Morgunblaðið - 24.07.1937, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 24. júlí 1937.
5.J.
Ch.jj^lí^újb X AícubJuruju,
Mjjm, /mJLbJL iK JUteuuö --*■
Til Akureyrar
alla daga nema mánudaga.
alla miðvikudaga, föstudaga,
laugardaga og sunnudaga.
þriðjudaga og fimtudaga,
Hraðferðir
2ja dagalerðir
Af^relðsla í Reyhfavík:
Bifmífastöð íslands, simt 1540.
Sifreiðastðð Akureyrar.
‘ Reykjavfk - Dalir - Hólmavlk.!
X
Cdýrustu og fljótustu ferSiruar þessa leið eru ferSirnar %
♦i* með Lajd'oss til Borgarness og þaðan með bifreið:
i’. Til Hólmavíkur miðvikudaga .
Y
T
»*♦
t
Ý
f
V
Y
♦*»
Frá Hólmavík föstudaga, og þá ekið til Akraness.
Til Ásgarðs laugardaga.
Frá Ásgarði þriðjudaga.
Afgreiðslu annast
Bifreiðasfðð Islands.
Sími 1540 (þrjár línur).
x
Japanir gætu ráöiö
niöurlögum Kínverja
ef þeir þyrftu
ekkí einnig að
verjast Rússum.
pf til styrjaldar dregur í
’ Austur-Asíu mun kín-
verski herinn taka japanska
hernum langt fram ef miðað
er við hermannafjölda einan.
Kínverjar hafa yfir að ráða
160 herfylkjum, en Japanir
ekki nema seytján, þótt
þeir gætu aukið lið sitt að
miklum mun ef í nauðir
ræki. í kínverska hernum
eru nú 1.500.000 manns sem
dreift hefir verið um landið
eitthvað á þessa leið: Norð-
ur-Kína 18 herfylki; Norð-
vestur-hjeruðin 27 herfylki;
Vestur-Kína 11 herfylki;
Suð-vestur-hjeruðin 5 her-
fylki; Suður-Kína 22 her-
fylki; Mið-Kína 26 herfylki.
*
Af þessum herfylkjum verður
að draga frá a. m. k. fjórða hlut-
ann, sem ekki verður talinn sýna
riema vafasama hollustu miðstjórn
inni í Nanking, og af þeim sem
þá verða eftir er ekki nema til-
tölulega lítill hluti — kannske
150.000 — sem hægt væri að út-
búa vopnum og hergögnuin eins og
með þarf, sje miðað við nýjustu
framfarir, og hefir Chiang Kai
Shek þó lagt mikið á sig undan-
farin eitt eða tvö ár til þess að
safna hergagnabirgðum.
Kínverksi herinn var í upphafi
aðeins fótgöngulið og stórskota-
liðið er því veikt, og þar á ofan
bætist að byssur eru af ýmsri
gerð og myndi það því reynast
óhemju erfitt að sjá hernum fyrir
skotfærum, ef til styrjaldar skyldi
draga. Riddaraliðssveitir Kínverja,
sem í raun og veru eru ekki ann-
að en fótgönguliðssveitir á hest-
baki, eru einnig álitnar Ijelegar,
miðað bæði við riddaralið Japana
og vestrænna þjóða. Eklci hefir
mikið verið gert til þess að afla
hernum vjela, en japanski herinn
hefir aftur á móti tekið miklum
framförum í þessu tilliti. í kín:-
verska lofthernum eru 15 flug-
vjelasveitir (30 flugvjelar í
hverri), og auk þess hefir herinn
yfir að ráða 200 æfingaflugvjelum
(samtals eru flugvjelarnar því um
650). Þótt allmiklar framfarir liafi
orðið í lofther Kínverja síðustu
þrjú til fjögur árin, þá er þó
margt enn ógert, þar til lofther-
inn geti talist hæfilegur. Það er
og mikið tjón hve flugvjelarnar
eru frábrugðnar hver annari, af
breskri, amerískri, ítalskri, þýskri
og franskri gerð, og hver ólík ann-
ari. Þá skortir Kínverja einnig
æfða vjelfræðinga, og alla vara-
hluti í vjelar. Loks er herskipaflot-
inn, sem ekki er annað en nokkur
skip af úreltri gerð, sem ekki
munu koma að neinu liði í deilu,
sem alverlegri er en borgarastyrj-
öld.
Það er álitið að Chiang Kai
Shek muni geta boðið, með litlum
fyrirvara, út hálfri miljón. riffil-
mönnum, en hins vegar er vafa-
samt, þegar litið er á hin slæmu
samgönguskilyrði í Kína, og erfið-
leikana á því að skipuleggja hern-
aðaraðgerðir fyrirfram, að hann
geti haldið þessu liði úti á vígvell-
inum um nægilega langan tíma.
Osagt skal látið um það, hvaða
bardaga-aðferðum Kínverjar
myndu beita fyrst í stað, en lík-
legt er að þegar frá liði myndi
mest bera á smáskærustyrjöld,
og myndi þá fjöldi óháðra her-
deilda reyna að gera usla í liði
Japana hvenær sem tækifæri gæf-
ist. Og þegar á alt er litið myndi
þetta e. t. v. vera heppilegust bar-
daga-aðferð fyrir Kínverja. í víg-
línuorustum gegn japanska hernum
geta þeir verið vissir um að bíða
mikið manntjón, vegna yfirburða
japanska stórskotaliðsins og flug-
flota Japana.
Ef Japanir gætu sent nægilega
mikið lið á vígstöðvarnar, þá gætu
þeir sennilega náð á sitt vald
hvaða hluta af Kína, sem þeir
hefðu augastað á, en þeir myndu
fá sama vandann að glíma við,
sem þeir hafa rekist á í Manschu-
kuo. Ræningjaflokkar myndu gera
usla á samgönguleíðum Japana og
bófaplágan myndi færast í auk-
ana. Það er augljóst mál, að ef
Japanir þurfa enn þann dag í dag
að hafa sem svarar 5 herfylki
í Manschukuo, þá myndu þeir
þurfa á enn fleirum að halda í
Kína, þar sem samgönguskilyrði
eru verri, og spurningin er sú
hvort Japanir hafi herafla til
þessa, eins og nú horfir við.
*
Herafli Japana á friðartímum
er opin.berlega sagður vera 230
þús., en aðrir, sem kunnugir eru,
segja að 325 þús. sje nærri hinu
sanna. Af seytján herfylkjum
Japana eru fimm nú þegar í Asíu,
þrjú í Manschukuo og tvö í Koreu.
Til viðbótar eru sex „járnbrautar-
setuliðssveitir", 6 deildir í hverri
þeirra og hver skipuð 1000 mönn-
um, sem aðsetur hafa í Manschu-
kuo og milli 7 þús. og 8 þús. her-
menn í Norður-Kína. Nýjum her-
fylkjum er hægt að bæta við hin
17 herfylkin, ef í nauðir rekur.
I Shanghai hafa Japanir setu-
lið, þótt það sje ekki nefnt því
nafni, sem í bili er skipað 3 þús.
sjóliðum, og 800 sjóliðar eru á
fallbyssubátum Japana á Yangtze-
fljótinu. Til viðbótar við fallbyssu-
báta þessa eru í sjóher Japana við
Kína þrjú beitiskip og tíu tund-
urspillar. Japanska flotastjórnin
gæti án þess að leita aðstoðar aðal-
flotans lokað öllum helstu höfnum
Kínverja, og gæti á þann hátt
komið í stað margra herfylkja.
Sumir sjerfræðingar líta svo á,
að á tveim til þremur vikum
myndu Japanir geta náð full-
komnum yfirráðum yfir strand-
lengju Kína og lagt undir sig nógu
mörgum samgönguæðum, til þess
að Kínverjar gætu ekki komið við
sameinaðri mótstöðu. Þessum yfir-
ráðum er talið að þeir myndu geta
náð með því að senda fram níu
eða tíu herfylki, og með samvinnu
við Kwantung-herinn og hina kín-
versku deild japanska flotans,
sem liðsauka gæti fengið frá skip-
um við Port Arthur og Pormose.
En það er mjög vafasamt að Jap-
anir hafi aflögu nægilegan her-
afla til þess að leggja út í jafn
stórfeldan herleiðangur. Erfiðleik-
ar heimafyrir og nauðsyn þess að
hafa hæfilegt setulið til varnar
gegn Rússum munu knýja jap-
anska herforingjaráðið til þess að
hugsa sig tvisvar um áður en það
ræðst í ævintýri sem krefst mikill-
ar eyðslu á öllu því, sem að hern-
aði lýtur.
í 1383
0RUGGAR BlfRGIÐAR.
ANÆCÐIR Vi05KlPTAVINIR^
HBfllSTODin 118)
Stangaveiði
við Kaldárhöfða í Efra-Sogi.
Veiðileyfi seld á staðnum. —
Áætlunarferðir frá B. S. í.
Sími 1540.
Taða til sðlu
Upplýsingar gefnar í síma 4065
í dag frá kl. 10 f. h. til kl. 4 e. h.