Morgunblaðið - 01.11.1936, Qupperneq 3
Sunnudagur 1. nóv. 1936.
M 0 ti G TJ N B L A Ð I Ð
----------Samfylkingin.-----------------------
Eysteinn mótmælir þvi sem
Alþýðublaðið viðurkennir.
TÍMAGIMBILL 20. OKT.
„Frá kommúnisturo hefir aldrei neitt samstarfstilboð
komið til Framsóknarflokksins. Hvað finst almenn-
ingi um flokk eins og Sjálfstæðisflokkinn, sem þarf á því
að halda, að nota tilhæfulaus og vísvitandi ósannindi eins
og þessa samfylkingarsögn, sem eitt aðalvopnið í hinni
pólitísku baráttu?"
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 31. OKT.:
„Fyrir nokkrum mánuðum tóku þeir (þ. e. kommún-
istar) upp aðra aðferð. Þeir buðust til þess að
semja við stjórnarflokkana
— sjerstaklega Alþýðuflokkinn — að því er virðist um að
hætta andstöðu sinni gegn ríkisstjórninni eða draga úr
henni í bili“.
Ennfremur segir Alþýðublaðið, að komm.únistar vilji
ná samningum við stjórnarflokkana, „sem viðurkenna þá
og flokk þeirra sem sjálfstæðan bandamann" í stjórn-
málabaráttunni, „með eigin fulltrúa í bæjarstjómum og á
Alþingi" — og svo auðvitað í stjórn landsins ef til kæmi!
*
Hjer játar Alþýðublaðið skýrt og greinilega, að alt
sem Morgunblaðið hefir sagt Um samfylkingarbraskið er
sannleikanum samkvæmt, og þýðir því ekkert fyrir Tím.a-
gimbil að þræta lengur.
Islensk kona
102 ára.
í dag á frú Ólöf Bjarnadóttir á
Egilsstöðum á Völlum 102 ára af-
mæli — fædd 1. nóvember 1834 í
Hellisfirði við Norðfjörð. Er hún
nú líklega elsta kona á landinu.
Hefir hún áreiðanlega fengið í
vegarnesti á lífsleið sinni ótrúiega
mikla sálar- og líkamskrafta, því
að enn er hún ern og fylgist vel
með öllu sem gerist. Virðist svo
sem sálargáfur hennar hafi lítt
sljóvgast, þótt nú hafi hún lifað
þrjá mannsaldra.
Ólöf hefir altaf verið merkis-
kona, enda af góðu bergi brotin,
komin af skáldinu síra Stefáni Ól-
afssyni í Vallanesi. Ilún giftist
Pjetri Sveinssyni bónda á Brim-
nesi í Seyðisfirði og 'lifðu þau
saman í hjónabandi í rúm 20 ár.
Pjetur dó 1880, og síðan hefir
Ólöf verið ekkja í 56 ár. Lengst
af þeim tíma hefir hún átt heima
á Egilsstöðum, fluttist þangað
1889 til Margrjetar dóttur sinnar,
sem- gift var hjeraðshöfðingjanUm
og búforknum Jóni Bergssyni.
Hann er mi dáinn fyrir nokkru
og Margrjet hætt búskap. Eru
þær mæðgurnar nú í horninu hjá
„drengjunum sínum“, Sveini og |
Pjetri, sonum Jóns og Margrjetar. j
Samtímafólk Ólafar er alt kom-
ið undir græna torfu, og sumt fyr- í
ir löngu. Synir og dætur þess er i
nú fólk á gamalsaldri. Þriðja kyn-
slóðin vel miðaldra, fjórða kyn-
slóðin í broddi lífsins og fimta
kynslóðin komin til sögunnar, jafn
vel sú sjötta. Mun það ekki ein-
kennilegt fyrir Ólöfu að líta yfir
farinn æviveg og hóp samferða-
mannanna ?
Ólöf Bjarnadóttir, Egilsstöðum.
Flokksfundur Sjálf-
stæðismanna í
Arnessýslu.
Flokksfundur Sjálfstæðis-
manna í Árnessýslu var
haldinn í gær á Selfossi.
Fundurinn var vel sóttur, þrátt
fyrir slæmt veður, og stóð hann
í rúma fjóra klukkulíma.
A fundinum mætti frambjóð-
andi Sjálfstæðismanna í Árnes-
sýslu, Eiríkur Einarsson, og frá
miðstjórn flokksins þeir Gunnar
Tlioroddsen, Thor Thors, Magnús
Guðmundsson. og Sigurður Krist-
jánsson, og tóku þeir allir til
máls.
Af innanhjeraðsmönnum töluðu
á fundinum sjera Guðmundur
Einarsson, sjera Gísli Skúlason,
Tngi Gunnlaugsson, bóndi í Vað-
nesi og Gísli Pálsson, bóndi á
Svanavatni.
Fundarmenn voru mjög ein-
huga, og er víst, að áhugi Sjálf-
stæðismanna í Árnessýslu hefir
aldrei verið meiri en nú.
Andanes, breskur togari kom
hingað í gær. Hafði skipið mist
út annan skipsbát sinn, er ólag
reið á það hjer í Faxaflóa. Anda-
nes fær hjer nýjan björgunarbát.
Ásgerður Sigmrðardóttir, Lind-
argötu 18, ekkja Ólafs Jónssonar
frá Fellsöxl, á 83 ára afmæli í
dag.
Fiskverkunarhús Böðvarsbræðra, er veðr'uu slotaði. Takið eftir
hvað steinsteypugarðurinn er brotinn af brimrótinu. (Foto Mbl.)
Af völdum óveðursins.
Frá Hafnarffrði.
Þakfýkur: slasar
9 manns.
NÍU inanns — sjö skóladrengir og tveir
fullorðnir karlmenn slösuðust í Hafn-
arfirði í gærmorgun er ris af fiskhúsi
Böðvarsbræðra við Strandgötu 50, fauk í roki og
sjógangi.
Um klukkan fjögur í fyrrinótt skall á V-S-V-stórviðri í Hafn-
arfirði. Hafrótið var gífurlega mikið og gekk sjórinn óbrotinn
yfir skipin sem lágu á höfninni og alla leið upp á Strandgötu.
Um 7 leytið í gærmorgun"
var sjórinn búinn að brjóta
undan fiskverkunarhúsi Böðv-
arsbræðra, sem stendur á
,,plani“ við Strandgötu; einnig j
hafði sjórinn brotið inn hlið i
hússins. Strandgatan fyltist af j
sjó alla leið upp að kirkjunni j
og var unnið að því í gær að j
aka mörgum bílhlössum af sjáv
arþangi af götunni, sem brimið
hafði skolað á land.
Um fótaferðatíma í gær-
morgun kom fjöldi IJafnfirð-
inga til að skoða skemdirnar á j
fiskverkunarstöðinni.
Um 10 leytið komu að nokkr-
ir skólapiltar á aldrinum 11—
14 ára, sem voru í frímínútum.
En þeir eru nemendur í gamla
barnaskólanum, sem er þarna
rjett fyrir ofan (bæjarþinghús-
ið).
Piltarnir voru inni í fiskverk-
unarhúsinu og voru að skoða
skemdirnar.
Alt í eirnj urðw menn þess
varir áð hluti af þaki hússins
var að f júka af því. Hlupu
piltarnir þá út úr húsinu, en
urðu þá undir þakinu.
Einnig urðu fyrir því tveir
fullorðnir menn, þeir Gunn-
laugur Stefánsson kaupmaður,
Austurgötu 25, og Jón Lárus-
son, Skúlaskeiði 4.
Skólapiltarnir sem meiddust,
voru:
Kristján Kristjánssan, 12
ára, Garðaveg 13. Kristján
Jónsson, 13 ára, Öldugötu 7.
Skúli Ingvarsson, 11 ára, Hverf
isgötu 9. Gunnar Már Torfason,
13 ára, Vesturbraut 3 B. Hin-
rik Hinriksson, 11 ára, Suður-
götu 42 B. Sigurjón Pjetursson,
11 ára, Krosseyrarveg 4. Guð-
mundur Hjartarson, 14 ára,
Suðurgötu 9.
Nokkrir piltanna urðu undir
þakinu, þannig, að það varð
að lyfta því til að ná þeim
undan.
Allir þrír læknar bæjarins
voru kallaðir til að athuga og
binda um sár hinna særðu pilta.
Voru þrir þetrra fluttir á spí-
talann, og fjórir í bæjarþing-
húsið.
Alvarlegustu meiðslin hlaut
Skúli Ingvarsson, enda varð
hann alveg undir þakinu. Fekk
hann stór sár víða á líkamann.
Hann liggur nú í spítalanum, en
hinir piltarnir eru komnir heim
til sín og meiðsli þeirra eru
ekki, talin hættuleg.
Jón Lárusson fekk heilahrist-
ing en Gunnlaugur Stefánsson
kpm. særðist ekki hættulega.
*
MASTUR BROTNAR
AF LÍNUVEIÐASKIPI.
I veðrinu í gærmorgun dró
línuveiðarinn Bjarnarey legu-
færi sín og rak í áttina til
> lands.
Frammastur skspsins brotn-
aði og fjell alveg niður á
þiljur, einnig brotnaði ofan
af afturmastrinu.
Skipið rak í áttina til vjel-
bátsins ,,Síldin“, sem lá þarna
nærri og var um tima hætt
við að skipin rækjust saman.
En þá var brotist út í ,,Síld-
ina“ og lengt á legufærunum.
Á svonefndu „Thorsplani“
braut sjórinn trillubát í spón.
Báturinn var eign Brynjólfs Sí-
monarsonar.
3
Fímtudagsveðrið.
Sjótlóð tekur
100 metra tún-
garð I Höfnum.
Mannvirki skemmist
á Akranesi.
Suðvestan hvassviðri gerði
hjer á Suð-Vesturlandi
í fyrrinótt. Veðrinu fylgdi
víða mikill sjógangur um
flóðið í gærmorgun kl. 7.
Skemdir urðu þó hvergi, svo
teljandi sjeu, nema í Hafnarfirði.1
Á Akranesi urðu ekki Ueinar
skemdir af flóði, sjávargangi og
veðri í fyrrinótt ög gær) en á
fimtudaginn urðu þar rlokkrar
skemdir með háflóðinu kl. 4—-5.
Yar þá briiúfót mikið óg gekk
sjór á land og umturnaði fjðf-
unni á löngum kafla. Skemdi sjáv
argangurinn SUmstaðar fiskréitá
og fiskhús, serii éru næst strönd-
inni, en bryggjur stóðu 1 og urðu
t. d. engar skemdir á háfnar-
bryggjunni, og ekld heldur á bái-
um. Vildi það og til, að þetta var
um miðjan dag, og ruku allir til
þess að verja bátana, einknm þá,1
sem voru í Slippnum, og tókst
það.
Hjá tveimur eða þremur mönn
um gekk flóðbylgjan inn í fisk-
írás og hefir valdið einhverjum
skemdum á fiski, sem þar var, en
þó ekki mjög tilfinnanlegum.
Engin hús hafa skemst hjer af
völdum roksins nje sjávargangi.
Á Hellissandi var veður slæmt
í gærmorgun og mikið brim.
Gekk sjórinn langt á land upp,
lengra en menn tíiuna. Skemdir
urðu þó ekki miklar af völdum
sjávargangs, nema á veginum frá
Sandi og út í Krossavík, en hann
skemdist töluvert. í fimtudags-
veðrinu skemdist vjelhátnrinn
„Garðar“, sem lá upp við bryggju.
Suður með sjó urðu engar
skemdir af völdum SV-stormsins
í gær, símar frjettaritari Mbl. í
Keflavík. En í fimtudagsveðrinu
gekk alda á land í Höfnum og tók,
af um 100 metra túngarð í
Kirkjuvogi.
Siglingafloti Norðmanna
4. stærsti í heiminum.
Norski verslunarflotinn, er,
árið 1935, var þriðji, stærsti
verslunarfloti heimsins, var 1.
júlí þ. á., orðinn fjórði í röð-
inni, og var það japanski versl-
unarflotinn, er komist hafði
fram úr honum. Stærstur var
verslunarfloti Englendinga, þá
Bandaríkjamanna, þá Japana,
og fjórði Norðmánna.
Dr. Niels Nielsen flytur í dag
kl. 14.00 eftir dnöskum tíma (kl.
12 eftir ísl. tíma) fyrirlestur í
danska útvarpið um ferðalög sín
á íslandi. Þá verður á morgun
kl. 19.15 eftir dönskum tíma við-
tal við Ragnar Kvaran landkynn-
ir, í danska útvarpið, um ferða-
lög til íslands. Frá Kaupmanna-
höfn mun Kvaran fara til Eng-
lands. (FÚ.)