Morgunblaðið - 20.07.1937, Page 2
f
MÖR6UNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 20.. júlí 1917.
KÍNVERSK MPðNSK STfRJðLD ÖHJÁKVÆMILEG?
Japanlr ætla að
hef ja sókn i dag.
Chiang Kai Shek vill
styrjöld heldur en „frið,
hvað sem það kostar“.
FJRÁ FRJETTAEITARA VORUM.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
KlNA seskir ekki stríðs, en vill heldur
ekki frið, hvað sem það kostar“. Þann-
ig ljet Chang Kai Shek, forsætisráð-
herra Kínverja og æðsti maður þeirra um mælt
í dag, og er það í fyrsta skifti sem hann tekur til
máls, síðan kínversk-japanska deilan hófst.
Ástandið í Austur-Asíu hefir versnað yfir
helgina. Reuterskeyti (skv. FÚ) hermir, að her-
sveitir Kínverja hafi í dag ráðist á framvarða-
sveitir Japana.
Frjett frá Tientsin hermir að mikil æsing sje meðal
hermanna í Kína út af árásum Kínverja á japanskar
flutningalestir og að japanskir herforingjar muni á morg-
un hefja árás, ef Kínverjar hafa ekki gengið að úrslita-
kostum Japana fyrir þann tíma.
„Deutsches Nachrichtenbíiro“ skýrir frá því að Japanir
hafi í morgun tekið Peking h erskildi.
1 sömu fregn segir að Japanir krefjist þess að Cahar og
Hopeifylkin lýsi því yfir að þau muni verða hlutlaus ef til jap-
ansk-kínverskrar styrjaldar dregur.
Kvíði
stórveld-
anna.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
I stórborgum Evrópu gæt-
ir vaxandi kvíða út af á-
standinu í Austur-Asíu.
Einkum í París. Frakkar
óttast að Rússar neyðist til
að halda öllum sínum her í
Austur-Asíu, svo að ekkert
lið yrði að honum ef styrj-
öld brytist út í Evrópu (hern-
aðarbandalag er milli Rússa
og Frakka).
Báðir aðilar á
Spðni andvfgiT
bresku tillðg-
unum.
Eftirfarandi ummæli
bregða Ijósi yfir þýð-
ingu bresku málamiðlunar-
tillaganna og horfurnar á
því, að þær nái fram að
ganga.
Anthony Eden sagði
(í breska þinginu í gær) :
Ef tillögurnar ná ekki fram
að ganga, þá er ekki um
annað að ræða en að leggja
niður starf hlutleysisnefnd-
arinnar: „Engin Evrópu-
þjóð vill að styrjöldin breið-
ist út fyrir landamæri Spán-
ar“, ,,en ef hlutleysisnefnd-
in neyðist til að hætta
störfum, þá mun erfitt að
sneyða hjá allsherjar ó-
friði“. Hann sagði, að allar
tilraunir til þess að breyta
tillögunum, myndu eyði-
leggja þær, svo vandlega
hefðu þær verið hnitmiðað-
ar. „Jeg bið þess af heilum
hug“, sagði Eden, „að þær
þjóðir, sem á morgun taka
tillögurnar til meðferðar
minnist þess, að nú er að-
eins um tvent að velja, og
miði gerðir sínar við það“.
Azana, forseti
spánska lýðveldisins sagði
í ræðu sem hann fluttti í
tilefni af því að ár var liðið
í gær síðan styrjöldin
braust út: Tillögurnar um
að veita Franco stríðrjett-
indi á sjó eru ósvífni.
1 frjett frá Salamanca
er sagt, að Franco hafi sagt
að ekki kæmi til mála, að
flytja burtu útlendinga, sem
berðust í liði uppreisnar-
manna. (FÚ).
Horfur eru taldar hverf-
andi að styrjöld verði af-
stýrt með því, að Nanking-
stjórnin gangi að úrslita-
kostum Japana, sem þeir
sendu henni í dag og þar
sem þeir krefjast þess að
hún stöðvi allar hernaðar-
legar ráðstafanir þegar í
stað, eða fyrir kvöldið í
kvöld og hætti öllum af-
skiftum af málefnum fylkj
anna í Norður Kína.
I yfirlýsingu sinni í dag sagði
Chiang-Kai-Shek að kínverska
stjórnin geti ekki afsalað sjer
rjettindum sínum til að fara
með stjórn Norður-Kína, jafn-
vel þótt það leiddi til stríðs.
Yfirlýsing
Chiang-Kai-Sheks.
Kínverska stjórnin sagði Chi-
ang Kai Shek, vildi taka það
fram:
I fyrsta lagi, að hún geng-
ur ekki að neinum samningi,
þar sem ekki er tekið fult til-
lit til landrjettinda Kínverja.
I öðru lagi, að landamæri
fylkjanna Chahar og Hopei
hafa verið ákveðin af miðstjórn
inni í Nanking og þeim verður
ekki breytt nema með hennar
samþykki,
í þriðja lagi, að miðstjórnin
í Nanking sættir sig ekki við að
embættismönnum hennar sje
vikið úr embætti að aðilum, er
enga heimild hafa til þess,
og í fjórða lagi, að Nanking
stjórnin mundi ekki leyfa að
nokkrar hömlur sjeu lagðar á
ferðir eða athafnir „tuttugustu
og níundu herdeildar".
Óánægja vegna
dýrtíðar
í Frakklandi.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
rankinn hækkaði lítilshátt-
ar í dag, var skráður á
131.5 fyrir stpd þegar viðskift-
um lauk á Parísarkauphöllinni.
Á laugardaginn komst hann
lægst ofan í 133 franka fyrir
stpd. Hefir frankinn ekki verið
skráður jafn lágt síðan 1926.
Hækkunin í dag á rót sína
að rekja til yfirlýsingar frá
Bonnet f jármálaráðherra, um
fjárhagsástandið.
Þó gætir enn mikillar óvissu
um fjármálapólitík hinnar
nýju stjórnar, þar sem og
ósamkomulag ríkis innan
alþýðufylkingarinnar.
Lausafregnir herma að Chau
temps ætli að brjóta vald verk-
lýðsfjelaganna og foringja
þeirra Juhaux á bak aftur til
þéss að bjarga frankanum. Síð-
an alþýðufylkingin komst til
valda, í fyrra hefir áhrifa frá
Jouhaux gætt mikið og neyddi
hann stjórnina m. a. til að
ganga út á þá braut opinberra
framkvæmda, sem tæmdi
franska ríkiskassann.
Óánægja almennings í Frakk
landi fer stöðugt vaxandi vegna
fjármálaöngþveitisins og auk-
innar dýrtíðar. Framfærsluvísi-
talan í ár — eftir eins árs
stjórn Alþýðufylkingar — er
606, en var 497 í fyrra.
Chíang-Kai-Shek..
Franco: Endur-
reisn konung-
dóms é Spéni
hugsanleg.
*
Iávarpi til hermanna sinna
er birt var í gær í tilefni
af því að þá var ár liðið síð-
an borgarastyrjöldin á Spáni
braust út, talar Franco um
hugsanlega endurreisn kon-
ungdóms á Spáni, og segir
að yngsta syni Spánarkon-
ungs, Don Juan, hafi verið
synjað um að fá að berj-
ast í liði uppreisnarmanna.
„Vjer viljum ekki leggja í
hættu líf hans, því sá dagur
mun ef til vill koma, að það
reynist okkur dýrmætt“.
Konungur vor mun koma sem
fi’iðarberi (segir Franco enn-
fremur,) en ekki sem sá, sem
brýtur undir sig landið.
Miaja hershöfðingi birti
einnig hvatningarorð til her-
manna sinna.
ÆGILEG
LOFTORUSTA
Mesta loftorusta, sem háð
hefir verið síðan sögur
hófust, var háð norðan við
Madrid í gær. 160 flug-
vjelar börðust látlaust í
rúma klst.
I fregn frá Madrid segir, að
18 flugvjelar uppreisnarmanna
hafi verið skotnar niður og
fjórar af flugvjelum rauðliða.
Uppreisnarmenn segja að 12
flugvjelar rauðliða hafi verið
skotnar niður.
í frjettum frá uppreisnar-
mönnum er sagt, að áttatíu og
sjö flugvjelar þeirra hafi varp-
að niður fimmtíu og fjórum
smálestum af sprengjum yfir
hinar ýmsu vígstöðvar stjórn-
arinnar við Madrid, og hafi þær
mætt lítilli mótstöðu.
Flugvjelar ameríska flotans
hættu í gær leit sinni að Ame-
liu Earhart og förunaut henn-
ar. Er nú talið vonlaust um, að
þau sjeu enn á lífi.
Osigur fsiensku
ræOaranna
I Khöfn.
„Eins og Danir
fyrir 25 árum“.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
slensku ræðararnir urðu
síðastir í annari róðr-
arkepni af tveimur, sem þeir
tóku þátt í á Bagsværdvatni
í gær. I hinni urðu þeir næst-
síðastir.
MEISTARA-
KEPNI
I meistarakepni á fjórrónuH*
bátum urðu úrslitin þessi:
Kolding............... 7.31.4
Drammen............... 7.31.6
Helsingborg........... 7.31.8
ísland................ 7.44.2
í junior-kepni:
Roskilde.............. 7.59.2
Frederikssund......... 8.05.2
Island................ 8.16.2
Nyköbing.............. 8.34.2
Politiken segir að íslend-
ingar hafi ekki getaÖ
fylgst með þrátt fyrir frá-
bært vöðvaafl. Róðrar-
Iag þeirra var rangt.
Þeir rjeru eins og Danir rjeru
fyrir tuttugu árum, segir blað-
ið. Þeir reigðu líkamann aftur
á við áður en þeir rjettu úr fót-
leggjunum.
Aðrir keppendur beita sam-
tímis handleggjum og fótum.
um.
BELA KUN TEKINN
FASTUR.
Oslo í gær.
Frjettastofa pólska ríkisins
tilkynnir að ungverski komna-
únistaleiðtoginn Bela Kun hafi
verið handtekinn í Moskva.
Er hann sakaður um að
vinna að því að fá menn til
fylgis við Trotskystefnuna.
(NRP—FB).
GRÆNLANDSLEIÐANG-
UR LAUGE KOCHS.
Khöfn í gær. FÚ.
Doktor Lauge Koch leggur
af stað á miðvikudag áleiðis til
íslands, en þaðan ætlar hann
að fara til Grænlands.
í för með Lauge Koch verða
ýmsir vísindamenn, þar á með-
al níu danskir, þrír svissneskir,
tveir eistlenskir, og einn sænsk-
ur og einn Islendingur.
Alls verða í þessum Græn-
lands-leiðangri Dr. Kochs þrjá-
tíu og sjö manns.