Morgunblaðið - 14.01.1937, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.01.1937, Blaðsíða 7
Fimtudagur 14. ján. 1937. ]Vi u 2 G D ISI B L A í' i ' —Minnisblað XXIV.— — Pappírsvörur, skrifstoíuáhöld o. fl. — Hjer biirtast enn nokkur sýnishorn af verðtolli stjórn- arflokkanna á pappírsvörum, skrifstofuáhöldum o. fl., með samanburði á tollinum í tíð Sjálfstæðismanna. 1926 1936 Hækkun % % % Pappírsblokkir O 21 Nýr tollur Pappýrshefti 0 21 Nýr tollur Pappírspokar 0 21 Nýr tollur Pennar 10 21 110 Reglustikur 10 21 110 Reikningshefti 0 21 Nýr tollur Reiknivjelar 0 21 Nýr tollur Skjalabindi 10 21 110 Skjalamöppur 10 21 110 Do. úr leðri 10 63 530 Skrifbækur, heftar 0 21 Nýr tollur Spjaldskrár 10 21 110 Stimplar 10 21 110 Stimpilpúðar 10 21 110 Stimpilblek 10 21 110 Strokleður 10 21 110 Umslög 0 21 Nýr tollur Vasabækur 0 21 Nýr tollur Minningarorð um Sigfús Thorarensen frá Hróarsholti. , í dag verður borinn. til moldar hjer í Reykjavík Sigfús Thorar- ensen, fyrrum óðalsbóndi í Hró- arsholti í Plóa, Sigfús var fæddur 14. janúar 1867 og eru því í dag liðin rjett, 70 ár frá fæðingu hans. Poreldrar hans voru Skúli Thor- arensen læknir á Móeiðarhvoli, bróðir Bjarna Thoraiynsen, skálds, og liagnheiður, dóttir sjera Þor- steins Helgasonár í Reykholti, og ertl báðar,, þær,, .ættir þjóðkunnar. Sigfús misti föður sinn ungur, en ólst upp fram yfir fermingarald- ur hjá móður sinni og systkinum á Móeiðarhvoli. Systkinin voru tíu, sem upp komust. Af þeim eru nú aðeins þrjú á lífi, þær systurn ar Móeiður, kona Ágústs í Birt- ingahplti, og Ragnheiður, kona Matthíasar í Holti í Reykjavík. Af bræðrunum er á lifi Hannes, fyrv. forstjóri í Reykjavík. Dáin eru á undan Sigfúsi þær Sigríð- ur, kona Jóns í Garðsauka, Krist- ín, kona Boga læknis Pjeturhson- ar, og Steinunn, kona Magnúsar Helgasonar skólastjóra. Af bræðr unum eru dánir Bjarni, sem drulmaði í Markarfljóti, Þor- steinn á Móeiðarhvoli og Grímur í Kirkjubæ. Pimtán ára gamall fór Sigfús að hqiman til sjera Magnúsar Helgasonar: mágs síns og var hjá hfmum fram yfir tvítugt. Árið 1893 kvæntist liann eftirlifandi lionu sinni, Stefaníu, dóttur sjera Stefáns Stephensen á Mosfelli. Þau byrjuðu búskap í Holtakot- um í Biskupstungum og bjuggu þar tvö ár. Þá fluttu þau að Hró- a.rsholti og bjuggu þar síðan sam fleytt í 34 ár. Þá brugðu þau búi og fluttust hingað til Reykjavík- ur og hafa búið lijer síðan. Þau eignuðust sjö börn, þrjá sonu og fjórar dætur. Bru þau öll á lífi, nema einn sonur, Skúli, er þau mistu, þegar hann var tveggja ára, Börnin eru þessi: Sigríður, Ijósihóðir, kona Guðna Árnason- ar, verslunarstjóra hjer í bæ, Ragnheiður, kona Guðmundar Ágústssonar, stöðvarstjóra í Shell, Steinunn, kona Boga Thom arensen í Kirkjubæ, Kristín, kpna Þórðar Bogasonar í Varmadal á Rangárvöllum, Stefán, lögreglu- þjónn í Reykjavík, og Helgi, áð- ur bóndi í Hróarsholti, Með Sigfúsi er fallinn í valinn einn af hinum bestu mönnum í íslenskri bændastjett, maður, sem var trúr sinni köllun alla æfi, sí- starfandi iðjumaður meðan líf og heilsa entist. Sigfús var trygg- lyndur maður og vinur vina sinna, dulur í skapi og ekki margskiftinn út á við, en því bet Ur hugsaði hann um hag og vel- ferð heimilisins. Enda tókst hon- um að skapa eitt af þeim góðu myndarheimilum, sem hafa verið og verða styrkasta undirstaða heilbrigðrar menningar í landinu. Þar stóð hann að vísu ekki einn að verki. Góð kona og vel gefin og hópur mannvænlegra barna voru honum samhent í öllu því, sem heimilinu mátti til gagns og sóma verða. Þeir, sem þektia heim ili þeirra í Hróarsholti, eiga það- an margs góðs að minnast, sem seint fýrnist. En tíminn líður. Gamla fólkið tínist burt smátt og smátt, Nýir menn taka við. En gömul kynni gleymast ekki. Og margir munu þeir, sem lengi minnast með hlýj- um huga Sigfúsar í Hróarsholti. Fr. G. Gypo — svikarinn: (Victor MacLaglen). Gamla Bíó Hrífandi kvikmynd úr írelsisbaráttu Ira, Ef n i kvikmyndarinnar „Svikari“, sem Gamla Bíó sýnir þessi kvöldin, er tekið úr frelsisbaráttu íra, er hún stóð sem hæst á ár- unum 1920—1922. Gypo er heljarmenni, sem rek- inn héfir verið úr flokki föður- landsvina, og gengúr allslaus og eirðarlaus um gÖtur borgarinnar. ■'A' 7 i Fyrir 20 sterlingspund getur hann keypt far fyrir sig og kær- ustu sína til Ameríku og byrjað þar nýtt Tíf. Vinur hans fer huldu höfði fyr- ir morð ,og yfirstjórn enska hers- ins hefir lofað 20 sterlmgspunda verðlaunum fyrir úpplýsingar sem leiði til handtöku hans. Gypo yinnur til verðlaunanna - og gerist svikari. Eirðar- og auðnuleysi lians verður enn átak- anlegra eftir þetta. ■: - • i Victor MacLagleu deikur hlut- verk Gypo. M.aimi dettur í hug stórleikarar eins og Baur eða Emil Jannings er maður sjer lcik luins í þessu hlutverki. Sálarlífi þessa auðnuleysingja er lýst á svo meistaralegan hátt að hrein unun er á að horfji. Kvik- myndunin er órtmýulega yel gerð. Það er sjaldgæft að hjer sjáist jafn hrein list í kvikmyndahúsi eins og þessi mynd er. Þeir sem una heilst^y.ptum sál- arlífslýsipgum, gpðum leik jpsgj. vel gerðri kvikmynd, veroa að sjá „Svikarann“. Vívax. Dagbók I.O.O.F. 5 = 118114872 = N. K. Veðrið (miðvikudagskv. kl. 5): SV-átt hefir verið um alt land í dag með smájeljum á S- og V- landi. Vindur er nú orðinn S-læg- ur suðvestanlands, en mun ganga til SV aftur í nótt eða á morgun. Hiti er kringum frostmark um alt land. Veðurútlit í Rvík í dag: Stinn- ingskaldi á SV. Jeljaveður. Tónlistarskólinn. Allir nemend- ur beðnir að mæta kl. 6 í Hljóm- skálanum í dag. Bandalagi íslenskra listamanna hefir borist tilboð frá Kunstforen- ingen í Bergen um íslenska mál- verkasýningu þar í apríl-mánuði í vor. Stjórn bandalagsins hefir nú þegar skipað dómnefnd til að ann- ast val á verkum, þá Ásgrím Jóns son, Jón Stefánsson, Pinn Jónsson, Gunnlaug Scheving og Sigurð Guðmundsson arkitekt. Allir ís- lenskir málarar mega senda verk sín til dómnefndarinnar og eiga þau að afhendast henni fvrir 23. mars n.k. Læknareikningar Sj úkrasamlags prentara verða greiddir í kvöld í skrifstofu samlagsins í Alþýðuhús- inu við Hverfisgötu kl. 6—7. Exelcior kom hingað að norðan og vestan í gær. Skipið er á leið til Vestmannaeyja, þar sem það tekur fisk til útflutnings. M.s. Dronning Alexandrine fór norður í fyrradag. ísfisksölur. Belgaum seldi í Grimsby á mánudaginn var 1600 vættir fiskjar fyrir 1279 stpd., og línuveiðarinn Ólafur Bjarnason frá Akranesi í Hull í fyrradag 922 vættir fyrir 767 stpd. Togaramir. Gulltoppur kpm af yeiðum í fyrradag með 3000 körf- ur fiskjar og lijelt áleiðis til Eng- lahds með aflann um kvöldið. í gærmorgitn kom Skallagrímur pieð um 2200 körfur og fór hann einnig til Englands, eftir hádegið; Filadelfíusöfnuðurinn. Almenn'- ur biblíulestur í kvöld kl. 8^ í Bröttugötu 3 B. Eric Ericson og fl., Allir velkomnir Vörður heldur fund í Varðar- húsinu í kvöld kl. 8%. Thor Thors alþm. hefur umræður um baráttu Sjálfstæðisflokksins. Hjálpræðisherinn. Vakningar- vika. í kvöld kl. 8þ2 talar kaptein Kjærbo. Annað kvöld talar Adj. Svava Gísladóttir. Allir velkomn- ir. — ÚtTegnm allar tefgundir af rúðu- gleri frá Belgiu eða Þýskalandi. Eggmrt Kristjánsson B Co. Sími 1400. Kanpmenn! Umbúðapappfr 20 Gm. mjðg ódýr. -t Td Álfadansinn og brennan verður íþróttavellinum annað kvþld, ef veður leyfir. Undirbúningur á vellinum er í fullum gangi,- verið að hlaða bálköst og svo frainvegis. Glímumenn Ármanns (eldri og yngri) eru beðnir að Paæta á glímuæfingu í kvöld kl, 8’ í fim- leikasal Mentaskólans. Heimatrúboð leikmanna, Hverf- isgötu 50. Samkoma í kvöld kl. 8. Allir velkomnir. K. F. U. M. A.—D, Fundur í kvöld kl. 81/2. Síra Sigurjón Árna- son frá Vestmannaeyjum talar. Pjelagsmenn fjölmennig. Allir karlmenn velkomnir. K. F. U. K. Biblíulestur í kvöld kl. 8% í Betaníu, Laufásveg 1,3. Af veiðum komu til Haf&ar- fjarðar í fyrrakvöld og nótt.y, Garðar með 4000 körfur, Júpjtpr-: með 2000 körfur ,og Haukanea með 1600 körfur. Öll skijiip eru farin áleiðis til Englands. ' BIi -Qfi ut' ísland nútíðarinnar. íhX'á varps- ræða sú um ísland nútíðarinnar („The Land of the Sa'gaijj,5 Seni dr. Richard Beck, prófes'sbr 'f'Norð urlandamálurn við fíkisháfetíólanti1 Norður-Dakota, flutti frá Chica-"’ go 5. sept. s.l. haust yfir stöðva-' kerfi National Broádcasting Comp any, jáfnhliða því að Guðmundur Kristjánsson söng íslenska söngva, < lefir verið prentuð í mörgpm. ,blöð um yestan hafs. Auk þess sem hún, var prentuð í báðum íslepsktj^ blöðunum í Winnipeg, LÖgberfn og Heimskringlu, hefir hún konaið mörgum Öðrum amerískuni'biöð- um. (PB.). Munið Vetrarhjálpina! Eimskip. Gullfoss er í Káup- mannahöfn. Goðafoss fór frá Hull gærkvöldi áleiðis til Austfjarða. Brúarfoss er á leið til Vestmanna- eyja frá Leith. Det|ifoss er í Kaup mannahöfn. Lagarfoss kom til Leith í fyrrada^ þaðan í gærkvöldi. Seifoss. er, á leið til Antwerpen frá Vestmannaeyjum. ,, TTJ • Oe i 3 j h iJ tv3,rpio • ■ >^f Fimtudagur 14. janúar. 8.00 Morgunlpikfimi, (. 8.15 Enskukens,la.,..5 * 8.40 Dönskukensla. • : • i ,í S O)' 1 • jnjju'iXÍ 12.00 Hádegisútvarp. 19.10 Veðurfregnir,, 19.20 Hljómplötur; óperum. 20.00 Frjettir. 20.30 Erindi: Mannflokkar»ij^Y.i (Einar Magnússon inentá^íéla-v kennari). öv'! 20.55 Hljómplötur: Ljett,,!^^;i 21.00 Pundur í góðtemplara-stúkt unni „Frón“, nr. 227, í Reybja-- >'íkv: ■•J; ,'iu t ^Ejftgskrá lokið um kl. 23). 2XV ' íeT Sönglög,, ur ! OljS I Sigga* — Nei. — Það gleður mig. Hvernig ætli honum hafi farnast í lífinu, ræflinum ? — Illa, við erum gift!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.