Morgunblaðið - 23.01.1937, Qupperneq 2
2
Laugardaginn 23. jan. 1937.
M 0 R GUiVBLAÐíÐ
ALVARLEGAR DEILUR ÞINGS
OG HERS í JAPAN.
' • •
Þingið mótmæiir hæstu hernaðarútgjoidum i sðgu þjóðarinnar.
Herinn heimtar
hærri útgjöld.
Ótti við byltingu.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM:
KHÖFN 1 GÆR.
ttast er að ástandið í Japan leiði til
byltingar. Hermálaráðuneytið hefir
krafist þess að þing verði rofið og
nýjar kosningar verði látnar fara fram. Flota-
málaráðuneytið mælir hinsvegar með þýí, að
stjórnin reyni að komast að samkomulagi um
samvinnu við þingflokkana.
Þetta alvarlega ástand á rót sína að rekja
til deilu milli þingsins og hersins um útgjalda-
áætlun fjárlaganna til hersins. Útgjöld til hers-
ins á fjárlögum fyrir næsta ár eru hærri en
nokkru sinni fyr í sögu japanska þmgsins, og það
var er Hirota forsætisráðherra varði hernaðarút-
gjöldin í gær, er þingheimur gerði að honum óp
og háreysti svo að hann rauk á fund keisarans og
fekk leyfi til að fresta þingfundum í tvo daga.
Útgjöldin ekki nógu há.
En þrátt fyrir að útgjöldin til hersins sjeu meiri en
nokkru sinni fyr í sögu Japana, þá telja herforingjarnir
að þau sjeu ekki nægileg. Stjórnarandstæðingar á
þingi telja hinsvegar, að þau fari langt fram úr því, sem
nauðsyn ber til.
Hermálaráðuneytið hefir gefið út tilkynningu, þar sem
segir, að það muni slíta allri samvinnu 'við stjórnmálaflokka,
sem setji hærra pólitískt laumuspil en velfarnað föðurlandsins.
Lausnin úr þessari úlfakreppu, sem stjórnin situr í, þar
sem þingið vill eitt og herinn annað, virðist ekki geta orðið
önnur en þingrof og nýjar kosningar.
Vörn stjórnarinnar.
Japanska stjórnin heldur því fram í vörn sinni, fyrir hin-
um óhemju háu hernaðarútgjöldum, að hætta steðji að föður-
landinu.
Tokio var lýst í hernaðarástand í fyrrá, er ungir liðsforingjar úr
hernum i'jeðust inn í biistað forsætisráðherra Japana og fleiri ráðh.
og myrtu þá. Víða um borgina var settur hermannavörður, eins og
myndin sýnir.
Xommúnistar halda ðfram
skemdarstarfsemí f Portúgal.
Samband milli spönsku og
portúgölsku rauðliðanna.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM:
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
jpinberum byggingum í mörgum borgum
í Portúgal, öðrum en Lissabon, hafði
sprengjum verið komið fyrir í gærkvöldi
og sprungu þær og ollu allmiklu tjóni. Sprengjur
sprungu í Barcerena, Caxias og í Beirolas.
Þá hefir einnig komið í ljós, að sprengju hafði verið komið
fyrir í hermálaráðuneytisskrifstofunum í Lissabon, og að hún
sprakk um svipað leyti og sprengjurnar í kenslumálaráðuneyt-
inu og fleiri byggingum. Eyðilagði hún stiga í húsinu, en nokkr-
ir menn sem í byggingunni voru, særðust.
Útget.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Rltatjðrar: Jðn KJartansson ogr
Valtýr Stefánsson —
ábyrgtSarmatSur.
Rttftjðrn og. afgreltSsla:
Austurstrœti 8. — Slml 1600.
Auglýsingastjðri: E. Hafberg.
Helmasimar:
Jðn Kjartansson, nr. 8742
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3045.
Áskrlftagjald: kr. 8.00 á mánuBi.
t lausasölu: 16 aura elntakltS.
25 aura asetl Lesbðk.
Spjátrungsháttur
Tímamanna.
Þeir sem ■ lesa hlöð Tímamanna
eru_ því kunnugir, hvernig blöð
þess'i jájila ár eftir ár á ýmsum
umböttiní, setii flokksmenn þeirra
eiga að hafá koniið á, og bera
Sa«ian, hvernig þetta og hitt var
,,í tíð íhaldsins“, eins og þeir orða
M-.
Rjett eins og það sje í frásögur
færandi þó einhversstaðar í þjóð-
fjeíaginu sjáist þess merki, er
stjprnarvöldin sópa í ríkissjóðinn
tugum miljóna umfram það, sem
áður var þangað greitt.
Nylega hafa blöð þessi hafið
upp nþkinn lofsöng um bætta að-
búð lógreglunnar hjer í bænum,
rjett eins og þessar sjálfsögðu um
hætur, sem Tímamenn þakka sjer,
að vísu overðskuldað, sjeu ámóta
framfaramál bæjarins, eins og
málefni Sjálfstæðisflokksins, Sogs
virkjun og Hitaveita.
Hjer um árið talaði Tíminn um
umbætur á húsakynnurh Menta-
$kólans, sem einhverjar mestu
framfarir, er sögur færu af hjer
á landi. Líklegt væri, að
þeim, sem mest gumuðu af
húsabótum þessum, væri um-
hugað um, . að þær hjeld-
ust við. En nú er þar alt af
sjer gengið og hörmulegt að sjá.
Svo áhuginn hefir sýnilega í því
sem öðru verið sprottinn af því
einu, að geta skrifað og skælt sig
í Tímanum.
En þegar þeir Tímamenn guma
af húsabótum, er þeir hafa lcom-
ið á fyrir almannafje, ættu þeir
að líta til húsakynna stjórnarráðs-
ins. Enn þann dag í dag er skrif-
stofum þess holað niður í hinu
gamla 18. aldar fangelsi, og vinnu
skilyrði þar öll hin argvítugustu.
Afgreiðsla utanríkismála fer fram
í lítilli kompu, sem er mátulega
stór fyrir tyo menn að tala sam-
an. Þar eru skítugir skjalabunk-
ar frá gólfi til lofts, enda virðist
geymslu á skjölum þeirrar skrif-
stofu ábótavant á einhvern hátt,
úr því kommúnistar geta náð í
samninga við erlend ríki, sem eigi
voru ætlaðir almenningi, til birt-
ingar í blöðum sínum.
Hver maður, sem her skyn á
stjórnmál og fjármál landsins,
veit. sem er, að mest er um vert,
hvernig þjóðfjelagið er undir það
búið að hraða framförum í land-
inu. Og þó Tímamenn geti ein-
hversstaðar látið sjá þess merki,
að þeir hafi í stjórn landsins haft
fje á milli handa, þá mun þjóð-
fjelagið lengur bera þess minj-
ar hve mjög gjaldþol þess hefir
þorrið undir stjórn rauðu flokk-
anna, svo mjög, að með því er girt
fyrir eðlilegar framfarir í næstu
framtíð.
Japanir eru umluktir ó-
vinuim á allar hliðar, sem
bíða ekki eftir öðru en
hentugu tækifæri til að
hefja árás á þá“, segir í
boðskap stjórnarinnar.
Bretar gera alt, sem þeir geta
til þess að koma í veg fyrir
að samvinna takist með Kín-
verjum og Japönum, segir
stjórnin. Þeir gera sjer mat úr
andúð Kínverja á Japönum og
reyna að grafa undan hags-
munum Japana alls staðar, þar
sem hagsmunir Bretlands og
Japans rekast á.
önnur hættan stafar frá
Bandaríkjunum. „Bandaríkin eru
að leitast við að ná algjörum
yfirráðum í Kyrrahafi“, segir
í boðskapnum.
Að vestan eru Rússar, að
reyna að leggja undir sig
Manschukuo og ná yfir-
ráðum yfir hafnarborg
fyrir sunnan Vladivostok,
þar sem sjó leggur ekki
um vetur.
Fascismi.
í svarræðu sinni hjelt for-
ingi stjórnarandstæðinga
Hamada því fram, að Hirota
stjórnin væri að leitast við að
koma á fascisma í Japan. ,,Hir-
ota treystir á stuðning hersins
og heldur þessvegna að honum
sje óhætt að bjóða þinginu
byrginn“, sagði Hamada.
Ráðuneytisfundur var hald-
inn í Japan í morgun.
í HJÓNABANDI EÐA
UTAN ÞESS.
Khöfn í gær. FÚ.
Meiri hluti þingnefndar í
danska þinginu leggur til að
samþykt verði lagabreyting,
sem að öllu afnemur fjárhags-
legt og fjelagslegt misrjetti
milli barna fæddra í hjóna-
bandi og utan þess, og að á
skírnarvottorðum barna skuli
ekkert fram tekið um það hvort
þau eru fædd í hjónabandi.
Fáni dreginn
á hálfa stöng
í Vatikaninu.
London 22. jan. FÚ.
Píus páfi naut aðeins tveggja
klukkustunda svefns í nótt, sem
leið.
í morgun var fáninn í Páfa-
garði dreginn í hálfa stöng,
og gaus þá upp sá kvittur, að
páfinn væri dáinn, en síðar
varð mönnum ljóst, að í dag
er 15. dánarafmæli Benedikts
páfa XV., og að það var í
minningu þess, sem fáninn var
dreginn í hálfa stöng.
Píus páfi hefir í þrjá daga
samfleytt liðið miklar þrautir.
Portúgalska ráðuneytið kom
saman á aukafund 1 gærkvöldi,
og var tilkynt að honum lokn-
um, að ákveðið hefði verið ,,að
gera nauðsynlegar ráðstafanir“
vegna skemdarverka þeirra, er
framin voru í gær með sprengj-
um, í ýmsum stjórnarbygging-
um. (Skv. FÚ.).
Ekkert er látið uppi um það,
hverjar þær ráðstafanir muni
vera, en álitið er, að þeim
muni beint gegn kommúnistum.
Til dæmis var tilkynt frá
útvarpsstöð Radio-klúbbsins,
eftir að viðgerðir höfðu farið
fram á stöðinni, að „spánskir
rauðliðar" hefðu vitað um
þessa atburði fyrir fram, og
hefði útvarpsstöðin í Barce-
lona boðað það Tyrir tveimur
dögum. (FÚ.)
— ----—-—