Morgunblaðið - 13.12.1936, Page 2

Morgunblaðið - 13.12.1936, Page 2
2 '£gf.r MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 13. des. 1936. Fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir næsta ár. Mefl ÍOO km. hraða ú Vífil§taðavafni. / Útgjöldin hækka enn vegna aðgerð ríkisvaldsins Fjárhagsáætlun Reykjavíkurbæjar fyrir árið 1937 var lögð fram á síðasta bæjarstjórnarfundi, og verður endanlega afgreidd í næstu viku. Heildarútgjöldin eru áætluð um 5.8 milj. kr., en voru 5.1 milj. á áætlun yfirstandandi árs. Hækkunin stafar að- allega frá tryggingalöggjöfinni, sem kemur til að verða bænum dýr, svo og frá auknum kostnaði af löggæslu og skólahaldi. Skal lijer skýrt frá helstu breyt- ingum, sem verða frá síðnstu á- ætlun. Tekjur af eignum bæjarins eru áætlaðar 556 þús., og er það um 50 þús. kr. hækkun frá síðustu á- setlun. Fasteignagjöld eru 612 þús. og er það 20 þús. kr. hækkun. Ýmiskonar starfræksla. Þar eru tekjur áætlaðar hinar sömu og síðast, 212 þús. kr. Endurgreiddur fátækrastyrkur. Áætlunin nemur 57 þús. og er það 42 þús. kr. lækkun, sem stafar af nýju framfærslulögunum. Endurgreiddur sjúkrastyrkur frá Öðrum sveitum. Þessi liður er á- áetlaður 3 þús., en var síðast 10 þús. Frá Tryggingarstofnun ríkisins til ellilauna og örorkubóta 200 þús. kr. Þetta er nýr liður, en á móti kemur gjaldamegin margfalt hærri liður, svo að hjer er ekki um að ræða nýja tekjulind fyrir bæinn; síður en svo. Ýmsar tekjur eru áætlaðar 166 þús. á móti 118 þús. síðast. Hækk- tinin stafar af framlagi ríkissjóðs til lögreglunnar, 53 þús., er ríkis- sjóður greiðir eftir að fjölgað hef- ir verið lögregluliðinu frá áramót- Úm. Fjölguu lögreglunnar hefir að sjálfsögðu í för með sjer veru- lega hækkun útgjalda fyrir bæ- ínn, og nemur sú útgjaldaa\ikning miklu meiru en framlagi ríkis- sjóðs. Utsvör o. fl. Þessi tekjuliður er nú áætlaður tæpar 4 milj. kr. á ínóti um 3.7 milj. síðast. Liðurinn aundurgreinist þannig: Utsvör: 8.8 milj. (3.5 síðast), skattur sam- ▼innufjelaga og ríkisstofnana 100 þús. (90 þús.), hluti bæjarsjóðs af tekjuskatti 90 þús., útsvör ann- ara sveitarfjelaga 1 þús. kr. Stjórn kaupstaðarins áætluð 66 þús., og er það sama og. síðast. Skrifstofur bæjarins 317 þús. á móti 311 þús. síðast. Löggæslan. Þessi gjaldaliður er nú áætlaður 329 þús., en var 225 síðast. Hækkunin stafar af fjölg- un lögregluliðsins í bænum, sem dómsmálaráðhei’ra hefir fyrirskip- að. Heilbrigðisráðstafanir. Þessi lið- úr er áætlaður 266 þús., á móti 255 þús. síðast. Fasteignir. Þessi liður er áætl- *ður eins og síðast, um 65 þús. kr. Ýmiskonar starfræksla. Einnig með sömu upphæð, 262 þús. kr. Til framfærshunála er nú áætl- aðar 1.3 milj. kr., og er það nál. eins og í síðustu áætlun. Tryggingarlögin. Hjer kemur nýr liður sem nemur hvorki meira nje minna en 618 þús. kr. Á móti kemur 200 þús. tekjumegin frá Tryggingarstofnun ríkisins, eins og áður var frá skýrt. Einnig sparast útgjöld, sem loru bá, t. d. til berklavarna o. fl. Almenn styrktarstarf'semi. Þessi liður hefir lækkað all-verulega; er nú áætlaður 424 þús., en var 626 þús. í síðustu áætlun. Lækkunin stafar af því, að framlag til berklavarna, sjúkrakostnaður o. fl. fellur niður og kemur undir liðinn næsta á undan (t'ryggingarnar); En þrátt fyrir þessa lækkun, og þrátt fyrir 200 þús. kr. framlag frá Tryggingarstöfnun ríkisiús nemur byrði bæjarsjóðs af trygg- ingalöggjöfinni a. m. k. 150—200. þús. kr. Til gatna eru áætlaðar 297 þús., á móti 274 þús. síðast. Hækkunin stafar af aukinni götulýsingu. Slökkvistöðin. Útgjöld til henn- ar eru áætluð 129 þús., en voru 107 þús. síðast. Hækkunin stafar af nýju brunasíinakerfi, sem fyrir- hugað er að leggja. Barnaskólarnir. Til þeirra eru áætlaðar 556 þús., og er það 80 þús. kr hækkun frá síðustu áætl- un. Hækkunin stafar aðallega frá því, að ráðgerð er viðbygging við Reykjavegsskólann, 50 þús. kr. þús., á móti 104 þús. síðast. Þess- Til mentamála eru áætlaðar 116 ar eru helstu hækkanir: Gagn- fræðaskólinn í Rvík 5 þús., Versl- unarskóli íslands 2 þús„ til að- stoðar við matjurtarækt 3 þús., Heintilisiðnaðarfjelag íslands 3 þús. íþróttir, listir o. fl. Til þessa eru áætlaðar 79 þús., en voru 65 þús. síðast. Aðalhækkunin er 20 þús. kr. viðbót til undirbúnings íþróttasvæðis við Skerjafjörð Ýms gjöld eru áætluð 65 þús., voru 59 þús. síðast. Tillög til sjóða 128 þús., á móti 125 þús. síðast. Sjóðirnir eru: Skipulagssjóður 25 þús., Eftir- launasjóður 35 þús. og Bvggingar- sjóður verkamanna 68 þús. Lán. Þessi gjaldaliður er áætl- aður 670 þús. og er það sama upp- hæð og síðast. Liðurinn sundur- liðast þannig: Afborganir 220 þús., endurgreiðsla á atvinnubótalánum 150 þús. og vextir 300 þús. Vanhöld á tekjum eru áætluð hin sömu og í síðustu áætlun, 150 þús. kr. ísbátur þeirra Hannesar og Karls á Vífilsstaðavatni. Hannes stýrir bátnum. Tekjufaalli i fjirhags- áætlun ísafjarðar. Þar sem sósíalist- ar ráða . . . VI, LOi U-g Ojí. . Fjárhavsáætlun ísafjar arkaupstaðar var a greidd í fyrrakvöld með I þúsund króna tekjuhalla. Utsvör eru áætluð 206 þúsund krónur og er það sama uppliæð og í fyrra. Nýir gjaldaliðir eru engir svo teljandi sje. Sjálfstæðismenn fluttu breyt- ingatillögur um tekjuhallalausa fjárhagsáætlun. Einnig báru þeir fram till. um að heildarupphæð útsvara yrði 200 þúsund krónur, því margir gjald- endur lækka stórum, óhjákvæmi- lega. Fáir gjaldendur bætast aftur á móti við. Sósíalistar vörðust allra svara um hvernig fylla ætti tekjuhalla- gatið. En búist er við að úrræði þeirra verði vörugjöld. Arngr. Snorralíkneskið í Revkholti. Khöfn 12. des. FÚ. Norska Snorranefndin hefir tilkynt að það sje nú trygt, að Snorralíkneski verði reist á Reykholti, eins og ákveðið var. Á nú að hefja fjársöfnun til þess að einnig verði hægt að reisa líknesi í Noregi, sem sje ámboðið Snorra og segir í þyí sambandi við þetta sje metnað- armál Norðmanna. Fíladetfíusöfnuðurinn. Samltoma í Varðarhúsinu á morgun kl. 5 e. h. Ræðumenn; Erié Ericson, Krist ín Sæmunds og Jónas Jakobsson. Söngur og hljóðfærasláttur. Allir velkomnir. Sunnudagaskóli fyrir börn kl. 4 e. h. Issiglíagamaður segi frá reynslu sinni. Vetraríþróttir fara stöðugt í vöxt hjer á landi. En auk algengustu íþróttanna, skíðaferða og skautaferða, hafa einstaklingar og fjelög farið að iðka nýjar íþróttagreinar, sem lítið eða ekkert hafa þekst hjer áður. Ein þessara íþrótta, sem er tiltölulega lítið þekt hjer á landi, er sigling á ís. Tveir ungir menn hjer í bænum, þeir Haunes Þórarinsson og Karl Einarsson bátasmiður, hafa smíðað sjer ísbát, liinn mesta kostagrip. Bát þessum hafa.þeir siglt á Vífilsstaðavatni og láta þeir injög vel af livað íþrótt þessi sje skemtileg. Um leið og Morgunblaðið fekk mynd af bát þeirra fjelaga til þirt- ingar, bað það Hannes Þórarlnsson að segja frá siglingu á ís. Hannesi sagðist svo frá: Frá því við vorum smádrengir höfum við haft gaman að sigla bátum lijer á höfnþmi og nágfenni bæjarins. Við komum okkur snemma upp litlum seglbát og sigldum honum öllum stundum innan og utau Iiafnarinnar. í einni slíkri ferð barst talið að ísbátum og strax vaknaði hjá okkur áhugi fyrir að eignast ís- bát. Ur framkvæmdum varð þó ekki fyr en haustið 1935, að við lögð- um útí að siníða ísbát, að mestu eftir fyrirmynd úr amerísku tíma- riti. Þegar þáturiim var fullgerður fluttum við liann suður á Vífils- staðavatn og þar sigldum við lion- um að staðaldri þann vetur. — Er smíði slíks ísbáts vanda- söm? spyrjum vjer Hannes. — Við smíðina er nauðsynlegt að fara eftir teikningu, en teilin- ingar af ísbátum er auðvelt að fá t. d. í amerískum siglingatímarit- um. Ameríkumenn hafa mikla reyflslu í þessum efnum og ísbát- ar eru geysimikið notaðir t. d. á vötnunum í Kanada. Þá er nauðsynlegt fyrir þá ís- lendinga, sem vilja byggja sjer slíka ísbáta, að sníða Jiá við sitt hæfi á meðan menn eru að fá leikni í meðferð þeirra. Á jeg þar við að best sje að liafa bátana ljetta og einfalda og ódýra, en þetta er vel hægt að samrýma þeim eiginleikum, sem ísbátur þarf að hafa, til þess að hann sje skemtilegur. Trjesmíðin jiarf að vera Ijett en þó traust; skautana er mikill jvandi að smíða, og mun ekki öðr- um hent en járnsmiðum. Þeir þurfa að vera úr stáli og egg- | hvassir. Seglin verða að vera í jrjettu hlutfalli við stærð bátsins. — Og hvaða ráð viljið þjer gefa I þeim mönnum, sem kynnu að byggja sjer ísbáta ? — Jeg ráðlegg mönnum að klæða sig mjög vel, heit ullarföt eru nauðsynleg, góðir hanskar eða vetlingar, eitthvað hlýtt á fótuin, ’ vegna þess að við siglinguna mynd 'ast mikill súgur. Að sigla venjulegum bát er ólíkt að sigla ísbát, til dæmis verður maður að halda stýrinu vel föstu, minsta hreyfing á stýrinu getur orsakað slæma sveiflu á bátinn. Fyrst um sinn er -vendingin erf- iðust, en kemur fljð.tt. Þegar mað- ur vendir, skal leggja hægt á stýrið eftir þörfum.Það kom fyrir okkui’ í fyrstu vendingunum að báturinn lagði okkur af sjer á ís- inn og helt sjálfur áfram. Yegna hinnar miklu ferðar sem á hátn- um er, skal maður gæta vel að ekln sje opnar vakir eða steinar á ísnum, enda er nauðsyn að hafa augun vel opin fyrir öllu sem hætta getur stafað af. Mín reynsla er sú að liætta sje mikil að sigla ísbát á sprungnum ís. — Sigla. bátar þessir liratt? — Já, þeir geta farið með geysi hraða í góðum byr. Það kom ekki ósjaldan fyrir, að við kæmumst upp í 100 km. liraða á klukku- stund, á Vífilsstaðavatni í fyrra- vetur. Og þá er nú spennandi að sitja við stýrið, segir Hannes bros- andi. Vivax. lslendingum boðið á kaupstefnu í Helsinki. Islendingum hefir verið boðið að taka þátt í kaupstefnu í Helsingfors 10.—18. .apríl, næsta ár. Samkvæmt upplýs- ingum sem Morgbl. hefir feng- ið frá ræðism. Finna hjer í Reykjavík, L. Andersen, verð- ur útlendingum leyft að taka þátt í kaupstefnunni, en það hefir ekki verið leyft fyr. Þetta leyfi er aðeins bundið því skilyrði að vörur þær, sem sýndar verða á kaupstefnunni, sjeu ekki framleiddar einnig í Finnlandi. íslendingar hafa oft sótt um að fá leyfi til að sýna fram- leiðslu sína á þessari stefnu, síðast á stór-kaupstefnunni 1935, en á þeirri kaupstefnu var aðeins sýnd innlend fram- leiðsla. Veðurfar hefir verið stirt við ísafjarðardjúp nndanfarið, en nokkur afli í Djúpinu, þegar gef- ið hefir á sjó. /

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.