Morgunblaðið - 14.08.1937, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.08.1937, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 14. ágúst 1937. Síra Helgi Hjálman- son sjðtugur. Síra Helgi Hjálmarsson er sjö- tugur í dag. Hann var þjón- andi prestur í 30 ár, lengst af á ©•renjaðarstað, en ljet af embætti fyrir nokkrum árum og hefir ver- ið búsettur lijer í bænum síðan. Á yngri árum var síra Helgi í- þróttamaður hinn mesti, glímu- ■naður og skautamaður, svo að <orð fór af. Yar hann hið mesta karlmenni og fimur að sama skapi. Bftir að síra Helgi settist að embætti, kom það brátt í ljós að hann var búsýslumaður mikill. flirenjaðarstaðir er stór jörð, og vár presti það metnaðarmál, að sitja hana sem best. Bætti hann fwn og engjar og gerði húsabætur Síra Helgi er kvæntur Elísa- feetu Jónsdóttur, prests Björns- sonar frá Búrfelli. Hefir heimili þeirra jafnan verið rómað fyrir myndarskap og risnu. Síra Helgi er Mývetningur að nppruna, kominn af Reykjahlíðar- sett í móðurkyn en Skútustaðaætt í föðurkyn. Bru þær ættir báðar þjóðkunnar. Ber síra Helgi það með sjer, að liann er vel ættaður, höfðinglegur á velli og virðulegur í allri framkomu. Hann er glað- legur í viðmóti og gamansamur, «n alvara og skapfesta að baki. Síra Helgi hefir verið reglumað- ur alla daga og látið bindindismál- in mjög til sín taka. Hann var •mjög skyldurækinn embættismað- ur en hefir auk embættisins gegnt ýmsum opinberum trúnaðarstörf- um. Hann á marga vini fjær og nær, sem munu senda honum hlýj- ur kveðjur á sjötugsafmælinu. Skaftafellssýsla. Áætlunarferðir að Kirkju- bæjarklaustri frá Reykjavík á þriðjudögum kl. 8. Frá Kirkjubæjarklaustri alla föstudaga. — Afgreiðslu ann- ast Bifreiðastöð Islands, sími 1540. 1 íbáð. 1 ? y Barnlaus y peninga, | leigða hjón vilja lána gegn því að fá góða tveggja her- T * t I ? | Y indum. Tilboð sendist Morg- ❖ wnblaðinu sem fyrst, merkt: t ♦!• bergja íbúð, með öllum þæg- „A»sturbær“. □agbók« SV-kaldi. Smáskúrir, e» bjart á milli. Veðrið (föstudag kl. 17): Yfir Grænlandshafi er nærri kyrstæð lægð, sem fer minkandi. SV-og S- átt er um alt land, víða allhvöss. Á S- og V-landi eru skúrir og 9— 13 st. hiti, en bjart veður á N- og A-landi með 14—19 st. hita. Næturvörður verður í nótt í Reykjavíkur Apóteki og Lyfja- búðinni Iðunn. Næturlæknir verður í nótt Ól- * afur Helgason, Bárugötu 22, sími 2128. Messur á morgun: I Dómkirkjunni kl. 11, síra Bjarni Jónsson. I Hafnarfjarðarkirkju kl. 5, síra Garðar Þorsteinsson. Eimskip. Gullfoss er á leið til Leith frá Vestmannaeyjum. Goða- foss var á Patreksfirði í gær. Brú- arfoss kom hingað til Reykja- víkur kl. 8 í gærkvöldi. Dettifoss kom til Hamborgar í gær. Lagar- foss er á leið til Leith frá Kaup- mannahöfn. Selfoss er á leið til út- landa frá Seyðisfirði. Sundhöll Reykjavíkur. Aber- deen Press & Journal 22. júlí birt- ir mynd af Sundhöll Reykjavíkur að innan. Myndin var tekin, er baðgestir voru í lauginni. (FB). Ferðafjelag íslands fer skemti- för í Þórisdal um helgina ef veð- ur og þátttaka leyfir. Farmiðar seldir til kl. 12 í dag hjá Kr. Ó. Skagfjörð, Túngötu 5. Fiskmarkaðurinn í Grimsby föstudag 13. ágúst: Besti sólkoli 30 sh. pr. box, rauðspetta 58 sh. pr. box, stór ýsa 22 sh. pr. box, miðlungs ýsa 24 sh. pr. box, frá- lagður þorskur 21 sh. pr. 20 stk., stór þorskur 13 og smáþorskur 12 sh. pr. box. (Tilk. frá Fiskimála- nefnd—FB). Kappleikur var háður á Iþrótta vellinum í gærkvöldi milli skips- manna af skemtiferðaskipinu Reli- ance og Vals. Valur sigraði 5:0. Farþegar með e.s. Brúarfossi frá útlöndum í gær voru: Frú Þ. Sveinsson, frú Fjóla Fjeldsted, próf. Alexander Jóhannesson og frú, Karl Jónsson, læknir, Sveinn Þórðarson, próf. Guðjón Samúels- son, Soffía Skúladóttir, Guðrún Lárusson, próf. Sigurður Nordal, frk. Ásta Magnúsdóttir, frk. Karo- lína Magnúsdóttir, Sigurður Björnsson, Magnús Magmisson, Gunnar Magnússon og frú, með 2 syni, frk. Þorlaug Bjarnadóttir, frk Ingibjörg Guðmundsdóttir, frk. Guðrún Helgadóttir, frk. Ingibjörg Einarsdóttir, Jón Norð- fjörð leikari, Bjarni Gíslason, Þorgerður Sv^insdóttir, Margrjet Gunnlaugsdóttír,- Kristmunda Sig- urðardóttir, Hulda Sigurðardótt- ir, Gunnar Brynjólfsson, Björn Halldórsson, frú Anna Sigurðar- dóttir, Hanna Pálsdóttir, Ragna Eiríksdóttir, frú Bíbí Jónsson með barn, Hermann Bæringeson og 27 útlendingar. Til Hallgrímslrirkju í Saurbæ. Áheit frá N. N. í Reykjavík 10 kr., frá G. B. Johnson Upham N.- Dakota $11,00 = 49,17. Afh. af síra Páli H. Jónssyni áheit frá ó- nefndri á Raufarhöfn 20 kr., mótt. í brjefi frá Rvík áheit frá S. G. P. 5 kr., í póstávísun áheit frá Hún- vetningi 2 kr., til minningar um Ágúst Georgsson frá fósturfor- eldrum 10 kr., í ábyrgðarbrjefi frá N. N. í Rvík 100 krónur, frá Jóhannesi Jónssyni Gauksstöðum áheit 10 kr., afh. af síra Sigurjóni Guðjónssyni tvö áheit frá Suður- þingeyingi 10 kr., gamalt og nýtt áheit frá óilefndum Akurnesingi 25 krónur. Afh. af Birni Hannes- syni áheit frá Á. Ásmd. 10 kr. — Kærar þakkir. Ól. B. Björnsson. Útvarpið: Laugardagur 14. ágwst. 19.10 Veðurfregnir. 19.20 Útvarpstríóið leikur. 20.00 Frjettir 20.30 Upplestur og tónieikar: Um hetjur (Jón Leifs). 21.00 Hljómplötur: Lög leikim á ýms hljóðfæri. 21.30 Danslög (til kl. 24). Bækm. fmmammmmmmgammaamammmmmmmi SkrúðgarDar. Isafoldarprentsmiðja sendir nú árlega út bók garðyrkju- fræðilegs efnis (1936 — Innijurt- ir),"í ár bókina „Skrúðgarðar“ eftir Jón Rögnvaldssöri. Er slíkt aðeins gleðilegt, því ennþá er til- finnanlegur hörgull á vinsælum íslenskum garðyrkjubókum. „é>krúðgarða.r“ er 94 bls. Br bókin prýdd fjölda mynda. Frá- gangur er eins og ísafoldarprent- smiðju er venja, hinn besti. Bók- in sjálf er hin læsilegasta, og verður án efa vel þegin. Því miður er bókin ekki tæm- andi rit, um þetta efni, enda hef- ir það ekki verið ætlun höfundar. Það mætti finna að því, að mynda- valið mestmegnis er erlends upp- runa, og er það mjög bagalegt, þar sem myndirnar eru dæmi, og erfitt vill verða að skapa hliðstæð- ur hjer á landi. Þá mætti finna að því, að uppdrættir allir eru fremur ófrumlegir og „tekniskt“ ófullkomnir. Höf. notar afar „primitivan“ teiknimáta, isem að vísu er allskýr ,en sem allvíða er ekki í samræmi við alment notuð táknkerfi. Þessir eru aðalgallarnir — en kosti á bókin einnig. Málið er ljóst og lipúrt og bókin auðveld lesturs. Plöf. hefir —- skynsam- lega — forðast að fara út í vís- iftdalega sálma, en haldið sig við „populæran“, stíl og efni. Dreg- ur hann fram mörg ágæt dæmi júm garðlagningu og bendir jafn- yel á nýjar leiðir. Þakkarverð er viðleitni lians, að gefa plöntun- um ísl. heiti, sem flest eru ágæt. Bókin er búin mörgum góðum kostum, þess verð að hún sje lésin, og hún er kærkominn nýliði ísl. garðyrkjubókmenta. Óskar B. Vilhjálmsson. ___________ ■> ________ Sími 1380. LITLA BiLSTOÐIN Sr nokknS Btór Opúi aMaa sóIarhrincúnK, Nssta ferð til Akureyrar er á snánndag. Steindór “im- Maðurinn minn, Hallgrímur Jónsson, bókari, andaðist á Landakotsspítalanum í gærdag'. Guðleif Helgadóttir. Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum, að faðir minn, tengdafaðir og fósturfaðir, Sigurjón Jónsson, fyrverandi matsveinn, andaðist á Landsspítalanum að morgni þess 13. þ. m. Viggó Sigurjónsson. Guðrún Benediktsdóttir. Ólafía Jóhannsdóttir. Jarðarför konunnar minnar og fósturmóður, Valdísar Gunnarsdóttur, fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 16. ágúst og hefst með húskveðju að heimili hinnar látnu, Skólavörðustíg 4, kl. 314 e. h. Guðmundur Hávarðsson. Hávarður Jónsson. Jarðarför föður míns Magnúsar Friðrikssonar, frá Selparti, sem andaðist laugardaginn 7. ágúst, fer fram frá Villingaholtskirkju sunnudaginn 15. ágúst kl. 12. F. h. vandamanna. Jóhann Magnússon. Jarðarför Eybjargar Kristjánsdóttur, frá Svalbarðseyri, fer fram þriðjudaginn 17. þ. m. frá þjóðkirkj- unni og hefst með bæn á Landsspítalanum kl. 4 e. h. Theodór Jakobsson. Innilegt þakklæti, fyrir auðsýnda samúð og vinarhug, við andlát og jarðarför, Katrínar Jakobsdóttur • á Valdastöðum. Vandamenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.