Morgunblaðið - 01.10.1936, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 1. október 1936.
Stldarvitvegsnefnd staðfestir skrif
Morgnnblaðsins um Faxasíldina.
Leyfir §oUun á um 14 þúsund tunnum.
Sölumöguleikar i Þýskalandi,
Amerfku og Svfþjóð!
Hvað verður úr „hörm-
ungum“ Alþýðublaðsins ?
„Þ
AR sem ekki hefir verið fyltur matjes-
síldarkvóti til Þýskalands, eru líkur til
að eitthvað megi selja á þann markað
af ljettsaltaðri Faxasíld til reykingar“.
„Ennfremur má vera að selja megi lítið eitt
af svilfullri Faxasíld til Ameríku og sömuleiðis
er nú þegar gerður samningur um sölu á 2000
tunnum af ljettsaltaðri síld til Svíþjóðar“.
Þannig hljóðar upphaf
tilkynningar þeirrar frá
Síldarútvegsnefnd, sem
birtist hjer í blaðinu í
dag.
Og með tilliti til þessara sölu-
möguleika á Faxasíld, sem Síld
arútvegsnefnd hefir nú alt í
einu komið auga á, leyfir
nefndin söltun frá 150—225 tn.
á bát, eða sam.tals um 14 þús.
tunnum.
Þessi tíðindi munu gleðja
þann fjölmenna hóp sjómanna
og verkamanna, sem atvinnu
liafa við síldveiðarnar hjer við
Faxaflóa.
Meðan Síldarútvegsnefnd sat
norður á Siglufirði heyrðist
aldrei annað frá henni, viðvíkj-
andi Faxasíldinni en aðvörunin
fræga, til útgerðarmanna, að
salta ekki síldina. En það var
i raun og veru sama og að
banna mönnum að veiða síld
nema ísaða á Þýskalandsmark-
aðinn.
En útgerðarmenn undu þessu
illa og kröfðust þess, að Síld-
arútvegsnefnd kæmi hingað
suður til skrafs og ráðagerða.
Það varð úr, að nefndin kom
suður og hafa útgerðarmenn
setið á ráðstefnu með nefnd-
inni síðan.
Árangurinn af þessum sam-
tölum varð sá, sem að framan
.greinir, að nefndin hefir nú
leyft söltun á nál. 14 þúsund
tunnum Faxasíldar.
Sá stóri galli er þó hjer á
gjöf Njarðar, að Síldarútvegs-
nefnd heimtar að hafa sjálf
með höndum sölu á allri mat-
jesverkaðri síld, en það er ein-
mitt þessi tegund síldar, sem
mestir möguleikar eru fyrir, að
því er snertir Faxasíldina.
En þess verður að vænta, að
enda þótt nefndin taki einka-
sölu á þessari síld, leyfi hún
útgerðarmönnum að útvega
kauptilboð í síldina.
Einnig verður að krefjast
^þess af nefndinni, að hún, eða
menn úr henni verði hjer altaf
!til staðar, til þess að líta eftir
! verkun síldarinnar og taka á
móti kauptilboðum.
*
Morgunblaðið fagnar því, að
þetta hefir þá unnist í þessu
umþráttaða Faxasíldarmáli.
Atvinna þeirra 800—1000
manna, sem vinna við síld-
veiðarnar hefir verið trygð.
En hvað segir Alþýðublaðið
nú?, Á dögunum sagði þetta
!,,málgagn hinna vinnandi
stjetta":
„Allir, sem hugsa um þessi
mál af dálítilli skynsemi hljöta
að sjá, að það nær ekki nokk-
urri átt, að leyfa söltun hjer
á Faxasíld".
Og Alþýðublaðið sagði meira.
Það sagði að söltun Faxasíldar
mundi „kalla f járhagslegar
hörmungar y fir fiskimennina,
fólkið í landi og lánstofnan-
irnar“!!
Alþýðublaðið var einnig á
dögunum að fjandskapast við
útgerðarmenn fyrir það, að þeir
skyldu salta síld í óleyfi Síldar-
útvegsnefndar.
Þessi söltun fór fram vegna
þess, að útgerðarmenn höfðu
ákveðið kauptilboð í síldina frá
Svíþjóð, en Síldarútvegsnefnd
vildi ekki samþykkja, enda þótt
verðið væri sæmilegt.
| En nú hefir síldarútvegs-
nefnd loks sjeð sig til knúða
að samþykkja tilboðið. Og nú
er síldin fyrirliggjandi í tunn-
unum á landi.
Fjandskapur Alþýðublaðsins
í garð verkalýðsins hefir enn
ný verið afhjúpaður. Blaðsnep-
úllinn ætti því að fara að
skammast sín og hætta að telja
|sig málgagn „hinna vin„andi
stjetta“ í landinu.
Fulltrúar Norðurlanda í Genf, utanríkismálaráðherrar Dana, Munch, Svía, Sandler, Norð-
manna, Koht, og Finna, Wicksell. Myndin er tekin síðastl. vor.
Tilkynning frá Síldarútvegsnefnd.
Þar sem ekki hefir verið fyltur Matjessíldarkvóti til Þýskalands, eru líkur
til að eitthvað megi selja á þann markað af ljettsaltaðri Faxasíld til reykingar. Enn
fremur má vera, að selja megi lítið eitt af svilfullri Faxasíld til Ameríku og sömu-
leiðis er nú þegar gerður samningur um sölu á 2000 tunnum af ljettsaltaðri síld til
Svíþjóðar.
Með tilliti til þessa hefir Síldarútvegsnefnd ákveðið að veita reknetabátum,
er veiðar stunda sunnanlands, veiðileyfi til söltunar sem hjer segir:
a) 225 tunnur á hvern bát, sem veitt hefir í Rússasölu 200 tunnur eða meira.
b) 150 tunnur fyrir aðra báta.
Síld sú, sem söltuð kann a$ hafa verið utan Rússasamnings, áður en veiði-
leyfi þetta er gefið, dregst frá framangreindu söltunarleyfi.
Ekki verður leyfður útflutningur á síld nema hún sje seld eigi lægra en með
eftirfarandi lágmarksverði, frítt um borð:
Saltsíld venjuleg
— magadregin
. — hausskorin og slógdregin
— hausskorin og’ slægð
Kryddsíld kverkuð
— hausskorin
— hreinsuð
Flökuð síld
Óverkuð saltsíld (rundsaltað)
kr. 21.00
— 22.75
— 26.50
— 29.00
— 28.00
— 30.00
— 32.00
Útflutningur á síld í umboðssölu verður alls eigi leyfður.
41.00
19.00
Sala á skoskverkaðri (matjesverkaðri) síld fer fram fyrir milligöneru Síldar-
útveersnefndar.
Um leið og síldarútflytjandi sækir um útflutningsleyfi verður hann að gefa
upp af hvaða bátum síldin hefir verið söltuð.
Vegna óseldra síldarbirgða, sem liggja hjer í landi, og mikils framboðs á
síld annarsstaðar frá, vill nefndin enn á ný vara síldarsaltendur við að salta síld
nema þeir hafi trygga sölu fyrir hana.
Hvað viðkemur sölu á skoskverkaðri síld, getur nefndin að sjálfsögðu enga
ábyrgð tekið á, hve mikið verði hægt að selja af henni.
Nefndin vill brýna fyrir mönnum að vanda verkun og aðR'reiningu síldarinn-
ar sem best, þar sem búast má við, að ekki sje unt að selja hana að öðrum kosti,
og ber hver saltandi fulla ábyrgð á sinni framleiðslu.
Síldarútvegsnefnd.