Morgunblaðið - 29.01.1937, Blaðsíða 7
Föstudagur 29. jan. 1937,
7
Erlend herskip
Iðgregluvðrður
við Spðn?
Ný orðsending
frá Bretum.
London 28. jan. FÚ.
illaga hefir verið borin
fram um það í undir-
nefnd hlutleysisnefndarinn-
ar í London, að herskip
þeirra b.ióða, sem nú hafa
flotadeildir í grend við
Spánarstrendur, verði látin
annast eftirlit með bví, að
hergögn sjeu ekki flutt til
Spánar, en bað eru herskip
Breta, Frakka, Þjóðverja
og Itala.
B,reska stjórnin hefir á ný sent
orðsendingu til Parísar, Róma-
bqrgar, Berlínar, Lissabon og
Moskva, í sambandi við sjálf-
boðaliðsbannið. Hún lætur í ljós
ánægju sína yfir svörum þeim,
aem henni hafa borist við tilmæl
um sínum um að bann sje lagt
við því, að sjálfboðaliðar fari til
Spánar. Stjórnin leggur áherslu
á, að æskilegt sje að sem fyrst
verði hægt að koma sjer saman
um, hvenær slíkt bann skuli verða
látið ganga í gildí.
Þá er vikið í orðsendingunni
að tillögu Þjóðverja óg í.tafa, um,
að allir erlendir áróðursmenn,
og allir útlendingar, sem taka
þátt í styrjöldinni á Spáni, sjeu
fluttir þaðan í burtu. Stjórnin
segist muni taka tillöguna til
rækilegrar íhugunar, og bendir á,
að viðeigandi væri að hlutleysis-
nefndin tæki hana til umræðu í
náinni framtíð. t '
Það er búist við að hlútleysis-
nefndin muni koma saman ein-
hyern næstu daga.
Tilkynning
frá Bálfarafjelagi íslands.
Bæjarstjórn Reykjavíkur hefir
veitt fyrstu fjárveitingu —
tíu þúsund krónur — tií bygging-
ar bálstofu og líkhúss á Sunnu-
hvolstúni. Bálfarafjelagið gerir
sjer örugga von um jafnhátt
framlag úr ríkissjóði.
Það treystir því, að fylgismenn
málsins muni kaupa bálfaraskír-
teini, gerist æfifjelagar eða gefa
gjafir, þannig að ekki þurfi að
standa á, að fullnægt verði skil-
yrði bæjarstjórnarinnar um tvö-
falt framlag annarsstaðar að.
Á skrifstofu fjelagsins er þeg-
ar hafin sala bálfaraskírteina.
(Tilk. frá Bálfarafjelagi íslands.
— FB.).
j matinn i dag:
í ýsa
lúða
1 þorskur
„General Motors“.
í úeilu við rikis-
valdið.
wVerkamennirnir
vilja hvería aftur
til vinnu".
London í gær. FÚ.
iss Frances Perkins,
verkam álaráðherra
Bandaríkjanna, hefir farið
fram á bað í binginu, að lög
verði sambykt, sem veiti
henni vald til bess að stefna
mönnum með lö.s:um á ráð-
stefnur út af atvinnudeíl-
um.
í þessu tilfelli leikur henni hug
ur á að stefna Mr. Sloane, vara-
forseta General Motors, til fund-
ar út af verkfallinu í bifreiða-
iðnaðinum, þar sem hann neitaði
um daginn að koma á ráðstefnu,
sem atvinnumálaráðherrann hafði
boðað til.
Mr. Sloane hefir svarað þeim
ummælum verkamálaráðherrans
og Roosevelts forseta, að hann
stæði í vegi fyrir því, að samkomu
lag næðist, og segir, að meira en
100 þúsund verkamenn vilji
hverfa aftur til vinnu sinnar, og
að vinna sje meira að segja haf-
in aftur í 10 verksmiðjum General
Motors, og myndi hefjast viðar,
ef ekki vantaði efni til iðnaðar-
ins vegna áframhaldandi verk-
falls annarsstaðar.
Telur hann þetta vott þess, að
fáeinir verkamannaleiðtogar eigi
sök á því, að deilan hefir ekki þeg
ar verið til lykta leidd.
1 gærkvöldi var skotið á leigu-
bifreið, sem nokkrir verkamanna-
foringjar voru á ferð í, á heim-
leið frá fundi. Fjórir menn særð-
ust og voru fluttir í sjúkrahús.
Togararnir Tryggvi gamli ,og
Baldur, sem búist var við að
myndu selja afla sinn í Grimsby
í fyrradag, voru ekki komnir til
Grimsby um hádegi í gær. Skip-
in hafa legið við Pentlandsfjörð
vegna ills veðurs.
kuiiGUN JÖLAfiíl'
Dagbót?,
I.O.O.F. 1 = 11812981/* = X X
Veðrið í gær (fimtud. kl. 17):
Loftþrýsting helst lág fyrir sunn-
an land og austanátt um alt land
með rigningu eða slyddu á SA-
og A-landi, en bjartviðri víða á
N- og V-landi. í innsveitum
nyrðra er alt að 5 st. frost, en við
S- og A-ströndina er 2—4 st. hiti.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Austankaldi. Úrkomulaust.
Stefán Þorvarðsson fulltrúi í
utanríkismálaráðuneytinu verður
meðal farþega á Brúarfossi í
dag. Hann á sæti í nefnd þeirri,
sem stjórnin hefir skipað til þess
að semja við þýsku stjórnina um
viðskifti ríkjanna, en viðræður
eiga að liefjast í Berlín 8. febrú-
ar. Stóð til að Jóhann Þ. Jósefs-
son alþm. færi einnig utan nú í
sömu erindum, en vegna lasleika
hans getur hann ekki farið með
þessari ferð.
Næturlæknir er í nótt Eyþór
Gunnarsson, Þvergötu 7. Sími
2111.
Aðalfundur Knattspyrnufjelags
ins Fram var haldinn 22. jan.
Stjórnin var endurkosin, en hana
skipa: Lúðvík Þorgeirsson form.,
Harry Frederiksen gjaldkeri, Sig-
urður Halldórsson ritari, Þráinn
Sigurðsson og Jón Sigurðsson
meðstjórnendur. Ýmsar tillögur
voru samþyktar á fundinum um
framtíðarstarf fjelagsins. Enn-
fremur traustsyfirlýsing til Ólafs
Þorvarðssonar, Sundhallarstjóra.
ísmávar. Það var ekki rjett
með farið í greininni í gær, að
ísmávar skifti litum tvisvar á ári,
heldur eru þeir grábrúnir fyrstu
tvö árin, en eftir það alhvítir.
Skekkjan stafar af mislestri á
minnisblaði.
Verðlaunavísan. Fjölda margir
botnar hafa blaðinu þegar borist
við vísuhelminginn, sem birtist í
blaðinu í fyrradag og er auðsjeð,
að fólki er áhugamál að vinna til
Verðlaunanna. Enn er nógur tími
til þess að taka þátt í samkepn-
inni, því að frestur er til miðviku
dags. Menn eiga að setja eitthvert
auðkenni undir vísubotninn og
sama auðkenni á að vera utan á
lokuðu umslagi, sem fyigir, og þar
á hið rjetta nafn þeirra að vera í.
Aðaldansleikur Vals verður
haldinn laugardaginn 6. febr. að
Hótel fsland.
Ólafur Jónatansson á Leifsgötu
27 á áttræðisafmæli í dag.
Spegillinn kemur út á morgun.
Farþegar á „Lyra“ í giérmorg-
un voru: Margrjet Þorkelsdóttir,
Bjarni Halldórsson, Sigurður
Guðmundsson, Stefán Þorsteins-
son og Þorkell Clemenz.
Fiskimálanefnd. Jlefir Fiski-
málanefnd leyfi til þess að selja
fisk innanlands, t. d. í samkepni
við fisksala í Reykjavík ? Fisk-
sali. — Svar: Menn hafa hingað
til litið svo á, að markaðsleit
nefndarinnar væri eingöngu á er-
lendum vettvangi, enda gera lög-
in ráð fyrir að svo sje. Hitt er
svo alkunna, að nefndin hefir í
markaðsleit sinni eriendis gert
meira ógagn en gagn, og væri það
öllum til góðs, ef hún hætti því
braski. Innlendi markaðurinn er
utan við verksvið neíndarinnar,
enda dýrt fyrir ríkið að hafa
nefnd, sem kostar árlega 60—70
þús. krónur, til þess að selja
nokkrar fiskbröndur á götum
Reykjavíkur.
„Lampinn“, nýjasta bók Krist-
manns Guðmundssonar, hefir nú
selst betur í Noregi en nokktir
Önnur af fyrri bókum hans. Ver-
ið er að þýða bókina á fjölda
tungumála, þar á meðal sænsku,
dönsku, finsku, ensku og tjekk-
nesku. „Brúðarkjóllinn", eftir K.
G., sem kominn er út á kín-
versku, hefir hlotið miklar vin-
sældir og ágæta dóma í kínversk-
um blöðum.
Kollektusjóður Jóns EiríÉsson-
ar er stofnaður til styrktar prest-
um í Hólastifti hinu forna, þUrfi
þeir í langvarandi veikindum að
leita heilsubótar utan heimilis
fyrir sig, konu eða óuppkomin
börn. Af vöxtum sjóðsins er um
400 kr. varið á þessu ári í þessu
skyni og skal senda umsóknir til
vígslubiskupsins í Hólastifti. —
Nemendamót Iðnskólans verður
haldið annað kvöld í lðnó. Verð-
ur þar skemt með ræðu, kórsöng,
gamanleik og dansi.
Guttormur próf. Þorsteinsson
stofnaði verðlaunasjóð fyrir 100
árum, og á að verja vöxtum af
sjóðnum til verðlauna fyrir góð-
ar og almúganum gagnlegar rit-
gerðir um eðlisfræði, náttúru-
sögu, landbúnað, bústjórn og
kristilega siðfræði. Á þessu ári
verða veitt 300 kr. ' vérðlaun og
skulu ritgerðirnar sendar biskupi
fyrir næstu áramót.
Styrk úr styrktarsjóði Hjálm-
ars kaupmanns Jónssonar verður
úthlutað 1. júlí í sumar til ekkna
og barna sjódruknaðra fiski-
manna. Eyðublöð undir umsóknir
fást hjá sýslumönnum og bæjar-
fógetum.
Útvarpið:
Föstudagur 29. janúar.
8.00 Morgunleikfimi.
8.15 Islenskukensla.
8.40 Þýskukensla.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Hljómplötur : Lög eftir
Paganini.
20.00 Frjettir.
20.30 Bækur og menn (Vilhj. Þ.
Gíslason).
20.45 ’Tónskáldakvöld, V.: Sigfús
Einarsson: a) Lagasyrpa, leikin
og sungin; b) Fiðluleikur: Þór-
árinn Guðmundsson; c) Erindi:
Emil Thoroddsen píanóleikari;
d) Einsöngur; Gunnar Pálsson;
e) Útvarpskórinn syngur.
Yerslunarsanuiing^ I(f
Breta og Bandaríkjanna.
London í gær. FÚ.
reska sendiherraskrifstofan í'
Washington hefir dregið
nokkuð úr ummælum þeim, sem
höfð voru eftir Runciman versl-
unarmálaráðherra á dögunum, um
að samkomulag hefði náðst um
gagnkvæman viðskiftasamning
milli Bretlands og Bandaríkjanna.
Segir í tilkynningu sendiherra-
skrifstofunnar, að undirbúnings-
umræðum sje enn ekki fyllilega
lokið, nje fastur samkomulags-
grundvöllur ákveðinn.
Roosevelt forseta , hafa farist
orð á svipaðan hátt, í viðtali rið
blaðamenn.
Ný bók:
SJeil og lifað
Endurminningar Inclriða Einarssonar.
Verð kr. 15.00 heft, 20.00 í skinnbandi.
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar
og BÓKABÚÐ AUSTURBÆJAR BSE,
Laugaveg 34.
Elnarstaðir,
Grímstaðaliolli.
Um 40 dagsl. tún ásamt gripahúsum og
hlöðu til leigu frá 14. maí n. k.
gegn trygðú eða fyrirframgreiddri leigu.
Geir Ttiorsteinsson, Vesturgata 3,
Saltfiikbúðin,
sími 2098.