Morgunblaðið - 14.07.1937, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 14. júlí 1937.
ÞÝSKUR
BLAÐAMAÐUR.
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
að Island væri öfganna land.
Jeg trúi því þegar — og þeim
mun þetur vegna þess að jeg
hefi kynt mjer sögu þess og
reynt af fremsta megni að
skilja hana.
Og svo segir hann á hreinni
íslensku:
— Verið þjer sælir og bless-
aðir.
LANDSBANKA-
REIKNINGURINN.
FRAMH. AF FJÓRÐU SÍÐU.
kr. 2.263.440.00, bg í skuldabrjef-
am Kreppulánasjóðs bæjar- og
sveitarfjelaga kr. 401.890.00.
Veðdeildin. 10. flokkur tók til
starfa 1. mars 1932. Alls hafa ver-
ið veitt úr flokknum 552 lán að
upphæð 6 milj. kr., og lánveiting-
um úr flokknum þar með lokið.
11. flokkur veðdeildar tók til
starfa 11. ág. 1936. Úr flokknum
voru til áramóta veitt 77 lán, er
námu kr. 748.300.00.
Bankinn hefir ekki keypt sjálf-
ur neitt af bankavaxtabrjefum
þessara flokka.
Gengi á brjefum 10. fl. var í
byrjun s.l. árs 75.5—76.0%, en
hækkaði svo eftir að flokknum
var lokað í júní og var um ára-
mótin 78%.
Brjef 11. fl. komu á markað-
inn í ágúst og var gengi þeirra
fyrst 74%, en fór. svo hækkandi
upp í 77% um áramótin.
Söluverð Kreppulánasjóðsbrjefa
var mjög mismunandi á árinu, frá
73_78%.
VIÐSKIFTAHORFUR
HEIMA OG ERLENDIS.
FRAMH. AF FJÓRÐU SÍÐU.
1937 lækkaði þó sá hluti þessa
framfærslukostnaðar sem nær yfir
matvæli, eldsneyti og ljósmeti úr
189 niður í 187 eða um nálega
1%.
Kaupgreiðsla.
Kaup háseta á botnvörpungum
var óbreytt frá því árið áður, 214
kr. á mánuði og lifrarpeningar kr/
28,50 á tunnu. Tímakaup í eyrar-
vinnu var óbreytt, kr. 1,36 um
tímann fyrír karlá* og kr. 0,80 fyr-
ir konur. Lausafólkskaup var því
sem næst óbreytt á árinu. Aust-
anfjalls munu kaupamenn hafa
fengið 45—50 kr. á viku, en
kaupakonur 25—30 kr.
Atvinnuleysið jókst á árinu.
Tala atvÍKnulausra var 1. nóv.
1936: 609 (1. nóy. 1935: 510).
Nettótekjur skattgreiðenda í
Reykjavík, sem sk'attur var lagð-
ur á 1936, en jniðað við tekjur árs-
ins á undanf vöru 42096 þús. kr.
(1935: 42710 þús. kr.).
Veiöileyfi.
í Leirvoífsá fást veiðileyfi,
frá Tröllafossi a.ð brúnni við
Yarmadal á Kjalarnesi. —
Nánari upplýsingar í Matar-
deild Sláturfjelagsins, Hafn-
arstræti 5.
Minningarorð um
Halldóru Pjetursdóttur Briem
frá Álfgeirsvöllum.
Frú Halldóra Briem, ekkja Ól-
afs Briem alþm. frá Alfgeirsvöll-
um, andaðist hjer í bæ 5. þ. m.
Hún verður til moldar borin í
dag.
Hún var fædd í Valadal í Víði-
mýrarsókn í Skagafirði 26. des.
1853 og því á 84. aldursári er
hún andaðist.
Foreldrar hennar voru hin nafn-
kendu merkishjón, Pjetur Pálma-
son bóndi í Valadal og síðar á
Alfgeirsvöllum og kona hans Jór-
unn Hannesdóttir.
Var Valadalur 1 þeirra tíð fjöl-
sóttur gistingarstaður ferðamanna,
þó nokkuð væri úrleiðis. Þótti þar
gott að koma og þá varð það að
orðtaki: „Sjaldan er króknr að
koma að Valadal“.
Halldóra sál ólst upp hjá for-
eldrum sínum og voru þau ferm-
ingarsystkini Stephán G. Steph-
ánsson, Klettafjallaskáldið, og
Tæplega tvítug giftist Halldóra
hinn 20. maí 1873 fyrra manni
sínum Þorsteini Eggertssyni í
Grímstungu í Vatnsdal, og bjuggu
þau í Grímstungu um 5 ára skeið
í fjelagsbúi við móður Þorsteins,
Guðrúnu Þorsteinsdóttur, er orð
fór af fyrir gestrisni og skörungs-.
skap.
Var þar gistingastaður ferða-
manna, er komið var ofan af
Grímstunguheiði, en þar lá þá al-
faravegurinn milli Suðurlands og
Norðurlands.
Árið 1878 fluttu þau hjónin bú-
ferlum frá Grímstungu að Hauka-
gili í sömu sveit og fluttist þá
aðalgististaðurinn samtímis þang-
að.
Hinn 29. ágúst 1881 misti Hall-
dóra sál. Þorstein fyrri mann sinn
á 46. ári, og þótti að honum mikill
mannskaði.
Þeim hjónum varð fjögurra
barna auðið, og komust tvö þeirra
úr æsku: Guðrún, móðir Þorsteins
Bjarnasonar, framkvæmdastjóra
Blindravinafjelagsins, og þeirra
systkina, og Jórunn, er lengi hef-
ir stundað listsaum í Vesturheimi.
VTorið eftir fráfall fyrra manns
síns flutti Ilalldóra sál. búferlum
með börn sín að Álfgeirsvöllum í
Skagafirði og tók þar hálfa jörð-
ina til ábúðar á móti foreldrum
sínUm, er þangað voru flutt frá
Valadal. En bróðir hennar, Pálmi
Pjetursson, síðar bóndi og kaup-
fjelagsstjóri í Sjávarborg, en síð-
ast kaupmaður á Sauðárkróki var
þar fyrir búi með henni.
Árið 1884 giftist Halldóra í ann-
að sinn, og gekk að eiga Olaf
Briem stúdent Eggertsson sýslu-
manns á Reynistað, er þá hafði
verið fyrir búi föður síns og önn-
ur hönd við sýslumannsstörfin um
unörg ár.
Reistu þau bú að Frostastöðmn
í Blönduhlíð vorið eftir, en fluttu
þaðan tveim árum síðar að Álf-
geirsvöllum og bjuggu þar til
vorsiils 1920, er Ólafur Briem varð
starfsmaður í fjármálaráðuneyt-
inu og þau hjón fluttu til Reykja-
víkur.
Halldóra Briem.
Þeim hjðnum varð sjö barna
auðið:
Þorsteinn pr.f., Akranesi; Ingi-
björg kona Björns Þórðarsonar
lögmanns í Reykjavík; Kristín
saumakona í Reykjavík, er var
með móður sinni og annaðist hana
til dauðadags; Eggert, dó á 1. ári;
Eggert, kennari í Reykjavík; Jó-
hanna, kenslukona, dáin; Sigríð-
ur, póstskrifstofukona í Reykja-
vík, dáin.
Alt frá því er Ólafur Briem
var fyrst kosinn á þing, sem þing-
maður Skagfirðinga 1886, og til
þess er þau hjón brugðu búi, eftir
35 ára búskap, varð hann oft að
vera langdvölum fjarri heimili
sínu vegna opinberra starfa, er á
hann hlóðust, fyrir sveit sína og
hjerað og þjóðina í heild.
Kom því mjög á bak húsfreyj-
unnar á Álfgeirsvöllum að veita
heiinilinu forstöðu, utan bæjar
sem innan, er húsbóndinn var fjar-
verandi. Var það mikið verk, því
að heimilið var stórt og á tímabili
oft yfir 20 manns í heimili, en
jörðin erfið. Kom henni þá vel hve
þau hjón voru lijúasæl.
Mun Halldóra sál. aldrei hafa
þurft að skipa hjúi sínu verk,
heldur kom hún því fram með
hæglátri ljúfmensku, að flestir
vildu jafnvel óbeðið gera henni
að óskum, enda urðu mörg þeirra
myndarbændur og húsfreyjur, er
þau staðfestu ráð sitt og fóru
þaðan.
Verður þess enn vart að jafnvel
börn sumra hjúa Halldóru sá.1.
minnast hennar sem skyidmemii
væri vegna þess hugarþels, er for-
eldri þeirra báru til húsmóðurinn-
ar gömlu á Álfgeirsvöllum.
Lætur þá að líkum hver eigin-
kona frú Halldóra hafi verið og
móðir börnum sínum.
Ilinn 19. maí 1925 misti Hall-
dóra sál. Ólaf seinni mann sinn,
eftir langa og þunga legu.
Næstu árin varð hún að horfa
upp á langvarandi sjúkdómsstríð
tveggja dætra sinna, er liún misti
með stuttu millibili, uppkomnar.
En frú Halldóra stóðst hverja
þrekraun með jafnáðargeði og frá-
bærri stillingu. Kom henni til þesl
krafturinn frá trú sinni, ér þrosk-
ast hafði í skóla langrar áefi við
blítt og strítt.
Frá því ljósi ber birtu góðra
minninga í hugum allra, sem
þektu hana best. Kummgur.
Bardagar
við Peking
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
Hlje varð á bardögxun við
Peking í gær, en í gærkvöldi
blossuðu þeir upp aftur.
Japanir umkringdu borgina og
gerðu áhlaup á járnbrautarbrii
við suðurhlið borgarinnar og virð-
ast hafa náð henni á sitt vald.
í gærkvöldi notuðu Kínverjar
vjelbyssur, en í dag hefir verið
barist í návígi og notuð aðallega
sverð og byssustingir.
Tókst þeim að hrekja Jap-
ana á flótta (segir í Lndúna-
fregn FÚ.) eingöngu vegna
þess að þeir voru miklu fleiri
Undirbúningur
Kínverja.
London í gær. FÚ.
Eftir fregnum þeim sem koma
í dag virðist það vera augljóst að
Japanar sjái sjer ekki möguleika
á að vinna með því að setja mann
á móti manni. Eru þeir því að búa
sig undir að nota loftflota og gera
loftárásir.
Kínverjar eru að búa sig undir
að senda traustustu hersveitir sín-
ar á vettvang.
í Shanghai hafa verið bygð
götuvígi og Norður-Kína járn-
brautin til Shanghai hefir í skyndi
verið útbúin þannig að hún þurfi
ekkert að annast annað en her-
flutninga ef áframhald verður á
bardögunum.
I Shanghai er einnig verið að
gera ráðstafanir til að flytja á
brott konur og börn.
Skátamót vestfirskra skáta var
haldið í botni Dýrafjarðar, undir
forystu Gunnars Andrew, dagana
9.—12. þ. m. Skátar, 41 að tölu,
sóttu mótið. Veður var hið besta
alla dagana. Á sunnudaginn sótti
fjöldi Þingeyringa mótið. (FÚ.).
Tvíburasystur
átfræðar.
Þórlaug.
80 ára eru í dag systurnar Sól-
veig Jónatansdóttir, Reykjavíkur-
veg 30, Hafnarfirði, og Þórlaug
Jónatansdóttir, Sólvallagötu 5,
Reykjavík. Þær eru fæddar 14.
júlí 1857 á Hjarðarbóli í Eyrar-
sveit. Fluttust bingað suður fyfir
nokkrum árum. Þær eru enn glað-
ar og frískar, þótt þær hafi 80 ár
að baki. Vinir og kunningjar
þakka þeim liðin æfiár og óska
þeim innilega til hamingju og allr-
ar Guðs blessunar á komandi ár-
um.
m
m TimburTersSun
| P. W. Jacobsei & Söo.
^ Stofnuð 1824.
Símnefni: Granfuru - Carl-Lundsgade, Kðbenhavn O.
m Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Kaup-
m mannahöfn. - Eik til skipasmíða. - Einnig heila
® skipsfarma frá Svíþjóð.
Hefi verslað við ísland í meir en 80 ár.
mmmm
Matar- og kaffistellin
bláu funkis, marg eftirspurðu, eru loks komin aftur. öll
stykki fást nú aftur sjerstök, sama verð og áður.
K. Eftnarsson & BJörossom.
Sðngvar fyrir alþýðu IV. Sálmalög
eftir sr. Halldór Jónsson,
er komin út. Verð kr. 3.50.
Fæst hjá bóksölum.
Bókaversl. Sigf. Eymundssonar
og Bókabúð Austurbæjar B. S. E., Laugavegi 34.