Morgunblaðið - 04.12.1937, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.12.1937, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 4. des. 1931. íiiiimimniminiiiininnniiminnmmmmimiiinniminimij Japanir hafa mótmæli . Liðskðnnun Breta og Ðandaríkjanna [ Deibos aö engu Hið raunverulega markmið með sigurförinni FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KAUPMANNAHÖFN 1 GÆR. Markmiðið með sigurför japanskra her- sveita um alþjóðahverfið í Shang- * hai í morgun, sem farin var þrátt ifyrir ítrekuð mótmæli erlendra yfirvalda, er álitið hafa verið — auk þess að sýna Kínver j- um hernaðarveldi Japana — að hnekkja virðingu Breta og Bandaríkjamanna og sannfæra Kín- yerja um að hin bresk-ameríska valdasól í Aust- ur-Asíu sje að hníga til viðar. Yfirforingjar Breta og Bandaríkjamanna höfðu fyrst hinn 29. nóv. lagt fram mótmæli gegn sigurförinni og síðan aftur í gær — en árangurs- laust. Sigurförin leiddi til þriggja árekstra, eins meiriháttar, svo að manntjón hlaust af og tveggja minni háttar. LAGT AF STAÐ. London í gær. FÚ. Klukkan ellefu í morgun fóru hinar japönsku hersveitir yfir vesturtakmörk alþjóðahverfisins og fóru fyrstar fótgöngu- liðssveitir, þá riddarasveitir og síðan brynvagnar og vagnar hlaðnir vjelbyssum og loftvarnarbyssum og voru þær tilbúnar til þess áð skjóta, ef kínverskar flugvjelar skyldu bera að. Átta japanskar hernaðarflugvjelar sveimuðu yfir borginni á meðan á sigurgöngunni stóð. lilillilllllilllllllllllllliillliliiiiiililliiiiliiiiiiilillliilllllilliiiliiiiiiiliin Yvon Delbos utanríkismálaráðherra Frakka er lagður |j | af stað í Mið-Evrópuferðalag sitt og er nú kominn til Var- 1 = sjá. Á leiðinni þangað fór hann um Berlín og ræddi við von j| s Neurath, utanríkismálaráðherra Þjóðverja, sem tók á móti |j | honum á járnbrautarstöðinni þar. Ræddust þeir við á með- | || an lestin stóð þar við (skv. Lundúnafregn F.Ú.) Myndin:Delbos í miðju, t. h. á myndinni Lebrun for- 1 = seti Frakklands og t. v. Camille Chautemps, forsætisráð- | 1 herra. = liiillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllliii Leiðin sem farið var um, var 6 mílna (tæpra 10 km.) löng. Á þessari leið höfðu Kín- verjar lokað öllum verslunum sínum og stóðu þögulir og al- varlegir, og horfðu á hina sig- urdruknu Japani. Tilræði. Þegar hersveitirnar foru um Nanking Road (eina aðalgöt- una í borginni) var sprengju varpað inn í fylkingar þeirra. Þrír japanskir hermenn særð- ust hættulega, en japanskur lögregluvörður hlaut minnihátt- ar sár. Kínverskur lögregluþjónn skaut tilræðismanninn til bana, sem sagður er af Japönum hafa verið kínverskur stúdent, en lögreglan, sem rannsakaði lík hans, telur hann hafa verið frá Koreu (Korea er japönsk). Japanir ljetu tafarlaust umkringja svæðið, þar sem þessi atburður gerðist og settu upp vjelbyssur. Komst mikill ruglingur á sigurgönguna. < . j|f;! Breskur þegn. Skömmu síðar hrifsaði bresk- ur maður pappírsfána úr hönd- um japansks áhorfanda o g tætti hann í sundur. (Hann helt því fram, að fáninn hafi verið rekinn í sig). Japanskir áhorfendur, sem nálægt stóðu, urðu æfir og hefðu gengið af honum dauð- um, ef lögreglan héfði ekki forðað honum undan. Hann var fluttur á lögreglustöðina. Síðan voru nokkrir breskir menn lúbarðir af japönsk- um hermönnum í Nanking Road í hefndarskyni fyr- ir að þeir hafi svívirt fána Japana. Lifi Kína. Nokkru síðar kastaði Kín- verji sjer af þriðju hæð í veg fyrir hina japönsku sigurveg- ara. Hrópaði hann um leið: Lifi Kína. Hann beið samstundis bana. Hinir japönsku hermenn voru sigurreifir, en skeggjaðir og fremur illa til reika, og vagn- arnir forugir og bar allur her- inn merki langrar og erfiðrar sóknar. Að lokinni hergöngunni gekk yfirforingi Japana inn í lög- reglustöðina en á eftir honum komu sex menn úr japanska riddaraliðinu og skömmu síð- ar sveimuðu átta hernaðarflug- vjelar upp yfir lögreglustöðinni. Þannig tóku Japanir hana í sínar hendur. Japanir hafa hætt við sigur- göngu sem þeir ætluðu að fara um franska borgarhlutann. Eggert Stefánsson endurtekur kirkjuhljómleika sína í fríkirkj- unni annað kvöld. Menn ættu að tryggja sjer aðgöngumiða í tíma svo komist verði hjá þrengslum við innganginn. Kastast í kekki með Portúgölum og Þjóðverjum ? London í gær. FÚ. Portúgalir virðast orðnir kvíðn ir út af umræðunum uim, að Þjóðverjum verði skilað aftur ný- lendum. Eftir heimsstyrjöldina fengu Portúgalir þýsku nýlend- una Angola, en nú er mælt að Þjóðverjar vilji verða Stærstu hluthafarnir í fjelagi, sem hafi með höndum hagnýtingu auðæfa þessarar nýlendu. Portúgölsku blöðin segja, að Portúgal muni ekki versla með sínar nýlendur, og að sá hluti af núverandi nýlendum Portúgals, sem fyrir heimsstyrjöldina hafi verið eign Þjóðverja, hafi verið rjettmæt eign Portúgals sem Þjóð verjar voru búnir að ræna. Eitt blaðið segir, að alt þetta skraf um ilýlenduvandamál sje bygt á eintómum misskilningi. Það sje ekki til neitt vandamál í því sambandi. HÚSBYGGINGAR- SJÓÐUR GOOD- TEMPLARA. . Emskip. Gullfoss fór frá Hull í gærkvöldi, áleiðis til Kaupmanna- hafnar. Goðafoss er í Hamborg. Brúarfoss kom frá útlöndum kl. 10 í gærkvöldi Dettifoss er á ísa- firði. Lagarfoss er á leið til Seyð- isfjarðar frá Skálum. Selfoss er á leið til Grimsby. Ríkisskip. Esja liggur í Reykja- vík. Súðin var á ísafirði kl. 3 í gær. Virðulegt, gott og hentugt starfsheimili fyrir Góðtempl- araregluna hjer í höfuðstað lands ins er ein hin mest aðkallandi nauðsyn, ef reglan hjer í borginni á að geta dafnað og rekið starf- semi sína svo alhliða sem þarf. Slík bygging hlýtur altaf að verða alldýr, og því verðuin við nú að ganga að því með oddi og egg að safna fje í húsbyggingarsjóð. Einn þáttur í þeirri fjársöfnun er happdrætti það, sem Þingstúka templara í Reykjavík hefir til stofnað. Undanfarinn mánuð hefir sala happdrættismiðanna staðið yfir. Það hefir sýnt sig nú — eins og svo oft áður — að menn eru al- ment fúsir til að veitá nauðsynja málum reglunnar fjárhagslegan stuðning. Salan hefir gengið vel það sem af er, þó nokkuð sje enn óselt af happdrættismiðun- um. Er nú ekki nema herslumun- urinn að lúka sölu allra miðanna í tæka tíð, svo dráttur í happ- drættinu geti farið fram á tilsett- um tíma, þ. 15. þ. m. Göngum því einhuga og ötullega fram í því, að selja miðana næstu daga. Þeir templarar, sem hafa fleiri seðla en þeir búast við að geta annað að selja fyrir 8. þ. m., skili þeim til stúku sinnar, sem þá annast sölu þeirra. Hinir, sem enga happdrættis- Málamiðlun Þjððverja: Þeir öttast að Japan- ir ofreyni sig LRP 3. des. F.Ú. Sendisveitir Þjóðverja og ítala í Kína hafa staðfest þá frjett, að Trautman, sendiherra Þjóðverja í Kína, eigi sem stendur viðræður við Chiang Kai Shek, og sje að reyna að miðla málum í styrjöldinni í Kína. Meðal stjórnmálamanna í Shanghai er ekkert vitað um það, hver einstök atriði samn- inganna sjeu, en álitið að Jap- anir muni ekki hafa átt frum- kvæðið að þeim, enda muni of seint að ræða um vopnahlje nú, vegna hinna stórkostlegu sigra, sem Japanir hafa unnið und- anfarið. Chang Kai Shek eini maðurinn. Stjórnmálamenn í Shanghai álíta, að Þjóðverjum sje ant um að Japanir sæki ekki lengra inn í Kína og eyði þannig kröftum sínum og berstíyrk, sem annars geti komið sjer vel að grípa til ef til ófriðar kæmi við Rússa. Japanir eru sagðir vilja hafa Chiang Kai Shek áfram vi§ völd þar sem að hann sje eini maðurinn sem fær sje um, að hafa hemil á Kínverjum, og koma í veg fyrir almennan glundroða. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Mussolini ræðst á Breta og Banda- ríkjamenn London 3. des. F.Ú. Imálgagni Mussolinis birtist í gær grein, þar sem ráðist er á Breta, Frakka og Banda- ríkjamenn. Reuterfrjettastof- an í Róm álítur, að greinin sje eftir Mussolini sjálfan. Þar er því meðal annars haldið fram, að það sem reki Bretland og Bandaríkin til þess að gera með sjer verslunarsamninga, sje löngun til þess að eyði- leggja viðskifti ákveðinna þjóða. I dag hefjast samningaum- leitanir milli Bandaríkjanna og Tjekkóslóvakíu um nýjan versl- unarsamning, aðallega með til- liti til markaðs í Bandaríkjun- um fyrir tjekkneskan skófatn- að. Skíðafæri? 10 sentimetra snjór var á Hellisheiði í gærdag. Ef eitthvað hefir snjóað í nótt eða ef snjóar í dag má búast við sæmi- legu skíðafæri. Mun Skíðafjelagið þá efna til skíða»ferðar á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.