Morgunblaðið - 27.05.1937, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.05.1937, Blaðsíða 5
iFlmtudagur 27. maí 1937. ð^tntbMtH H.f. Arvakur, Reykjaylk, fUtstjörari Jt5n KJartanaion og Valtýr SteftLnaaon (*6yrB8araaaBur). Aaalýalnarari Árnl Óla. fStltatjðrn, anfljdit*' o* »ffr*l¥alai Auaturatrstl I. — Slaal 1(00. Áafc 'tftarKjaldi kr. S.00 fc aa&nuBl. f ’aneaaOlai 15 aura elntaklB — II aura a**B LeabOk. HITAVEITAN OG FJANDMENN BÆJARINS. M0R6UN BLA'Ð IÐ dr. Björn Bförnsson: Fyrirtæki bæjarins. Líklega er ekk,ei't mál til, sem Reykjavíkurbúar horfa á ,með meiri eftirvænfing en hita- veitan. Að ía straum af heitu vatni mn öll hús bæjarins, án fyrir- ýhafnar og án óhreininda, nóg heitt vatn, sem rennur fyrirhafn • arlaust nótt og dag, hlýjar liús in, ieggur til heitt vatn í bað og hverskonar aðrar þarfir — þetta <er nær beinu æfintýri, en nokkuð annað, seni menn vita fum af nútímaframförum. Um þe.tta mál eru allir bæj- .arbúar sammála að þessu leyti. Ujer er um dásamlega nýjung að ræða, sem ekki geta verið •skiftar ákoðanir um. Enginn •dirfist að vera á móti hitaveitu Reykjavíkur, enda þarf eklti að •efast um þann dóm, sem slíkur maður eða flokkur fengi fyrir þá afstöðn. * En þó *ru menn ekki sam- 'inála. Stjórnarblöðin skrifa nú hverja greinina annari lieiftúð- ugri gegn þessu máli, og vilja • ekkert ;annað en láta nú þegar ihætta við að bora á hitasvæð- inu á Reykjum. Þeir vilja nú láta fara aust- nr í Hengil, sem er meira en fhelmingi lengra frá bænum. Uáta 'þar gufu hita upp vatn, sem ekki er tál. Eða þá suður í Krýsuvík. Þar •er nóg vatnið, því að svo er að skilja sem liita eigi Kleifarvatn ið og véita því svo brennhejtu til Reykjavíkur! Þá vilja þeir láta þá menn 'hætta, sem liingað til hafa urln- ið að málinu og safnað þar reynslu, en fá ítalska menn í staðinn, frá • vini þeirri Musso- lini, af því að þar sje fengin reynsla nm virkjun heitra linda. En þeir virðast ekki vita, að ;þar er um virkjanir til raf- magnsframleiðslu að ræða, en alls ekki hitaveítur. Hitaveitan er nýtt mál. Þar 'hafa íslendingar vafalaust fmesta reynslu allra. Þá er enn bölsótast yfir verði hitasvæðisins, og er það einhver allra broslegasta fjarstæða, sem heyrst hefir. Reykvíkingar brúka kol fvr- ir á aðra miljón króna á ári hverju. Hitarjettindin lcostuðu 150 þús und krónur. Iljer eiga þá 150 þús. krónur að vera of hátt verð fyfir eldsneyti handa Reykjavík um aldur og æfi! Og þetta kemur skrítilega við fyrri útrelkninga, þegar Jónas JÖnsson 1 jet meta jarð- hitann á Laugarvatni og hann var metinn á fullar 300 þtis. kr. Ef heitt vatn handa einum skóla var 300 þús. kr. virði, hvers virði skyldi þá vera heitt vatn er getur hitað upp bæ eins • og Reykjavík 1 Stjórnarflokkarnir þurfa nátt úrlega ekki á þessu máli að halda til þess að verða óvinsæl ir hjer í bænum. En hafi nokk- uð skort á óvinsældir þeirra, þá fá þeir þær áreiðanlega fyrir alla sína andstyggilegu fram- komu í þessu máli. Alt þeirra starf og alt þeirra skraf í þessu máli hefir miðað að einu og aðeins einu: Að eyðileggja málið. Og þegar þeir sjá, að þetta er ómögulegt, þá reyna þeir að tefja það svo, að árangurinn skuli ekki vera kominn í ljós fyrir kosningarnar. Þess vegna neita þeir um inn flutning á bornum. Þess vegna leyfa þeir ekki, þegar þeir loksins gátu ekki stað- ið lengur á móti innflutningi hans, að borinn væri keyptur þar sem hann fekst strax, til- búinn, heldur neyddu bæinn til þess að láta smíða nýjan bor. Þess vegna ískrar í þeim á- nægjan og fögnuðurinn yfir því að borinn skýldi ekki reynast eins traustur og hann hefði átt að vera, svo að enn verður töf á verkinu. Reykvíkingar! Við skulum kæfa niðri í þeim þennan fögn- uð. Hitaveitan væri nú að kom- ast í framkyæmd, ef stjórnar- liðið hefði ekki þvælst fyrir því á allar lundir. Hún kemur, en hún kemur seinna fyrir þessa fjandsamlegu aðstöðu stjórnarflokkanna. Og ef þeir næðu völdum, þá má hamingjan vita hvað málið dregst. Þá verður undir eins hætt við boranirnar á Reykjum. Þá verður gaufað við tilraun- ir austur í Hengli í 5 ár. Og síðan jafn lengi suður við Kleif arvatn og Krýsuvík. Og hver veit hverju þeir finna svo upp á til þess að spilla málinu. Þessir menn eru fjandmenn bæjarins. Burt með þá úr stjórn! Delicious JarDepla- spænirnir eru tireinasta siælgæti, og um leið nærandi, hullir «í< auð- meltir. Jaröeplaspónagerðin Hafnarfirði. Igrein minni, er birtist hjer í blaðinu 22. og 23. þ. m. um tekjur og gjöld bæjarsjóðs Reykjavíkur kom skýrt í ljós, að þeir útgjalda- liðir, sem hækkað hafa meira en sem svarar fjölgun íbúanna, eða vexti bæjarins eru: Styrkþegaf ramf ærið, framlög til ýmsra lýð- mála, kostnaður við bamafræðslu og lög- gæslu, og stofnkostnað- ur gatna. Var jafnframt gerð grein fyrir ástæðunum til hækkunar þeirra út- gjalda. Verður hún að teljast eðli- leg í öllum þessum tilfellum, sbr. þó löggjöfina, nema að því er snertir framfærslu málin. En einnig þar hefir hækkunin sín- ar gildu ástæður, þó að þær sjeu alt annað en góðar. Var bent á nokkrar hinar helstu þeirra. Tveir gjaldaliðir höfðu lækk- að allverulega að tiltölu. Þeir eru kostnaður við sjórn bæjar- málanna og ráðstafanir til tryggingar gegn eldsvoða. Þessara tveggja útgjaldaliða gætir nú orðið tiltölulega lítið í heildarútgjöldunum. Þeir námu nærri 20% af gjöldun- um 1921, en tæpum 10% 1935. Aftur á móti hefir hlutdeild styrkþegaframfærisins hækkað á sama tíma úr ca. % upp í ca. Ys af heildargjöldunum. Við samanburð á tekjum og gjöldum alls, kom í ljós, að tekjuaukningin hefir orðið aft- ur úr útgjaldaaukningunni síð- an 1931. Með árinu 1931 varð meiri aukning á útgjöldunum en sem nam hinni eðlilegu hækkun þeirra samanborið við fjölgun íbúanna. Samsvarandi hækkun á tekjunum varð aft- ur á móti ekki fyr en á árinu 1934. Umsetning bæjarsjóð hefir, síðustu árin, vaxið örar en sem svarar íbúafjölguninni, og aukning gjaldanna hefir verið stórstígari en aukning teknanna. Hafa verið leidd rök að því, að aðalorsökin til þessarar þróun- ar er hin mikla hækkun styrk- þegaframfærisins. Þar sem þessi þróun í um- setningu bæjarsjóðs óhjákvæmi lega hlýtur að hafa sín áhrif á fjárhag hans, verður að taka sjerstakt tillit til styrkþega- framfærisins, þegar fjárhagur bæjarsjóðs er til athugunar. En fyrst skal fjárhagur bæjarins í heild tekinn til meðferðar. * FYRIRTÆKIN Eins og kunnugt er, starf- rækir bærinn 4 fyrirtæki til al- menningsþarfa: Höfnina, Raf- magnsveituna, Gasveituna og Vatnsveituna. Öll þessi fyrirtæki hafa sér- reikninga og því aðskildan fj^* hag frá fjárhag bæjarsjóðsins. Það væri freistandi að rekja hjer þróun fyrirtækjanna til fróðleiks borgurunum. Þess er þó ekki kostur í þetta sinn. — Hinsvegar er ekki hægt að ræða fjárhag Reykjavíkur, án þess, að taka tillit til fyrirtækj- anna, þó að hin raunverulega fjárhags- og ; menningarlega þýðing, sem þau hafa haft fyrir bæjarfjelagið verði vart metin til fjár. En það atriði er ekki til umræðu hjer. í árslok 1935 var búið að leggja í stofnkostnað við fyrir- tækin 21.4 milj. kr. Þar af höfðu þegar verið afskrifaðar 9.8 milj. kr., svo að bókfærður stofnkostnaður þeirra í árslok 1935 var talinn 11.6 milj. kr. Það er það verðmæti, sem bær- inn telur sjer í viðkomandi mannvirkjum, og rjettindum (vatnsrjettindi). Fje það, sem lagt hefir verið í fyrirtækin, svarar þó meiri „brúttó“-arði en í hlutfalli við hið bókfærða verð. Heildartekj- ur allra fyrirtækjanna hafa staðið í föstu hlutfalli við heild- arstofnkostnaðinn alt frá byrj- un. Reksturshagnaðurinn (hrein- ar tekjur + afskriftir) hefir einnig staðið í stöðugu hlutfalli við heildartekjurnar, og jafn- vel farið hækkandi. Afköst og afrakstur fyrirtækjanna hafa m. ö. o. vaxið í hlutfalli við aukningu þeirra. * Úr ýmsum áttum hafa heyrst ákúrur í garð stjórnar fyrir- tækjanna um það, að þau væru óhæfilega dýrt seld á þjónustu sína í þágu borgaranna. Þær staðhæfingar byggjast sumpart á vanþekkingu og sumpart á því, að ekki er tekið tillit til aðstæðnanna. Verður í þessu sambandi ekki hjá því komist, að athuga þessa hluti dálítið nánar til þess, að mönnum gefist kostur á að sjá þá í hinu rjetta ljósi. * Fyrst skal tekið fram það, sem sameiginlegt er fyrir öll fyrirtækin: Þau hafa staðið undir sjer sjálf. Þau hafa ein og óstudd stað- ið straum af hinum upphaf- lega stofnkostnaði pínum, sem og síðari augningum og endur- bótum. Þau hafa hvorki þurft að knýja á dyr ríkissjóðs nje bæj- arsjóðs um fjárhagslegan stuðn ing, en þær byrðar hefðu auð- vitað lent á skattborgurunum. Þau hafa á tiltölulega stutt- um tíma borgað niður lánsfje sitt, og binda því framtíðinni ekki bagga á herðar, heldur verða traust og öflug stoð undir fjárhagslegri þróun bæjarfje- lagsins í framtíðinni. 6 Hagur Reykjavík- urbæjar IV. Framtíðinni í þessum bæ bíöa nóg önnur verkefni en þau, að borga eyðsluskuldir fortíðar- innar. HÖFNIN Það mun vera rjett, að hafn- argjöldin hjer eru hærri en t- d. í Kaupmannahöfn. Hinsvegar munu þess dæmi í hafnarbæj- um í Noregi, að hafnargjöldin sjeu eins há og hjer. Er hinn forni og rótgróni hafnarbær Bergen, jafnvel í þeirra hóp. Aðstæðurnar hjer og víðast erlendis eru mjög ólíkar. Hafn- arbæirnir standa á gömlum merg. Höfnin hjer er ekki eldri en það, að hún er bygð á hinum óheppilegu tímum, stríðsárun- um. Skilyrði til hafnarbyggingaar hjer eru heldur slæm. Það þarf langa og trausta skjólgarða, sem eðlilega eru dýrir. Þar viö bætist að þeir, sem og bryggj- ur allar og bólverk, þurfa að vera hjer langt um hærri en víða annars staðar, vegna óliks munar á flóði og fjöru. Hann er hjer 5 m., en t. d. aðeins 1 fet í Kaupmannahöfn. Hjer hefir orðið að gera miklar og kostnaðarsaman upp fyllingar, og reisa öll mann- virki við höfnina ný frá grunni. Ríkisstyrkurinn, sem veittur var til hafnargerðarinnar var aðeins 400 þús. kr. Aftur á móti verðúr höfnin að veita hin- um íslensku varðskipum, sem og öllum erlendum eftirlits- skipum, ókeypis aðgang að höfninni. Auðvitað er það að rjettu lagi hlutverk ríkisins en ekki hafnarsjóðs Reykjavíkurbæjar, að standa straum af legum þess- ara skipa í höfn. Að öllu þessu athuguðu getur engan undrað, þó að hafnar- gjöld Reykjavíkurhafnar hafi hingað til verið hærri en þeirra hafnarbæja erlendis, sem ódýr- astir eru. Er þó ekki nærri alt talið, er gerir afstöðuna erfið- ari hjer en þar. RAFVEITAN Það er aðallega tvent, sem skýra þarf í sambandi við hana. 1) að byrjað var á því að virkja Elliðaárnar en ekki Sogið, 2) verðið á raforkunni. Bæði vatnsföllin, Sogið og Elliðaárnar, komu til athugunar þegar undirbúningurinn að byggingu rafveitu fyrir Reykja- vík var á döfinni. Það var fyrst og fremst vegna tillagna norskra verkfræðinga, sem leit- að var álits hjá um virkjunina, að Elliðaárnar voru valdar. Útreikningar sýndu, að virkjun Sogsins gat ekki borgað sig á þeim tíma, eða ekki fyr en íbúar Reykjavíkur væru orðnir um 30 þús., og eigin bjóst þá við eins örum og stöð- ugum vexti bæjarins og raun varð á. FRAMH. Á SJÖTTU SIDU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.