Morgunblaðið - 26.06.1937, Síða 3

Morgunblaðið - 26.06.1937, Síða 3
Laugardagur 26. júní 1937 MORGUNBLAÐIÐ 3 Sjálfstæðis- og Bænda- flokkurinn hafa47.5°/o af kjósendum landsins. Stjórnarflokkarnir aðeins 44°|0 Atkvæðaaukning Sjáifstæðistlokksins mun nteiri en skýrslur sýna, Mikið af síld At af Siglufirði. Logn og sólskin á síldarmiðum. ndanleg úrslit kosninganna eru nú kunn, og er eftir því sem næst verður komist atkvæðamagn flokkanna sem hjer segir: Sjálfstæðisflokkur 24.037 atkvæði Bændaflokkui’ 3.557 — Framsóknarflokkur 14.498 Alþýðuf lokkur 11.031 Kommúnistaflokkur 4.914 Við kosningarnar 1.934 fengu flokkarnir bess.ar aíkvæBa- tölur: SjálfstæSisflokkur Framsókaarflokkur Alþýðuflokkur Bændaflokkur Kommúnistaflokkur JÞáttlaka kjósenda varð í þfiss um kosningum 10% meiri en í kosningunum 1934, enda hafa allir flokkar, að Alþýðuflokkn- nm einnm undanskildum aukið atkvæðamagn sitt. Atkvæði flokkanna. Mest hefir aukningin orðið hjá Framsóknarflokknum eða um 3000, þ.á kemur Sjálfstæðis- flokkurinn með um 2000» þá Kommúnistaflokkurinn með um 1800 og loks Bændaflokkurinn með aukningu aem nemur um 200 atkvæðum. Atkvæðamagn Alþýðuflokksins hefir lækkað am alt að 800, ef^atkvæði Ásg. Ásgeirssonar eru með talin i bæði skiftin, sem rjett er að gera. Atkvæðaaukning Framsókn- arflokksins stafar af tvennu. í fyrsta lagi af því, að svo virð- ist sem flokkurinn hafi í ýms- am kjördæmum heimt að miklu leyti aftur atkvæðin sem Bænda flokkurinn fekk frá honum við síðustu kosningar. Þetta á sjer- staklega við um einmennings- kjördæmin, sem Bændaflokkur- inn hafði nú frambjóðendur í, en Sjálfstæðisflokkurinn ekki, eins og Vestur-Húnavatnssýslu, Strandasýslu, Dalasýslu og að nokkru leyti Austur-Skaftafells- sýslu. I öðru lagi stafar atkvæða- aukning Framsóknarfiokksins af því, að hann fekk nú „að Iáni“ mjög mörg atkvæði frá sósíalistum og kommúnistum. Þannig er alveg fullvíst að Framsókn hefir fengið kosna 9—10 þingmenn beinlínis á at- kvæðum sósíalista og kommún- ista, þ. e. öll þingsætin í Rang- 21.974 atkvæði 11.3771/2 — 11.2691/2 — 3.348 — 3.098 — árvalla-, Árnes-, Mýra-, Skaga- fjarðar- og Norður-Múlasýslum og senniíega annað sætið í Eyjafjarðarsýslu. I sumum þessum kjördæm um, eins og t. d. Skagafirði, fær Framsókn öll atkvæði kommún- ista og öll atkvæði sósíalista, .að undanskildu aðeins einu. Við síðustu kosningar áttu þessir flokkar milli 80 og 90 atkvæði í Skágafirði og nú er vítað að þeir eiga þar talsvert á annað hundrað. Atkvæðaaukning Sjálfstæð- isflokksins er hinsvegar raun- verulega talsvert meiri en hon- um er talið, og stafar það af því, að flokkurinn fær lægra atkvæðamagn út úr þeim tví- menningskjördæmum, sem hann var í kosningabandalagi við Bændaflokkinn, og einnig af hinu, að flokkurinn hafði enga frambjóðendur í fjórum ein- menningskjördæmum. En at- kvæðin, sem Sjálfstæðisflokk- urinn tapar við þetta, koma Bændaflokknum til góða. Sje nú athugað hvernig hlut- föllin eru milli atkvæðamagns flokkanna nú og 1934 verður útkoman þessi ; 1934 1937 Sjálfstæðisfl. 42.3 % 41.4% Bændafl. 6.4% 6.1% Alþýðufl. 21.7% 19.1% Framsóknarfl. 21.9% 24.9% Kommúnistafl. 6.0% 8.5% Flokkaskiftingin á Alþingi. Úrslitin á kjördæmunum hafa orðið þau, að Framsóknar- FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Undanfarna daga hefir ver- ið stormásamt á síldar- miðum og lítið veiðst. Sjómenn telja mikið af síld á svæðinu frá Haganesvík að Flatey á SkjálfandafSóa. M’ikil áta er sögð í sjómim. Flest skip, sem leggja upp á Siglufirði og sem legið hafa inni undanfarna daga, fóru út á veiðar I gærdag. Var þá komið besta veður, logn og sólskin. F.Ú. í gær. 1 síldarverksmiðju Kveldúlfs á Hjalteyri höfðu 9 slcip lagt á land afla sinn frá byrjun síldarvertíðar til hádegis í dag. Aflinn var samtals 5828 mál. Mestan afla hafði Eldborg, 1749 mál. í gær var stormur á fiskimiðum, en í dag var komið gott veður og síldin farin að vaða á ný. Síðustu daga hafa verið lögð á land í Krossanesi 4000 mál síldar og á Dagverðareyri 1900 mál. Færrí erlendir ferðamenn í sum- ar en áður. pRLENDIR FERÐA- menn á íslandi verða síst f leiri í sumar en und- anfarin ár. Stafar það mikið af því, að of fá skip eru í förum milli ís- lands og útlanda. Tvö af skipum Sameinaða fjelagsins, sem hafa flutt mik- ið af erlendum farþegum til jandsins undanfarin sumur, eru nú hætt. ,,Island“ strandaði, sem kunnugt er, ög „Primula“ var látin hætta. Farrými á skipum Eimskipa- fjelagsins milli landa munu vera upptekin langt fram á haust. Aftur á móti er ekki kunnugt um hvort margir f,erða menn koma með „Esju“, sem er í förum mi’Ii Skotlands og fs- lands. Hefir skipið þegar farið eina ferð og var fátt farþega með. Skemtiskip, sem hingað koma FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Pestargirðingarnar milli hjeraða eru um 230 kílómetrar. ískyggileg útbreiðsla veikinnar. Samtal við Hákon Bjarnason skógræktarstjöra, HÁKON BJARNASON skógræktarstjóri hefir sem kunnugt er haft á hendi framkvæmda- stjórn þeirra varnarráðstafana, er ákveðn- ar voru með lögum frá síðasta þingi, til þess að stemma stigu fyrir útbreiðslu borg-firsku fjárpestarinnar. Hann tók við því starfi 17. apríl, og tók þá til ospiítra mál- K anna, til þess að undribúa þetta mikla starf. Hann hefir verið á sí-- feldum ferðalögum síðan. I gær var hami hjer, L bænum og hafði blaðið tal af honum. — Hvernig hefir verkið geng- ið? spyrjum ATjer Ilákon. — Það má segja, að girðing- arnar hafi komist upp eins fljótt og við var að búast, því að margs konur örðngleika hefir verið Við að etja. Varnargirðingarnar, sem setja átti upp milli hjeraða og sveita, til einangrunar hinum sýktu svæð- um, eru nú að mestu komnar u pp. Þessar aðal-girðingar eru sem hjer segir, ög er tilfærð lengd þeirra í kUómetrum. Austasta girðingin norðanlands, hefir verið gerð til þess að ein- angra Vatnsnes. Þai’ hefir verið girt frá Stóra Ósi við Miðfjörð um Múlabæi í Vesturhóp, og’ það- an austur í Hóp. Svi girðing er 25 kílómetrar. Þá er girðing milli Gilsfjarðar og Bitruf jarðar, til að afgirða Vestfirði. Er hún 12 km. En auk þess hefir þurft. að gera girðingu milli Ófeigsfjarðar og Reykjar- fjarðar, sem er 15 kílómetrar. Er hún gerð til þess að einangra þá bæi, þar sem veikin kom upp í vetur. Er vonast eftir, að veik- in verði heft á þessu svæði, svo hún breiðist ekki út um Vestfirði. Þá er girðing frá Búðardal aust ur í Hrútafjarðarbotn, er á að halda mestum hluta Dalasýslu frá- skildri pestarbælinu í Borgar- firði. Er hún 43 km. Þá er girðing fyrir Snæfells- ness og' Hnappadalssýslu, lögð frá Hítarnesi við Hítará norður yfir fjallgarðinn norður að Skraumsós í Hvammsfirði, 57 km. Þá girðing sunnan við aðal pest- arsvæðið frá ósum Andakílsár upp Andakíl í Skorradalsvatn, frá Skorradalsvatni austanverðu upp í Reyðar.vatn, en síðan úr Reyðar- vatni í tvær áttir, önnur álman upp í Langjökul, en liin til suðurs í Þingvallagirðinguna. Önnur girðing er úr Hvalfjarð- arbotni um Hvalvatn upp í girð- inguna, sem er milli Reyðarvatns og Þingvallagirðingar. Þá eru hjeraðagirðiugar taldar og taldist skógræktarstjóra svo til, að þessar girðingar væru sam- aulagt um 230 kílómetrar. En þá eru ótaldar varnarráð- 'stafanir þær, sem gerðai’ eru með fjárvörslu. • Við Blöndu frá upptökum til árósa eru 13 vérðir og 2 brúar- verðir. <<ni< Við Hvítá syðri og Brúará eru 11 verðir, við Sog 2 brúarverðir. Við Þjórsá 18 verðir frá upptök- um til ósa. Auk þess eru verðir við Eystri-Hjeraðsvötn. I’á eru girðingar settar uj)p í ýinsum sveitum til að geyma þar sjúkt og gruuað fje, svo það sýki ekki út frá sjer: Yrði of langt mál að telja þær allar upp. En lengd þeirra samanlögð er talsvert á 2. lmndrað kílómetra. Og hverjar eru horfur á, að tak- ast megi að stöðva úthreiðslu veik innar? Ilve mikil héfir útbreiðsl- an orðið, áður en hyrjað var á sóttvörnum þessum ? Um það hefir Ilákon þetta að segja: Á Suðurlandi er veikin komin lengst austur á bóginn í Biskups- tung'ur. Þar hefir hennar orðið vart á tveim hæjum. En menn von ast eftir, að hægt verði að sjá um að pestin breiðist ekki frekar út þar í sveit, og takmÖrkin að aust an verði Brúará. En bæði í Gríms nesi og Laugardal er pestin kom- in á marga hæi. í Snæfellsness- ög Ilnappadals- sýslu hofir veikinnar ekki orðið vart. En á nokkrum bæjum er hún í Dalasýslu, einum 6. Og eins á liinu takmarkaða svæði á Strönd um. Á Vatnsnesi er grunur um að veikin sje, en ekki fullvíst. Um Húnavatnssýslur er hún, sem kunn ugt er,þó með minna móti í Svína dal t. d. Þar á að girða nokkrar jarðir af . Austan Blöndu hefir veikin kom ið upp á fáeinum bæjum. En það- an hefir fjeð verið tekið og flutt vestur í Ileggstaðanes, og verður þar í sumar. Svo von er enn um, að Blanda verði austurtakmörk pestarinnar norðanlands. Þó vörður sje við Hjeraðsvötn til frekari fullvissu, eins og vörð FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.