Morgunblaðið - 03.02.1937, Blaðsíða 2
MORGjRBLAÐÍÐ
Miðvikudaffur 3. febr. 1937
Útget.: H.Í. Árraknr, Reykjarlk.
Rltstjðrar: J4n EJartansaon og
Valtýr Stefánsson —
á.byrgr«arœaBur.
Rltatjörn ogr afgrelBala:
Austuratrœti 8. — 8Iml 1600.
Helmaslmar:
Jön Kjartansson, mr. S74S
Valtýr Stefámsson, mr. 4220.
Árni Óla, mr. 8646.
ÁakrlftasJald: kr. 3.60 á. mámuSl.
í lausasölu: 16 aura elntakiB.
26 anra meB Lesbðk.
Sigfús — Newton
— Rútur.
Eitt hlægilegasta fyrirbrigð-
ið í ofsóknunum á hendur Thor
Jensen og sonum hans, er það,
að nú eru* tveir strákakjánar
teknir uþp á þeim ólátum, að
staðhæfa dag eftir dag að Thor
Jensen hafi ekki grips vit á
búskap nje ræktun og hýsingu
jarðá sinriá. Rökin eru þau, að í
bili sje húsrými gripa hlut-
fallslegá meira en ræktun
landsins!
H&fðu þessir unglingar fylgt
frá upphafi því stórvirki sem
Thor Jensen hefir unnið á s'viði
búreksturs, mundi þeir hafa
komist að raun um, að annað
árið hefir ekki verið húsrými
fyrir alla þá gripi, sem rækt-
unin gat fóðrað. Þá hefir verið
aukið húsrými og gripum
fjölgað eftir því, sem efni stóðu
til, og þá auðvitað ekki ein-
göngu miðað við þá ræktun sem
búið var að framkvæma, held-
ur einnig höfð hliðsjón af því,
sem irækta átti á næstunni.
Þannig hafa^ hjá Thor Jensen
breyst hlutföllinn milli rækt-
unar, íhúsrýmis og gripa, eins
og jafnan gerir meðan verkinu
er ekki lokið. 1 dag er hús-
rýmið hlutfallslega mest, þá
ræktun og loks gripafjöldi. —
Þetta ,ha|a aularnir uppgötvað
og þykjást nú meiri en New-
ton, sem þó fann þyngdarlög-
málið!
„Þó mun mega segja, að
ræktunin hafi verið fram-
kvæmd á viðunandi hátt“! seg-
ir „gráðugasti" kjáni landsins.
Mikil er mildin og meiri þó
spekin! Hann ætti að snúa sjer
til viðurkendasta ræktunarsjer-
fræðings landsíns, ’ Pálma Ein-
arssonar, er allra manna er
kunnugastur ræktuninni á jörð-
um Thor Jertsens, enda lengi
verið þar að fáðum. Nýverið
hefir Pálmi íýst þessari rækt-
un þannig:
Korpúlfsstaðir, 175 ha.: „Til
ræktunar landsins hefir verið
vandað og notað til þess sán-
ingarfræ af úrvalsstofni, rækt-
að á Norðurlöndum og má
segja að túnin sjeu yfirleitt í
mjög góðri rækt“.
Lágafell 112 ha.: „Túnin
eru þvínær öll ræktuð úr fram-
ræstu mýrlendi og eru í ágætri
rækt“.
En hvenær skilst þessum ung-
lingum að þeim er vænst að
þegja?
Utlendingar—
berjast: Spánn
lagður f rústir, -
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
Prieto, lofvamaráðherjra
í ráðuneyti Caballer-
os (og foringi hinni hæg-
fara manna í Valencia-
stjórninni) segir í blaða-
grein að Spánverjar hafi
byrjað borgarastyrjöldina,
en að útlendingar haldi
henni áfram.
„Spánn mun verða lagður
í rústir, jafnt hvor aðilinn,
sem sigrar“, segir Prieto.
9 shillings fyrir
appelsfnu-
kassann.
Færeyjasaltfiskur
í skiftum.
Morgunblaðið sagði frá því
í gær, að í ráði væri að
Færeyingar seldu Spánverjum
saltfisk og fengi í skiftum app-
elsínur. Frjettaritari vor í Höfn
símar í gær til viðbótar við
þessa frjett að Danir eigi að
borga 9 shillings fyrir appel-
sínukassann fob. Valencia.
Dahska stjórnin er nú að
reyna að komast að betri
skilmálum og fá appelsín-
urnar ódýrari gegn því að
kaupa e. t. v. stærri birgð-
ir.
í bili er stjórnin í Valencia
að leitast við að selja Dönum
23 þúsund kassa af appelsínum
fyrir ofannefnt verð, sem
greiðist með Færeyjasaltfiski.
Radek og Sokolnikof!
koma aftur fvrir rjett.
Með Rykoff
og Búkharin.
fltfast um þrjú
skip: Fellibylur
f Miðjarðarhafi
London 2. febr. FÚ.
Tuttugu og þrjú skip
hafa lent í fellibyl á Mið-
jarðarhafi og hefir ekk-
ert til þeirra spurst síðan
fárviðrið skall á. Það nær
alla leið að ströndum
Portúgals.
Fjöldi skipa hefir í
skyndi leitað hafna til þess
að forða sjer undan ó-
veðrinu. Af einu bresku
skipi sem náði höfn, en
hafði Ient á jaðri óveð-
urssvæðisins, höfðu bolt-
arnir sem halda byrðingn-
um rifnað frá, og sjór
komist í Iestina.
HANN VAR LÖG-
FRÆÐIRÁÐUN AUT-
UR EDWARDS VIII.
London 1. febr. FÚ.
Georg konungur tók í dag á
móti Moncton, þeim, er
var einka-lögfræðiráðunautur
Edvards VIII. er hann sagði
af sjer konungdómi, og var
Moncton fyrstur þeirra, sem á
nýárslistanum voru, að taka á
móti heiðursmerki sínu frá
hönd konungs.
Var í dag birtur í Englandi
hinn svonefndi ,,nýárslisti“, en
það er skrá yfir þá, sem kon-
ungur heiðrar með nýjum nafn-
bótum.
Er þetta í fyrsta skifti í
manna minnum að „nýárslist-
inn“ hefir ekki verið birtur um
nýár, en orsökin til þess að nú
var brugðið út af þessari venju
felst í hinum óvæntu konunga-
skiftum, sem áttu sjer stað
skömmu fyrir nýár.
Gengur dr. Munch úr
stjórn Staunings?
“ mn-i 'ít>
„Sósíalistahugsjón"
lögð á hilluna.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM:
KHÖFN I GÆR.
Idanska ríkisdeginum geng-
ur orðrómur um það, að
til mála geti komið a? Staun-
ing fallist á kröfur stjórnar-
andstæðinga um aukin útgjöld
til hersins. Fari svo, er talið að
radikal-socialflokkurinn (aðal-
foringi dr. Munch) muni svifta
Stauning stuðningi sínum.
í tillögum dönsku stjórnar-
innar um útgjöld til hersins,
sem lagðar verða fyrir danska
þingið á fimtudaginn, er gert
ráð fyrir að útgjöldin verði
aukin úr 39.5 milj. í 41.3 milj.
I þessari aukningu eru falin
viðbótarútgjöld til strand-
varnarskipa, hálf miljón.
Þá leggur stjórnin til að varið
verði kr. 20 milj. á næstu 5 ár-
um.til að afla hernum nýtísku
hergagna. „Berlingske Tid-
ende“ telur að stjórnin ætli að
auka flota Dana um 13 skip,
auk eins eftirlitsskips.
Orsök þessa aukna vígbún-
aðar í Danmörku er ófriðar-
blikan í Evrópu. í Englandi
hafa sósíalistar fyrir nokkuð
löngu gerst hvatamenn aukins
vígbúnaðar. Stauning fetar nú
í fótspor bresku flokksbræðr-
anna. Þannig hefir ein sosíal-
ista-,,hugsjónin“ enn orðið úr-
elt.
Rykoff.
Flóðin.
Kairo eins og i
hernaðarástandi
London 2. febr. FÚ.
D aráttunni milli
^ mannsins og nátt-
úruaflanna heldur enn
áfram á flóðasvæði
Bandaríkjanna.
í Cairo hefir hver
einasti vinnufær karl-
maður verið settur til
vinnu við að verja borg-
ina vatnsflóðinu, en
konur o g börn verið
flutt í burtu.
Á einum stað hefir flóðið
brotið af sjer varnargarðana,
en það er við smábæ einn norð-
an við Memphis.
Ennþá hleður niður sjó í
mið-vestur ríkjunum. Sums
staðar eru skaflar sagðir
11 feta háir.
Bretlands konungur og drotn
ing hafa sent Roosevelt forseta
samhygðarskeyti vegna hörm-
unga þeirra, sem vatnsflóðin
hafa valdið.
Frá Washington-ríki nyrst í
Bandaríkjunum á Kyrrahafs-
strönd berst sú frjett að fimm
menn hafi orðið úti í Stórhríð.
Snjókoman heldur áfram, og
færist suður á bóginn í áttina
til Kaliforniu.
LINDBERGH Á LEIÐ-
INNI TIL EGYFTA-
LANDS.
London 2. febr. FÚ.
Lindbergh ofursti og frú
hans lögðu af stað í einkaflug-
vjel sinni frá Englandi síðd. í
gær og ætluðu til Egyptalands.
Þau lentu í morgun í Písa á
Ítalíu, og eftir að hafa skoðáð
sig þar um, hjeldu þau ferð-
inni áfram til Róm. Þangað
komu þau kl. 5 síðd. í dag
(eftir breskum tíma).
Hundrað bolsjevíkkar
teknir fastir.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í gær.
Karl Radek og So-
kolnikoff eiga að
ieika aðalhlutverk í nýj-
um stórfeldum ,,hrein-
gerningar“ málaferlum,
sem nú fara í hönd í
Rússlandi.
Meðleikendur verða
að þessu sinni tveir
enn úr hópi nán-
ustu . samverkamanna
Lenins, Rykoff og Buk-
harin.
Trotsky hefir látið svo um-
mælt (segir í skeyti frá
Mexico), að engir . geti ver-
ið óhultir í Rússlandi á með-
an Stalin ráði ríkjum.
„Nánustu samverkamenn
Stalins geta átt von á því að
röðin sje þá og þegar komin
að þeim. Að hverjum kemur
röðin á morgun, spyrja þeir“,
segir Trotsky.
,Daily Telegraph* skýrir frá
því að nú sje í óða önn verið
að undirbúa hin nýju mála-
ferli. GPU leynilögreglan hefir
tekið fasta hundrað bolsje-
vikka, sem „komst upp um“ í
vitnaleiðslunum fyrir luktum
dyrum í málaferlunum gegn
Radek og Sokolnikof,
Bukharin.
Bukharin var settur í gæslu-
varðhald um leið og Radek, en
var slept aftur úr því — engar
sakir var hægt að ,,sanna“ upp
á hann. Bukharin hefir verið
fjelagi í kommúnistaflokknum
síðan 1906, var tekinn fastur
og sendur í útlegð, en komst
undan til útlanda. Lenin og
Bukharin unnu saman að því
að gefa út „Pravda“ í Austur-
ríki og var blaðinu síðan smygl
að til Rússlands. Hann kom
aftur til Rússlands eftir bylt-
inguna 1917 og tók þá sæti í
miðstjórn kommúnistaflokksins
Rykoff.
Rykoff hefir setið í flestum
æðstu stöðum, sem sovjetríkin
hafa haft upp á að bjóða síðan
í byltingunni. Á meðan Lenin
var veikur, var hann forseti í
ráðuneyti sovjetríkjanna. Síð-
ast var hann póst, síma og út-
varpsmálaráðherra.