Morgunblaðið - 13.11.1937, Blaðsíða 7
Laiígardaffur 13. nóv. 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
Minning Halldóru
Jónsdóttur
Þann 1. þ. m. andaðist að heim-
Íli sínu, G-rímsfjósum við Stokks-
•eyri, Halldóra Jónsdóttir, 66 ára,
fædd 30. desember 1870. Foreldr-
ar liennar voru Jón Adolfsson,
Hrímsfjósuni, Petersens hrepp-
stjóra og óðalsbónda, Stokkseyri,
og kona hans Þuríður Grímsdótt-
ir frá Bár, kona Adolfs Petersens
var Sigríður yngsta Jónsdóttir
Þórðarsonar ríka í Vestri Móhús-
um. Árið 1903 giftist hún eftir-
lifandi manni sínum, Markúsi Kr.
Þórðarsyni frá Efra Seli, og eign-
uðust einn son, Andrjes, nú um
30 ára, og sem hefir altaf verið til
heimilis hjá foreldrum sínum, auk
þess ólust þar upp að nokkru eða
dllu leyti 4 börn, sem liún reyndist
sem góð móðir.
Þau hjónin mynduðu sitt heim-
ili á æskuheimili hennar, og góð
sambúð, hreinlæti ráðdeild og
reglusemi í öllu, gerði heimilið
svo ánægjulegt og viðurkent
myndarlieimili.
Hún helgaði heimili sínu óskifta
starfskrafta, og það var óvenju-
legt hvað starfskraftar þennar
voru miklir, en hún taldi sjer
störfin svo auðveld, og lífsánægja
hennar mest með því að vera sí-
starfandi. Hún var mjög beilsu-
góð, mun næstum aldrei hafa orð-
ið veik, þar til á s.l. vori að hún
kendi sjúkdóms þess, sem dró
hana til dauða.
Þrátt fyrir sífeld störf fylgdist
hún vel með almennum málum,
því hún var skýr kona, og ein-
heitt og ákveðin með að fylgja
þeim málstað, sem hún taldi rjett-
an.
Það eru margir, sem flutt liafa
burt frá Stokkseyri, er þeir koma
aftur á fornar stöðvar, þá munu
margir sakna þess að þessi vin-
sæla og trygga kona er nú dáin.
Jarðarför hennar fer fram á
'Stokkseyri í dag. Þ. J.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ
frá f. R. 50 kr. A. O. 5 kr.
íslensku spilin komin aftur.
Aðeins lítið óselt.
Magnús Kfar
Heildverslun.
SÍÐASTA UMFERÐ
SKÁKMÓTSIN S.
Ellefta og síðasta umferð í
skákmótinu var tefld í fyrra
kvöld. Fer þá senn að líða að
úrslitum á skákmótinu; eru að-
eins nokkrar biðskákir ótefldar.
Úrslit í 11. umferð urðu þessi:
Meistaraflokkur: Baldur Möll-
er vann Sturlu Pjetursson, Magn-
ús G. Jónsson vann Jóh. Jóhanns-
son. Biðskákir: Guðm. Ólafsson
við Einar Þorv. og Bened. Jó-
hannsson við Eggert Gilfer.
II. fl. A. Hannes Arnórsson
Vann Hermann Sigurðsson, Yal-
geir Sigurðsson vann Sæmund Ól-
afsson. Sig. Gissurarson og Þor-
steinn Gíslason jafntefli. Jóhann
Bernhard og Gunnl. Pjetursson
biðskák.
II. fl. B. Bolli Thor. vann Ottó
Guðjónsson, Ársæll Júlíusson vann
Guðjón Jónsson, Axel Christensen
vann Björn Björnsson, Guðm.
Agústsson og Pjetur Guðmunds-
son jafntefli.
Biðskák úr 10. umferð tefld
s.l. mánudagskvöld: Hannes Arn-
órsson vann Helga Guðmundsson.
Biðskákir verða tefldar í dag.
Úrslit í II. fl. B: nr. 1—3 Guð-
mundur Ágústsson, Pjetur Guð-
mundsson og Viggó Gíslason 6
vinninga hver, nr. 4 Ársæll Júl-
íusson 5y2, nr. 5—6 Björn Björns^
son og Friðrik Björnsson 5 vinn-
inga hvor, nr. 7 Axel Christensen
áy2, nr. 8 Bolli Thoroddsen 4, nr.
9 Guðjón Jónsson 2, nr. 10 Ottó
Guðjónsson 1 vinning.
I gærkvöldi lauk skák þeirra
Jóhanns Jóhannssonar og Egg-
erts Gilfer þannig, að Jóhann
Tann.
Dagbók.
□ Edda 593711167 = 2.
LÁNTAKA RÍKIS-
STJÓRNARINNAR.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SH)U.
upphæð og svo það, hvort líkur
væru til að lánið fengist. Það væri
skaðlegt fyrir álit landsins og
lánstraust, ef það byði út lán,
sem alls ekki fengist.
Fjármálaráðherra kvað mest ó-
ráðið enn um það, sem M. G.
spurðist fyrir um.
M. J. og fjármálaráðherra kom-
ust töluvert út í almennar um-
ræður um fjárstjórnina. Taldi ráð
herra þjóðarauðinn hafa vaxið,
en M. J. dró í efa, að ráðh. vissi
nokkuð um það, og hitt væri fult
svo sennilegt. Skuldir við útlönd
hefðu aukist mjög, margt af eign
um landsmanna gengið úr sjer,
vörubirgðir rýrnað, en ýmisl. af
því, sem ráðherra nefndi af ný-
virkjum, svo sem verksmiðjur,
væri bygt að miklu leyti fyrir
erlent lánsfje. Og ekki væri það
auðsældarmerki, að nú væru fyrir-
þinginu tillögur frá stjórnarlið-
um um það, að banna mönnum
alveg að fara úr landi vegna
gjaldeyriserfiðleikanna.
Frv. var svo sent til 3. umr.
Póststjórnin hefir gefið út nýtt
1 eyris frímerki af sömu gerð og
þau, sein verið hafa í umferð,
nema hvað „takkarnir“ á hinum
nýju merkjum eru stærri. Það
munii nú vera um 17 ár síðan
breytt hefir verið um gerð ,á 1
eyris frímer^m^,^ 2* —-j.
j|æðask> mt 'hi, jíPjæðl
mailnafjelagið Iðunn í 'Varðarhús-
inu í kvöld kl. 8y2.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
SV- eða V-gola. Skýjað en úr-
komulaust. Frostlaust.
Veðrið í gær (föstud. kl. 17):
Háþrýstisvæði og liægviðri hjer á
landi. Skýjað loft og 1—3 stiga
hiti við SV-ströndina, annarsstað-
ar bjartviðri og 1—-5 st. frost.
Næturlæknir er í nótt Ólafur
Helgason, Fjólugötu 7. Sími 2128.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Lyfjabúðinni Iðunni.
Messur í dómkirkjunni á morg-
un; Kl. 11 síra Bjarni Jónsson.
Kl. 2 Barnaguðsþjónusta (sr. Fr.
Hallgr.). Kl. 5 síra Friðrik Hall-
grímsson.
Messað í fríkirkjunni á morg-
un kl. 2, sr. Árni Sigurðsson.
Bamaguðsþjónusta í Laugar-
nesskóla á morgun kl. 10.30.
Messað í Laugarnesskóla á
morgun kl. 5. Sr. Garðar Svav-
arsson.
Messað í fríkirkjunni í Hafn-
arfirði á morgun kl. 2. Sr. Jón
Auðuns.
Málverkasýnin^ frú Karen Witt-
Hansen var op. að í gær að við-
stöddum fjölda boðsgesta. Nokk-
ur málverk seldust þegar, meðal
annars keypti Fontenay sendi-
herra andlitsmynd. Sýningin er
opin yfir helgina, daglega frá kl.
10 f. h. til 10 e. h.
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í hjónaband af Linnet,
bæjarfógeta í Vestmannaeyjum,
frk. Elísabet B. Guðbjörnsdóttir
og Þórarinn Guðmundsson. Heim-
ili ungu hjónanna, verður á Vest-
urveg 11 A, Vestmannaeyjum.
Nýlega er lokið síma-kappskák
á 10 borðum milli Taflfjelags
Akraness og Taflfjelags Kefla-
víkur. Úrslit urðu þau, að Tafl-
fjelag Akraness vann með 6y2
vinning móti 3y2. (FÚ)
Jarðarför Ragnheiðar Davíðs-
dóttur frá Fagraskógi fór fram
að Möðruvöllum í Hörgárdal í
fyrradag og var sú fjölmennasta,
sem farið hefir fram við þá
kirkju um langt skeið. (FÚ)
Eimskip. Gullfoss er í Khöfn.
Goðafoss er í Rvík. Brúarfoss fór
frá Vestm. í gær til London.
Hettifoss er á leið til útlanda frá
Austfjörðum. Lagarfoss er á leið
til Austfjarða frá Leith. Selfoss
er á leið til Hamborgar.
Ríkisskip. Esja var á Hvamms-
tanga kl. 7 í gærkvöldi. Súðin er
væntanleg til Gdynia á morgun.
Læknaskifti. Þeir hluttækir
samlagsmenn í Sjúkrasamlagi
Reykjavíkur, er ætla að skifta
um lækna frá næstu áramótum
að telja, eru ámintir um að til-
kynna það samlaginu eigi síðar
en á mánudag, en þá rennur út
frestur sá, er gefinn hefir verið
til læknaskiíta.
Útvarpið:
2ti,15 Leikrit: „Rakarinn, sem
kunni iðn sína“, eftir Emil
Thoroddséír*"“ ýl^riöi ' \Vaage
o. fl.).
aáfcáfefla r<)!<-jg|t r t| t
leikur.
21.40 Danslög.
RIO-KAFFI
FYRIRLIGGJANDI.
Sími 1370
ÓLAFUR GÍSLASOÞ0
REVTKJ AVI* K
STÚLKA vön vjelritun og bókfærslu, helst með
verslunarskólaprófi, getur fengið atvinnu á skrif-
stofu nú þegar.
Eiginhandarumsókn með kaupkröfu, merkt:
„Vjelritun“, sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 15.
þessa mánaðar.
D.S. Frostlðgurinn
er kominn aftnr
Lœkkað vetð.
Bensínsalan
Hverfisgötu ö.
Lokað allan daginn nœst-
komandi mánndag, vegna farð-
arfarar.
Versl. Goðaland Sjargarstíg 16.
■'mm
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að elsku litli
drengurinn okkar
Ágúst Hafsteinn
andaðist 9. nóvember. Jarðarförin ákveðin miðvikudaginn 17.
þ. m, frá fríkirkjunni og hefst með bæn kl. 1 e. h. á heimili
okkar, Breiðholti við Laufásveg.
Eggertsína Eggertsdóttir, Guðjón Þorbergsson
og systkini.
Móðir mín
Kristín Gísladóttir,
sem andaðist 7. þ. m„ verður jarðsungin frá þjóðkirkjunni í
Hafnarfirði mánudaginn 15. þ. m. kl. 1 y2 e. h.
Elis Ólafsson.
Jarðarför föður, tengdaföður og fósturföður okkar
Guðna ísleifssonar,
fyrrum bónda á Signýjarstöðum, fer fram frá fríkirkjunni
mánudaginn 15. nóvember. AthÖfnin hefst kl. 1 með bæn, að
Freyjugötu 6. Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Ólafur Guðnason. Soffía Markúsdóttir.
Sæmundur Jónsson.
7* JJJIU1
H i i'dk* « :j riud i ’
jarðarför x v-’j
iundar.J^eij^Siflnai^í^ Háeyri.