Morgunblaðið - 24.12.1936, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.12.1936, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 24. des. 1936. Q 1 lý 1 E'W 1 n n i i O J l\ ^ - ! ————— ——— — Gaisla Bíó: Glaðleg kvikmyid trá Wolípgs-e. Leikarar: Hermann Thimig. Christl Mardayn. Tvær jólamyndir í Nýja Bíó. SHIRLEY TEMPLE og GARY COOPER. „Dr. Sally“ á íslensku leiksviði. Jólasýning Leikfjelagsins. Gamanleikur eftir G. P. Wodehouse. Christl Maradyn. Jólamynd Gamla Bíó heit- ir „Yeitingahúsið Hvíti hesturinn“. Er það þýsk gleðióperetta, bráðsmellin og fjörug. Hefir óperettan verið sýnd í fjölda leikhús- um í Þýskalandi og víðar í álfunni við feikna aðsókn. Efnið er sótt suður til Tyrol og gerist sagan á sumargistihúsi við hinn undurfagra Wolfgang- see. Er þar lýst gleði og sorgum gestanna og starfsfólks gistihúss- ins. Þá eru og sýndir ýmsir ein- kennilegir siðir, sem enn eru í lrávegum hafðir í Tyrol. Meðal annars sýna 100 „Tyrola-Schu- platter“ sinn sjerkennilega dans. Óperettan „Im weissen Rössl“, sem kvikmyndin er bygð á, er eftir Raiph Benatzky. Lögin eru bráðskemtileg og hafa hlotið mikl ar og almennar vinsseldir. Atburðirnir eru bráðfyndnir og í samtölum eru stutt og hnyttin 'sýör og spurningar. Leikstjórn hefir annast Karl Lamae og er myndin tekin í hinu undurfagra umhverfi Salzkamer- gtft við Wolfgangsee. Aðalleikendur eru Hermann Thimig, hinn vinsæli leikari sem ljek í jEinkaritari bankastjórans'; Christl Mardayn, yndisleg ung- versk leikkona með bráðfallega jiöngrödd, leikur aðalhlutverkið og loks má ekki gleyma skopleik- aranum Theo Lingen, sem að vanda er svo fjörugur og hefir svo hlægilega tilburði að menn geta ekki annað en veltst um af Mátri. Kvikmýnd þessi er vel valin jólamynd að því leyti að hún flyt- ur áhorfandanu úr skammdegis- myrkrinu í brosandi sól og sumar- blíðu og þó veðurblíðan speglist aðeins frá kvikmyndatjaldinu kemur hún manni í sólskinsskap, sem varir í marga daga. SENNILEGA verður almenn ánægja meðal leikhúsgesta í Reykjavík yfir þeirri ráðstöf- un Leikf jelagsins, að sýna leikrit eftir Wodehouse um hátíðarnar. Leikrit þau, sem sýnd hafa ver- ið það sem af er vetrarins, hafa verið mjög eftirtektarverð, hvort á sinn hátt, en Wodehouse er svo einstæður í sinni röð, svo hress- andi og gamansamur og hnytt- inn, að hann líkist engu nema sjálfum sjer. Vafamál er, hvort hann er ekki á sinn hátt fyndn- astur höfundur, sem nú er uppi. Og víst er um það, að enginn er- lendur höfundur er eins mikið lesinn á íslandi og hann. Heilir skarar af ungum og gömlum enskumælandi mönnum og kon- um sjá sig aldrei úr færi með að kaupa, lána eða hnupla tókum eftir Wodehouse, sem fyrir aug- um þeirra verða. ! 1 WODEHOUSE skrifar aðal- lega sögur — langar og stuttar. „Kvenlæktiirinn" er upp- haflega skrifað sem saga, undir nafninu Dr. Sally, en hefir verið breytt í leikrit. En þrátt fyrir þetta breytta form heldur höf. öllum sínum aðalkostum. Gam- anið er græskulaust, aldrei ill- kvittið, en það streymir fram gersamlega látlaust og viðnáms- laust. Þessi meistari gamansins getur leikið sjer að hinum smá- vægilegustu hlutum og varpað yfir þá skringibirtu, svo að að- dáunarvert er. I þessu leikriti skemtir Wodehouse sjer — og áhorfendum — með einni regn- hlíf, sem annars engu skiftir fyrir gang leiksins, á þann hátt, sem listamenn einir geta gert. OLLUM lesendum Wode- house eru ógleymanlegir lávarðarnir, sem hann teiknar myndir af. Hjer er ein af þeim bestu. Orð og athafnir — alt er „karikatur“, en þó svo, að ómögu- legt er að vara»t þá hugs- un, að fyrirmyndin sje lifandi maður og eigi heima í Englandi. Sennilega munu flestar eigin- konur, sem eiga menn í Golf- klúbb íslands, einnig kannast við drætti úr mynd taugalæknisins, sem altaf er að æfa sig að leika golf — inni í stofunum. — En sjálfur er kvenlæknirinn, sem leikritið er kent við, ágætt sýn- ishorn þeirrar hressandi og ófeimnu æsku, sem einkennir vora tíma. EF Leikfjelaginu tekst svo til með þessa sýningu eins og efni standa til frá höfundarins hálfu, þá ætti að vera veruleg hressing að fara í leikhúsið um hátíðarnar. Og um það þarf raunar ekki að efast, því hlut- verkin eru í góðum höndum. — Tidmouth lávarð leikur Indriði Waage, sem auk þess hefir ann- ast leikstjórnina, Brynjólfur Jó- hannesson leikur Sir Hugo Dra- ke, taugalækni, Þóra Borg leik- ur Lottie, hið forkostulega dæmi þeirra, sem ekki vinna og ekki spinna, ungfrú Sigríður Helga- dóttir, sem gat sjer góðan orð- stír í „Æska og ástir“ síðastliðið vor, leikur kvenlækninn, Dr. Sal- ly, og Ragnar E. Kvaran leikur Bill Paradene, sem á þúsund svín, en hvers hjarta er í eyði og tómt. Leikurinn verður fyrst sýnd- ur á 2. og 3. í jólum. <!' v-' . ' A >1 'ílNp* j GLEÐILEGRA JÓLA óska öllum bæjarbúum Strcetiwagnar Beykjavíkur h.f. GLEÐILEGRA JÓLA og nýárs óskar öllum Verslun 0. Zoéga. • Shirley Temple. GARY COPER, karl- mannlegasti kvik- myndaleikarinn í Holly- wood, ogf hó víðar væri leitað, leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni „Heiðurs- maður heimsækir borg'ina“ — A ^entleman goes to town —, jólamynd Nýja Bíó. Kvikmyndin segir frá ungum manni, sem lifir áhyggjulausu lífi í smáþorpi einu vestur í Ameríku. Hann hefir vel til hnífs og skeið- ar, án þess að vera auðugur og það, sem honum þykir mest um vert, hann kann vel við sig og fær að vera í friði með iðju sína, vel látinn af öllum þorpsbúum. En alt í einu fær hann óvænta heimsókn. Lögfræðingur einn kem ur til litla þorpsins og segir Long- fellow Deeds (Gary Coper) að hann hafi erft nokkur hundruð miljónir eftir frænda sinn, sem hafði farist á voveiflegán hátt í ítalíu. t Longfellow Deeds verður ekk-. ert hrifinn af þessum frjettum, en lætur þó til leiðast að fara j með lögfræðingnum til New York. og nú fær hinn nýbakaði miljóna-i] mæringur að kynnast því hvað j það er að vera vellauðngur maður í Ameríku. Að sjálfsögðu fær hann ekki að dýfa hendi sinni í kalt vatn, en ekki nóg með það. Hann fær líf- vörð og verður að haga sjer eftir 1 vissum regium. Yið þetta bætast svo allir þeir, sem ætla áð hafa þenna „saklausa sveitamann“ að fjeþúfu. Longfellow Deeds kanu þessu illa og vill fara sínar eigin götur. Rekur nú hver viðburðurinn ann- an og endar með því að ættingjar Longfellow Deeds og lögfræðing- ar hans ætla að fá hann dæmdan ómyndugan vegna þess að hann sje geðveikur. Gary Cooper tekst með sínum óvenjulegu leikarahæfileikum að gera persónu Longfellow Deeds Gary Cooper og Jean Arthur. svo heilsteypta og sjerkennilega að hún verður lengi í huga manns. Sjerstaklega eru sýningarnar úr rjettarsalnum skemtilegar. Auk Gary Cooper leika í myndinni, Jean Arthur, leikur biaðamann, George Bancroft, ritstjóra, og Lionel Stander, sem leikur lífvörð Longfellow Deeds. Að þessu sinni tekur Nýja Bíó upp þá nýbreytni að hafa sjer- staka barnamynd á jólunum. Er það hvorki meira nje minna en eftirlætisgoð allra, og þá fyrst og fremst barnanna, Shirley litla Temple, sem þar leikur aðalhlut- verkið. Myndin segir frá ungúin lækn- ishjónum, sem eiga eina dóttur, Shirley. Vegna annríkis læknisins og af fleiri ástæðum er hjónabandið að fara út um þúfur. En Shirley litla bjargar því við svo allir verða hamingjusamir. Kvikmyndin hefir verið nefnd „Hlið himinsins“ og mun Shirley Temple setja kórónuna á jóla- gleði bárnanna í ár. tfiiiimmiiimiimimmimiimimmimimmimumiiimuifc I n IGLEÐILEGJÓL!§ Versl. Ilavana. iiiimiiiiiiiimmmiiimiiiiiiiimiiiiiiiimiiiimiiimmum# GLEÐILEGJÓL! ; Kolaverslun GuSna & Einars. K H :<>Ko>

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.