Morgunblaðið - 14.10.1936, Page 4
4
M 0(R GUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 14. okt. 1936.
| £
| Önnur grein Lutz Koch. |
^♦.^♦♦^^^♦♦^♦❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖‘W
Knattspyrna og sund verða
aðal íþróttir íslendinga.
„Finnar eru fámenn
þjóð ...
Knattspyrna og sund verða aðalíþróttir íslend-
inga. Loftslag landsins gerir það að verk-
um. Með góðum styrk frá því opinbera geta
íþróttagreinar þessar orðið þjóðaríþróttir landsmanna, í
orðsins bestu merkingu.
Auðveldast er að koma sjer fyrir með knattspyrnuna. Völl er al-
staðar hægt að fá, og jafnvel 22 manna knattspyrnuflokk, sem fá
brennandi áhuga fyrir íþrótt þessari, hvort svo sem menn kunna
íþrótt þessa betur eða ver.
íslendingar geta og komist langt í sundi. Það sýndi hinn mikið
umtalaði sundknattleikur þeirra í Berlín. Þeir hafa til þess góða lík-
umshæfileika. Með góðri þjálfun gætu þeir jafnast á við sundflokka
annara þjóða.
1 Berlín tóku menn tillit til,'
að íþróttagrein þessi er aðeins
tveggja ára gömul á- íslandi, svo
hún er þar á byrjunarstigi.
Sundhraðinn kemur með þjálf-
un. Jeg býst við að seigla íslend-
inga komi þeim til þess að þjálfa
sig ,vel í íþrótt þessari. Fornsög-
urnar geyma endurminningar um
mikil sundafrek. Er ætlandi að hin
uppvaxandi íslenska kjmslóð, hafi
þau vel í minni, og finni til skyld-
unnar, að vera eigi eftirbátar for-
feðranna.
En íslensku sundmennirnir
verða að læra. reglur leiksins. Og
til þess þurfa þeir erlendan þjálf-
ara. Ætti það ekki að vera frá-
gangssök að koma því í kring.
Þegar sundhöllin í Reykjavík
er fullgerð, ætti að vera hægt að
æfa sundknattleik allan ársins
hring. En til þess að góður árang-
ur fáist í þessari íþrótt sem öðr-
um, þurfa íþróttaiðkanirnar. að
komast á hinn breiða grundvöll
skólanámsins, því til þess að hægt
verði að fá fyrsta flokks sund-
knattleikaflokk, þarf að vera hægt
að velja þá bestu sundmenn úr
miklum fjölda. Sundnámið þarf að
byrja í skólunum á aldrinum 10—
12 ára, svo börnin læri á þeim
aldri rjettar reglur og stíl skrið-
sundsins. Þá geta 16—18 ára ung-
lingar, er þeir hafa fengið fulla
líkamskrafta, náð hinum mesta
hraða, eins og Japanar sýndu í
Berlín, sem náðu heimsmeti með
jafnvel 16 ára skólabörnum í sín-
um hóp.
Svipuðu máli er að gegna með
knatspvrnuna. Sú íþrótt verður að
komast í skólana, og verður að
ætla nemendunum stundir til æf-
inga. Til þess að verða fyrsta
flokks knattspyrnumaður, er nauð-
synlegt að nema reglur og stíl á
unga aldri.
En til þess að örfa áhugann og
tryggja framfarirnar, þarf að fá
érlenda íþróttakennara til lands-
ins.
Auk þess verður að gera áætlun
um framtíðarskipulag íslenskra
i íþróttamála. Og leggja verður á-
herslu á, að í þeim iþróttagrein-
um, sem aðallega eru iðkaðar,
verði jafnan hægt að fá saman-
burð á íslenskum og erlendum af-
rekum.
Meðan á Olympíuleikunum stóð
hafði jeg gott tækifæri til þess að
kynnast binum íslensku íþrótta-
mönnum. Jeg komst að raun um,
að þeir hafa allir brennandi áhuga
á því, að komast sem lengst á
íþróttabrautinni, og vilja á því að
vinna sjer frægð og frama. Með
slíkum brennandi áhuga er hægt
að komast ótrúlega langt, ef áhug-
inn er notaður til þess að auka
þjálfunina og koma íþróttaiðkun-
um í fast horf.
Finnar eru fámen'n þjóð. Þeir
hafa þó unnið mikil íþróttaafrek
og hlotið verðugan heiður fyrir.
íslendingar eru fámennari. Samt
ættu þeir að geta látið á sjer bera
á sviði íþróttanna, ef einbeittur
vilji er fyrir hendi, sem fær að
njóta sín undir góðri stjórn, og
íþróttamennirnir finna, að þjóðin
fylgir þeim af alhug.
Enginn getur neitað því, að ís-
lenskum íþróttamönnum hefir far-
ið fram hin tvö síðustu ár, og hin
þróttamanna standi erlendum í-
þróttaafrekum enn að baki.
Verkefnin fyrir íslenska íþrótta-
frömuði eru óendanleg — og Um
leið óviðjafnanlega aðlaðandi, þar
sem alstaðar eru framfarir fyrir
stafni, á öllum sviðum er um um-
bætur að ræða og vinnu sem á
að bera ávexti fyrir framtíð þjóð-
atinnar.
(í næsu grein ræðir L. Koch
um íslenska glímu, hlutverk henn-
ar og framtíð).
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ
frá S. E. Ó. 10 kr., ónefndum 2
kr., H. P. 5 kr., Kristni Guðmunds-
syni 10 kr., S. 3 kr.
Vetrarstarfsemi K. R.
er byrjuð.
I gær byrjaði K. R. sína fjöl-
breyttu vetrar-íþróttastarfsemi.
Verður henni hagað líkt og áður.
Fimleikar verða fyrir telpur,
stúlkur, drengi og fullorðna karl-
menn og' stjórnar Benedikt Ja-
kobsson æfingum eins og að und-
anförnu. Einnig kennir hann
frjálsar íþróttir.
Knattspyrnuæfingar innanhúss
verða einnig líkt og áður. Eru
þær „tekniskar“ og stjórna þeim
hinir góðkunnu þjálfarar K. R.
Guðmundur Ólafsson og Sigurður
Halldórsson. Þeir sem taka þátt í
þessum æfingum þurfa að tala við
kennarana og fá leyfi hjá þeim.
Hnefaleikaæfingar fyrir byrj-
endur fara fram í K. R.-húsinu, en
fyrir þá sem lengra eru komnir í
Stúdentagarðinum. Kennari í
hnefaleikum verður Þorsteinn
Gíslason.
Þá verður einnig æfður róður
og glíma, og sund í sundlaugun-
um. Sundæfingunum sjórnar
Björgvin Magnússon frá Kirkju-
bóli.
Annars geta fjelagar K. R. sjeð
nákvæmlega stundatöfluna í fje-
lagsblaði K. R., sem kom út í gær.
1 gær kl. 5—6 byrjaði telpna-
flokkur 7—12 ára, kl. 6—7 telpna-
flokkrn 12—15 ára, kl. 8—9 1. fl.
kvenna, kl. 9—10 frjálsar íþróttir,
kl. 10—11 hnefaleikar fyrir byrj-
endur, glíma og róður.
1 sumar hefir verið mikið líf og
fjör í allri íþróttastarfsemi K. R.
og fjelagið hefir verið mjög sig-
ursælt. Það byrjaði á að vinna
Drengjahlaup Armanns í vor, Alls-
herjarmót í. S. í. og hlaut þá einu
sinni enn titilinn „Besta íþrótta-
fjelag íslands“. Á Meistaramótinu
hlaut það 10 meistarapeninga af
16. Einnig vann það Drengjamót
Ármanns. 1 knattspyrnú vann það
öll haustmótin og Reykjavíkur-
mótið mjög glæsilega. K. R.-ingar
í sum-
hlaup-
Undanfarna vetur hefir vetrar-
starfið einnig verið mjög líflegt
og nú á komandi vetri munu marg
ir sækja hinar fjölbreyttu íþrótta-
æfingar sem fjelagið hefir uppá
að bjóða, og ekki síst fyrir það
að K. R. hefir ágætum kennurum
á að skipa.
Einnig undanfarna vetur mun
K. R. fara í göngu- og skíðaferðir
og munu margir hlakka til þeirra
ferða, því þær hafa verið bæði
skemtilegar og hressandi. K. R,-
ingar eru nú að reisa nýjan skíða-
skála á Skálafelli á Mosfellsheiði.
Verður nánar skýrt frá því hjer í
blaðinu bráðlega.
íslenska íþróttahreyfing hefir kom
ist í samband við íþróttalíf um- hafa sett mörg ný ísl. met
heimsins, enda þótt afrek ísl. í- ^ ar í frjálsum íþróttum og
um.
Húsgagn^áklæði
útvega jeg. — Fallegt og fjölbreytt sýnis-
hornasafn fyrirliggjandi.
Friðrik Bertelsen.
Hafnarstræti 10—12. Sími 2872.
ÚIBOÐ.
Þeir, sem gera vilja tilboð í raflögn í Háskóla íslands,
vitji teikninga og útboðslýsinga til undirritaðs, Ljósvalla-
götu 12, fyrir kl. 3 síðd. á fimtudag 15. þ. m., gegn 5 króna
skilatryggingu.
Jón Gaufi.
Kaupum flöskur
þessa og næstu viku. Móttaka í Nýborg.
Áfengisverslun rikisins.
Nokkur eintök
af íslenskum þjóðlögum, eftir prófessor Bjarna Þorsteins-
son, fást í
Bókav. Mímir h.f.
Austurstræti 1. -■' Sími 1336.
• TiKiiburverslun
• P. W. Jacobsen ék Sön.
£ Stofnuð 1824.
q Símnefni: Granfuru - Carl-Lundsgade, Köbenhavn C.
Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Kaup-
9 mannahöfn. -- Eik til skipasmíða. - Einnig heila
® skipsfarma frá Svíþjóð.
•
æl Hefi verslað við ísland í meir en 80 ár.
Bogi Ólafsson:
Kenslubók í ensku handa byrjendum, er komín út.
Aðalsala í
Bókaverslun §igfúsar Eymnndssonar
og BÓKABÚÐ AUSTURBÆJAR BSE.
Laugavegi 34.
Ljereft
útvegum við frá ítalíu með sjerstaklega hagkvæmu verði.
Talið við okkur sem fyrst.
Eggert Kristjánssan S Co,
Sími 1400.