Morgunblaðið - 23.01.1937, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.01.1937, Blaðsíða 7
Laugardaginn 23. jan. 1937. 7 Stjórnarliðið í minnihluta í Evjafjarðarsýslu. Vflð atlKvæðagrelðslana um Jarðrœldarlðgin. 1 þessu fjelaji’i mörðu stjórnar- Úr Eyjafirði er blaðinu skrif- að: Dagblað Tímamaima flutti ný- lega airangar fregnir af atkvæða- greiðslunni í búnaðarf jelögum Búnaðarsambands Eyjafjarðar. — Gegnir furðu, að blaðið skuli sjá sjer hag í því .að falsa fregn- ir svo herfilega sem þar ér gert. Því þar er sagt, að stjórnarliðið hafi orðið i meirihluta í þessu máli. Atkvæðagreiðslan í öl’lum 15 búnaðarfjelögum sambandsins fór þannig um 1. kafla Jarðræktar- laganna: Pjelög Atkvæði r—' OJ 'O co Framfarafjelag Grýtu- bakkahrepps 24 7 ÍBún.fjel. Sválb.str. 15 9 Pramfarafj. Öngúlstaða- hrepps 36 16 Bún.fjel. Saurbæjarhr. 34 30 Bún.fjel. Hrafnagilshr. 23 4 Jarðræktarfjel. Akurevr. 5 44 Bún.fjel. Glæsibæjarlir. 32 40 Bún.fjel. Öxndæla 6 10 Bún.fjel. Skriðuhr. 13 1 Bún.fjel. Arnarneshr. 27 24 jBún.fjel. Árskógsstr. 12 20 Bún.fjel. Hríseyjar 12 Bún.fjei. Svarfdæla 47 25 Bún.fjel Ólafsfj. 30 Bún.fjel. Siglufj. 8 20 Samtals 282 292 Niðurstaðan er því þessi, að í Búnaðarsambandi Eyjafjarðar hafa 292 búnaðarfjelagsmenn greitt atkvæði gegn 1. kafla Jarð ræktarlaganna, en 282 hafa feng- ist til að greiða atkvæði með stjórnarflokkunum í þessu máli. Fjelögin éru 15 í sambandinu. í 8 þeirra ná stjórnarsinnar meirihluta, en í 7 fjelögum eru þeir í íminnihluta, og í tveim af þeim fjelögum eru mótmælin af- greidd í einu hljóði, í Hrísey og í Ólafsfirði. Rjett er að geta þess, að full- víst er að þingmenn kjördæm- isins, með Kaupfjelag Eyfirðinga og Búnaðarbankann að baki sjer, hafa óspart reynt að knýja fram atkvæði með Jarðræktarlög- unum nýju. Og samt, hefir árang- urinn ekki orðið beisnari fyrir þá en þetta. En þó stjórnarsinnar hafi knúð fram meirihluta í sumum fjelög- unum með 1. kafla Jarðræktarlag anna, þá er ekki þar með sagt, að þeir bændur, sem fylgdu þeim að málum í því efni, sjeu ánægð- ir með lögin, t. d. jarðránsákvæð- ið. Til sannindamerkis um það eru t. d. tillögur þær, er samþykt- ar voru í búnaðarfjelagi Arnar- neshrepps, önnur þess efnis, að skora á Búnaðarþing að vinna að því, að 17. gr. Jarðræktarlaganna verði látin falla í burtu. En hin tillagan var um það, að fundur- inn lýsti óánægju sinni yfir því, að styrkur til jarðabóta á sumum sviðum yrði lækkaður. sinnar þó 3 atkvæða meirihluta með Jarðræktarlögunum. Stjórn fjelagsins hafði ákveð- ið, að utanfjelagsmenn fengju ekki málfrelsi á fundinum. Samt laumaðist Einar Árnason þangað, til þess að reyna að hafa þar á- hrif „með nærverú sinni“, þó hon- um væri neitað um að tala, sem öðrum utanfjelagsmanni. Dagblað Tímans var að fleipra um það um daginn, að atkvæða- greiðslan um Jarðræktarlögin væru Ólafi Jónssyni, framkv.stj. Ræktunarfjelagsins, mikil harm- tíðindi. En það er síður en svo, að hann, sem fulltrúi á Búnaðar- þingi og frömuður ræktunarmála Eyfirðinga, þurfi að vera dapur yfir úrslitum þessum. I mörg ár hefir Tímaliðið ráðið lögum og lofuin í Eyjafirði, eins og kunn- ugt er. En nú bregður svo við, að málstaðar Ólafs sigrar meðal bænda hjeraðsins, hvernig sem þingmennirnir, kaupf jelagsmenn og sendimenn stjórnarinnar ham- ast og láta. Þegar tekin eru þau 13 búnað- arfjelög, sem eru í Eyjafjarðar- kjördæmi, eru Tímamenn í 33 at- kvæða minnihluta. En auk Jiess má bæta því við, að í Grímsey samþyktu bændur mótmæli gegn Jarðræktarlögun- um í einu hljóði. Svo enn vex at- kvæðamunurinn milli fylgismanna og andstæðinga Pramsóknarþing- mannanna í þessu máli, þegar til- lit er tekið til þeirra fjelaga einna, sem eru innan Eyjafjarð- arsýslu. Eftir þessu að dæma er alveg óhætt fyrir Tímamenn að hætta að gorta af fylgi sínu í Eyjafirði. arsýslu. ------------------ ORÐALAGIÐ ER EKKI AÐALATRIÐI. Kirkjuráðið (domkapitlet) í Lundi vjek nýlega frá em- bætti presti nokkrum að nafni Lundberg í Glimákra-sókn, af þeim ástæðum að presturinn hafði ekki farið orðrjett með setninguna: „Þetta er líkami Krists og blóð“, heldur breytt orðalaginu þannig, að sakra- mentið væri um hönd haft til minningar um Krist. Prestur ljet málið ganga til Svea Hovrátt og hefir rjett- urinn nú birt úrskurð sinn. Svea Hovrátt telur að presturinn hafi ekki fyrirgert embætti sínu. (FÚ). —--------------- ÓTTI FRAKKA VIÐ ÞJÓÐVERJA. London í gær. FÚ. I París gengur orðrómur um það, að hermálastjórn Þýska- lands hafi gefið fyrirskipanir um að auka skuli víggirðingar suður-hluta þýsk-frönsku landa mæranna. BÍUÍlGUNÖLAÐil' □agbók. Messur í dómkirkjunni á morg- un: Kl. 11 sjera Bjarni Jónsson. Kl. 2 Barnaguðsþjónusta (sr. Pr. Hallgr.). Kl. 5 sjera Priðrik Hall- grímsson. ,Messað í fríkirkjuuni á morg- un kl. 2. Sjera Árni Sigurðsson. Messað í Laugarnesskóla á morgun kl. 2 e. h. Sr. Garðar Svavarsson. Bamaguðsþjónusta í Laugarnes skóla á morgun kl. 10,30. Messað í fríkirkjunni í Hafnar- firði á morgun kl. 2. Sr. Jón Auð- uns. Hjúskapur. Ungfrú Helene Jónsson danskennari (JÓhanns P. Jónssonar skipherra) og Börge Tveden, verða gefin samaii í hjónaband í Aarhus í tlag. Heitn- ilisfang þeirra er Prederiksgade 16 II, Aarhus. Dansleik heldur dansklúbbur- inn Atlas í Oddfellowhúsinu í kvöld. Nokkrir Akranesbátar lromu hingað í gær og höfðu þeir aflað 3—4 þús. pund á bát, mestmegn- is þorsk. Fiskurinn var frystur í Sænsk-íSlenska frystihúsinu. Eimskip. Gullfoss fer frá Khöfn í dag. Goðafoss fór frá Vestm. í gær kl. 2^2, kemur í nótt. Brú- arfoss kom til Patreksfjarðar í gærkvöldi. Dettifoss er í Khöfn. Lagarfoss kom til Þórshafnar í gær. Selfoss fór frá Antwerpen í fyrrakvöld áleiðís til Hamborgar. Hjálpræðisherinn. Samkoma annað kvöld kl. 8l/z- Silfurorð- unni frá Hershöfðingjanum verð- ur úthlutað. (Leikfjelagið sýnir annað kvöld hinn bráðsmellna gamaúleik Kvenlæknirinn. Verð á aðgöngu- miðum verður mjög mikið niður- sett, eða sama verð og var á leik- sýningunni s.l. fimtudag. í blaðinu í gær hafði misritast í minningarorðum um Sigurð Halldórsson, Akbraut á Akranesi, að börn hans væru ógift. En tvö þeirra, Sigurjón og Svanlaug, eru gift á Akranesi og tvö þeirrá systkina, Matthildur og Guðmund ur eru gift í Hafnarfirði. „Fjelag harmonikuleikara í Reykjavík“ heldur dansleik í K. R. húsinu annaðkvöld. Þorri byrjaði í gær, og í dag hefst 14. vika vetrar. Árshátíð Vörubílastöðvarinnar Þróttur verður haldin í kvöld kl. 81^ e. h. í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. B.v. Ólafur var tekinn af Skerjafirði í gær og verður farið að búa skipið út á veiðar. ísfiskssala. í gær seldu afla sinn í Grimsby, Surprise, 1400 vættir fyrir 1854 sterlingspund og Karls- efni, 1274 vættir fyrir 1759 stpd. Fiskmarkaðurinn í Grimsby í gær: Besti sólkoli 102 sh. pr. box, rauðspetta 76 sh. pr. box, stór ýsa 38 sh. pr. box, miðlungs ýsa 36 sh. pr. box, frálagður þorskur 38 sh. pr. 20 stk., stór þorskur 19 sli. pr. box og smáþorskur 17 sh. pr. box. (Tilk. frá Fiskimála- nefnd — PB). 75 afmæli átti í gær ekkjan Hallbera Jónsdóttir, frá Kirkju- bóli við ísafjarðardjúp, nú til heimilis á Bergstaðastræti 17 B. Ódýrt kgðt af fullorðnu fje. Versl. Búrfell, Laugaveg 48. Sími 1505. Aðalfundur Ekknafióði Reykfavíknr verður haldinn miðvikudaginn 27. janúar kl. 8y> að kveldi í húsi K. F. U. M. við Amt- mannsstíg. Inngangur um bakdyr hússins. Stfórnln. Húselgnie nr. 32 við Vesturgötu er til sölu. Skrifleg til- boð óskast send á málflutningsskrifstofu PJETURS MAGNÚSSONAR fyrir 1. febrúar næstkomandi. Verða þar gefnar nánari upp- lýsingar um húsið, ef óskað er. . . Dilkasvið, ■ ií ) 0 > vi daglega sviðin. L'lfeif .iUl.Í íshúsið Herðubreið, Fríkirkjuvegi 7. Sími 2678. \ Úrvals spaðkjðt ? ■■ i , i> í t ! — fyrflrliggfandfl — 1/1 — 1/2 — 1/4 tunnur. Samband fsl. samvlnnuiielaga. Sími 1080. SYKUR. Sykurinn hefir hækkað í verði á heims- markaðinum. Enn þá get jeg afgreitt til yð- ar á hagkvæman hátt út á Cuba-leyfi. 5ig. í?. Skjalöberg, (heildsalan). Aðalfundur málarasveina verð- ur haldinn n.k. sunnudag í Al- þýðuhúsinu við Hverfisgötu. Skákfjelagið Fjölnir heldur að- alfund sinn á taflstofu fjelagsins í Bankastræti 11 á morgun kl. 2 eftir hád. Útvarpið: Laugardagur 23. janúar. 8.00 Morgunleikfimi. 8.15 Enskukensla. 8.40 Dönskukensla. 12.00 Iládegisútvarp. 15.00 Veðurfregnir. 19.10 Veðurfregnir. 19.20 Útvarpstríóið leikur ljett lög. 20.00 Frjettir. 20.30 Stjórnmálaumræður ungra manna. Snjóþyngsli í Noregi. Oslo í gær. Umferð er tept á Bergens- brautinni vegna fannfergis og óvíst hvenær járnbrautarferð- irnar hefjast á ný. (NRP—FB) Brúðkaup f Kristjáns- borgarhöll. Khöfn í gær. FÚ. í dag fór fram í hallarkirkj- unni í Kaupmannahöfn hjóna- vígsla þeirra Alexandrine Lou ise prinsessu og Luitpold greifa af Castell-Castell. Kl. 6 í kvöld hófst miðdeg- isboð hjá konungi í Kristján?- borgarhöll. Fjöldi tiginna gestr: frá Þýskalandi var viðstaddu athöfnina og síðan í boði kor.- ungs. -----—-— Oslo í gær. Sameinaða gufuskipaf jelag- ið á í smíðum nýtt skip, 315' smálestir að stærð, sem á a verða í förum milli Óslóar o;; Kaupmannahafnar. Það getu flutt 600 farþega. (NRP—FB).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.