Morgunblaðið - 26.09.1936, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.09.1936, Blaðsíða 2
2 MCJKGUJS’ JiLAÐLÐ Laugardagur 26. sept. 1936. Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Rltstjórar: J6n Kjartansson og Valtýr Stéfánsson — áby rgSarmatSur. Rltstjórn og afgreiSsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Auglýsingastjðri: E. Hafberg. Auglýsingaskrif stof a: Austurstræti 17.— Sími 3700. Heimaslmar: J6n Kjartansson, nr. 3712 Valtýr Stefánsson, nr. 4220. Árni Óla, nr. ,3045. B. Hafberg, fir. 3770. Áskriftagjald: kr. 3.00 á mánuBi. í lausasölu: 15 aura eintakið. 25 aura meS Resbók. Dauðatrú Alþýðublaðsins. Síldinni er daglega mokað upp í þúsundum tunna hjer við Faxaflóa. En það eru fleiri en aumingja sí'ldin sem láta á- netjast, þessa dagana. Alþýðu- blaðið hefir í umræðum þeim, sem orðið hafa um þessar síld- veiðar komíst í þá flækju, að ekki virðist undankomu auðið. í gær kemst blaðið að þeirri niðurstöðu, að það Sje ekki Finnur, heldur ,,íhaldið“, sem ráðið hafi hve mikið var selt af síld til Rússlands! Og ann- f ’■ að, sem það lætur frá sjer fara er ekki vitúrlegra, nema síður sje. Blaðið kemst svo að orði: ,,Um 60—70 bátar stunda veiðar við Flóann í reknet. Afli undanfarið, bendir til, að á skömmum tíma mætti veiða og salta — ekki 1 tug þús. tunna, — heldur mörg þúsund tunn- ur. Hver vildi svo æskja, að kalla yfir fiskimennina, fólkið í landi, lánstofnanir, þær hörm- ungar fjárhagslega, sem af því leiddi. Enginn, nema Morgun- blaðið“. Já, mikill þjóðar-voði er hjer á ferðinni! Faxaflói er fullur af síld, dag lega mokað upp þúsundum tunna! Ógnin, sem felst í þessum upphrópunum Alþýðublaðsins, er því líkust, sem hjer væri verið að SQgja frá einhverjum voðalegum vágesti, sem öslaði að landi, skiljandi eftir sig dauða og tortímingu. Matthías var ekki kvíðnari, þegar hann ávarpaði hafísinn: „Ertu kominn, landsins forni fjandi“ — heldur en Alþýðu- blaðið er nú yfir ágangi þess- arar glitrandi sjávarskepnu. Já, mikil ósköp væri til þess að vitaA ef sjómenn}rnir hjeldu áfram að moka upp síldinni! Það yrði líklega hallæri pm alt. land! , , j Hvaða trú er það, sem lýs- ir sjer í þessum kveinstöfum Alþýðublaðsins? c Er- það trúin á' sjómn vjð strendur .lands- ins, sem áframha 1 dandirbjarg- ræði íslensku þjóðarinnar! Nei, það er alt' önnur trú. Trú, sem Alþýðublaðið húfir lengi boðað — trúin á „dauð- ánn Qg . allsleýsið"! En þótt Alþýðublaðið telji erfiðleika á, því' að fá mark- að fyrir Faxaflóa síldina, mun því þó reynast ennþá erfjðara að fá markað fyrir dauðakenn- 'ingar sínar í íslenskum at- vinnumálum. SOKN HAFIN A BILBAO. V ------ Uppreisnarmenn verjast enn i Alcazar-víginu. KAUPMANNAHÖFN f GÆR. FRÁ FRJETTARITARA MORGUNBLAÐSINS. FRESTUR sá, er uppreisnarmenn höfðu gefið íbúunum í Bilbao og Santander til þess að gefast upp, var útrunninn í nótt sem leið. Höfðu borgirnar þá ekki viljað gefast upp. Uppreisnarmenn hafa nú umkringt Bilbao að miklu leyti. Sendu þeir í gærkvöldi seinustu á- skoranir sínar til borganna um það, að gefast upp, í gegn um útvarpið. Ella hótuðu þeir því, að hefja sókn þegar með morgni. I F.Ú. skeyti segir að skömmu eftir kl. 1 um nóttina hafi uppreisnarmenn farið að hreyfa sig í áttina til Bilbao og sæki nú að borginni bæði að austan og sunnar. flin Irækilega vörn Italir koma ekki til Genf. Mussolini ætlar fyrst að leggja alla Abyssiníu undir sig. Alcazarvígið. Þennan turn hafa u ppreisnarmenn enn á sínu valdi. KAUPMANNAHÖFN I GÆR. FRÁ FRJETTARITARA MORGUNBLAÐSINS. ERLENDIR blaðamenn, sem hafa komið til Aicazar-vígisins, þar á meðal frjettaritari Reuters frjettastofu, segja að það sje ekki satt, sem stjórnin í Madrid tilkynti í gær, að vígið væri fallið. Stjórnarherinn hefir aðeins náð nokkrum hluta af því, en uppreisnarmenn hafa enn í sínu valdi mestan hluta þess. Hafast þeir við í neðan- jarðarhvelfingum, og halda uppi látlausri orustu við stjórnarherinn. En her uppreisnarmanna nálgast nú Toledo. Enska blaðið „Daily Telegraph“ hyggur þó að sókn upp- reisnarmanna hafi stöðvast fyrir undarlegt örþrifaráö, sem stjórnin greip til, til þess að 'hefta sóknina að Toledo og Madrid. Ljet hún brjóta stíflur í Alberché-fljótinu, en við það ruddust tíu miljónir teningsmetl'a af vatni niður dalinn og skall flóð- bylgjan yfir hjeraðið austan við Toledo. Virðist svo sem hun hafl eiriangrað fremsta sóknáilið uppreisnarmanna 'hjá” borg- mm. I F.Ú. skeytum segir að stjórnarherinn hafi náð nokkr- úm mikilsverðum hlutum Al- cazar-kastala. Til dæmis hafí þeir á sínu valdi rústirnar af eldhúsinu, borðstofurnar, mat- arbúrið í kjallaranum og vatns- geymsluna. Ef uppreisnarmenn hefði ekki tapað þessum hlut- um vígisins, gæti þeir varist lengi ennþá. Uppreisnarmenh sækja úú til Toledo að vestan og norðán. I gær voru þeir sagðir 10 mílur frá borginni, eh í dag er sagt að nokkur hluti hers þeirra sje kominn fast að borginni, og ,muni verða kominn inn í hana áður en dagurinn er á enda. Þetta er samkvæmt frjettum frá uppreisnarmönnum, en frá stjórninni hafa engar frjettir borist þessu til staðfestingar, eða hnekkis. KBH. I GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLADSINS. 'T'IMES segir að Italir muni tæplega segja sig úr Þjóðabandalag- inu, en sennilega muni þeir hvorki taka þátt í fundum í Genf nje Lo- carnofundi fyr en Abysj siníumálið sje til lykta leitt á þann hátt, sem ítalir vilja. Það ganga þær fregn- ir, að Mussolini hafi gef- ið Graziani hershöfð- ingja skipun um það, að leggja sem fyrst undir sig þaðj sem eftir er af Abyssiniu, sjerstaklega ivesturhluta landsins, þar sem hin sjálfstæða stjórn í Gore fer nú með völd. Er búist við því, að það muni taka 6 mánuði. Reynt að blíðka Itali. London í gær F.tí. Þjóðabandalagsþingið kom saman á fund í gærkvöldi, og voru sex varaforsetar kosnir. Venjulega eru þeir kosnir sem nafngreindir menn, en frá því var vikið í þetta skifti, og var kosið um þá, sem fulltrúa ríkj- anna. Þetta var gert til þess, að unt væri að kjósa fulltrúa Ital- íu. Kosningu hlutu fulltrúar: Frakklands með 49 atkvæðum, Stóra-Bretlands með 47 at- kvæðum, Júgó-Slavíu með 44 atkvæðum, Canada með 39 at- kvæðum, Sovjet-Rússlands með 36 atkvæðum og Ítalíu með 32 atkvæðum. Á þennan hátt er Þjóða- bandalagsþingið að gefa Ítalíu í skyn, að tilgangurinn með því að leyfa abyssinsku fulltrúun- um setu á þingi hafi ekki ver- ið sá, að móðga Italíu. Abyssiniukeisari kom til baka til Englands í dag. Á meðal þeirra, er voru í för með honum, var Ras Desta. sjer að nota þessa samkomu Þjóðabandalagsins til að koma á Vestur-Evrópu sáttmála með þátttöku Þjóðverja og ítala, eh með atkvæðagreiðslunni hafi Italía verið útilokuð frá þátt- töku í starfi Þjóðabandalagsins að þessu sinni og Vestur-Evrópu sáttmálinn þar með að engu gerður. Journal (franskt) skellir skuldinni af eftirlátsseminni við Abyssiniu á Litvinofí, fulltrúa Rússa, og kveður hann hafa veitt Þjóðabandalaginu rýt- ingsstungu með afstöðu sinni. Kveður blaðið ákvörðunina móðgun við Itali. Daily Mail (enskt) segir að Þjóðabandalagið hafi í gær framið einhverja þá mestu! skyssu, er það hafi nokkuru sinni hent. Itölsku blöðin tala um „Mesta þorparabragð Þjóðabandalags- ins“ og „Brúðuleikhúsið í Genf“ o. s. frv. Franski blaðamaðurinn Par- tinex segir í grein um málið, að með þessum úrslitum sje álit Frakklands og Englands kom- ið niður að lágmarki (F.Ú.). in harðorð. Figaro (franskt) segir að Bretar og Frákkár hafi ætlað Vænlegri horfur f Kina. London 25. sept. F.U. Ástandið í Shanghai er nú ekki talið eins alverlegt í dag og það var í gær. Japanska her- stjórnin hefir dregið til baka meginið af því herliði, sem hún hafði sett þar á land, og halda nú japanskir sjóliðar aðeins vörð um það svæði, þar sem Japaninn var myrtur á dögun- um. Japanska stjórnin hefir sent Nanking stjórnínni mót- mælaskjal, og óskað þess, að stjórnin ábyrgist, að slíkir at- burðir endurtaki sig ekki. Full-Í' trúi í utanríkismálaráðuneytinu hefir neitað því algerlega áð samkomulagsumleitanir milli japönsku og kínversku stjórn- arinnar hafi farið út um þúfur, og utanríkisráðherra Japana hefir fullvissað breska sendí- herrann, Sir Robert Clive, um: það, að japanska stjórnih Pí efði alls ekki í hyggju að grípa til neinna örþrifaráða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.