Morgunblaðið - 24.07.1937, Blaðsíða 7
Laugardagur 24. júlí 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
7
□agbok.
VeÖurátlit í Reykjavík í dag:
Hægviðri. tJrkomnlaust, en skýjaS
með köflum.
Veðrið (í gærkvöldi klukkan 5).
Sæg N- eða A-átt um alt land.
Víðast bjartviðri á SV- og V-landi,
þykt loft víðast hvar norðan
lands og sumstaðar þoka á Aust-
urlandi. Hiti 13—17 stig sunnan
iands, en 7—10 stig nyrðra.
Háflóð er í dag kl. 6,10 e. h.
Notið sjóinn og sólskinið.
Næturlæknir er í nótt Kristín
Olafsdóttir, Ingólfsstræti 14. Sími
«161.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Messa í Dómkirkjunni á morgun
W. 11. Sjera Priðrik Hallgrímsson.
Messað í Laugarnesskóla á morg
Un kl. 5 e. h. Sr. Garðar Svavars-
»on.
Kveldsöngur í Príkirkjunni í
Hafnarfirði á morgun kl. 8 V2- Sr.
dón Auðuns.
Frú Halldóra Eymundsdóttir
Bræðraborgarstíg 33 er sextug á
morgun.
Farþegar með Goðafossi í fyrra
kvöld til útlanda: Björgúlfur Stef-
ánsson og frú, Dísella Matthíasson,
Brynleifur Tobíasson, Jón Bald-
vinsson bankastj., Lord and Lady
Itountgarret, Lára Biering, frk.
jíogensen, Hjeðinn Vilhjálmsson,
Lóa Eggertsdóttir, Þórunn Magn-
ásdóttir, Baldvin Jónsson, Jóh.
Xoega, Olafur Jónsson, Jóhann Jó-
sefsson, Þorvaldur Hlíðdal, Jón
Hermannsson iirsmiður, og fjölda
siai'gir útlendingar.
Skemtiferðaskipin Milwaukee og
General von Steuben voru hjer í
gærdag með samtals rúml. 800 far-
þega. Póru ferðamennirnir, eins
og vant er, austur í sveitir, á Þing-
völl og víðar. Milwaukee fór hjeð-
an í gærkvöldi, en General von
Steuben fer í dag áleiðis til Akur-
eyrar.
Hjeraðslæknisembættið í Skipa-
skagahjeraði er auglýst laust til
umsóknar. Umsóknarfrestur er til
20. ágúst.
Eimskip. Gullfoss er í Kaup-
mannahöfn. Goðafoss fór frá Vest-
mannaeyjum í gærmorgun kl. 10.
Brúarfoss er í Reykjavík. Detti-
foss kom til Vestmannaeyja í gær-
kvöldi. Lagarfoss var á Raufar-
höfn í gærmorgun. Selfoss er á
leið til landsins frá Englandi.
Kappreiðar voru háðar á Skeið-
velli Hestamannafjelagsins Horn-
firðing í Hornafirði síðastliðinn
sunnudag. Reyndir voru 10 hestar
á stökki og í 300 metra hlaupi í
þrem flokkum, einnig 3 hestar, 4
—5 vetra, í folahlaupi, 250 metra.
<FÚ).
Á Skagaströnd hefir verið unn-
ið að hafnargerð í vor og sumkr.
Var höfnin, er skemdist í ofviðri í
fyi'raliaust, nú sett upp að nýju,
og tókst að reka bryggjustaurana
lengra niður en áður. Til frekara
öryggis voru 3 grjótfylt ker sett
í bryggjuna, og má hún því telj-
ast að öllu leyti traustlega gerð.
Ennfremur var unnið að því að
spreugja og losa grjót í væntan-
lega framlengingu hafnargarðs-
ins, en ráðgert er, að hann verði
lengdur á næsta ári. Magnús Kon-
ráðsson, verkfræðingur, liefir haft
á hendi umsjón með verkinu. PU.
Þeir Steindór Steindórsson kenn-
ari, Gunnbjörn Egilsson og Sigurð-
ur frá Brún, lögðu af stað frá Ak-
ureyri í gær upp úr Eyjafirði,
Vatnahjallaveg. Af honum fara
þeir austur á Sprengisand, svo
austur um Piskivötn og ætla að
koma til bygða niÓúr hjá Búlandi
í Skaftártungu. Að Kirkjubæjar-
klaustri mæta þeir Pálma Hann-
essyni, og munu þeir Steindór
Steindórsson og hann dvelja við
náttúrufræðisrannsóknir á Síðu-
manna-afrjetti fram í næsta mán-
uð. (PÚ).
Útvarpið:
Laugardagur 24. júlí.
20.30 Upplestur: Saga: „Læknis-
frúin fer altaf til nágranna-
læknisins (ungfrú Þórunn
Magnúsdóttir).
20.55 Hljómplötur : Kórlög.
21.25 Upplestur: Kvæði (Kjartan
Olafsson brunavörður).
21.40 Danslög (til kl. 24).
Jörundur Kr. Jónsson.
Fæddur 1893. Dáinn 29. jan. 1937.
Fór til Winnipeg 20 ára og dó þar.
Kveðja frá móður hans.
Yfir kaldar úthafs bárur
andinn svífur þessa stund,
þangað sem þú sonur góði
sefur værum dauðáblund.
Móðurhjartað mitt skal geyma
minningar frá æskutíð.
Man jeg vel er varstu að kveðja
viðskilnaðar tárin blíð.
Þú mjer reyndist sannur sonur
sólargeisli varstu minn,
eins þó burt í fjarlægð færir
faðmur opinn stóð mjer þinn,
Þín var hönd til hjálpar búin
hjer þó eigi mættum sjást
því að innra ætíð lifði
einlæg trygð, og sonarást.
Nú er þínu lífi lokið
Langt í fjarlægð hvílir þú.
Gröfin köld þó geymi náinn
gleðst jeg samt í þeirri trú.
Andinn sæll frá sólar heiini
sjer og' skilur hjartað mitt.
Getur hvorki háf nje bauður
hindrað sálarflugið' þitt.
Mínum hallar æf'iárum
elsku sonur, hjer á jörð.
Aðrir tímar upp þá renna,
eftir lífsins sporin hörð.
Guð einn ræður götu minni,
Guð er allra verndarinn.
Hafðu þökk og kærleiks kveðju,
kæri, hjartans sonur minn.
Gunnhildur Sigurðardóttir,
Syðri-Lækjargötu 10, Hafnarfirði.
Minningarorð um
Bjarna Bjarnhjeðinsson
verslunarstjóra.
Þann 19. f. m. andaðist hjer í
bænum Bjarni Bjarnhjeðins-
son fyrrum verslunarstjóri á
Ilvammstanga.
Bjarni var fæddur að Giljá í
Húnaþingi 3. maí 1858, en ólst
upp með foreldrum sínum í Böðv-
arshólum í Þverárhreppi. Yar
liann af góðu bergi brotinn, al-
bróðir Sæm. heitins Bjarnhjeðins-
sonar prófessors og frú Bríetar og
er óþarfi að rekja þá ætt lengra.
Laust eftir tvítugs aldur flutt-
ist hann að Klömbrum til Júlíusar
Halldórssonar læknis og var þar
ráðsmaður og meira en minna við-
loðandi um fullra 15 ára skeið.
Bæði var það, að hann var þar á
besta aldursskeiði, enda mun hon-
um sjálfum hafa þótt sá tími
skemtilegasti hluti æfinnar og
ekki urðþ viðræður við Bjarna
langaf áður talið kæmi þar niður.
Prá Klömbrum fluttist hann að
Staðarbakka til síra Eyjólfs Kol-
beins. Búskap rak hann um nokk-
ur ár á Þórustöðum í Víðidal og í
Dæli, en 1902 gerðist hann versl-
unarstjóri hjá Riis kaupmanni á
Hvammstanga og veitti þeirri
verslun forstöðu þangað til Riis
seldi kaupfjelaginu verslunina, en
til Reykjavíkur flutti hann 1926
og dvaldi hjer eftir það.
Kvæntur var Bjarni Kristínu Guð
mundsdóttur óðalsbónda að Þor-
kelshóli. Áttu þau ekki barna, en
son hafði Bjarni átt áður, Harald,
dvelur hjer í bæ. Konu sína
misti hann fyrir rjettu ári síðan.
Bjarni Bjarnhjeðinsson var hár
maður og mikill að vallarsýn,
þrekmaðut' inikill og karlmenni
bæði í sjón og raun. Lítt var hann
skólamentaður eins og tíðast var
um menn í hans ungdæmi, sem
ekki gengu „lærða veginn", sem
vo var kallað, en hann var prýði-
lega vel gefinn maður og sjálf-
mentaður í besta lagi og vel að
sjer. Á fyrstu árum sínum í
Klömbrum lærði hann dönsku til-
sagnarlaust og las hana jafnt og
íslensku. Einkum mun hann hafa
haft gaman af sögu, sjerstaklega
var hann vel að sjer í íslenskri
sögu, fornri og nýrri. Eftir að
hann fluttist til Reykjavíkur lagði
hann mikla stund á ættfræði, eink-
um ýmsar húnvetnskar ættir og
átti orðið allmikil drög í handriti,
en þá var sjónin mjög farin að
bila og hvort hann hafði gengið
til fulls frá nokkru, áður en sjón-
leysið neyddi hann til þess að
leggja það starf á hilluna, er mjer
ekki kunnugt.
Bjarni var starfsmaður mikill
alla æfi og efnaðist allvel með ár-
unum, enda maður skapfastur og
dómgreindur og flasaði ekki að
neinu. Klauf hann hvert mál til
mergjar og myndaði sjer ákveðn-
ar og sjálfstæða skoðun, sem ekki
lá laus fyrir. Ljet hann landsmál
ætíð mikið til sín taka og .fylti
þann flokk, sem gerði fylstar kröf-
ur í sjálfstæðismá,linu meðan það
var á döfinni. Á síðustu árunj
fylgdist hann einkum vel með
þeim málum, er snertu landbúnað,
enda var hann hverjum manni
gleggri á hag bænda og þarfir.
Með Bjarna er í valinn fallinn
einn af þessum gömlu heilsteyptu
mönnum, sem sjálfir höfðu kynst
þeim erfiðleikum í öllum lífskjör-
um, sem þjóðin átti fyr við að búa
og yngri kynslóðina dreymir ekki
um, mættu þeim með festu og
karlmensku, voru gerhugulir og
stefnufastir, nokkuð fornir í skapi
og ráðríkir og ljetu lítt hlut sinn,
en voru á hinn bóginn greiðviknir
og gestrisnir, hjálpsamir og ráð-
hollir, nokkuð seinteknir, en vin-
fastir og höfðingjar heim að sækja
fvrir vini og vildarmenn.
M. J. M.
HVALVEIÐA-
FRJETTIR.
ORÚ§TUR VIÐ
MADRID.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
sem uppreisnarmenn gerðu
héiftúðugustu tilraun til þess
að brjótast í gegnum varnar-
línu stjórnarinnar á dögunum,
með fjölda skriðdreka, er nú
sögð vera örðin mjög erfið.
Þó verjast stjórnarhersveit-
irnar þar enn. (NRPJ—FB).
FRANCO TEKUR
OLÍUSRIP
Árás var gerð á Barcelona af
sjó, um miðnæturleytið. Öll ljós
voru slökt í borginni og var
hún í algerðu myrkri í tvo
klukkutíma. Ekki er vitað,
hverju tjóni þessi árás hefir
valdið.
í gær höfðu herskip upp-
reisnarmanna sig talsvert í
frammi.
Um tveimur klukkustundum
eftir að Carnarias hafði sökkt
óþektu skipi út af Barcelona,
------ tók skipið, ásamt kafbát, olíu-
FRÁ Tokio er símað, að skip sem talið er að muni hafa
.japanska stjórnin hafi veitt verið franskt og var reynt að
öflugu japönsku hvalveiðafje- ná því úr höndum þeirra, e«t
lagi leyfi til þess að smíða tvo árangurslaus. (FÚ).
20.000 smálesta bræðsluskip og
10 hvalveiðaskip. Eiga ski/ ^^^^*^*^*™***
æ :í■ 3)
þessi að vera fullsmíðuð áður
en vertíðin byrjar árið 1940.
Þegar þessi tvö bræðsluskip
hafa verið smíðuð hafa Japanir
eignast 10 bræðslu- eða hvaÞ
veiða-stöðvarskip.
Japanska stjórnin hefir til-
kynt að hún muni ekki veita
fleiri leyfi til smíði hvalveiða-
skipa. Hefir tilkynning þessi
vakið góðar vonir um betri ár-
angur af samkomulaginu, sem
gert var í London, um tak-
mörkun hvalveiðanna, því að
það nær ekki fullu gildi sínu,
nema með samvinnu við Jap-
ana, sem stunda hvalveiðar í
mjög stórum stíl. (NRP—FB)
Amafðrfoío.
Kopiering — Framköllun
£
Si
æ
i'
s
s .. æ
^ Oll vinna framkvæmd af út- |{
§ lærðum ljósmyndara á sjer- |j
Jj stöku verkstæði.
j| Afgreiðsla í
I Laugavegs Apoteki.
Sft
sss æ
Steindórsprent
prentar fyrir yður
Aðolstrœti 4 ■ Simi 1175
Til Akurejyrar
Mánudag.
Steindór
Sími 1580.
ULL.
Kaupi ull hreina og óhreina, alla flokka,
gegn peningagreiðslu.
Sig. Þ Skjaldberg.