Morgunblaðið - 14.10.1936, Page 2
MURGUNHLAÐltí
--uidUíUi- —-----
Miðvikudagur 14. okt. 1936.
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Rltstjórar: Jðn Kjartansson og
Valtýr Stefánsson —
ábyrgrðarmaSur.
Ritstjðrn og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Slmi 1600.
Auglýsingastjðri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrifstof a:
Austurstræti 17. — Slmi 3700.
Heimaslmar:
Jðn Kjartansson, nr. 37i2
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3045.
E. Hafberg, nr. 3770.
Áakriftagjald: kr. 3.00 á mánuðl.
í lausasðlu: 15 aura eintakiB.
26 aura með Lesbðk.
Haftastefnan
Það þarf ekki að lýsa því
hörmungarástandi sem ríkt hef-
ir í viðskiftalífi heimsins und-
anfárin 7 ár, alt síðan kreppan
dundi yfir Bandaríkin haustið
1929. Sú kreppa varð víðtæk-
ari og afleiðingaríkari en áður
hefir þekst. Húh breiddist eins
og skæðasta farsótt land úr
landi. Atvinnulífið gekk úr
skorðum, bankar og fyrirtæki
hrundu, vinnufúsir menn urðu
miljónum saman að sitja auð-
um höndum.
Þegar slíkar hörmungar
dynja yfir, er leitað allra ráða
til að afstýra þeim, og eins og
oft vill verða þegar svo stendur
á, er gripið til örþrifaráða.
Flestar þjóðir^ripu til þeirra
ráðstaftí'na.’ sem handhægastar
þóttu í bili: Róttækra takmark-
ana á öllum innflutningi. Þetta
er það*'séfh líáiiað hefir verið
haftastefnan.
Þótt stefna þessi hafi fengið
mikið fylgi í framkvæmdinni,
Kkifa merkustu hagfræðingar
og stjórnmálamenn litið á hana
sem fullkomið neyðarúrræði. —
Afúm saman hafa verið uppi
h.áværar raddir meðal allra
mennírigáfþjóðá, að höggva
þessar viðjar sém állra fyrst.
Nú berast þær fregnir utan
úr1, heimittutíi, sém benda til
þess, að loksins sje að rofa til
í þessum efriúm. ITelstu við-
skiftaþjóðir heimsins ræða nú
þann möguleika, áð hverfa frá
haftastefnunni og leggja
grundvöll að auknum viðskifta-
um þjóða í milJi.
Stjórnarflokkarnír íslensku
hafa litið haftastefnuna nokkuð
öðrum augum en þeir menn,
sem mest álits njóta meðal stór-
þjóðanna. Hjer hefirhaftastefn-
an verið prjedikuð í orði og
verki, ekki sem bráðabirgða-
ráðstöfun, heldur sem heilbrigð
viðskiftastefna og fjárhagsleg
allra-meina-bót.
Ög nú þegar stórþjóðirnar
eru að fæða um að Ijetta höft-
unum, skín í gegnum öll skrif
stjórnarblaðanna, að hjer eigi
ekki að rýmka, heldur herða
á fjöírunum. Og þó hafa fáar
þjóðir verið eins grátt leiknar
vegna þessarar stefnu sem ein-
mitt við Istendingar.
Allir íslendingar verða að
vona að haftastefnan hafi lifað
sitt fegursta — eða öllu heldur
sitt ljótasta. Og takist stórþjóð-
unum fyrir sitt leyti að leysa
þennan viðskiftalega rembi-
hnút, þá verður engri stjórn á
íslandi stætt að halda höftun-
um uppi.
400 ÞÚS, MANNS BERJAST
Á MADRID-VÍGSTOÐVUNUM.
StjórnarliOið undirbýr gagnsókn fyrir vestan Madrid.
Rússar senda
flugvjelar og flug-
menn til §pánar.
PEGAR uppreisnarmenn hefja allsherj-
arsókn sína á Madrid, er búist við, að
háð verði stærsta og grimmilegasta or-
ustan síðan heimsstyrjöldinnni lauk. Tvö hundr-
uð þúsund uppreisnarmenn standa nú andspænis
tvö hundruð þús. stjórnarliðum, og munu því sam-
tals 400 þúsund manns taka þátt í orustunum, sem
telja verður úrslitaorusturnar í spönsku borgara-
styrjöldinni.
Stjórnarherinn er nú að undirbúa ákafa gagnsókn að
vestanverðu við Madrid til þess að rjvifa hring uppreisn-
armanna um borgina (sítnar frjettaritari vor).
Franska blaðið „Le Matin“
segir frá því, að til Barce-
lona sjeu komnir frá
Odessa 30 rússneskir hern-
aðarsjerfræðingar og að
20 sovjetflugmenn sjeu
lagðir af stað til Spánar,
til þess að taka þátt í bar-
dögunum í liði stjórnar-
innar.
Þá segir blaðið, að sovjet-
rússneska hafi ákveðið
4ð,,.tgka upp reglubundnar
skipaferðir milli Odessa og
Barcelona (segir í Berlínar-
fregn FtJ).
Rússneska stjórnarblaðið ,,Is-
vestia“ birtir á fremstu síðu
þakkarávarp frá Caballero,
forsætisráðherra Madridstjórn-
arinnar til rússnesku sovjet-
stjórnarinnar, fyrir afstöðu þá,
sem hún hafi tekið í málum
Spánar.
í fyrradag var barist í nánd
við San Martin, á vígstöðvun-
um fyrir sunnan Madrid, og
stóð bardaginn um yfirráðin yf-
ir akveginum milli Avila og
Toledo. Uppreisnarmenn segja,
að þeir hafi hrundið árás stjórn
arhersins, en stjórnin tilkynnir,
að hersveitir hennar hafi hald-
ið velli (segir í Lundúnafregn
FÚ),
Á öðrum vígstöðvum um-
hverfis Madrid hefir ekkert
borið til tíðinda undanfarið og
má vera að því hafi valdið hin
geysilega mikla rigning, sem
þar hefir staðið.
Um Oviedo er nú líkt á
kom.ið og um Toledo, síð-
ustu dagana sem barist var
um borgina. Stjórnarliðar
hafa nú hrakið uppreisn-
armenn úr öllum bygging-
um borgarinnar nema dóm
kirkjunni og vopnaverk-
smiðju einni, en herlið
Mára og málaliðs frá Mar-
okkó er á leiðinni til Ovi-
edo til aðstoðar uppreisn-
armönnum.
Franco hershöfðingi.
Hvað er
Hitler að
brugga?
Londoii í gær. FÚ.
Hitler hefir kvatt Göb-
bels útbreiðslumálaráö-
herra á fund sinn í
Berchtesgaden, ásamt
ráðlierrum sínum um
hermál, flotamál og flug
mál, og kenslumálaráð-
herranum, og er ekkert
látið uppi að svo stöddu
um tildrögin að fundi
þessum, en búist við, að
einhver mikilsverð yfir-
lýsing verði gefin út að
honum loknum, er snerti
stjórnmál Evrópu,
*--------------
ísfiskssölur, Brimir seldi afla
sinn í Wesermúnde í gær, 86y2
tonn, fyrir 16,700 ríldsmörk.
Frá Frakklandi.
Kommúnistar valda
vaxandijkmdroða.
Hrottaleg óskammföilni
í garð Hitlers.
Þýska blaðið »,,Ber-
liner Börsen Zeit-
ung“ skýrir frá því
í sambandi við óhemju
móðgun, sem foringi
franskra kommúnista
hefir sýnt Hitler, að Le-
brun forseti hafi í hót-
unum að segja af sjer,
ef hinn taumlausi áróð-
ur kommúnista verði
ekki stöðvaður.
Kommúriistaforinginn Thorez
Botaðí tækifærið á fundi 1
Strassburg á sunnudaginn til
að fara hinum háðulegustu orð-
um um Hitler.
Framan á ræðupallinum
þar sem Thorez hjelt ræðu sína
var hengd upp hrottaleg teikn-
ing af Hitler, með morðhníf.
í ræðu sinni á Thorez m. a.
að hafa kallað Hitler „svarinn
óvin Frakklands“.
í þýskum blöðum kennir mik-
illar reiði yfir þessum atburði.
Hefi,r sendiherra Þjóðverja í
París farið á fund inanríkis-
ráðherrans Salaengro og mót-
mælt ummælum Thorez.Þarsem
mótmæli Þjóðverja eru munn-
leg, en ekki skrifleg, þykir lík-
legt að málið verði þar með
látið niður falla.
í blöðum í Elsass er þess
krafist að Elsass fái að vera í
friði fyrir „rússnesku pestinni“.
LÍK SKIPVERJA AF
POURQIJOI PAS?
REKUR.
„Tími oldcar er kominn til að
hefjast lianda....“ De la
Rocque í ræðu, sem hann flutti á
sunnudaginn. Menn óttast, að fas-
cistabylting í Frakklandi hefjist
á föstudaginn.
Símagjöld milli ís-
lands og útlanda
verða lækkuð.
Lík eins skipverjanna af
„Pourquoi pas?“ fanst í fyrra-
; dag rekið skamt frá bænum
Straumfirði.
| Líkið verð.ur flutt til bæjar-
ins í dag með vjelbátnum „Von-
in“ frá Akranesi, og jarðsett
hjer.
Jarðarförin fer fram í fyrra-
málið frá Landakotskirkju, og
liefst athöfnin "kl. 9 árdegis.
GUÐM. HLÍÐDAL, póst-
og símamálastjóri kom
í dag til Osló eftir að hafa
tekið þátt í norrænu síma-
þingi í Stokkhólmi og verið
í Khöfn, Berlín og London í
erindum s'ímans.
Hann skýrir frá því í viðtali,
við Aftenposten, að hann búist
við því, að samningaumleitanir,
sem hafa átt sjer st.að um lækk-
un á símagjöldum milli fslands og
útlanda, muni bera þann árang-
ur, að gjöldin lækki til muna.
Þá hefir Hlíðdal einnig leitað
samninga hjá Norslí elektrisk By-
rá um stækkun talsímastöðvar-
| innar fyrir Reykjavík og Hafnar-
' fjörð. (Samkv. einkask. til FÚ)