Morgunblaðið - 03.10.1936, Page 6
G
MOEGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 3. október 1936
Áhrif skátahreifingar-
innar á uppeldismál.
fllit D. Scti. Thorsteinsson
og Steingrfms Arasonar.
SKÁTAFJELÖGIN ætla að selja merki á götum bæjarins
á morgun til ágóða fyrir f jelagsskap sinn. Skátaf jelags-
skapurinn er sá æskulýðsfjelagsskapur, sem hlotið hefir einna
mesta útbreiðslu um allan heim síðan skömmu eftir aldamót, er
Sir Baden-Powell stofnaði fyrstu skátasveitina.
I öllum löndum, þar sem skátafjelagsskapur hefir vérið
stofnaður, hefir hann hlotið vinsældir og haft góð áhrif á upp-
eldismál þjóðanna.
I tilefni af merkjasölu skáta
hefir Morgunbl. snúið sjer til
tveggja merkra manha, sem
þekkja skátahreifinguna af eig-
in reynd og beðið þá að láta
álit sitt í ljósi um fjelagsskap-
inn og tilgang hans. Davíð Sch.
Thorsteinsson læknir, sem frá
fyrstu héfir verið ötull stuðn-
ingsmaður skátafjelagsskapar-
ins segir:
„VERTU VIÐBÚINN“.
„Tilgangur skátahreyfingar-
innar er að fá unglinga til að
temja sjer ýmislegt verklegt,
sem síðar geti komið þeim að
haldi til þess að geta orðið að
góðum og duglegum borgurum
í mannfjelaginu. Einkum er'
lögð stuiyi á að vekja hjá þeim
sjálfbjargarviðleitni og ábsrrgð-
artilfinningu, skyldurækni, lög-
hlýðrii, starfsfýsi, sannleiksást,
orðheldni, hjálpfýsi við þá sem
eru minni máttar. Þeim er og
innrætt að vera dýravinir, í
stuttu máli: Kristilegt siðgæði.
Kjörorð þeirra er: Vertu
viðbúinn (til að verða að liði
hvar sem þú getur).
j^yrir tæpum 30 árum kom
út fyrsta skátabókin. Höfundur
hennar var hinn heimsfrægi
Baden-Powell, faðir skátahreif-
ingarinnar, en SÚ hreifing
breiddist brátt út um allan
heim og þykir hvarvetna hið
ágætasta uppeldismeðal fyrir
æskulýðinn í öllum löndum.
Skátar temja sjer meðal ann-
ars ferðalög, ratvísi, eftir
landabrjefum, útilegur, mat-
reiðslu o. m. fl.
Lítilsháttar læra þeir líka
svokallaða „hjálp í viðlögum“,
þ. e. að veita hina nauðsynleg-
ustu hjálp þegar slys ber að
höndum, og er mjer sönn á-
nægja að votta er mjer er per-
sónulega kunnugt um að sú
hjálp þeirra hefir oft orðið að
liði, og að það fer í vöxt að
þeirra sje leitað í þessu skyni.
Þá er og ánægjulegt að sjá
að skátar eru æ aftur og aftur
kallaðir til þess að hjálpa til
að halda uppi reglu þar sem
margt fólk er saman komið, og
að þeim fer það jafnan vel úr
hendi, jafnvel að dómi útlend-
inga, og er skemst á að minn-
ast aðstoð þeirra og alla fram-
komu við hina nýafstöðnu sorg-
arathöfn hjer í feæ.
iJeg óska að skátahreifingin
megi þróast og þrífast sem allra
best hjer á landi, því að hjer
er hennar ekki hvað síst þörf!
D. Sch. Thorsteinsson.
„BÆTT ÞAÐ, SEM AFLAGA
FER“.
Steingrímur Arason kennari,
segir svo um áhrif skátahreif-
ingarinnar á uppeldismál þjóð-
arinnar:
— Skátahreifingin bætir upp
þá galla, sem eru á skólaupp-
eldinu, bóknáminu og kyrsetun-
um.Skátahreifingin kennir ung-
lingunum að starfa með hend-
inni og hjartanu ef svo mætti
að orði komast. Skátar læra að
starfa að settu marki og læra
að því leyti til að haga störfum
sínum eins og fullorðnir menn.
Skátum er kend hjálpfýsi gagn-
vart dýrum og mönnum og
læra þeir til þess margvísleg
störf. Þó að svo kunni að fara
að skátarnir fái ekki beinlínis
þörf fyrir alt, sem þeir temja
sjer og læra í fjelagsskap sín-
um, hefir starfið þroskandi
áhrif á unga fólkið, sem lær-
dómsins nýtur.
Alt starf skátanna miðar að
því að bæta það, sem aflaga
fer, þess vegna er skátahreif-
ingin nauðsynleg þjóðfjelaginu.
Nýtt grænmeti.
Harðfiskur
Riklingur
Sardínur
Rækjur
Gaffalbitar
Ostar
Ósætt kex
Maggi og Knorr Súpur.
fæst í
Haustmarkaður
K. F. U. M.
í gær byrjaði K. F. U. M. sinn
árlega haustmarkað. Er markað-
urinn nú í hinu nýja ófullgerða
húsi K. F. U. M. En fjelagið er
nú að byggja, eins og kunnugt
er, mikið þrílyft steinhús við
gamla húsið við Amtmannsstíg.
í gær var mikil ös á markaðn-
um og mikið keypt. Þar voru seld
ar allskonar matvörur, sem nöfn-
um tjáir að nefna, vefnaðarvör-
ur, búsáhöld, bækur, málverk og
margt fleira.
Yörubirgðirnar í gær gengu
mjög til þurðar. En kl. 3 í dag
verður markaðurinn opnaður að
nýju, og þá verður margt á boð-
stólum. Aðsóknin í gær var eins
og á mestu útsölu. En ekki verð-
ur hún minni í dag.
Allir vinir og velunnarar K. F.
U. M. mæta á haustmarkaðnum
í dag og á morgun, og á hluta-
veltunni á morgun, sem byrjar
kl. 3.
TRYGGINGALÖGIN í
DANMÖRKU.
PRAMH. AF FJÓRÐU SÍÐU.
styrk vegna einhverra sjer-
stakra atvika, svo sem þegar
sængurkonur eru styrktar, eða
menn fá styrk vegn sjúkdóms-
áfalla. Þá er ekki um neinn
rjettindamissi að ræða.
í öðrum flokki er sjerstakur
sveitarstyrkur, sem afturkræfur
er, og menn eiga að endur-
greiða.
En í þriðja flokki eru vand-
ræðamenn svo sem drykkju-
menn og flækingar, menn sem
hirða ekki um að sjá sjer og
sínum farborða. Þeir missa
kosningarrjett, við fenginn
styrk.
Þá hafa hin nýju framfærslu-
lög ráðið bót á því misrjetti,
sem átti sjer stað milli sveitar-
fjelaga, þannig, að sveitar-
og bæjarfjelög, sem hafa mjög
mikil útgjöld til framfærslu, fá
styrk frá hinum, sem hafa ljett-
ara ómagaframfæri.
Fátækraframfærið í landinu
var svipað árið 1933—34, eins
og útgjöldin voru til elli-,
sjúkra- og örorkutrygginga.
Eii' auk þess eru atvinnuleys-
istryggingarnar. Árið 1933—34
námu greiðslur til atvinnulausra
46 milj. kr. Um 400 þúsund
manna voru þátttakendur í
þeim tryggingum og af þeim
voru það ár um 150.000 at-
vinnulausir.
Af þessum 46 milj. krónum
greiddi hið opinbera 29 milj.
kr. það ár, en verkamenn sjálf-
ir 17 milj. krónur.
Þegar hin nýju tryggingalög
gengu í gildi, var hverjum
manni í landinu sent um það
brjef, þar sem lögin voru út-
skýrð, skyldur manna og rjett-
indi. Á tímabilinu frá 1. okt.
1933 til 30. sept. 1934, áttu
,menn að ganga af frjálsum
vilja í sjúkrasamlögin. — Og
síðasta hálfa mánuðinn, áður
en frestur þessi var útrunninn,
flutti útvarpið ítarlegar skor-
anir til manna. Þetta alt kom
að góðu ^haldi. Flestir gáfu sig
fram af fúsum vilja.
Franska Alþýðu-
fylkingin óttast
fascista.
Frankinn
skráður 105.58
miðað við £.
London í gær. FÚ.
ÁL hefir verið höfðað
af frönsku stjórninni
gegn de la Rocque, foringja
gömlu „Eldkrossa“-fjelaga
franskra fasista. Er hann
kærður um að hafa brotið
gegn ákvæðum stjórnarinn-
ar, með því að endurskipu-
leggja fjelagsskap fasista
eftir að hann hafði verið
bannaður, undir nafninu:
„franski social flokkurinn“.
Viðskifti hófust á ný í kaup-
höllinni í París í gær. Gengi
frankans var 105.58, miðað við
sterlingspund, er viðskiftum
lauk. Gengisjöfnunarsjóðir Frakk
lands, Bretlands og Bandaríkj-
anna voru allir notaðir til þess
að minka gengissveiflurnar.
Á hlutabrjefamarkaðinum stigu
hlutabrjef um 20% og þar yfir,
og einnig verðbrjef, en þar sem
eftirspurn var mikil, en sala lít-
il, var þessi verðhækkun meira
í orði kveðnu en virkileikanum.
Forvextir við Frakklands-
banka voru í gær lækkaðir úr
5% í 3%.
Dánardægur.
Frú Jónína Margrjet Pálsdótt-
ir, kona Guðna Jónssonar magist-
ers, andaðist í fyrrinótt. Yeiktist
hún snögglega síðastliðinn laug-
ardag af lífhimnubólgu, og komu
allar lækningatilraunir fyrir ekki.
Frú Jónína var 30 ára, er hún
andaðist, dóttir Páls bónda Gríms
sonar frá Óseyrarnesi, síðast á
Nesi í Selvogi. Hún var fríð kona
og vel gefin. Er mikill harmur
kveðinn að manni hennar og 5
börnum á ungum aldri, við frá-
fall hennar í blóma lífsins.
Afmælisminning.
Þann 9. þessa mánaðar varð
jötugur Helgi Þorsteinsson trje-
smiður í Borgarnesi. Hann er
fæddur 9. sept. 1866. Foreldr-
ar hans voru: Þorsteinn Magn-
ússon, bóndi að Gljúfrá í Borg-
arhreppi og Helga Helgadóttir.
Ungur fór Helgi úr föðurhúsum
og dvaldist á ýmsum stöðum.
Er hann var innan við tvítugt,
fluttist hann að Munaðarnesi til
Björns Þorlákssonar snikkara,
var hann og heimili hans orð-
lagt fyrir myndarskap á þeirri
tíð. Hjá Birni dvaldi Helgi nokk
ur ár, eða fram yfir tvítugsald-
ur, og lærði hjá honum trje-
smíði, og hefir hann stundað
þá iðn síðan. Hefir hann einnig
verið talinn hinn vandaðasti
smiður og þola verk hans vel
samanburð við verk hinna yngri
smiða. Á tímabili kendi hann
ipiltum smíðar, sem nú eru allir
hinir nýtustu menn, og munu
jafnan bera til hans hlýjan hug.
Einnig var Helgi gæslumaður
unglingastúkunnar í Borgar-
nesi um nokkur ár og fórst það
starf mjög vel, eins og vænta
mátti, því hann hefir verið
prúðmenni og hinn samvisku-
samasti í öllu því, er hann hef-
ir tekið sjer fyrir hendur. Mesta
hluta ævinnar hefir hann dvalið
í Borgarnesi. Þó hefir hanrt
stundað búskap nokkur ár í
sveit, meðal annars á Kolbeins-
stöðum í Hnappadalssýslu-
Helgi er kvæntur Elísabetu
Þórðardóttur, mikilhæfri konu.
Á heimili þeirra hjóna hefir
ávalt ríkt hin sanna gestrisni og
myndarskapur.
Helgi er að eðlisfari gleði-
maður og fjelagslyndur, og
ósjerplæginn í öllum viðskift-
um. Hann er stefnufastur í
landsmálum og kvikar þar ekki
fyrir hverjum þyt. Ellina ber
hann vel, er Ijettur í hreyfing-
um, sem ungur væri.
Óskum við vinir hans á þess-
um tímamótum, að ævikvöldið
megi verða bjart og friðsælt,
eins og líf hans hefir jafnan
verið.
Kunningi.
Skátar. Ernir og Væringjar
mætið í Miklagarði á morgun,
sunnudag, milli 10—12 f. h.