Morgunblaðið - 22.06.1937, Blaðsíða 6
6
Þriðjudagur 22. júní 1937,
Sigurd Björling'. / Jón Halldórsson.
Samsðngur sænska einsðngvar-
ans Bjðrlings og karlakðrsins
„Fóstbræður".
Ainiðvikudagskyöldið gefst
bæjarbúum kostur á að
klýða á samsong/ sem óhætt er að
»æla með. ‘ '
Hjer hefir rtú (tvalið um tíma
iir. óperusöngvati Sigurd Björling,
, frá óperunni í Stokkhóimi, og er
hann bæjarbúum að góðu kunnur
frá því í fyrra i sænsku vikunni,
að haou v^ einsöngvari sænsta.
st údeíll-a íi ó r-sin s h í
Fyrir miiligöiigu fjelagsins Sví-
þjóð hefir tekist áð koma því til
ieiðar, að bæjarbúar fái að hevra
til hans hjer að þessu sinni.
Hr. Sigurd Björling og Karla-
kórinn Fóstbræður halda sameig-
inlegan sam.söng í fiamla Bio kl.
7.15 næstkvomandi miðvikudags-
kvöld.
Af einsöngstögum, sem hr. Björ-
Mng sypgur ,á samsöngnum, má
uefna: í^roíog úr óperunni Baj -
azzo, eftir Leoncavallo, stórfeng-
iegt og fagurt og hefir sjaldan
verið sungið hjer. Þá er Kung
Heimer och Aslög, sænsk „ball-
ade“, lítt þekt hjer, glæsilegt lag,
eftir Södermann. Ennfremur mun
hann svngja arju úr' Æfintýri
Hoffmanns, eftir Offenhaeh.
Auk þessa kemur hr. Björling
fram sem einsöngvari í nokkrum
sænskum löguns með undirsöng
Fóstbræðra og í Landkjenning,
eftir Grieg.
Um list hr. Björlings er óþarfi
að fjölyrða. Það eitt, að hann er
táðinn við óperuna í Stokkhólmi.
er næg trygging fyrir því, að hjer
ér tun fágætan listamann að ræða,
því þangað veljast ekki nema af-
burða-söngmenn.
Hann hefir barytón-rödd, mikla
og karlmannlega með norrænum
blæ, silkimjúka í veikum söng, en
hetjulega og óvenjulega glæsilega
á háum tónum. Stokkhólms blöðin
hafa kepst um að hrósa söng hans
og leik í óperuhlutverkum hans.
T. d. segir svo í einn þeirra um
meðferð hans á Prolog úr Baj-
azzo:
.... Þessi góðkunningi varð al-
ger nýjung í meðferðinni og á-
heyrendur stóðu á öndinni af undr
un og hrifningu. Fagnaðarlætin
fóru fram úr öllu því, sem vjer
eigum að venjast ....
í Kaupmannahöfn fekk hr.
Björling hinar bestu viðtökur er
bann söng þar í fyrra og því var
spáð, að hann yrði annar Forsell.
Söngur Karlakórsins Fóstbræð-
ur er mönnum í fersku minni frá
síðustu hljómleikum kórsíns. Dóm-
arnir um þá voru á þá leið, að
aldrei hefði hinn smekkvísi og ör-
uggi söngstjóri kórsins, hr. Jón
Halldórsson, náð hetri nje list-
rænni árangri með kór sínum en
einmitt nú. Sá er þetta ritar, minn
ist þess ekki, að kórinn hafi áður
sungið eins fágað. nje náð eins
fínum blæbrigðum í söng sínum.
Baddirnar eru mjÖg vel sam-
sungnar, mjúkur og fallegur blær
á söngnum, jafnvægið milli radd-
anna gott og „dvnamik“ í besta
lagí* að ógleymdri „precision",
sem hr. .Jón Halldórsson nær öll-
um vorum söngstjórum hetur.
A söngskrá Karlakórsins eru
nær eingöngu sænsk lög.
TJngfrú Anna Pjeturss annast
undirleikinn.
Að lokum eitt gott ráð: Trygg-
ið vður aðgang í tíma.
Bilbao-btf rnin
i Englandi.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
Þegar börnin frá Bilbao, sem
flutt voru til Englands og höfo
eru í tjaldbúðum í grend við
Southampton, heyrðu í útvarp-
inu að Bilbao væri fallin, greip
þau örvinglun. Sum urðu æðis-
gengin^ og köstuðu grjóti í há-
talarann. Önnur grjetu hástöf-
um, og grjetu sig loks í svefn.
Sum æddu um grátandi, tóku
saman dót sitt og ætluðu að
leggja á flótta. Umsjónarmenn
barnanna urðu að kalla á lög-
reglulið og hjúkrunarlið sjer
til hjálpar. (F.Ú.).
Hringferð Ferðafjelags íslands
Þeir sem ennþá eiga eftir að skrifa
sig á, áskrifandalista að hringferð
um fjelagsins 4. og 10. jtilí, eru
vinsamlega beðnir um að gera
það strax og eigi síðar en fyrir
næstu helgi, 27. þ. m. Askriftar-
listar liggja frammi hjá gjald-
kera fjelagsins, Kristjáni Ó.
Skagfjörð, Túngötu 5. sem gefur
allar nánari upplýsingar. Hring-
ferðin í fyrra tókst með afbrigð-
um vel og ógleymanleg þeim, sern
fóru hana. f hringferðunum kynn
ast menn því merkfrste og feg-
ursíta, sera land okkar irefir að
bjóða.
MORGUNBLAÐIÐ
Skýrsla
íslands.
FRAIÆH. AF FIMTU SSDU.
rúm r annað af skipum þeini, sérn
sigldu til Hull. Var útlit fyrir, að
hraðfrysting á fiski rnyndi fara
talsvert í vöxt. — Akvað því fje-
lagsstjórnin síðastliðið haust að
láta setja frystirúm í e.s. „Detti-
foss“, og varð það að samkomu-
lagi við Fiskimálanefnd að hún
legði fram 25 þús. krónur til
hyggingar á ofangreindu frysti-
rúmi. Allur kostnaður við að setja
frystirúmið í Dettifoss nam urn
135 þúsundum króna.
Fyrirhugað
mótorskip.
Á síðasta aðalfundi fjelagsins
var samþykt tillaga fr;á fjelags-
stjórninni um það, að henni yrði
falið að athuga möguleika til þess
að fjelagið bygði farþega- og flutn
ingaskip, stærra og hraðskreiðara
en skip þau, sem fjelagið á nú,
og jafnframt var f jelagsstjórn-
inni veitt heimild til þess að láta
byggja slíkt skip fyrir fjelagið.
Fjelagsstjórnin hafði þegar áður
hafið undirbúningsstarf hjeraðlút-
andi og hjelt nrr því starfi áfram.
Fyrst lá fyrir, að taka ákyörðun
um, hvernig hið fy]’irlmgaða,„ijýja
skip skyldi véra, og v/arð >niðijr-
staða fjelagsstjórnarinnar sú. að
það skyldi vera mótorskip. —
Var hjer aðallega um tvær leiðir
að ræða. Önnur leiðin var sú, að
smíða skip, sem að því er sneHir
stærð og hraða, væri hliðstætt.
hinum bestu skipum, er nú eru í
áætlunarferðum milli Islands pg
útlanda. Hin leiðin var sú, að nota
tækifærið til þess að bæta að
verulegum mun samgöngurnar
milli íslands og útlanda með því
að útvega mikhr lrraðskreiðara og
stærra skip en nokkru sinni áður
hefir verið hjer í millilahdaferð-
um. En fjelagsstjórnmhí Var ljóst,
að fjelaginu1 væri ekki kleift að
fara þessa hina síðarnefndu leið,
nema hjer væri talið, liggja fyrir
svo mikið framfara- og velferðar-
mál fyrir landið í heild, að r.jett
þætti að veita fjelaginu mikinn
viðbótarstyrk úr ríkissjóði til þess
að útvega og reka slíkt skip. Með
því nú að fjelagsstjórnin taldi
sjálfsagt að gera alt sem stæði :í
valdi Eimskipafjelags íslands til
þess að styðjá að umbótum og
framförum á þessu sviði, enda
þetta ávalt verið stefna fjelags-
ins, þá valdi fjelagsstjórnin að
rannsaka fyrst hvort hin síðar-
nefnda leið í þessu máli væri fær.
Kom þá fyrst til álita hvaða
hraða hið fyrirhugaða skip skyídi
hafa. Yarð niðurstaðan að velja 16
mílna hraða á vöku. Méð þeim
hraða gæti skipið haldið uppi
hálfsmánaðarferðum fram og aft-
ur milli Reykjavíkur, Leith og
Kaupmannahafnar, og því leyst
af hendi hið sarna sem e.s. „Gull-
foss“ og e.s. „Brúarfoss“ gera nú
báðir, þegar ferðir vestur og norð-
ur eru ekki taldar nreð. En þegai-
skipið væri látið fara vestur og
norður tæki ferðin fram óg aftur
þrjár v,ikur. — -—
Stærð skipsins stendur að
nokkru leyti í sambandi við hraða
þess. með því að slíkum hraða,
hjer ræðir nn. verður ekki
páð nema skipið sje nokkuð langt.
og þarf hreidd þess að vera í hlnt-
falli við lengdina. Yarð niðurstaða
hjeraðlútandi athngana um stærð
skipsins sú, að það skyldi vera
320 fet á lengd, 45 fet á breidd
og 26 fet á dýpt. Yrði stærð skips-
ins þá rúmlega 3000 smálestir
brúttó. Til samanhurðar má geta
þess) að „Gullfoss“ og „Goðafoss“
eru 230 fet á lengd, „Brúarfoss“
og „Dettifoss“ 237 fet, og „Dr.
Alexandrine“ 251 fet á lengd. Með
framangreindri stærð skipsins er
gert ráð fyrir lestarúmi að stærð
um 86 þús. teningsfet, þar af
frystirúm 12 þús. teningsfet. Far-
þegafjöldi ætti að geta. orðið um
112 á 1. farrými, um 60 á 2. far-
rými og um 56 á 3. farrými, sam-
tals um 228 farþegar. Gert er ráð
fyrir að í byrjun, og meðan á-
stæður verða eigi til annars, þá
fari skipið á 3 sumarmánuðunnm
sex ferðir fram og aftnr milli
Reykjavíkur og útlanda (Leith—
Kaupmannahöfn), en á öðrum
tímum árs fari það vestur og
norður til Akureyrar og vyrði um
þrjár vikur franr og aftur í hverri
ferð.
Uppdrættir að skipinu voru
gerðir í Kaupmannahöfn fyrir
milligöngu Emil Nielsens fyrv.
framkvæmdarst.jóra fjelagsins, en
fjelagsstjórnin og framkvæmdar-
stjóri gerðu athugasemdir og til-
lögur viðvíkjandi uppdráttunum,
svo að breyta þurfti þeim nokkr-
um sinnum og senda fram og aftur
milli Kaupmannahafnar og Reyk.j a
víkur. Uppdrættir voru því ekki
fvr en að áliðnu hausti komnir
það langt, að mögulegt væri að
gera áætlanir bæði um kostnað við
smíði skipsins og rekstur þess. En
svo sem kunnugt er, fór allur
kostnaður við skipasmíðar að
hækka afskaplega um alla veröld
þegar í síðaátl. septembermánuði
vegna hækkunar á verði stáls og
annara málma, sakir Iiins aukna
vígbúnaðar stórþjóðanna. Þrátt
fyrir það taldi fjelagsstjórnin
rjett að halda áfram undirbún-
ingi málsins.
Eins og framkvæmdarstjóri fje-
lagsins, Guðmundur Vilhjálmsson,
sagði fyrir í ræðu sinni um þetta
nrál á síðasta aðalfundi, sem prent
uð var nreð síðustu aðalfundar-
gjörð, þá kom fljótlega í ljós, þeg-
ar fenginn var grundvöllur fyrir
kostnaðar- og rekstursáætlun hins
fyrirhugaða skips, að rekstur þess
mundi ekki geta borið sig með
þeim tekjum, sem ætla má að skip-
ið fái. Fjelagið sneri sjer því til
ríkisstjórnarinnar um nrálið í síð-
ástl. nóvembermánuði, og að und-
angengnum hjeraðlútandi samtöl-
Úm, fyrst við atvinnumálaráð-
herra, og síðan alla ráðherrana
saman, skrifaði fjelagsstjórnin at-
vinnumálaráðherra brjef um mál-
ið 12. desemher síðastl., þar sem
fjelagsstjórnm fór fram á það, að
f jelagið fengi í 10 ár árlegan
A ttaM
I styrk úr ríkissjóði og lilunniiidi' á
ýmsum sviðum til þess að .standast
I rekstur hins fyrirhugaða skips.
Fóru síðan fram nokkrar sam|(-
ingsumleitanir hjeraðlútandi milli
ríkisstjórnarinnar og fjelagsstjóí'*
arinnar. En með því að svo stutt
var orðið þar til Alþingi ætti að
koma sarnan, varð það úr, að mál-
inu yrði frestað til þings. Sendi
atvinnumálaráðuneytið málið síða*
til fjárveitinganefndar Alþingis.
En áður en nefndin gæti tekiS
mál þetta til verulegrar meðferð-
ar var orðið Ijóst, að þing mundi
verða rofið, svo að fjárveitinga-
nefnd tók eigi neina afstöðu til
málsins, sem því nú verður að
bíða næsta þings. En fjelagsstjórm-
in mun að sjálfsögðu halda á-
fram að vinna að framgangi þessa
máls, sem hlýtur að teljast mjög
þýðingarmikið fjrrir land og lýð.
Ástand og horfur.
Það sem af er árinu, hafa Vörm-
og fólksflutningar verið uokkoá
meiri en á sama tírna í fyrra, ög
má því gera ráð fyrír, að rekst-
ursafkoman sje eitthvað betri ert
þá var. — Einnig hefir verið ó-
venju mikil eftirspurn eftir far-
þegarúmi í sumar, og eru skip
fjelagsins þegar þvínær fullbókuð
yfir sumarmánuðiná. Þessi mikla
eftirspurn eftir farþegarúmi staf-
ar að sjálfsögðu meðfram af því,
að „íslandið“ strandaði, og einnig;
af því, að Sameinaðafjelagið héfir
hætt við að láta „Primnla“ ganga
á milli. Leith Qg Keykjavíkur í
surnar, eins og undanfarin ár. Til
þess að reyna að bæta úr þessú að
einhverjn leyti, hefir fjelagið feng
ið leyfi til þess að nota aftara
milliþilfarið á e.s. „Brúarfoss“ og
e.s. „Gullfoss“ sem nokkut'skonar
3. farrými vfir sumarmánuðina.
Þetta er að vísu mjög ófullkomið
og ófullnæg'jandi, en kernur þó
væntanlega að einhverju gagni.
Vörur til skipa hafa yfirleitt
hækkað talsvert í verði síðustu
mánuðina, og má þar sjerstaklega
nefna kol, sem hafa hækkað um 7
fshillinga tonnið frá því sem var á
I sama tíma í fyrra. — Menn geta
gert sjer í hngarlnnd, hve gífur-
leg xrtgjaldaaukning þetta er fyrir-
fjelagið þegar þess er gætt, að
skip fjelagsins brenna árlega um
21—22 þús. smálestum af kolum.
— Verður því varla hjá því kom-
ist, að hækka bæði flutningsgjöld
og fargjöld að einhverju leyti í
náinni framtíð til þess að vinna
upp á móti þessum stórhækkaða
útgjaldalið, enda má geta þess, að
f lutningsgj öld liafa undanfarið
farið hækkandi víðasthvar í heim-
inum.
Að lokum viljum vjer beina
þeirri ósk vorri til landsmanna, að
þeir haldi áfram að sýna fjelag-
inu þá hollustu og þá velvild, sem
þeir hafa hingað til gert, en í því
felst hinn örnggasti grundvöllur
fyrir framtíð fjelagsins.
Sími 1380.
LITLA BILSTÖfilN Ei“
Opin allan sólarhrinírinn.
*tór