Morgunblaðið - 17.11.1937, Síða 6

Morgunblaðið - 17.11.1937, Síða 6
Miðvikudtfgur 17, nóv. 1937. 6 Rjúpur kaupum við hæsta verði. Eggeit Kristjánsson & Co. Sími 1400. Munifl efllr góðu Hreins-kertunum. Rúgmjöl. Sig. Þ. Skfaldberg (HeOdsalan). MORGUNBLAÐIÐ oooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo Nýtísku umbætur á Björnsbakarii Frá Björnsbakaríi eins og það er nú. — Til hægri sjest á hinn nýja ooooooooooooooooooooooooooooooo Nýi rafmagns- bökunarofn Bjömsbakarí hefir nýlega lát- ið gera miklar breytingar í nýtísku átt á bakaríinu. Blaða- mönnum dagblaðanna var í gær boðið að skoða brauðgerðarhúsið eins og það er nú. Björnsbakarí hefir fengið sjer rafmagnsbökunarofn með 4 bök- unarhólfum, sem eru 1%X2 metr- ar hvert að stærð og er hægt að baka í einu 220 franskbrauð, eða 1000 wienerbrauð. Til upphitun- ar notar ofninn 250—300 kíló- wött á sólarhring, þegar öll bök- unarhólfin eru í fullri notkun. — Ofn þessi er smíðaður af Elektro- apparat í Gautaborg A.B. og keyptur gegnum umboðsmann firmans hjer á landi, hr. Magnús Kjaran stórkaupmann. Það lætur að líkum, að mikils virði er fyrir Björnsbakarí að losna við kolaofninn, því þó hrein Iega sje gengið um, igetur þrifn- aður aldrei verið jafn fullkom- inn, þar semi kolaofnar eru not- aðir, eins og rafmagnsofnar. Fyrir bakarana er ólíkt betra að vinna í brauðgerðarhúsum, þar sem rafmagnsofnar eru notaðir, vegna hitans. Hitinn í brauðgerð- arhúsi Björnsbakaríis er ekki meiri en í venjulegu herbergi, ca. 20 stig á Celsíus. Ef kalt er í veðri verður að hita npp með miðstöðvarofni. Um aðrar umbætur á brauð- gerðarhúsinu má nefna eftirfar- andi: Vöruvagnar, sem rent er í úr lokaðri rennu á geymslulofti, þannig að efni er ekki handleik- ið fyr en um leið og deig er bú- ið til, og engir sekkir hafðir í sjálfum vinnustofunum. Vinnuborð eru öll úr hörðum mahogni-við, sem ekki flísast úr. Öll deig búin til í rafknúnum vjelum, til þess notaðar þrjár vjelar, ein til brauðgerðar og tvær til kökugerðar. Auk þess eru þrjár rafknúnar vjelar: tvær til macronmassa- og marsipan- gerðar og ein ísvjel. Sigfús í Keflavík Sigfús Sigurhjartarson ljet Verklýðs og sjómannafjelag Keflavíkur boða til almenns fje- lagsfundar á föstudagskvöldið var. Var fundarefni auglýst vænt- anlegir samningar við atvinnurek- endur og útgerðarmenn í þorpinu. Kaupgjaldsmálið var þó aldrei tekið á dagskrá heldur hjelt Sig- fús 1% kl.st. ræðu um samfylk- ingu rauðu flokkanna í landinu. Tóku verklýðsfjelagar máli Sig- fúsar illa og höfðu alt á hornum sjer við hann. Hjelt einn af á- kveðhustu fylgismönnumi sósíalista þar á staðnum því fram í ræðu, að Sigfús hefði algerlega svikið alla kosningasmala sína (nema þó ræðum.) um þá atvinnu sem hann hafði lofað þeim að launum fyrir þjónustuna við kosningarnar síð- ustu. Er sagt að þessum sama ræðum. hafi þótt það koma úr hörðu'stu átt að Sigfús eftir slíka fram- komu skuli verja slíkri fyrirhöfn til að skarnma og níða þá menn sem keflvískir verkaménn sækja lífsbjörg sína til. Ekki er frá því sagt hvernig Sigfúsi hafi orðið við, en þeir sem til þekkja geta gert sjer í hugarlund hvernig upplitið hefir verið á piltinum. SLYSIÐ Á HÚSAVÍK. FBAMH. AF ÞBIÐJU SÍÐU. þeir fyrst að hann hefði brugðið sjer eitthvað frá, en taka síðan eftir að kaðallinn er slitinn og annar endinn horfinn, en gaflfjöl- in óbundin. Eftir nálægt klukkustund fanst líkið í sjónum rjett við bryggj- una og var þegar flutt í sjúkra- húsið. Reyndi læknir lengi lífg- unartilraunir en árangurslaust. Ætlað er að Logi hafi hrokkið út af bryggjunni, þegar kaðall- inn slitnaði og ef til vill rotast um leið og hann fjell, því áverki var á höfðinu og enginn heyrði hann gefa hljóð frá sjer. Logi var 27 ára, lætur eftir sig konu, eitt barn og aldraða for- eldra. (FÚ.). Togaramir Geir og Hafsteinn komu í gær frá Englandi. Minningarorð um Þurfði Jónsdóttur F. 8. febr. 1892. I>, 14. nóv. 1937. Hún ólst upp með systkinahóp í foreldrahúsum á Ægissíðu í Holtum, og átti lítt heimangengt. Tók við bústjórn á því stóra heim- ili, þá er móðir hennar, Guðrún Pálsdóttir Guðmundssonar Irá Keldum lagðist rúmföst 1920. Bættist það að mestu við hús- móðurstörf Þuríðar, á þessu mana marga og sífelt gestkvæma heim- ili, að hjúkra móður einni ósjálf- bjarga í 8 ár, fram að andláti hennar, 1928. Og hlynna auk þes» að föður sínum lasburða og þjáð- um, Jóni Guðmundssyni frá Keld- um, Brynjólfssonar. Hann andað- ist rúmum 9 mánuðum síðar en kona hans. Eftir það var Þuríð- ur oft hjá (5) búandi systkinuna sínum þar eystra, þar til hjálp- ar, er þörf í svipinn var mest að- kallandi. Hún hafði góða greind og á- kveðinn vilja, var hvers manns hugljúfi og skaraði fram úr al- menningi, að óeigingirni, ósjer- hlífni og fórnarlund fyrir aðra, meðan orkan entist. En orkant þraut á undan viljanum, á sama hátt og móður hennar — þó með lengri aðdraganda og örari af- drifum. Hún fjekk „slag“, misti meðvitund meira en viku, og lá ósjálfbjarga í 17 vikur á Elli- heimilinu í Reykjavík. Hugljúfast mun henni nú að þakka alla þá hjálp og alúð, er henni var sýnd við æfilokin. Og vinir hennar þakka æfistörfin og samgleðjast endurfundum, endur- hjúkrun ásamt verðlaunum trúrra þjóna, er hún nú fær að njóta. Kveðjuathöfn er í dag (kl. 11) á Elliheimilinu. Vinur. Fjelag íslenskra botnvörpuskipa eigenda hefir skipað 5 manna nefnd til þess að semja við sjó- mannafjelögin í Reykjavík og Hafnarfirði, um kaup og kjör sjó- manna á togurunum. Nefndina skipa Kjartan Thors, Ólafur Jóns- son, Þórður Ólafsson, Ásgrímur Sigfússon og Ólafur Einarsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.