Morgunblaðið - 14.10.1936, Blaðsíða 6
6
MORGUNiíLAÐIÐ
Miðvikudagur 14. okt. 1936,
75 ára.
Sr. Bjarni Þorsteinsson
prólessor.
í da<>- á sr. Bjarni Þorsteinsson
í Siglufirði 75 ára aftnœli. Munu
allir söngelskir Islendingar minn-
ast hans með þakklæti á þessum
liátíðisdegi harís. Stórvirki hans
á sviði íslenskrar söngmentar mun
lengi halda minningu hans á lofti.
1% hans fjölmörg, sem lifað hafa
á .tungu þjóðarinnar í áratugi, há-
tiðasöngvarnir og ekki síst þjóð-
lagasafnið.
Þeir sem hafa átt því láni að
fagna að kynnast sr. Bjarna per-
s^nulegá, öðruvísi en af verkum
harís, gleyma aldrei glæsimannin-
um, gleðimanninum fjölhæfa og
fjölfróða, sem hvarvetna er
hefir verið hrókur alls fagnaðar.
Á Siglufirði hefir sr. Bjarni
Þorsteinsson alið mestallan starfs-
aldur sinn. Á æfi hans hefir sá
kaupstaður vaxið úr smáþorpi,
sem var í lándareigrí þrestseturs-
ins Hvanneyrar. Presturinn átti
ítök í kaupstaðnum, Siglufjarðar-
bær óx upp að nokkru leyti eins
og undir verndarvæng hans. Hann
var ekki aðeins sálusorgari Sigl-
firðinga, sem ljet sjer ant um vel-
ferð sóknarbarna sinna. Hann var
höfðingi staðarins, sem sakir
mentunar, glæsimensku og margs
konar hæf'ileika hefir borið höfuð
og .herðar yfir flesta samferða-
menn sína.
Fyrir nokkrum árum ljet hann
af prestskap. Bn þegar hann síð-
ast var á ferð hjer í Reykjavík,
hafði eilin ekki heimsótt hann.
Höfðingssvipurinn og glæsi-
menskan var hin sama og fyr á
árum. Það er engu líkara en
hljómlistin heilladís hans hafi töfr
að frá honum öll ellimörk.
Burf in e li
hinn viðbjóðslega olíuþef.
Notið aðeins
Lyktarlaus. Fljótvirkur.
Prófessor Hallesby
heldur fyrirlestur
í Gamla Bíó kl. 5
í dag.
Margir hafa komið til Reykja-
víkur á þessu ári og meðal þeirra
margir rnerkir menn. Jeg hika
ekki við að segja, að þar sje i*
fremstu röð prófessor Hallesby.
Jeg spurði sjálfan mig, er jeg
vissi, að þessa manns var hing-
að von:; „Hvað hefir hann að
flytjaf* Jeg vissi, að hjer fengju
menn að kynnast ákveðnum trú-
manni, jeg vissi, að hann er lær-
dómsmaður og vel máli farinn. Bn
jeg vissi ekki, að fyrirlestrar hans
væru eins áhrifamiklir og raun
ber vitni. Jeg vissi ekki, að mál
hans væri svo snjalt, er hann lýs-
ir hinum helgustu sannindum. Og
þó mátti jeg vita þetta, því að jeg
hefi oft lesið um það í útlendum
blöðum, hve mikil aðsókn hefir
verið að fvrirlestrum hans í há-
skólum um öll Norðurlönd og víða
í Evrópu og í Ameríku. Svo mik-
ill fjöldi hefir hlýtt á orð hans,
að hinir stærstu salir og kirkjur
hafa fylst af fólki. Þó að fyrir-
lestrar hans sjeu háskólafyrir-
lestrar, þá varða þeir allan al-
menning, og því er öllum boðinn
aðgangur, eins og venja er um svo
marga fræðandi fyrirlestra Há-
skólans.
Fyrirlestrar þessa aðkomu-
manns hafa vakið mikla athygli
einnig hjer í bæ, og aðsókn hefir
aukist svo, að húsrúmið í Kaup-
þingssalnum er þegar orðið of lít-
ið. Er nú búið að útvega stærra
húsrxxm og er það vel farið, að
menn eiga þess níi kost að hlusta
á fVrirlestra Hallesby í ágætum
húsakynnum og rúmgóðum. Hefir
Nýja Bíó góðfúslega verið lánað
í þessu skyni.
Verður fyrirlestur haldinn þar
í dag kl. 5 síðdegis, og er ræðu-
efnið: „Hvorfor jeg er en krist-
en“.
Á morgun og á föstudag verða
fyrirlestrar haldnir í Nýja Bíó á
sama tíma. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
Jeg vil ráðleggja mönnum að
láta, þessi tækifæri ekki ónotuð.
Bj. J.
Epli koma
í dag.
Þorvarður Þorvarðar-
son fyrv. prentsmiðju-
stjóri látinn.
Þorvarður Þorvarðarson skrif-
stofustjóid í Gutenbergsprent-
smiðju andaðist í gærihorgun.
Hann var vinsæll maður og vel
metinn og er mönnum mjög ó-
skiljanlegt hið sviplega fráfall
hans.
Þorvarður heitinn var fæddur
23. maí 1869. Ungur nam hann
prentiðn og vann í ýmsum prent-
smiðjum, uns hann stofnaði prent-
smiðju 1902. En árið 1905 stofn-
uðu prentarar hlutafjelagið Guten
berg og keýptu þrentsmiðju hans.
Varð Þorvarður prentsmiðjustjóri
í Gutenberg þangað til árið 1929,
að ríkið keypti preritsmiðju þessa.
En síðan var hann skrifstofu-
stjóri prentsmiðjunnar, og voru
þeir mjög samhentir Steingrímur
prentsmiðjustjóri og hann.
Þorvarður heitinn var Ijúf-
menni hið mesta, fjölhæfur og
mjög vel mentaður í iðn sinni.
Hann var heiðursfjelagi í hinu ís-
lenska prentarafjelagi.
Þorvarður var um skeið einn af
helstu forvígismönnum sósíalista
hjer á landi, var fulltrúi þeirra
hjer í bæjarstjórn og í kjöri við
fyrsta landkjör á lista þeirra.
En hin síðari ár ljet hann sig
st.jórnmál litlu skifta.
SJÁLFVIRKt
ÞVOTTAEFNI
OtkahUy. , tMmaK
QJðrlr 'þvottlo •
f mJallli«IUR> Aa
þest að heee eje
nuddaðar e•%
MelkJaOur.
Nýtt dilkakjðt,
Lífur, hjörtu svið og mör.
Kjötbúðin Herðubreið.
Hafnarstr. 18. Sími 1575.
EGGERT CLAESSEN
hæstarjettarmálaflutningsmaður.
Skrifstofa: Oddfellowhúsið,
Vonarstræti 10.
(Inngangur um austurdyr).
HIN ÓTRÚLEGA
ÁFERGJA ARNGRÍMS
KRIST JÁN SSON AR.
Framh. af 3. síðu.
herra er kominn. Hann er á þá
leið, að Skildinganes og Gríms-
staðaholt skuli vera sjerstakt
skólahverfi frá 1. þ. m. Ennfrem-
ur er lagt fyrir fræðslumálaráð-
herra að auglýsa skólastjórastöð-
una með umsóknarfresti til 20.
þ. m.
En þar sem Arngrími lá mikið
á að komast í embættið, gátu
sósíalistar í skólanefnd Miðbæjar-
skólans ekki verið að bíða eftir
því að umsóknarfrestur væri lið-
inn. Hún-setur því Arngrím strax
í embættið!
Svo bráðlátur er Arngrímur að
komast í embættið, að ekki má
einu sinni bíða eftir því að kosin
verði skólanefnd fyrir hinn nýja
skóla í Skildinganesi; hún á vitan-
lega að ráða skólastjórann, en
ekki skólanefnd Miðbæjarskólans.
Arngrímur Kristjánsson héfir
því hlotið a, m. k. skólastjóra-
nafnbótina, hvað sem verður um
launin og hlunnindin, sem embætt-
inu eiga að fylgja. Um þetta gæti
orðið vafi, því að „iirskurður“
kenslumálaráðherra á lítinn eða
engan stað í lögum.
En blessuð börnin á Grímsstaða-
holti, sem áttu að fá ákeypis mat
í Miðbæjarskólanum í vetur, hvað
verður nú um þau? Ætlar Arn-
grímur að gefa þeim að borða?
Það verður víst ekkert af því.
Hann mun láta sjer nægja að gera
kröfu til annara í því efni. Hann
mun telja sjálfum sjer borgið, ef
honum tekst að krækja í skóla-
stjóralaunin og hlunnindin, sem
embættinu fylgja. Það gerir
minna til með blessuð börnin.
Fyrirspurn til
Hermanns Jónas-
sonar endurnýjuð.
Eins og lesendum þessa blaðs er
kunnugt, bar jeg' fram fyrir nokkr
um dögum þá fyrirspurn til Hér-
manns Jónassonar ráðherra hverj-
ir það væru sem sjeu ánægðir með
hin illræmdu og heimskulegu
mjólkurlög, sem hann illu heilli
gaf út undir því fáránlega
yfirskini að hjer væri um þjóðár-
' nauðsyn að ræða, og af þessari
þjóðþrifa ráðstöfun er svo ráð-
herrann að monta í útvarpsræðu
sinni á dögunum.
Eignar og umráðarjetturinn er
hjer tekinn af viðkomandi mönn-
um, sem hafa bæði vit og vilja
til að fara með sín eigin mál, ög*
fengin í hendur vægast sagt
reglulegum óvitúm á þessu syiðu
mönnum sem í þessum greinum
eru næstum því eins mikil börn
og ráðherrann sjálfpr.
Það er lýðum Ijóst, að hjer e&
um reglulega og skipulagða of-
sókn að ræða, heimskuleg og víta-
verð ofbeldisfíkn.
Þar sem jeg hefi ekki getað sjeð
að ráðherrann hafi svarað nefndri
fyrirspurn, þá endurtek jeg hana
n úog skora á hann að svarar
hverjir eru ánægðir með mjólkur-
lögin hans?
Hverjir eru það sem eru lukku-
legir og ánægðir?!
G-amli Hreinn.
Hjálparstöð Líknar fyrir berkla
veika, Templarasundi 3. Læknir-
inn viðstaddur mánudaga og mið-
vikudaga kl. 3—4, og föstudaga;
kl. 5—6.
Óðum
— ------ —- — —
©n ennþa faum wið nokkra bílafarma af f
Arvais dilkakjoti úr Brsiðafjjarðardðlum ogTHúnavatnssýslum.
Komið aem fyrsl með iEál og láltO okkur salta fyrlr yðnr 111 vefrarlns.
Ishúsið Derðubreið, Fríkirkjuveg 7, Sími 2678,