Morgunblaðið - 26.06.1937, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Minningarorð um
Gunnstein Einarsson í Nesi.
-------r
tmusteinn Binarsson, hrepp-
stjóri, Nesi, Ijest af
hjartaslagi að heimili sínu 17. f.
jb. Er þar lokið æfi merkismanns.
Ounnsteinn var Skaftfellingur
að ætt og uppruna; fæddur í Kerl-
iogardal í Mýrdal hinn 23. juní
1871. Yoru foreldrar hans Einar
önnnsteinsson og Ástríður Sig-
orðardóttir. TJngui’ að aldri flutt-
ist Gunnsteinn með föreldrum sín-
uni til ReykjaVíkur. En frá 10 ára
aldri ólst hann upp hjá Erlendi
öuðmuiídssyni, bóhda í Skildinga-
nesi. Stundaði hann þá sjómenskci.
wm allmörg ár. Var hann um skeið
skipstjóri á þilskipum og þótti
mjðg aflasæll, enda skórti hvorki
áh’ti^a nje áræði til sjósóknarinn-
srr, og var ekki -heiglum hent að
aigla í kjölfar háns til aflafang-
anna.
Pá'er Gunnsteinn Ijet af sjó-
sókninni sneri hánn sjer að jarð-
ræktinni og bóskápnum með sama
áhugannm óg dugnaðinum, er
hann hafði sýnt í skipstjórn sinni.
Pyrs'tú búskapárár sin bjó hann í
Skildinganesi, en áritf 1919 kaupir
hann þriðjung höfhðbólsins Ness
▼ið Seltjörn. Þar bjó hann með
mestu1 rausn til 'æfiíoka. Eignar-
jörð sína bætti hann stórlega.
Honum var það blátt áfram nautn
að breyta gróðurlausum móum og
melum í gróðursæl tún. Hann sá
líka^pg fekk að njóta ávaxtar iðju
sinnari Töðufengurinn nær fimm-
faldaðist í hans tíð í Nesi. Þá
hafði hann einnig reist öll útibús
á jörðinni af grnnni, með rniklum
kostnaði og stórum myndarbrag.
Hjer var því miklit dágsverki
lokið.
Auk búskaparanna hlóðust ýms
opinher störf á herðar Gunnsteini.
Hreppstjóri í Seltjarnarneshreppi
var hann í 17 ár, og í hreppsnefnd
24 ár. í fulltrúaráðí Mjólkurfje-
lags Reykjavíkur, átfi hann sæti
frá upphafi. Ymsum öðrum trún-
aðarstörfum gegndi hann í sveit
sinni, og leysti öll af hendi með
ósjerplægni og samviskusemi.
Gunnsteinn var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Olöf Hafliða-
dóttir frá Skildinganesi. Þeim varð
þriggja barna auðið, er til aldurs
komust. Síðari konu sinni, Sól-
▼eigu Jónsdóttur frá Vík á Akra-
nesi) kvæntist hann 4. maí 1912.
Höfðu þau hjón því, nokkrum
dögUm fj’rir andlát Gunnsteins,
átt silfurbrúðkaup. Þau eignuðust
7 börn.
Börn Gunnsteins af fyrra hjóna-
bandi eru þessi: Guðríður, gift
Kjartani Ólafssyui; Reykjavík;
Anna, gift Signrði Þorsteinssyni
skipstjóra, frá Langholti í Flóa,
þau eru búsett í Englandi; Er-
lendur, dáinn 1935,
Börn af gíðara hjónabandi voru
þessi: Tryggvi, hifreiðarstjóri,
kvæntur Sigríði Þorvarðardóttur;
Ó-löf; jJón, bffreiðarstjóri; Ástríð-
ur; Guðmunclur, dó af slysförum
í fyrra; Sigríður, og Halldór,
yngstur, 8 ára.
Gunnsteinn hreppstjóri var með-
almaður á hæð, fríður sýnum og
fagurevgur, Ijettur í spori og har
vel aldurinn fram á efstu ár. Eng-
inn var hann suifdurgerðarmaður
nje yfirlætis. Var honum lítt gefið
Gunnsteinn Einarsson.
um allan yfirborðshátt og tildur.
En þótt hannbærist ekki mikið á
sjálfur, var þó hans rúm jafnan
vel skipað. Enda mun nú flestum
þykja sjónarsviftir að orðinu, er
hann hverfur svo skyndilega af
leikvelli lífsins, en þó mestur þeim,
er honum stóðu hjarta næst.
Enginn veifiskati var Gunn-
steinn í lund, en hjelt með festn
á sínum málstað, og skifti ógjarn-
an um skoðun, en þó var hann hið
besta samvinnuþýður. Hann var
glaðlvndur og jafnlyndur og brá
ekki skapi við smámuni. Allra
manna var hann raunbestur og
hjálpfúsastur. Hjúum sínum var
hann hinn besti húsbóndi, enda
mjög ástsæll af þeim. Vart verð-
ur á betri föður kosið en hann
var börnum sínum. Það var venja
hans að víkja góðu í orði eða
verki að börnum þeim, er á vegi
hans urðu. Gestrisnari mann hefi
jeg vart þekt.
Gunnsteinn var frábær áhnga-
og starfsmaður að hverju sem
hann gekk, og það svo, að ágæt-
nm hefir- haft verið af sveitung-
um hans. Einkum er því viðbrugð-
ið, hvílíkur sláttumaður hann hafi
verið. Hverjum manni var hann
árrisulli, sumar jafnt sem vetur,
og hafði hina bestu forsjá um bú
sitt, enda naut; hann til þess að-
stoðar sinnar tápmiklu dugnaðar-
konu. Varð hann þó oft frá búi
sínu að hverfa um stundarsakir í
þágu opinberra starfa, sem jafnan
fylgir erill og ónæði, en misjafn-
lega þöbkuð. ILafði Gunnsteinn
líka á sxðastliðnu ái*i, þá er hann
varð 65 ára, losað sig við flest
opinber störf. Eu að iiðru leyti
unni bann sjer ekki hvíldar nje
.yærðar, þótt hann fyndi „forna
þrekið bresta“, bæði fyrir aldurs
sabir og ástvinamissis. Og í önn-
um dagsins, starfandi og stand-
ajfidi hnje hann í valinn.
Þau æfilok hæfðu vel hinum
mikla athafnamanni.
S.
Ferðafjelag íslands fer skemti-
för í fyrramálið kl. 8, á Hengil og
í Dyrfjöll, eins og áður tilkynt.
Fjelagið selur farmiða á Stein
dórsstöð kl. 4 til 7 í dag.
Smjðr,
Oslar.
Egg.
KLEIN,
Baldursgötu 14. Sími 307o.
Ný uppfinning:
Vatnsþjettar hurðir.
AUir kannast við það, að þegar
rok og rigning er hvað erfitt er
að verja forstofur fyrir vatni, sem
bylur inn með útihurðinni, ef dyr
snúa móti rigningarátt, og það
erfiði sem því fylgir að vera sí-
felt að þurka upp vatn úr for-
stofunni.
Menn hafa verið að reyna, að
finna úpp ýms ráð við því að fyr-
irbyggja þetta, en mjer vitanlega
hafa engin að haldi komið, nema
þá helst það, að hafa 2 hurðir
þar sem önnur fellur inn í húsið
en hin út, en ílíkur frágangur er
neyðarráð sjerstaklega vegna þess
hve miklum óþægindum það veld-
ur og þess utan stór lýti á húsinu.
Lesendur Morgunblaðsins hafa
eflaust tekið eftir auglýsingu 1.
þ. m. frá Guðmundi Halldórssyni
trjesmið á Holtsgötu 31 hjer í
bænum, þar sem lupm augJýsir að
hann smíði vatnsþjettar hurðir og
geri gamlar hurðir vatnsþjettar.
Þessi auglýsing er engin skrum-
auglýsing. 1 fyrravor sá jeg eina
slíka hurð hjá Guðmundi, sem
hann hafði smíðað ásamt umbún-
ingi. Jeg reyndi þessa völundar-
smíð Guðmundar á þann hátt, að
jeg setti slöngu á vatnskrana og
„sprautaði“ á hurðina allsstaðar
þar sem hugsanlegast var, að
vatn gæti komist inn, en vatnið
komst aldrei lengra en aðeins inn
í hurðarfalsið, rann þar niður 6-
sýnilega rás sem er bak við hurð-
arkantinn, niðnr undir þröskuld-
inn og þaðan út.
Síðan setti Gnðmundur hurðina
í dyr á húsi einu í Skerjafirði, sem
altaf flóði vatn um þá rigningar-
átt stóð á dyrnar, og hrá þá svo
við að aldrei hefir komið vatns-
dropi í þá forstofu síðan.
Jeg tel, að þessi uppfinning
Guðmundar taki langt fram öllum
þeim tilraunum, sem mjer er kunn
\
ugt um, að gerðar hafa verið hjer
á landi í þessa átt'. Guðmnndur
Jónsson verkfræðingur hefir unn-
ið að því að útvega einkaleyfi
(patent) á uppfinningunni,
Það er vel, að iðnaðarmenn hafi
opin augun í starfi sínu, og hugsi
ofurlítið út fyrir takmörk vanans.
Þetta hefir Guðmundur Halldórs-
son gert. Hann hefir horft á ham-
farir illviðranna og sjeð rigning-
arvatnið lemjast inn í híbýli
manna og hann hngsar upp ráð
til að verjast þessu og og hann
hefir fundið það.
R. Þórarinsson.
PESTARGIRÐINGAR.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
ur er við Þjórsá sunnanlands, þó
veikin sje enn aðeins fyrir vest-
an Hvítá.
Eru hlið á pestargirðingunum
í óbygðunumf
Já, en vissulega er ætlast til
að ferðamenn loki þeim, enda
verða þungar sektir lagðar við,
ef út af er hi'ugðið.
En auk þess eru verðir við girð-
ingarnar með 10 km. millibili; er
eiga að sjá um að reka misknnn-
ai'lanst alt fje frá gírðirigunum,
kemur þar nálægt.
Laugardagur 26. júní 1937.
Framhald af 3. síðu,
Kosningaúrslilin.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
flokkurinn hefir bætt við sig
4 þingsætum, báðum í Rangár-
vallasýslu, öðru í Skagafirði og
í V.-Húnavatnssýslu. Hann verð
ur nú stærsti flokkur þingsins,
með 19 þingmenn.
Næststærsti flokkur þings-
ins verður nú Sjálfstæðisflokk-
urinn, með 12 þingmenn kosna
í kjördæmum og 5 uppbótar-
þingmenn, alls 17 þingmenn. Þá
kemur Alþýðuflokkurinn með
5 þingmenn kjörna og 3 upp-
bótarþingmenn, alls 8. Svo er
Kommúnistaflokkurinn með 1
þingmann kjörinn og 2 uppbót-
arþingmenn, alls 3. Loks kem-
ur Bændaflokkurinn með 2 þing
menn, einn kjörinn og einn upp-
bótarþingmann.
Það vekur að sjálfsögðu at-
hygli, að Sjálfstæðisflokkur-
inn og Bændaflokkurinn, sem
fengið hafa full 47.5 % greiddra
atkvæða 1 landinu fá nú aðeins
19 þingmenn af 49.
Ef rjettlæti ríkti og flokk-
arnir fengju þingmannatölu í
rjettu hlutfalli við atkvæða-
magn, ættu flokkarnir að hafa
þessa þingmannatölu: Sjálf-
stæðis- og Bændaflokkur 23,
Framsóknarflokkur 12, Alþýðu-
flokkur 10 og Kommúnista-
flokkur 4.
Framsóknarflokkurinn fær
þannig 7 þingmenn fleiri en
honum ber, miðað við atkvæða-
magn hans í kosningunum,
Sjálfstæðis- og Bændaflokkur 4
þingmenn færri, Alþýfiuflokk-
urinn 2 þingmenn færri og
Kommúnistaflokkurinn einn
þingmann færri en þeim ber,
miðað við atkvæðamagn flokk-
anna.
Uppbótar-
f>ingmenn.
Uppbótarþingmenn, sem eru
11 talsins verða sennilega þess-
ir:
Fyrir S jálf stæðisf lokkinn:
Frú Guðrún Lárusdóttir, Jón
Ólafsson, Þorsteinn Þorsteins-
son, Garðar Þorsteinsson og
Magnús Guðmundsson.
Fyrir Alþýðuf lokkinn: Sig-
urjón Á. Ólafsson, Emil Jóns-
son og Jón Baldvinsson.
Fyrir Kommúnistaf lokkinn:
Brynjólfur Bjarnason og Is-
leifur Högnason.
Fyrir Bændaflokkinn. Stefán
Stefánsson.
Hið nýja Alþingi.
Stjórnarflokkarnir, Framsókn
arflokkurinn og Alþýðuflokk-
urinn hafa nú samanlagt 27
þingmenn, og er það sama
þingmannatalan sem þeir raun-
verulega höfðu fyrir þingrofið,
þegar með eru taldir Ásg. Ás-
geirsson og Magnús Torfason,
sem fylgdu stjórnarflokkunum
í öllum málum.
Þingmeirihlutinn er þannig
nægilegur til þess að þessir
tveir flokkar geti farið áfram
með stjórn. En sú stjórn yrði
ekki lýðræðisstjórn, því að sam-
anlagt hafa þessir flokkar að-
eins um 44% kjósenda í Ia»d-
inu að baki sjer. Vilji þessir
flokkar þess vegna ekki traðka
lýðræðinu, verða þeir að fá
stuðning kommúnista, sem hafa
að baki sjer um 8.5% kjósenda.
Verður nú fróðlegt að sjá hvaða
virðingu stjórnarflokarnir bera
fyrir lýðræðinu.
Hvað er framundan?
Enn hefir ekkert heyrst wr
stjórnarherbúðunum um það,
hvaða samsetningu þeir hugsa
sjer nú að hafa á stjórn lands-
ins.
Það er að skilja á Alþýðu-
blaðinu, að Alþýðuflokkurin*
sje reiðubúinn að halda áfran*
samvinnu við Framsókn, ef
trygging' fæst fyrir framgangi
þeirra mála, sem flokkurinn
setti á oddinn fyrir þingrofið.
Nefnir blaðið mál eins og frum-
vörp Alþýðufloksins um „við-
reisn sjávarútvegsins“, „stuðn-
ing við togaraútgerðina“ (rík-
isrekstur togaraútgerðar né
ekki núfnt!), stofnun verslun-
arráðuneytis o. fl.
Nú var látið heita svo, fyr-
ir þingrofið, að samvinna
stjórnarflokkanna hafi einmitt
slitnað á þessum máíum, þar
sem Framsókn neitaði að ganga
inn á þau. En eftir Alþýðu-
blaðinu að dæma nú, virðast
einhverjar líkur til að Fram-
sókn muni nú ganga inn á þessi
ágreiningsmál, sem þingrofina
ollu. Til hvers var þá verið að
rjúfa þingið?
Kommúnistar halda sig en»
á samfylkingarlínunni. Þeir
vilja ólmir ganga til samvinnu
við Framsókn og Alþýðuflokk-
inn bæði á Alþingi og í myndun
stjórnar. Þeir telja, með rjettu,
að þeir eigi hlutdeild í ýmsum
ingmönnum stjórnarflokkanna,
þar sem þeir sjeu beinlínis kosn-
ir á atkvæðum kommúnista.
Þeir þakka einnig Framsókn og
sósíalistum fyrir stuðninginn í
Reykjavík, sem varð þess vald-
andi, að kommúnistar fengu 3
menn í þingið.
Þannig eru bollaleggingar
blaðanna í rauðu herbúðunum,
en hvað ofan á verður veit eng-
inn ennþá.
Að sjálfsögðu verður ekkert
gert í myndun stjórnar fyr e»
landkjörstjórn hefir komið sam-
an og reiknað út uppbótarþing-
sætin. Landkjörstjórn getur
ekki komlð saman fyr en henni
hafa borist skýíslur úr öllum
kjördæmum, en varla verður
langt að bíða þeirra.
ERL. FERÐAMENN.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
í sumar, eru 12 talsins, og er
það sama tala og í fyrra.
Yfirleitt má búast við, að
færri erlendir ferðamenn komi
til landsins í sumar en undan-
farin.sumur. Veitir Islending-
um þó sannarlega ekki af þeim
gjaldeyri, sem erlendir ferða-
menn skilja eftir í landinu.