Morgunblaðið - 26.06.1937, Qupperneq 7
Laugardagur 26. júní 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Minningarorð
• •
Qagbófc
♦
um Onnu Benediktsdóttur
frá Stóru Ávík.
Mig langar með fám orðum að
aiinnast lítilsháttar einnar merkr-
ar og góðrar konu, sem fyrir
iÖLÖmmu ljest norður í Stranda-
•ýslu, frú Önnu Benediktsdóttur,
húsfrú í Stóru-Ávík.
Hún var fædd 9. ágúst 1874 að
Hálsi í Öxnadal, og var komin af
feesta fólki í báðar ættir. Foreldr-
ar hennar hjetu Benedikt Jóns-
son og Margrjet Jónsdóttir;
bjuggu þau á Hálsi. Ætt þeirra
er mjer ekki svo kunnug, að hún
verði rakin hjer, en Margrjet var
systir Árna sál. Jónssonar læknis
£ Skagafirði, og frú Bjargar sál.
lconu Markúsar sál. skólastjóra
Stýrimannaskólans og frú Sigríð-
ar sál. frá Gaulverjabæ. Anna sál.
misti ung föður sinn. Tók hana þá
til fósturs merk og góð kona Ingi-
björg Jónsdóttir að nafni, systir
Björns sál. hreppstjóra á Veðra-
móti og þeirra systkina. Var fyrri
maður Ingibjargar náfrændi Önnu
sél. Ingibjörg giftist aftur, að
fyrri manni sínum látnum, Sig-
fúsi hreppstjóra Pjeturssyni, og
fejuggu þau lengst á Hellulandi og
í Eyhildarholti í Skagafirði. Hjá
þeim ólst Anna sál. upp til 18 ára
aídurs. Fór hún þá á Kvennaskól-
ann á Ytri-Ey, og síðan til Reykja
víkur til móðursystur sinnar, frú
Bjargar, og lagði þá sjerstaklega
stund á að fullkomna sig sem
mest í fatasaumi og ýmsum öðrum
kvenlegum hannyrðum, er að
gagni mættu koma í lífinu, enda
j»áði hún svo langt í þeim efnum,
að langt um bar af því sem al-
ment er. Stundaði hún síðan sauma
fyrst á saumastofum bæði í Rvík
og síðar víða, út um land, og gat
sjer alstaðar þar sem hún starfaði
góðan orðstír fyrir starfið, og alla
stund meðan heilsa leyfði vann
hún bæði að saumum og öðrum
hannyrðum, og kendi fjölda
stúlkna þessar greinir með góðum
árangri. Árið 1910 giftist Anna
sál. eftirlifandi manni sínum, óð-
alsbónda Guðmundi Jónssyni í
Stóru-Ávík, og þar bjuggu þau
síðan mesta mýndarbúi, og þar
andaðist hún 25. mars þ. á. af af-
leiðingum inflúensunnar, en hafði
um langt skeið verið mjög veikluð
til heilsu. Þeim Guðmundi og
Önnu sál. varð 3 barna auðið,
en 2 lifa, bæði uppkomin og mann-
vænleg, heima hjá föður sínum,
Jón og Ingibjörg.
Anna sál. Beuediktsdóttir var
sannarlega merk og góð kona.
Hún var vel gefin kona bæði and-
lega og líkamlega. Hún var for-
sjál og ráðdeildarsöm húsmóðir,
besta eiginkona og móðir. Hún
Anna Benediktsdóttir.
hafði næma og ríka tilfinningu
fyrir öllu sönnu og góðu, var
kærleiksrík og góðgerðasöm við
alla sem bágt áttu. Skoðanagóð
var hún og skoðanaföst, og fylgd-
ist. vel með þjóðmálunum. Sjer-
staklega. hafið hún mikinn áhuga
fyrir mentun og rjettindum
kvenna, og þegar kvenfjelag var
stofnað í hennar sveit, tók hún
þeim fjelagsskap með fögnuði;
var til æfiloka í stjórn þess fje-
lags, og vann með lífi og sál að
framfaramálum fjelagsins. Með
fráfalli Önnu sál. Benediktsdóttur
í Stóru-Ávík er í valinn hnigin
merk, mikilhæf og góð kona í orðs-
ins besta og eiginlegasta skilningi.
Við vinir hennar kveðjum hana
með hugheilli þökk fyrir samver-
una og samstarfið, og munum alt-
af muna liana sem merka og góða
konu. Og við sendum ástvinunum
heima hugheilustu samúðarkveðj-
ur. Guð huggi þá og blessi.
Sv. G.
Uppeldismálaþing kennarasam-
bandsins byrjar kl. 10 í dag, með
því að Ásgeir Ásgeirsson setur
þingið. Þá flytur dr. Símon
Ágústsson erindi um barnavernd.
Kl. 1 e. h. talar þar Sveinn Sæ-
mundsson lögregluþjónn um
reynslu lögreglunnar hjer í Rvík.
En kl. 2% hefjast umræður um
barnavernd. KI. 5 á morgun flytur
Jóhann Sæmundsson læknir erindi
um taugaveikluð börn.
Eimskip. Gullfoss er í Kaup-
mannahöfn. Goðafoss er á leið til
Hull. Bi-iÝarfoss var á Akureyri í
gær. Dettifoss kemur til Vestm.
í dag, hingað í kvöld. Lagarfoss
er á leið til Kaupmannahafnar.
Selfoss er á leið til landsins frás
Löiidon.
Hraðfrystihúsið í Bíldudal hef-
ir tekið á móti 24 smálestum af
kola frá 15. júní síðastliðnum til
þessa dags. (FÚ).
Hjartans þökk fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðar-
för dóttur ckkar,
Þorbjargar Guðrúnar.
Kristín Jóhannesdóttir. Þórhallur Jónasson.
Veðrið í gær (föstud. kl. 17):
Fyrir austan Jan Mayen er djúp
lægð og nær suðvestur á milli ís-
lands og Grænlands. Vindur er
víðast V-lægur hjer á landi. Á
A-landi er þó sumstaðar hæg NA-
A-átt og dálítil rigning. Annars er
hvergi xxrkoma og veður víða
bjart. Hiti'6—9 stig eystra, ann-
ars 10—14 stig.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
V- eða SV-kaldi. ITrkomulaust að
mestu.
Messað í dómkirkjunni á morg-
un kl. 11. Prestsvígsla. Engin síð-
degismessa.
Messað í fríkirkjunni á morgun
kl. 2. Síra Árni Sigurðsson.
Messað í Laugarnesskóla á
morgun kl. 2. Sr. Pjetur Th. Odds-
son prjedikar.
Auglýsingar kvikmyndahús-
anna og aðrar 1. síðu auglýsing-
ar eru á 4. síðu í blaðinu í dag.
Næturlæknir verður í nótt Al-
freð Gislason, Ljósvallagötu 10,
sími 3894.
Næturvörður ér þessa viku í
Laugavegs- og Ingólfs-apóteki.
Notið sjóinn og sólskinið.
Háflóð er í dag kl. 6.50 f. h.
og kl. 7.05 e. h.
Sextug er í dag frú Guðrún Jós-
efsdóttir, kona Jóns Brynjólfs-
soiiar, fyrv. kaupm., Austurstræti
3. Frxx Guðrún ber svo vel aldxxr
sinn, að ekki væri hægt að trúa
því, að hún sje orðin þetta göm-
ul, ef kirkjubækurnar sönnxiðu
ekki að svo er. Ekki er það
vegna iðjuleysis í lífinu, því auk
sex mannvænlegra barna, sem öll
eru á lífi, hefir hún stundað heim-
ili sitt nxeð þeirri rausxx og prýði,
sem eru einkenni þeirra kvenna,
sem meta meira starf sitt inn á
við en út á við. Greiðasemi við
fátæka og gestrisni hefir löngum
einkent frú Guðrúnu og vil jeg í
nafni þeirra allfa, sem hennar
liafa notið, óska henni hjartan-
lega til hamingju með daginn og
alls hins besta um ókomin æfiár.
Vinur.
Súðin fór í gærkvöldi vestur um
í strandferð.
Þeir prófessor Alexander Jó-
hannesson og húsameistari ríkis-
ihs prófessör ! Guðjón Samúélsson
lögðu af stað í fyi'radag í flug-
vjel frá Kaupmannahöfn til Köln
til þess að skoða nýjan háskóla,
sem þar hefir verið bygður. Frá
Köln er ætlan þexrra að fljúga til
Bern í Sviss og skoða þar einnig
nýjan háskóla. Ennfremur er ekki
útilokað, að þeir fari víðar um
og kynni sjer fyrirkomulag nýrra
háskólabygginga með það fyrir
augunx að nota þá þekkingu til
hliðsjónar við innrjettingu há-
skólans nýja í Reykjavík. (FÚ).
Nóbelsverðlaunin verða þetta ár
158 þúsund króiiur lxvert, en þau
skiftast eins og kunnugt er í
þrent: bókmenta-, vísinda- og
friðarverðlaun. (FIÍ)
Tillögur frá fulltrúaþingi
kennarasambandsins.
Fundir vorxx í fulltrúaþingi
Samb. ísl. barnakennara í gær.
Voru þar samþyktar ýmsar tillög-
ur og álvktanir. M. a. voru þess-
ar:
„Fulltrxxaþing ísl. barnakennara
lialdið í Rvík 1937, beinir þeirri
áskoi’un til kenslumálastjórnar-
innar, að hún geri sem fyrst ráð-
stafanir, er miði að því, að end-
urbæta uppeldisskilyrði barna á
heimilunum. Bendir þingið á, að
þetta mætti gera. m. a. á þann
hátt:
a. að stuðla að því, að foi’eldr-
um verði gert auðveldara að afla
sjer aukinnar fræðslu um upp-
eldi baima. Mætti t. d. gera það
með því að halda námskeið og að
gefa út tímarit og bæklinga.
b. að stuðla að xitbreiðslu upp-
eldisleikfanga, og verði þau seld
Fagranes fer framvegis til
Akraness á laugardögum kl. 3 í
stað kl. 5 áður. Fyrir ferðafólk,
sem ætlar frá Reykjavík norður
eða vestur er þessa getið, því að
breytingin hefst í dag.
Dansleikur vei’ður haldinn í K.
R. húsinu í kvöld kl. 10.
Frú Ingibjörg Eyjólfsdóttir,
Vesturgötu 32, er 83 ára í dag.
Nýja Bíó sýnir í fvrsta skifti
í kvöld kvikmynd, sem nefnist:
„Aumingja litla ríka stúlkan", og
leikur hin vinsæla Shirley Temple,
eftirlætisgoð allra barna, aðal-
hlutverkið. Myndin verður sýnil
kl. 6 (barnasýning) og kl. Ö'. Á
sýningunni kl. 9 verður sýnd kvik
mynd af Hindenburg-slysinu.
Sextugsafmæli á í dag frú Kat-
svo ódýrt, að hvei’t heimili geti
auðveldlega aflað þeirra.
Þá voru samþyktar tillögur frá
námsbókanefnd. m. a. um það,
hvaða bækur luest nauðsyn væri
á að gefa út. En auk þess var
gerð svohljóðandi ályktun:
„Þingið telur mjög áríðandi, að
í hvert skifti, sem ákveðið er aS
gefa út nýja námsbók, þá sje
vandað til efnis og framsetning-
ar svo sem best má verða. Sje í
því sambandi höfð hliðsjón af því
besta, sem þekkist með öðrum
þjóðum. Ennfremur leggur þing-
ið áherslu á, að allur ytri frágang
ur þeirra bóka, sem ríkisútgáfa
námsbóka gefur út, sje vandað-
ur. Góður pappír, skýrt letur,
rniklar og vandaðar myndir, yfir-
leitt sama brot (meðalstórt 8
blaða) á öllum bókum, sterkt band
eða hefting, en ekki vírhefting.
rín Einarsdóttir, Bræðraborgar-
stíg 7.
Hjónaband. f dag verða gefin
saman í hjónaband af síra Bjarúa
Jónssyni ungfrú Aðalheiður S«-
mundsdóttir og dr. Símon Ágústs-
son.
Útvarpið.
Laugardagur 26. júní.
19.20 ITtvarpstríóið leikur.
20.00 Frjettir.
20.30 Erindi (flutt á uppeldis-
málaþingi í Rvík): Fjelagsstarf
seini meðak xmglinga (Aðal-
steinn Sigmundsson kennari).
21.15 Hljómplötur: Kórlög.
21.35 Útvarpshljómsveitin: Gömul
danslög.
22.00 Dansíög (til kl. 24).
)