Morgunblaðið - 17.11.1937, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 17.11.1937, Blaðsíða 7
Mrðvikndagtir 17. nóv. 1937. 7 Dagbók. Veðurútlit í Rvík í dag: V- kaldi. Nokkur snjójel. VeðriS (þriðjudagskvöld kl. 5): L»gð yfir Vestfjörðum á hægri hreyfingu austur eftir. SV- og V- kaldi um alt land, með nokkrum •njójeljum vestan lands. Hiti um frostmark norðvestanlands, en víð- ast 2—3 st. liiti í öðrum lands- hlutum. Næturlæknir er í nótt Halldór Stefánsson, Bánargötu 12. Sími 2264. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn. Á át.træðisafmæli frú Ásthildar Thorsteinsson í gær sótti hana fjöldi manns heim að Lundi í Mosfellsdal. Um miðjan dag í gær voru þar staddir 30—40 manns og var fólk þó jafnan að koma og fara. Fjöldi heillaóskaskeyta bár- ust henni hvaðanæfa. Áttatíu ára er í dag húsfrú Steinunn Helgadóttir, Þórustöðum á Vatnsleysuströnd. í fimmtíu og bíu ár hefir hún verið húsfreyja á því heimili og stjórnað með röggsemi og myndarskap, þar til nú fyrir hálfum mánuði, að hún ▼ar flutt veik til Reykjavíkur og liggur hún nú á heimili mágkonu ainnar á Njálsgötu 55. Sveitungar hennar, ættingjar og vinir minn- ast hennar í dag með hlýjum kveðjum og heillaóskum. f kvöld kl. 8% er konsert Bggerts Stefánssonar söngvara og Páls ís- ólfssonar í dómkirkjunni. Pantað- ir aðgöngumiðar, sem ekki verða sóttir fyrir tilsettan tíma, og það, sem eftir kann að verða af miðum, verður selt við innganginn. Ungmennaf jelag Keflavíkur helt afmælishátíð s.l. laugardagskvöld og var hátíðin fjölsótt. Til skemt- unar var sýndur sjónleikur, bland- aður kór söng undir stjórn Frið- riks Þorsteinssonar, ræður fluttu síra Eiríkur Brynjólfsson, Ingi- mar Jónsson kaupm., Helgi S. Jónsson og Þorsteinn Bernharðs- son. Ungmennafjelagið telur nú 230 meðlimi og eru fjelagar mjög áhugasamir énda mikið og fjörugt fjelagslíf. Fjelagið hefir ráðist í að byggja sundlaug í Keflavík. Stjórn fjelagsins skipa Sverrir Júlíusson, Ólafur Þorsteinsson og Helgi S. Jónsson. Þorlákur þreytti liefir nú verið sýndur í 15 kvöld fyrir troðfullu húsi og sýnist ætla að þrauka það nokkuð ennþá þó þreyttur sje. Það sýnist því ástæða til að ætla að áhorfendum hafi fallið leikur- inn vel í geð, enda er hann frá npphafi til enda bráðfjörugur og sprenghlægilegur. Næsta sýning verður á morgun, en aðgöngu- miðasala mun hefjast í dag. Læknaskifti. Sjúkrasamlagið gef ur samlagsmönnum enn tækifæri til þess að skifta um samlags- lækna, og nær frestur sá til laug- ardags 20. þ. m., að þeim degi meðtöldum. Þeir, sem ætla að skifta um lækna og hafa ekki enn gert það, eru því mintir á að gera það þessa viku, því að eftir laugardag verður engum leyft að skifta um samlagslækna. MORGUNBLAÐIÐ Henrik Thorlacius, höfundurinn að skáldsögunni ,Kynslóðir koma', sem kom út fyrir ári síðan, hefir nú fullbúna til prentunar aðra skáldsögu, semi er framhald af „Kynslóðir koma“. Býst hann við, að þessi bók komi út á næstunni. Bn nú er sami höfundur að leggja hornstein að nýrri sögu, sem vænta má að veki mikla eftirtekt skáldsagnaunnenda á þessum unga rithöfundi, en það er róman, er byggist á viðburðum þeim, sem gerðust hjer á landi árið 1627, þegar sjóræningjar frá Algier rændu hjer við land — Tyrkja ránið. Sagan á að hefjast hjer- lendis vorið 1627 og víkja síðan suður til Algier og greina þar frá lífi og afdrifum fanganna. í sam- bandi við þessa sögusamningu hygst H. Th. að fara bráðlega suð- ur til Algier til að kynna sjer þar staðhætti viðkomandi söguefninu'. Ríkisskip. Bsja kom til Reykja víkur í gærkvöldi. Súðin er : Danzig. ísfisksala. í fyrradag seldu afla sinn í Grimsby, Maí 1127 vættir fyrir 695 stpd. oig Belgaum 793 vættir fyrir 675 sterlingspund. Bæjarstjórnarfundur verður morgun kl. 5 í Kaupþingssalnum. Tíu; mál eru á dagskrá, nær ein- göngu fundargerðir fastra nefnda. Karlakór Reykjavíkur söng í út varp í Yínarborg í gærkvöldi og hófst útsendingin á söng þeirra klukkan rúmlega 8x/2 eftir íslensk- um tíma. Söngurinn heyrðist vel hjer á góð útvarpstæki. Meðal þeirra laga sem kórinn söng var „Grænlandsvísur“, „Ave María“ eftir Sigvalda Kaldalóns (einsöng ur Stefán Guðmundsson) og ,Land nemar'. Heimdallur, fjelag ungra Sjálf- stæðismanna ætlar að halda fje lagsfund í Varðarhúsinu é morgun kl. 8Vk- Á fundinum ætlar Pjetur Ottesen að tala og mun það vera gleðiefni ungum Sjálf stæðismönnum og konurn að fá tækifæri til að hlusta á Pjetur Ottesen. Þá mun formaður fjelags- ins, Gunnar Thoroddsen segja frjettir frá sjálfstæðisfjelögunum úti á landi, en G. Th. er nýlega kominn heim úr ferðalagi utan af landi, þar sem hann kynti sjer starfsemi Sjálfstæðisfjelaganna Búast má við að fundurinn verði fjölsóttur og er þess vænst að fjelagsmenn mæti tímanlega. Nýir fjelagar verða teknir inn í fund- arbyrjun. Eimskip. Gullfoss fór frá Leith í gærkvöldi áleiðis til Vestmanna- eyja. Goðafoss er á ísafirði. Brú- arfoss er í London. Dettifoss er á leið til Hamborgar frá Grims- by. Lagarfoss var á Norðfirði í gærmorgun. Selfoss er á leið til Vestmannaeyja frá Hamborg. K. F. U. M. og K., Hafnarfirði. Bænavikan stendur yfir. Kl. 8^ í kvöld talar stud. theol. Ástráð- nr Sigursteindórsson. Allir vel- komnir. B.v. Karlsefni kom af veiðum í gær og hafði samtals um 2500 körfur fiskjar. Eitthvað af fisk- inum er bátafiskur, sem keyptur var í skipið. Aðalfundur Verslunarmannafje- lags Reykjavíkur verður haldinn í Kaupþingssalnum í kvöld og hefst kl. 8y%. Síðasta tækifæri að koma mynd- um á Ljósmyndakepni Ferðafje- lags íslands rennur út í kvöld. Sjómannakveðja. Byrjaðir veið- ar við Austurland. Vellíðan. Kveðj ur. Skipverjar á Garðari. Til Strandarkirkju frá S. G. 5 kr. Halla 5 kr. Ástu 2 kr. K. B. 5 kr. J. L. 3 kr. Jóni G. 35 kr. A. J. 10 kr. S. f. 15 kr. S. J. 5 kr. N. N. (gamalt áheit) 5 kr. N. 10 kr. Útvarpið: 20.15 Bækur og menn (Vilhj. Þ. Gíslason). 20.30 Kvöldvaka: a) Einar Ól. Sveinsson dr. phil.: Æfisögur, n. b) Vilhj. Þ. Gíslason; Úr Örvar- Odds sögu, III. e) Bjarni Ásgeirsson alþm.: Úr ljóðum Guðmundar Böðvarsson- ar; „Kysti mig sól“. Ennfremur sönglög og harmón- íkulög. I Timbarverslan • P. W. Jacobsen & Sön. o * StofnnS 1824. Símnefni: Oranfuru ----- Carl-Lundsgade, Köbenhavn O. Selur tinibur í stærri og smærri sendingum frá Kaup- mannahöfn. ----- Eik til skipasxníða. ---- Einnig heila skipsfarma frá Svíþjóð. Hefi verslað við ísland í meir en 80 ár. Brjefsefni í kossnm ofj inöppum, nýkomin. Bókaversl. Sigf. Eymundssonar og Bókabúð Austurbæjar B. S. E., Laugavegi 34. Sími 1S80. LITLA BILSTÖÐIN Opin allan sólarhringinn. Er aoklrað itór Minning um hjónin Ástrfði Jónsúéttur og Kristófer Bároarson Dáin 22. október 1937. Lag: Ó, blessuð stund. Hver ertu Guð! sem eldsins afli ræðurf Hver ertu Guð! sem skapar líf og helf Með klökkum huga kveðjum, góðir bræður, þau kæru bjón, sem dóu. — Farið vel! í lífsins þrautum laugast andans hróður, á langri æfi margoft skilduð frið, að þrek og sitarf er þúsundfaldur gróður og þjáning lífsins aðeins stundar- bið. Þó dauðinn segi: Jeg er aflið mesta, og enginn mínar leiðir skilja kann. Á ferðum mínum bæti’ jeg bölið versta, og breyti lífi í stærsta sannleik- ann. Því jeg flyt ykkur alla sem að líða, á eldsinsi geislum, himnasali í. Guð ræður lögum — róleg skuluð bíða. Rósirnar lifa bak við dauðans ský. Trygðin og ástin tóku saman j höndum, takmarki náði lokaþátturinn. Gimsteinninn stærsti — lífs frá sólarlöndum — lýsir og vermir kærleibsimátturinn. Ó syrgið ekki — sorg er aðeins villa — þó sálir flytji yfir dauðans haf. Glaðir við skulnm himnakonung hylla. Hann hefir sagt; Jeg bæði tók og gaf. Sólveig Hvannberg. i #S T"íK’v’ nkkar, Anna Kr. Bjamadóttir, _____ . g að heimili sínu, Vesturgötn 46 A. Reykjavík, 16. nóvember 1937. Anna L. Kolbeinsdóttir. J. B. Pjetursson. Kristinn Pjetnrsson. Maðurinn minn og faðir okkar, Kristinn Jón Gíslason, matsveinn, andaðist í gær. Jarðarförin ákveði* sfðar. Svava Árnadóttir og börn. Jarðarför föðnr og tengdaföður okkar, Tómasar Gunnarssonar (fyrrum bónda á Neðra-Apavatni), fer fram fimtudaginn 18. þ. m. frá fríkirkjunm og hefst með húskveðju á heimili hans, Njálsgötn 41, kl. L Jarðað rerðnr í gamla kirkjngarðinum. Sigríður Tómasdóttir. Árni Andrjesson. Jarðarför minnar hjarkæru eiginkonu og móður minnar, Steinþóru Ásmundsdóttur, fer fram frá þjóðkirkjunni í Hafnarfirði 18. nór. og hefst með bæn á heimili hinnar látnu, Hörðuvöllum, kl. lVa h. Böðvar Grímsson. Ásmundur Böðvarsson. Þökkum vináttu og samúð í tilefni af fráfalli og jarðarför frú Ragnheiður Davíðsdóttir. Systkinin frá Fagraskógi. Innilegt þakklæti fyrir anðsýnda samúð við fráfall og jarð- arför systur minnar og mágkonu, Þórdísar Sigurðardóttur. Karítas Sigurðardóttir. Runólfur Jónsson. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarð- arför föður, tengdaföður 0g fósturföður okkar, . Guðna ísleifssonar, frá Signýarstöðum. Ólafur Gúðnason. Soffía Markúsdóttir. Sæmnndur Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.