Morgunblaðið - 22.06.1937, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 22.06.1937, Qupperneq 8
s MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagor 22. júní 1987.. Smálúða, Rauðspretta, Ýsa, Þjyrsklingur, beinlaus og roð- laus fiskur. Daglega nýtt. Fisk & Farsbúðin, sími 4781. Blómkáls- og grænmetisplönt- ur eru seldar á Freyjugötu 3. Sími 3218. Vesta fylgist með nýjustu tísku í prjónavörum, og býður yður nýtísku prjónafötin, löngu áður en hægt er að flytja þau inn frá útlöndum. Brjefsefni. Smekkleg brjefs- efni í mörgum litum og gerð- um, fást í Bókaverslun Sigurð- ar Kristjánssonar, Bankastræti 3. — Skráaröryggi (Patentlása) sem fyrirbyggja að hægt sje að dírka upp hurðarskrár, sel- ur Alexander D. Jónsson, Laugaveg 86. Vestu vörur eru úr bestu fáanlegri ull, erlendri og inn- lendri, engin baðmull eða gerfi- ull, athugið það. Mjólkurbússmjör og osta í heildsölu hjá Símoni Jónssyni, Laugaveg 33. Sími 3221. Vjelareimar fást bestar hjá Poulsen, Klapparstíg 29. Kaupi gamlan kopar. Vald. Poulsen, Klapparstíg 29. Ves^a er á Laugavegi 40. Friggbónið fína, er bæjarins besta bón. <r fDeð morgunkaffinu — Kona ein kom inn í búð í Osló um daginn og bað um blæ- væng, sem færi vel við hörundslit hennar. Samkvæmt skipun versl- unarstjórans sótti afgreiðslumað- urinn handmálaða blævængi og sýndi henni. En af því brást kon- an svo reið við, að hún stefndi verslnnarstjóranum. Málið er í rannsókn. * Lítill drenghnokki spurði móð- ur sína: — Hvað er jeg mikils virði, mamma! — Þú ert miljóna króna virði fyrir mig. — Gæti jeg ekki fengið eins og 25 aura af þeirri upphæð, mamma ? * Sami hnokki var spurður, hve mörg epli liann og systir hans fengi hvort, ef* þau ætti að skifta átta á milli sín. — Það fer eftir því, hvort okk- ar skiftir, svaraði hann. * — Hvernig finst þjer þessí „mayonnaise“, Kalli? — Agæt. Hefurðu keypt hana sjálf ? * — Hversvegna dragið þjer klukkuna altaf upp, þegar þjer eruð búinn að borða ? — Læknirinn sagði, að jeg hefði gott af að reyna dálítið á mig eftir mat. * Mrs. Ella Hughes í London er eina konan í Englandi, sem eign- ast hefir barn, bæði á 25 ára rík- isstjórnarafmæli Georgs V. óg á krýningardag núverandi Breta- konungs, Georgs VI. * — Get jeg fengið hreinan vasa- klút, Soffía? — Þeir eru í þvottinum. — Báðir . . .? * Hans litli var í fyrsta sinni á æfinni 'boðinn í matar- veislu einn síns liðs — skólafje- lagi lians átti afmæli. Mamma hans lagði rikt á við hann að vera siðprúður, og lof- aði hann að gera sitt besta. Þegar hann kom heim, spurði mamma hans, hvort hann hefði nú verið kurteis eins og vei'a bar. „Já“, sagði Hans, „það var að minsta kosti aðeins smávægi- legt------ „Hvað kom fyrir, Hans?“ „Þegar jeg var að sltera „buff- ið“ í sundur, hrökk það af disk- inum mínum og niður á gólf. En jeg bjargaði mjer“. „Hvað gerðir þú?“ „Jeg sagði bara: Svona fer það, þegar kjötið er seigt!“ * — Húsbóndi minn er mjög dutl- ungafullur. Annan daginn kyssir hann mig og kallar mig „elskuna sína“, en hinn daginn fer hann með mig eins og jeg væri konan lians! * Fulltrúi frá líftryggingarfjelagi hringir að dyrum og hittir hús- bóndann: „Nú hugsa jeg, að þjer þurfið að líftryggja ýður, fyrst þjer er- um kvæntur ?“ „Nei, jeg geri ekki ráð fyrir, að hún sje svo liættuleg!“ m* Vön saumakona óskast til að sauma í húsi. Uppl. í síma 4954. i Nokkrir söludrengir óskast- i Komi í Bókabúðina á Skóla- vörðustíg 3. I Otto B. Arnar, löggiltur út- [varpsvirki, Hafnarstræti 19. — Sími 2799. Uppsetning og við- gerðir á útvarpstækjum og, loftnetum. 2 herbergi og eldhús óskast 1. júlí. Upplýsingar í síma 4423. Akranes -- Akureyri. Hraðferð á fimtudag. Steindór, simi 1580. Ódýrl! Strausykur 45 pr. kg. Molasykur 55 pr. kg. Kaffi, O. J. & K., 95 au. | pk. Smjörlíki og allar aðrar vörur með lægsta verði. Jóhannes Jnhaonssonfl Sími 4131. Bifreiðastöðin Geysir. við Arnarhólstún leggur áherslu á að gera viðskiftavini sína ánægða. Opið allan sólarhringinn. Sími 1633. Sími 1633. Grundarstíg 2. Kf öt af fullorðnu fje. Kindabjúgu Miðdegispylsur* Hvítkál — Gulrófur BÚRFELL, Laugaveg 48. Sími 1505. 3YSTURNAR FRA DUMULM Ný hræðsla greip Dauru. Gat ekki verið, að haun vildi hefna sín fyrir það, sem hann hjelt, að hún hefði gert á móti honum, og segja svo Annira lieyrði, að hann væri enginn vinur Georgs, heldur miskuun- arlaus óviuur? Annira lá á hnjánum fyrir framan rúm Georgs, en þegar hún sá, að það var Daura og Trov, sem komu inn, stóð hún ekki á fætur. „Jeg held bara“, sagði hún blíðlega, „að hann sje heldur betri. -Jeg held jafnvel, að liann hafi þeltt rödd mína einu sinni. Ó, Troy, þjer þekkið hann vel og er- uð vinur hans. Komið hingað og segið mjer, hvort yð- ur finst hann ekki hafa breyst“. Troy fann, að hönd Dauru, sem hvíldi undir hand- legg hans, kiptist við. Ilana hafði ekki minsta hugboð um, hvernig hún og læknirinn höfðu gabbað hann, en hann fann, að hún var skelkuð, dauðskelkuð. Hann hikaði um stund og virtist alls ekki líklegur til þess að verða við bón Anniru. Hann horfði á syst- urnar tii skiftis. Augnaráð beggja var biðjandi, en hversu ólíka bón hafði það ekki að geyma. Augnaráð Anniru var fult trúnaðartrausts og ást- úðar og vonin skein úr augum hennar. En hræðslan skein úr augum Dauru. Hami var bæði ánægður og beiskjufullur við til- hugsunina um vald sitt. Hann fann, hversu þessar tvær fögru stúlkur áttu alt undir náð hans og misk- unn, stúlkan, sem hafði reynt að vinna hann, og stúlk- aa, .sem Conway elskaði. Troy vissi ofur vel, að hann myndi alls ekki geta stilt sig, ef hann gerði eins og Annira bað um og færi að rúminu til Conway, til þess að sjá, hvort veikindi hans væru uppgerð. Hann vissi, að hann myndi ekki geta stilt skap sitt, þegar hann sæi hann, og gat enga ábyrgð borið á því, sem hann myrtdi segja eða gera. Annira horfði á liami biðjandi auguaráði. Hann langaði mest til þess að segja, að hann væri alls ekki vinur Conways. En að særa þessa nngti stúlku, sem kraup þarna fyrir framan rúmstokk unnusta síns, var eins og að drepa saklausan fugl. Hann hugsaði um gjöfina, sem hún hafði gefið honum og liann hafði þegið, til þess að valda henni ekki sorgar. Hann mundi líka vel eftir velvild Gormes lávarðar og þess- um orðum hans: „Þjer hefðuð átt að vera sonur minn“. „Þakka yður fyrir, lafði Annira“, sagði hann rólega, „eu jeg held, að það sje betea að jeg komi ekki alveg að rúminu til lians, ef hann er að ranka við sjer. Það er best, að þjer sjeuð ein hjá honum. Jeg get beðið, þangað til síðar“. Hann slepti handlegg Dauru, en liann hafði þrýst hann fastara en hann vissi sjálfur. Fimm rauðir hlett- ir sáust eftir fingur hans á mjúku og hvítu hörundi hennar. Hún fann það bæði og sá. Hann lileypti brún- um og beit á jaxl. En liann var nú ekki lengur hvorki grimdarlegur nje liarðneskjulegur á svip. Og nú vakn- aði vonin hjá Dauru á ný — en henni lá við að hata sjálfa sig fyrir það. Hún vissi ekki af fyr en tárin fóru að streyma niður kinnar hennar, henni til mikillar sorgar og hugar- angurs. „Jeg hefi farið illa með handlegg yðar“, sagði hann lágt, þegar Annira sneri sjer frá þeim. Hún var með allan hugann lijá Georg. „Nei“, svaraði Daura í sama rómnum. „Þjer gætuð aldrei grætt mig með því að fara illa með mig á þann hátt. Jeg á kannske skilið að þjer farið illa með mig, — en ekki eins og þjer hafið farið með mig í kvöld. Þó get jeg fyrirgefið yðvir það alt fyrir þetta, sem þjer nú hafið gert fyrir systur mína“. „Góða nótt“, flýtti hann sjer að segja. „Þjer verðið líklega kyr hjerna — hjá lafði Anniru?“ „Já, en þjer skuluð korna aftur, ef þjer viljið, þegar Nira er farin. Jeg bíð hjer eftir yður, ef þjer viljið. Ætlið þjer að koma?“ „Jeg veit ekki“, sagði hann. „Jeg get ekki ákveðið það uú. Þjer þurfið ekki að bíða eftir mjer“. „Þá verðið þjer að lofa mjer einu“, sagði hún, þegar ■ hún kom út að hurðinni með Iiouum. „Getum við ekki verið eins og vinir, þegar aðrir heyra. Verið þolinmóð- ur um stund. Ef Georg er betri,. verður hið yðar styttri. Á morgmi verður dansleikurinn. Mig langar til þess að þjer dansið við-mig og sýnið hinu íólkinu, að jeg hefi þó að minsta kosti verið góður kennari“. „Jeg er ekki smeikur við að dansa við yður, lafði.s Daura“, svaraði hann og meining orða hans varð ekki misskilin. Að svo mæltlr yfirgaf. hann hana. Daura stóð kyr urn stund og horfði á hnrðina, sem> lokaðist á eftir honum. Þegar liún var búin að jafna sig svo mikið, að bún gat talað, fór hún að rúminu tiU Anniru. Nú fyrst tók Nira eftir því, að Daura var með tárvot 'augu. „Ertu að gráta?“ spurði hún og reis á fætúr og lagði handlegginn utan um hana. „Þú hlýtur að g'ráta af. gleði“. „Já, það lield jeg líka“. „Jeg- held jeg geti sofið í nótt“, sagði Nira, þegai • þær systurnar voru komnar inn í svefnherbergi henn- ar. „Nú fyrst finn jeg, hve jeg er í raun.og veru þreytt. Það verður gott að sofa og hvíla sig nú, þegar Georg er farið að batna. Og skartgripirnir eru örugg- ii’ hjá þjer. Jeg sagði Emmons það í dág, að þú hefð- ir ábyrgðina á þeim núna, og hann sagðist þá > vita það. Hefir þú trúað honum fýrir því, eða hefir hanii ! komist að því sjálfur?“ „Ætli hann hafi ekki aðeins verið að gortá, til þess. að þú skyldir halda, að liann væri svona duglegur- leynilögreglumaður", svaraði Daura hlæjandi. En húu var þó ekki allskostar róleg, þegar hún mundi eftir liinu undarlega málmhljóði, sem hún hafði heyrt. Nira sofnaði brátt, en Daura sveipaði um sig slO’ og læddist niður til Conways. Dr. Mac Donald sat v. ... rúmið og vakti yfir sjúklingnum. „Hefir nokkur komið hingað?“ spurði hún óttasleg- in. „Enginn nema Angus. En jeg sagði honam, að hami mætti fara“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.