Morgunblaðið - 27.05.1937, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.05.1937, Blaðsíða 3
3 flmtudagur 27. maí 1937. MORGUNBL.A ÐIÐ í HVAÐ FARA 20 MILJÓNIRNAR?Hitaveitan er merkasta framfaramál bæjarins. Stórbruni ð Lokastig 18 i gærkveldi. Hin hðu útsvör stafa af þvf að rikið heldurtekju- stofnum fyrir bæjunum. Sjðlfstæðismenn einir hafa hrint málinu áleiðis. Efri hæðin á húsinu Loka- stíg 18 hjer í bæ brann í gær og innbú alt á hæðinni eyðilagðist. Húsið skemdist að öðru leyti mikið af eldi og- vatni, svo ekki verður hægt að búa í því fyr en viðgerð hefir far ið fram. Eldurinn kom upp með þeim hætti, að olíuvjel fjell á gólfið á •fri hæð hússins. Lokastígur 18 er tvílyft stein- hús. A efri hæðinni bjó Guðm- undur Sigmundsson sjómaður og kona hans Yigdís Olafsdóttir, á- lamt fjórum hömum þeirra hjóna FRAJVIH. Á SJÖTTU SÍÐU. Þetta þarf að lagfæra cg það fljótt! TUTTUGU miljónir króna tekur ríkið úr vasa þegnanna á ári — tuttugu miljónir- Það eru um 167 krónur af hverju einasta mannbarni, alt frá ungbarninu í vöggunni til gamalmennisins á graí- arbarminum. Með öllu upphugsanlegu móti er þetta reitt saman. Það er lagt á tekjur og eignir, sem stórskattur. Hver munnbiti, hver sopi er skattlagður. í hvert sinn sem menn fá sjer nauðsynlega flík að vera í, eða skó á fæturna, kemur hönd fjármálaráðherrans og heimtar sinn part af aurunum. Með okri á einkasöluvörum, með stimplunum á hverju viðskiftaplaggi og öllu hugsanlegu móti er þessi gífurlegi blóðskattur reittur saman. Tuttugu miljónir á ári teknar af jafn fámennri og fátækri þjóð eins og við erum Islendingar! 4 ára áællunin. Mikið var prentað af 4 ára áætluninni vorið 1934, og útbýtt til hvers er hafa vildi. Samt gekk ritið ekki upp og var af- gangurinn geymdnr í Alþýðusambandi íslands. Upp á síðkast- ið hafa menn viljað fá þar eitt og eitt eintak, til að rifja upp fyrir sjer hin sviknu kosningaloforð sósíalista. En þá brá svo við, að ekkert eintak fjekkst — broddamir höfðu skyndilega komið þessari frægu „loforðaskrá“ undan. Þingmálafundur að Egilssföðum. ingmálafundur var haldinn að Egilsstöðum á Völlum á þriðjudaginn var. Til fundarins höfðu boðað þeir Thor Thors og Eysteinn Jónsson. Fundarsköp voru þau, að fyrst talaði Eysteinn í klukkutíma, og síðan ræðumenn frá Sjálfstæðis- flokknum og Bændaflokknum, sinn hálftímann hvor. IJr því var ræðutímanum skift jafnt milli flokkanna. Fundurinn var mjög fjölmenn- ur, og var haldinn í sýslutjald- búð Sunn-Mýlinga. Stjórnarliðið hafði smalað alls- konar lýð á fundinn, Tímamönn- »m, sósíalistum og kommúnistum. Þetta samanskrapaða lið, með fjár málaráðherrann í hroddi fylking- ar reyndi mjög að gjamma fram í, er stjórnarandstæðingar töluðu. En brátt kinsaðist liðið á þessum vinnuhrögðum, og fóru leikar svo, að þeir Thor Thors og Árni Jónsson frá Múla fengu best hljóð á fundinum. Um þenna fund að Egilsstöðum er annars það að segja, að hann var ákaflega harður, og var all- au tímann látlaus sókn af hálfu stjómarandstæðinga. Sjerstaklega er rómuð frammi- staða Thor Thors á fundinum. Þótti hún afburða snjöll. FRAMH. Á SJÖTTU SfÐU í HVAÐ FARA ÞESSAR 20 MILJÓNIR KRÓNA? Hvaða gagn hefir þjóðin af þeim? Hvar eru menjarnar eftir þessa óskaplegu fjárausturs- stefnu núverandi valdhafa? Þeir benda vafalaust á vega- spotta og brýr og síma. Þeir benda á hinn eftirtalda jarð- ræktarstyrk o. s. frv. En hvar hefir þessi gífurlega fjárhæð sett merki sín til um- hóta á kjörum Iandslýðsins? Þegar svona stór partur af öllum tekjum manna er hrifs- aður af þeim, svo stór partur, að heimilin standa eftir ráð- þrota, þá er ekki furða þó að menn spyrji: Hvað fæ jeg fyr- ir þetta? Hvar er sá stuðningur, sem bætir mjer upp þessa voðalegu blóðtöku ? Ef til vill á ánægjan yfir að sjá alt nefndafarganið að bæta þetta upp. Mönnum þykir erfitt að borga útsvörin. En hvað eru þau þó á móts við þessa byrði, sem ríkið hleður á menn. Reykvíkingar verða sennilega að borga til ríkisins upp undir bað þrefalda upphæð útsvar- anna. Og ef spurt er, hvað verði af útsvaraupphæðinni, sem er þó varið hjer innan bæjar, er þá nokkur furða þó að þeir sömu menn spyrjij hvað verður af þeirri margfalt stærri fúlgu, sem heimtuð er af ríkisvaldinu í alt það sukk og flokkaáróður og ketilflutninga, sem stjórnar- flokkarnir hafa með höndum? * FJÁRHÍTIR STJÓRNARINNAR. Svo miljónum skiftir fer nú FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Heimskuleg andstaða rauðliða verður þeim til ævarandi skammar. I_J itaveita Reykjavíkur er án efa langsam- *■ * lega stærsta f járhags- og menningar- vmálið, sem á dagskrá hefir komist hjer á landi, og það eru Sjálfstæðismenn einir, sem frá upphafi hafa haft forgöngu málsins. Menn höfðu búist við að fyrri fjandskapur stjórnarflokkanna gegn þessu mikla velferðar- máli bæjarins væri búinn að vera, en skrif stjórn- arblaðanna undanfarið benda til þess, að fjand- skapurinn ríkir þar enn í fullum mæli. En það er hinsvegar ekki fyllilega ljóst ennþá, hvort undir- rót fjandskaparins er heimska og þekkingarskortur, eða hið gamla, rótgróna hatur stjórnarflokkanna til Reykjavíkurbæjar og íbúa hans. FYRSTA TILRAUNIN Sjálfstæðismenn hafa í hita- veitumálinu þreifað sig áfram skref af skrefi og við það hefir fengist ómetanleg reynsla. Fyrst Ijet flokkurinn bora eít- ir heitu vatni í landi bæjarins, við Laugarnar. Síðan ljet hann virkja það og leiða vatnið inn í bæinn. Það hefir nú í nokk- ur ár verið notað með góðum árangri í Landsspítalanum, barnaskóla Austurbæjar, og nú síðast í Sundhöllinni, einnig í nokkrum íbúðarhúsum einstak- linga. Þegar nokkur reynsla var fengin með þessa hitaveitu frá Laugunurn, og hún gafst vel, fóru Sjálfstæðismenn að leita fyrir sjer um meira af heitu vatni. Þá var staðnæmst að Reykj- um í Mosfellssveit. Fyrir for- göngu fyrv. borgarstjóra Jóns Þorlákssonar tókst bænum að ná eignarhaldi á hitasvæðinu að Reykjum fyrir mjög lágt verð og með einkar hagstæðum kjör- um. Alt þetta gerðist með heift- úðugri andstöðu rauðu flokk- anna í bæjarstjórn. BORUNIN AÐ REYKJUM Strax og Sjálfstæðismenn höfðu náð umráðarjetti yfir hitasvæðinu að Reykjum, ljetu þeir hefja borun þar á staðn- um, til þess að auka heita vatn- ið. Var í fyrstu notaður bor sem bærinn átti, sem boraði 4 þuml- unga víðar borholur. Með þessum bor hafa verið boraðar 17 holur að Reykjum, og hafa þær allar, nema ein borið árangur. Úr þessum hol- um hefir fengist ea. 107 lítrar af heitu vatni. Það sýndi sig, að borunin hafði ekki mikil áhrif á heitu uppspretturnar sem fyrir voru. STÆRRI BOR Þar sem sýnt var að borunin að Reykjum gaf góðan árang- ur, ákváðu Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn, að fá stærri bor við borunina, til þess að vatn- ið næðist fyr og rannsóknin gengi greiðara. Þann 9. ágúst 1935 skrifaði bæjarverkfræðingur í umboði bæjarstjórnar gjaldeyris- og innflutningsnefnd og bað um leyfi til að' flytja inn hentugan bor frá Svíþjóð. Borinn var þar tii fullsmíðaður. Lengi vel kom ekkert svar frá nefndinni. Eftir margítrek- aða beiðni kom loks svarið: Alger sjmjun. Svo loks þann 16. maí 1936 fekst leyfi nefndarinnar til þess að panta bor frá Þýskalandi. I Svíþjóð var borinn til á ,,iager“, og hefði því ekki þurft að bíða nema hálfan mánuð eftir honum. Þessi bor var auk þess talsvert ódýrari en bor, er var fáanlegur í Þýskalandi.Samt neitaði innflutningsnefnd um ieyfi frá Svíþjóð. Þar við bættist það, að í Þýskalandi var enginn bor til sem okkur hentaði, og þurfti því að smíða borinn. Hann var samt pantaður , og kom borinn hingað 12. nóv. 1936. Stjórnarflokkunum hafði þannig tekist að draga það í nál. IV2 ár að borinn fengist. Og þeir urðu einnig þess vald- andi, að ekki fekst eins hent- FRAMH. Á FJÓRÐU SS)U.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.