Morgunblaðið - 04.03.1937, Page 7
Fimtudagur 4. mars 1937.
Opinber
ákærandi
Frumvarp
á Alþingi.
Gunnar Thoroddsen flyt-
ur enn á ný á Alþingi
frumvarp um opinberan á-
kæranda.
Þetta aðkallandi nanðsynjamál
hefir Gnnnar flutt á tveimur
þingum áður. Fyrst flutti hann
málið á þinginu 1934 og var það
þá sent lagadeild Háskólans til
umsag'nar. Mæíti lagadeildin mjög'
eindregið með málinu. En það kom
fyrir ekki; stjórnarliðið á Alþingi
vísaði málinu frá.
Aftur flutti Gunnar málið á
þinginu 1935, en þá svæfði stjórn-
arliðið það í nefnd.
Um þessa framkomu stjórnar-
flokkanna segir m. a. í greinar-
gerð frumvarpsins;
„011 íramkoma stjórnarflokk-
anna í þessu máli sýnir berlega
hug þeirra og heilindi. Þeir þykj-
ast fyrir kosningar 1934 vera ein-
dregið fylgjandi skipun opinbers
ákæranda, því að þeir vita, að
þetta er vinsælt mál með þjóðinni
og rjettlátt mál. En þegar málið
er horið fram á þingi, þvælast
þeir fyrir, fresta því og svæfa.
Hvers vegna? Vegna þess, að nú
hafa þeir ákæruvaldið í sínum
höndum og möguleikann til að
mísbeita því eftir geðþótta. Það er
líka óspart gert, eiíts og síðar
mun sýnt rækilegar; en hjer næg-
ir að nefna það alræmda hneyksli,
þegar alvarlegri ákæru á hendur
meiri hluta bæjarstjórnar á fsa-
firði er stungið undir stóf, en síð-
aii er einn liinna ákærðu Isfirð-
inga skipaður rannsóknardómari
yfir bæjarstjórn Vestmannaeyjai
Nú er þetta mál borið fram að
nýju, því að það er nú meira
nauðsynjamál en nokkru sinni
fyrr. Allur ahnenningur í land-
inu krefst þess, að ákæruvaldið
verði tekið úr hönclum pólitískra
ráðherra og fengið manni, er
stendur utan stjórnmálaharátt-
unnar. Sú krafa mun ganga fram
fyrr eða síðar, eins og önnur rjett-
lætismál, hversu lengi sem vilhall-
,ir valdhafa stimpast þar í mótí“-
LÍTILL ÁRANGUR AF
SAMNINGUM DANA
OG ÞJÓÐYERJA.
Khöfn í gær. FÚ.
Nefnd danskra fulltrúa, sem
verið hafa í Berlín, til þess að
semja um viðskiftamál, er kom-
in aftur til Kaupmannahafnar
og það hefir frjettst, án þess að
það hafi verið opinberlega til-
kynt, að för nefndarinnar hafi
ekki borið neinn verulegan ár-
angur.
Skíðanemendurnir, sem nú eru
þátttakendur í námskeiði norska
skíðakennarans, hafa haft tvo á-
gæta daga á skíðum, í gær og í
fyrradag. Þátttakendum, sem eru
25 í þessu námskeiði, líður öllum
vel og eru orðnir brúnir af sól,
sem um hásumar væri.
Ungbarnavernd Líknar er opin
á þriðjudögum og föstudögum
kl. 3—4, í Templarasundi 3.
•,* vi A <J ítí *.'í y U n Ö M
MORGUNBLAÐIÐ
Dagbók.
I.O.O.F. 5= 118348V2 =
Veðrið í gær (miðv.d. kl. 17) :
Háþrýstisvæði yfir Islandi og N-
Grænlandi. Vindur hægur A eða
NA um alt land og ekki útlit fyr-
ir neinar veðurhreytingar næsta
sólarhring.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Hægviðri. Ljettskýjað.
í greinargerð húsgagnasmíða-
meistara í blaðinu í gær fjell úr
nafn eins af stjórnendum fjelags-
ins, Þorsteins Sigurðssonar ritara.
Progress heitir enskt tímarit,
sem gefið er út af sápufirmanu
Lever Brothers. 1 janúarhefti
þessa árs er grein um Geysir og
fylgja tvær myndir af Geysisgosi.
Onnur myndin er tekin eftir ljós-
mynd Olafs Magnússonar, en hin
inyndin er af forsíðu Morgunblaðs
ins frá 21. júní 1936, þar sem birt
er auglýsing frá Sunlight-sápu-
firmanu með mynd af Geysi.
Greinin er til sýnis í glugga Morg
unblaðsins.
B.v. Venus kom af veiðum í
gær.
Sjómannakveðja. Farnir áleiðis
til Englands. Kærar kveðjur til
vina og vandamanna. Skipverjar
á Gylli.
Samtíððin, 2. hefti þessa ár-
gangs, er komin út. f ritinu eru
að vanda margar greinar til fróð-
leiks og skemtunar.
K. F. U. M., A.-D. Fundur í
kvöld kl. 8Vz. Fösturæða. Fjöl-
mennið. Allir karlmenn velkomn-
ir.
Eimskip. Gullfoss er væntanleg-
ur til Vestmannaeyja í kvöld.
Goðafoss fer vestur og norður í
kvöld. Aukahöfn Hjalteyri. Brúar
foss var á Húsavík í gær. Detti-
foss fór frá Vestmannaeýþiin
fyrrakvöld áleiðis til Hull. Lagar-
foss er á leið til Austfjarða frá
Leith. Selfoss er á leið til Aust-
fjarða frá Leith.
Ferðafjelag íslands hjelt fund
á þriðjudaginn var, þar sem A. J.
Johnson bankagjaldkeri sagði frá
„hringferð“ fjelagsins í fyrrasum-
ar, er varð öllum þátttakendum
mjög ánægjuleg. Skýrði hann og
frá því, að fjelagið er nú að und-
irbúa tvær ,,hringferðir“ á sumri
komanda, því ferðafólkinu verður
skift í tvo flokka, og fer annar
hópurinn þ. 4. júlí, en hinn þann
10. júlí frá Beykjavík, og tekur
ferðin 13 daga. í erindi sínu mint
ist A. J. Johnson á það, hve Morg
unblaðið hefði flutt góða frásögn
af ferð þessari í sumar sem leið,
enda var Árni Óla blaðamaður
þátttakandi í förinni, og skrifaði
um hana í Lesbók, sem kunnugt
er. Var mikil eftirspurn eftir þess
um tölublöðum Lesbókar, eigi að
eins af þeim, sem tóku þátt í för-
inni, heldur mörgum öðrum, svo
að Lesbókin með ferðasögunni
mun nú ófáanleg.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
Gjöf frá Guðbjörgu Jóhannesdótt-
ur, til minningar um mann sinn
Guðjón Guðmundsson frá Kúlu-
dalsá, 50 krónur. Gjöf frá Jóni
Kristóferssyni kaupmanni 25 krón
ur. Frá Hallgrímsnefnd Furu-
fjarðarsóknar áheit 6 kr. Áheit
frá ónefndum Akurnesing 1 kr.
Kærar þakkir. Ól. B. Björnsson.
í ofviðrinu á dögunum fauk
þak af heyhlöðu í Reynisdal í
Mýrdal og 40—50 hestar af heyi.
Bóndinn í Reynisdal, Magnús
Finnbogason, dvelur nú hjer í
bænum, á Búnaðarþingi.
Útför Kára Loftssonar frá
Lambhaga fer fram ‘ í dag kí. 2
frá dókirkjunni. Hans verður
minst síðar hjer í blaðinu.
Fiskmarkaðurinn í Grimsby í
gær: Besti sólkoli 95 sh. pr. box,
rauðspetta 90 sh. pr. box, 'stór
ýsa 30 sh. pr. box, miðlungs ýsa
30 sli. pr. box, frálagður þorsk-
ur 16 sh. pr. 20 stk., stór þorsk-
ur 6,6 sh. pr. box, smáþorskur
6.6 sh. pr. box. (Tilk. frá Fiski-
málanefnd — FB.).
B.v. Gulltoppur kom frá Eng-
landi í gærmorgun.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
Áheit frá Guðrúnu Guðnadóttur,
Akranesi 10 kr. Afh. af sr. Garð-
ari Þorsteinssyni áheit frá M. í
Hafnarfirði 20 kr. Frá Stadskom-
minister Hilmer Wentz, Málmey
ísl. kr. 34,66, sem gefist liafði til
Hallgrímskirkju vegna erindis, er
hann flutti frá ferð sinni hjer s.l.
sumar. Kærar þakkir. Ól. B.
Björnsson.
Alþýðufræðsla Guðspekifjelags-
ins. Eins og undanfarin ár liefir
Guðspekifjelagið haldið uppi al-
þýðufræðslu með opinberum fyr-
irlestrum hjer í Reykjavík. Eins
og að líkindum lætur fjallar þessi
alþýðufræðsla um guðspekileg
málefni eða önnur mál, sjeð í ljósi
Guðspekinnar. 1 vetur hafa þessir
menn flutt erindi: Grjetar Fells
2 erindi (annað um „vín og vit“,
liitt um ,,þroskaleiðir“), Jón Árna
son 1 (um „leið stjórnandans“) og
Guðrún Indriðadóttir 1 (um „hul-
iðsheima"). Alþýðufræðslunni er
lokið að þessu sinni. (Tilk. frá
Guðspekifjel. — FB).
Flugmaðurinn Thor Solberg hef
ir gefið flugvjel sína, „Leiv Eriks
son“, en í henni flaug hann yfir
Atlantshaf með viðkomu á Græn-
landi og íslandi, til „Norsk tek-
nisk museum“ á Bygdöy. Flug-
vjelin lirapaði til jarðar og brotn-
aði sem kunnugt er, við Granvik
s.l. haust, og var flutt til Bergen
ósamsett og hefir legið þar síðan.
(NRP — FB.)
Norræna fjelagið gengst fyrir
námskeiðum víða um Norðurlönd
á næsta sumri, eins og venja hef-
ir verið undanfarin sumur. Blaða-
mannanámskeið verður í Dan-
mörku 3.—13. júní. Námskeið fyr-
ir matreiðslukonur og mentaskóla-
nemendur verða 1. október. í Nor-
egi verður námskeið fyrir bóka-
verði og annað fyrir lýðháskóla-
kennara. í Svíþjóð verður mót
skólaunglinga 6.—9. maí, og versl-
unarmannamót í maílok.
Árshátíð Starfsmannafjelags
Strætisvagna Reykjavíkur var
haldin í Oddfellowhöllinni fimtu-
daginn 25. febr. kl. 10 síðdegis, og •;■
var þar jafnframt minst 5 ára •!•
starfsemi þessa þjóðþrifafyrirtæk X
is. Hófið hófst með sameiginlegu
borðhaldi. Hlutast var til um, að
allir fastir starfsmenn fjelagsins X
gætu tekið þátt í mótinu, til þess •••
að allur þessi fríði starfsmanna- X
hópur, sem telur um 40 manns, X
gæti- með konum sínum og nán- X
ustu ættingjum átt sameiginlega X
eina kvöldstund á öllu árinu. Hóf- X
ið fór fram hið prýðilegasta og
voru þar allar veitingar með hin- !•!
um mestu ágætum. Stóð fagnaður- !£
inn lengi nætur við dans og hljóð- !•!
færaslátt og mátti ljóslega sjá, að !í
allir skemtu sjer hið besta. Tvent X
var það einkum, sem einkendi hóf X
þetta. Annað var það, að mjög £
skýrlega kom fram í mörgum á- !£
gætum ræðum, sem þarna voru !£
fiuttar, hversu góður skilningur, X
samúð og samvinna ríkir á milli X
starfsmannanna við fyrirtækið, X
svo og á milli þeirra og stjórnar X
þess. Og er ekki ólíklegt, að þessi
sterki samhugur þeirra muni
miklu áorka til góðs fyrir fyrir-
tækið, eins og hánri þarná setti
skemtilegan prúðmenskusvip á
samfagnað starfsmannanna. Þá
þótti mjer það mikil fagnaðarbót,
að þarna kom fram 18 manna
karlakör starfsmalinanna sjálfra
og söng undir Stjórn forstjóra fje
lagsins, hr. Ólafs Þorgrímssonar.
Loks voru fluttar gamanvísur um
fjelagið, stjórn þess og starfs-
menn. Vísurnar höfðu verið smíð-
aðar á trjesmíðavinnustofu fjelags
ins, en lit á þær setti í meðferð-
inni málarameistari fjelagsins, lir.
Ágúst Hákansson, með undirleik
gjaldkera þess, hr. Skúla Hall-
dórssonar. Það virðast vera hæg
heimatökin hjá' þessum óvenjulega
fjölhæfa starfsmannahóp. G. J.
Peningagjafir til Vetrarhjálp-
arinnar. Frá starfsm. hjá Ludvig
Storr 32 kr. Málmhúðunarverk-
stæðið í Rvík 15 kr. B.v. Reykja-
borg kr. 28,76. Starfsfólkið á
Korpúlfsstöðum 105 kr. Ágóði af
fyrirlestri próf. Guðbr. Jónssonar
í Nýja Bíó 21. febr. 197 kr.
Starfsf. í Efnalaug Reykjavíkur
20 kr. Kærar þakkir. F. h. Vetr-
arhjálparinnar. Stefán A. Pálsson.
Páll Þormar, konsiill á Norð-
firði, er staddur hjer í bænum.
Hjónaefni. Nýlega liafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Hanna
Sigurjónsdóttir frá Vestmanna-
eyjum og Jón Eyjólfsson sjómað-
ur frá Akranesi.
Háskólafyrirlestrar á ensku.
Enski sendikennarinn, 'Mr. G.
Turville-Petre, flytur í kvöld kl.
8 fyrirlestur í háskólanum um
William Wordsworth.
Siglfirsku skíðamennirnir, sem
komu að norðan með Dr. Alex-
andrine, hafa dvalið hjer í bæn-
um síðan þeir komu suður. í
dag fara þeir austur að Kolvið-
arhóli, þar sem þeir ætla að dvelja
fram að skíðamótinu. Hinir sigl-
firsku skíðamenn eru allir knáir
og munu verða skíðamönnum hjer
syðra harðir keppinautar. Farar-
stjóri skíðamannanna er Sófus
Árnason.
Júlíus Havsteen sýslumaður á
Húsavík er gestkomandi hjer í
bænum.
Aðgöngumiðar að hátíðahöldum
Germania, sem fjelagið heldur í
tilefni af afhendingu heiðurs-
merkja hins þýska Akademis til
dr. Jóns Ófeigssonar og Einars
■Jónssonar mag. art., fást í dag í
Nora Magasin og að Hótel Borg.
Próf. Mosbech flytur í dag kl.
í 6 fimta fýrirlestur sinn um upp-
ruua guðspjallanna. Fyrirlestúr-
innjVefður fluttur í 1. kenslustofu
háskólhris.
Mentaskólanemendur hjeldri al-
mennan skólafund i gær vegna ó-
ánægju, sem komið hafði fram í
skólanum út af ritnefnd skóla-
blaðsins. í ritnefndinni eiga sæti
5 menn. En meirihluti nefndarinn-
ar, þrír sþólgpiltar, notuðu meiri
hlutaaðstöðw sína til að sjá um,
aðjítið sem ekkert annað en rauð-
litað pólitískt efni kæmist í blað-
ið. Tillaga undirrituð af 20 nem-
endum kom fram á fundinum um
að Víkja þessum þremur rauðlið-
um úf nefndinni og var það sam-
þykt, og aðrir þrír nemendur
kosnir í staðinn.
Útvarpið:
límtudagur 4. mars.
8.00 Morgunleikfimi.
8.15 iEaskukensla.
8.40 Dönskukensla.
12.00 Iládegisútvarp.
19.20 Lesin dagskrá næstu viku.
' 19.30 Þingfrjettir.
20.00 Ffjettir.'nH “","n '
20.30 Erindi: Atvinnumál, IV:
Verslun og fjármál (Arnór Sig-
urjónsson).
21.00 Frá útlöndum.
21.15 HljómplÖtur: Ljett lög.
21.25 Útvárpssagán.
21.50 Útvarpshljómsveitin leikur
(til kl. 22.30).
— Ef það væri einhverjum erf-
iðleikum bundið að ganga frá degi
til dags, myndu sumir menn ald-
rei ná nema til dagsins í gær.
I
•:•
Hafið það hugfast að þó nokkrar mjöl-
myllur sjeu í Aalborg, er aðeins ein
■ ‘ií&íiijjiar t '
Aalborg ny Dampmölle,
u ; -fi.
Epyrjið hvaða fyrsta flokks baka,ra ú íslandi sem er
hvort. hami há& nokkurcstaoar kaypt betra rúgmjöl
og hálfsigtárajöl en frá Aalborg ny Dampmölle. —
SVARID VERÐUR NEITANDI.
Aðalumboðsmenn á íslandi:
•)dí>l
!
|
!
!
*
X
ffS. Benediktsson & Co.
$
Y
♦