orustunni forðum. En ekki hefir sjest neitt til fánans, og ekkert h.efir heyrst í mótorunum. Það skyldi þó ekki hafa gengið illa að starta þegar til kom, saggi í pakningunni eða slcrúfan laus? Eða kannske Stauning hafi kom- ist að þeirri niðurstöðu, að best væri upp á samkomulagið við „Lille Söster“, að vera ekkert að blanda sjer frekar í landhelgis- varnir hennar. Það er jafnvel ekki útilokað að Stauning hafi litið svo á að það mundi ekki lengja pólitískt líf flokksbræðranna á íslandi, þótt þeim tækist að koma flugvjela- planinu í framkvæmd. Hann er svo gamall sem á grönum má sjá, og skilur fyr en skellur í tönnum. Slær í baksegl. að er ekki langt síðan stjórn- arblöðin skömmuðust yfir því dag eftir dag að Morgimblaðið skyldi leyfa sjer iað birta fregn eftir danska Extrablaðinu. Lýstu þau blaði þessu mörgum og ekki fögrum orðum, „mesta sorpblað Kaupmannahafnar“. Þótti þetta að vísu grálega mælt, því blaðið styð- ur dönska stjórnina, sem íslensku stjórnarflokkarnir elska næst sjálf- um sjer. En svo skeður það, að enska stórblaðið „Daily Mail“ flytur fregn um að til samkomulags dragi með þeim Stalin og Trotsky. Dag- inn eftir mótmælir Extrablaðið þess ari fregn og Alþýðublaðið birtir mótmælin, afar kampakátt yfir heimildinni. Það var dálítið spaugilegt að sjá Extrablaðinu umsvifalaust sleg- ið föstu sem betri heimild en „Daily Mail“, eftir það sem undan var gengið. „Ómerkileg sorpblöð“ ættu ekki að þenja sig mikið yfir „ómerki- legum sorpblöðum“. Þá vill fljót- lega „slá í baksegl“, og þykir þá illa siglt. „Mislingar og rauðir , hundar“. r brjefi af Austurlandi 2. júlí: „Þingmenn stjórnarinnar sveima um sveitir Austurlands eins og mislingarnir, en eru líklega ekki eins illa þokkaðir af öllum. Þó er mörgum jafn illa við rauðu hund- ana sem mislinga. Á fundi í Fellunum mættu 11 menn hjá Pálunum, en í Fljótsdal hafði enginn komið á fundarstað- inn og enginn fundur orðið. Ann- að hvort hefir mislingahræðslan aftrað fundarmönnum eða þá „að fuglarnir eru farnir að dríta í svo fúlt er orðið“. Framfarir. að kemur stundum fyrir að stjórnarflokkarnir tala um að í þeirra hóp sjeu helstu framfara- menn þjóðarinnar og framfarirnar sem orðið hafa í landinu sjeu runn- ar undan rifjum þeirra. Þetta er ein af trúarsetningum rauðliða, sem almúganum er ætlað að festa sjer í minni — þó „bölv- aðar staðreyndirnar“ tali alt öðru máli. Yígorð Framsóknarmanna var hjer á árum áður, „alhliða viðreisn sveitanna“. En síðan vonir bænda hjöðnuðu niður um að „hin alhliða viðreisn“ nokkurntíma yrði frá hendi Framsóknar annað en vax- andi skuldir og vandræði, vax- andi flótti úr sveitunum, þá hefir minna borið á, að Framsóknar- broddar eins og Gísli sá, sem kend- ur er við hrossakjöt, Jörundur bú- lausi og kommíinistinn Eysteinn, nefni alhliða viðreisnina á nafn. Og ef talað er um framfarir í kaupstöðum, þá treysta sósíalistar þeir, sem nokkra dómgreind hafa, sjer naumast til að hampa fjár- málastjórninni í „ríki hinna gulu seðla“ í Hafnarfirði, eða skulda- skilaútgerð Finns Jónssonar á Isa- firði, þar sem allir fóm með skarð- an hlut frá borði, nema sjálfur höfuðpaurinn, sjómenn urðu að gefa áf kaupi sínu, en mest tapið lenti á bæjarsjóðnum. Sveitirnar. n svo vikið sje aftur að sveit- unum. Það leikur ekki á tveim tungum, að framfarir þær sem orðið hafa í íslenskum sveitum undanfarin 12 ár byggjast fyrst og fremst á Jarðræktarlögunum. Með Jarðræktarlögunum fyrstu var stefnan ákveðin í framfaramálum sveitanna. Leggja skyldi megin- áherslu á túnræktina. Á henni skyldi byggja í framtíðinni. Og þar sem varanleg ræktun jarðar er undirstaða þjóðar-velmegunar, var ákveðið að ríkissjóður legðið fram lítinn hluta af,ræktunarkostnaði t. d. sem svaraði einni krónu fyrir dagsverk sem unnið væri að þess- ari undirstöðu. Af þessu hafa framfarir sveit- anna sprottið. Þetta sjá allir og viðurkenna. Og að þessari undirstöðu fram- faranna unnu hvorki sósíalistar nje Framsóknarmenn. En aftur á móti hafa þessir tveir flokkar Alþýðu- og Fram- eóknarflokkurinn sameinast prýði- lega um það, að ráðast á þessa undirstöðu framfaranna í sveitun- um, Jarðræktarlögin, með því að gera á þeim hinar ósvífnu breyt- ingar, er síðasta þing gerði. Nú má ríkissjóður ekki lengur veita styrk til jarðræktarinnar nema að bændur láti af hendi jarð- eign sína uppí styrkinn. Þannig hafá þessir flokkar, sem þykjast unna framförum sveit- anna sameinað krafta sína til þess að stöðva eðlilegar jarðræktar- framfarir í sveitum landsins. Lýðræðisflokkarnir. essir tveir flokkar kalla sig stundum lýðræðisflokka. Nafn þetta á að vera einskonar skraut- fjöður í hatti þeirra. En hvernig er framkvæmdin. Síðasta dæmið er bráðabirgða- lögin um leigunám mjólkurstöðv- arinnar, sem samvinnubændur í nágrenni Reykjavíkur eiga. Fáeinir menn sem hafa haft not af mjólkurstöð þessari, vilja fá af- not þessi án þess að greiða sann- virði fyrir. Eigendur stöðvar- innar vilja ekki sætta sig við, að utanfjelagsmenn skuli vera rjett- hærri um afnot stöðvarinnar. Um alt land eru starfrækt sam- vinnufyrirtæki, þar sem fjelags- menn einir hafa aðgang að afnot- um. Tökum t. d. sláturhúsin. Hugs- um okkur sláturhús, sem 200 sam- vinnbændur eiga. 10 utanfjelags- menn fá að nota húsið. Þeir taka sig síðan saman um að vilja ekki greiða sannvirði fyrir afnot húsa: og áhalda. Hvað gera „lýðræðisflokkarnir“ í slíku tilfelli, ef þeir fara eins að ráði sínu, eins og með mjólkurstöð Mjólkursambands Kjalarnessþings. Þeir gefa út bráðabirgðalög og taka húsið af þessum 200 eigend- um, svo þeir 10 fái afnot af því eins og þeim sýnist. Það eru lýðræðissinnaðir menn, eða hitt þó heldur, sem þannig | haga sjer! Áskorun. Hjer með er skorað á alla þá, sem ekki hafa enn greitt Sjúkrasamlagi Reykjavíkur iðgjöld sín fyrir júlímánuð, svo og þá, sem skyldir eru að leggja fram iðgjöld fyrir aðra samkvæmt tryggingalögunum, að greiða þessi iðgjöld nú þegar á skrifstofu Sjúkrasamlagsins, Austurstræti 10. Reykjavík, 25. júlí 1936. Stjórn Sjúkrasamlags Reykjavíkur. að vita, að flokkarnir sem nú ber- ! hreiður sín'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.