Morgunblaðið - 04.12.1937, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.12.1937, Blaðsíða 5
X.augardagur 4. des. 1937, MORGUNBLAi)IÐ 5 IHorgtmfcíafcið Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavfk. Ritstjðrar: Jön Kjartanaaon og ValtjT Stef&naaon (AbyrgBarmaBur). Auglýsingar: Árnl Óla. Ritstjörn, auglýsingar og afgrelBala: Auaturatrœtl 8. — Slaal 1800. Áskriftargjald: kr. 8,00 & n&nuBi. f lausasölu: 15 aura elntaklB — 25 aura meB Leibök. KLAUFALEGA AF STAÐ FARIÐ Stjórnarflokkarnir eru byrj- aðir, að þreifa fyrir sjer um hugi reykvískra kjósenda undir bæjarstjórnarkosningarn- ar, sem, fram eiga að fara í lok janúarmánaðar næstkomandi. Blöð þ-úrra eru tekin aö ræða :fjárhagsvandræði bæjarins, skuldabyrðina og það er látið skína í, að ef völdin sjeu tek- úr höndum Sjálfstæðisflokksins, muni bæjarfjelaginu farnast betur á komandi árum. En misvitrir eru þeir klók- indakarlar, sem stjórnarflokk- unum stýra, ef þeir halda, að þeim geti tekist á þeim fáu vik- um, sem óliðnar eru til kosn- inga, að telja meirihluta bæjar- ‘búa trú um að fjármálunum sje betur borgið í höndum þeirra en í höndum Sjálfstæðismanna. 'Öll þjóðin man, hvernig stjórn- arflokkarnir náðu upphaflega' valdaaðstöðu hjer á landi. í kosningabaráttunni 1927 var aðalvopnið, að ,,íhaldið“ væri búið að steypa öllu á glötunar- barm, skattarnir væru óbæri- legir, eyðslan hóflaus, og skuldabyrðin slík, að komandi kynslóðir mundu undir henni kikna. Á loforðum um að lækka út- gjöld ríkisins, draga úr skött- unum og borga skuldirnar, kom- ust Framsóknarmenn og sósíal- istar sameiginlega ti! valda fyr- :ir rúmum 10 árum síðan. Sú fjárstjórn, sem þeir lof- uðu að bæta úr, var á þá lund, að á 4 árum hafði Sjálfstæðis- mönnum tekist að lækka ríkis- skuldirnar um helming. Sam- tímis var farið að lækka skatt- ana og þó voru verklegar fram- kvæmdir af ríkisins hálfu á þessu tímabili meiri en áður Iböfðu verið. Þessa frammistöðu töldu stjórnarflokkarnir svo óskap- lega, að þeir gátu vjelað kjós- endur landsins til þess að af- sala völdunum í þeirra hendur Ail þess að gera betur. ;Sparnaðarloforðið hefir ver- ið efnt þannig, að útgjöld rík- isins hafa farið vaxandi með hverju ári. Loforðið um lækk- un skattanna hefir verið efnt með því, að spenna bogann svo, að stjórnarflokkarnir viður- kenna sjálfir, að nú sje að springa. Lækkun skuldanna hefir verið framkvæmd á þá lund, að nú verður ríkið að greiða árlega kr. 2.38 í afborg- anir og vexti erlendra skulda, móti hverri krónu, sem til þess 'fór, þegar Sjálfstæðismenn ljetu af völdum. Það er ekki til neins fyrir menn, sem berir hafa orðið að svona sviksemi, að koma til upplýstra kjós- enda og lofa að bæta fjárhag- inn. Nú er ekki því að neita, að fjárhagur Reykjavíkur er ekki svo góður, sem æskilegt væri. En á því eiga stjórnarflokk- arnir höfuðsök. Þeir hafa á öllum stjórnar- ferli sínum litið á Reykjavík nákvæmlega sömu augum og dönsku einokunarkaupmenn- irnir litu á ísland í fyrri daga. Reykjavík hefir verið mjólkur- kýrin, sem altaf hefir verið tottuð í ríkissjóðinn. En þrátt fyrir þá óbilgirni, skilnings- leysi og beinan fjandskap, sem höfuðstaðurinn hefir orðið fyr- ir, þá er hann þó langbest stæða bæjarfjelagið á landinu. Og ástæðan er sú, að völdin í bænum hafa verið í höndum framsýnna umbótamanna. Stjórnarflokkarnir ættu að láta sjer skiljast sem fyrst, að kosningaróðurinn byrjar á „skökkum enda“, er reyna á að telja fólki trú um að nauðsyn sje að skifta um völdin í bæn- um vegna fjármálanna. Menn hafa fyrir augum sjer stjórn þessara sömu flokka á ríkinu: helmingi meiri eyðslu, helm- ingi meiri skatta, helmingi meiri skuldir, en þeir tóku við í upp- hafi valdaferils síns. Og svo hafa menn fyrir aug- um bæjarfjelögin, þar sem þessir herrar hafa fengið að leika sínar listir. Hafnarfjörð, Isafjörð, Seyðisfjörð, kaup- staðina 3, „þar sem fólki fækkar“, sæluríki „gulra seðla“ og yfirvofandi nauðungarupp- boða! Reykvíkingar vita vel, hverra er sökin, er fjárhagurinn er ekki eins góður og æskilegt væri. En eftir því sem fjárhags- ástandið í bænum er málað dekkri litum, eftir því munu bæjarbúar verða ákveðnari í því, að afþakka leiðsögu þeirra, sem sökina eiga. Því oftar, sem minst er á fjárhag- inn, þess betra fyrir Sjálfstæð- ismenn. SKIFT UM SENDI- HERRA í LONDON. Kalundborg í gær. FÚ. hlefeldt-Laurvig greifi, sem lengi hefir verið sendiherra Dana í London, hefir nú látið af starfi sínu þar og fer til Madeira. Lagði hann og frú hans af stað frá London í dag. fþróttablaðið, 7.—9. tbl., er ný- komið út og flytur fjölda greina og mynda um íþróttamál. Fyrst er grein sem heitir; „Hvað hefir gerst erlendis í sumar“. Er í grein inni skýrt frá helstu íþróttavið- burðum erlendis. Þá er merkileg grein eftir Olaf Sveinsson, um leikmótin í sumar, auk fjölda ann- ara greina um íþróttamál. Frá- gangur allur og efni er hið besta eins og áður. Ma((hías Þórðarson rltstfóri íar í sumar á fertfalagi um Davis-flóa og í Grænlandl. í eftirfarandi grein skrifar hann um FISKVEIÐAR VIÐ GRÆNLAND Að undanförnu hefi jee: skrifað í nokkur dönsk og önnur erlend blöð um bað, er mjer bar fyrir sjón- ir í ferð beirri, er jeg síð- astliðið sumar fór um Da- visflóa og; til vesturstrand- ar Suður-Grænlands, og bykir mjer bessvegna hlíða að skýra mönnum heima frá fiskiveiðum við Grænland. eins og beim var háttað á meðan jeg dvaldi á bessum slóðum, og nákunnugir og eyndir fiskimenn, er höfðu starfað að veiðiskap bar ár- um saman, skýrðu mjer frá. * í Færeyingahöfn dvaldi jeg dagana frá 7.—9. ágúst og aftur frá 21. ágúst til 3. september. Ilinn tímann er jeg dvaldi við Grænland, var jeg nokkra daga með eftirlitsskipi úti á fiskisvæð- inu, ferðaðist um Suður-Grænland með vöru- og póstflutningaskipi verslunarinnar og var 10 daga með landfógetanum á eftirlitsferð hans um firðina. Þess utan fór jeg tvær ferðir með mótorbát til lax- og selveiða, og gaf túrinn í bæði skiftin góðan árangur. Yfir höfuð var ferðin mjög skemtileg og fróðleg. Hluttaka útlendrá fiskimanna í fiskiveiðum við Grænland var í sumar svipuð og áður, að því Undanteknn, að ensk og norsk lúðuveiðaskip voru þar með fæsta móti. ¥ 89 færeyskir fiskikúttarar og 50 frönsk veiðiskip fiskuðu þar í sumar. Ennfremur nokkur ame- ríkönsk, portúgölsk og norsk þorskveiðaskip. Veiðin var lijá öllum þessum skipum undantekn- ingarlaust mjög góð. Öll þessi skip fiskuðu með handfærum, en nokur þeirra notuðu lóðir jafn- framt. Franskmenn og Portúgals- menn fiskuðu eingöngu með hand- færum, en nokkrir Færeyingar höfðu einnig lóðir meðferðis. Færeyingar komu flestir til Grænlands síðustu dagana í júní og fyrstu dagana í júlí. Þegar jeg kom til Færeyingahafnar þ. 7. ágiist, lágu flest færeysku skip- in í höfninni, lilaðin af fiski, og biðu þess að þau gætu losað afl- ann um borð í flutningaskipin, sem komu inn þá dagana með nýjar birgðir af salti, olíu og matvælum og tóku fiskinn til baka. Flestir kúttararnir höfðu þá fengið 4(L-50,000 af þorski til jafnaðar á skip. Færeyingar sögðu, að þeir hefðu fengið góð- an afla strax og þeir komu til Grænlands, og það hefði verið sama hvar þeir hefðu leitað, al- staðar nægur fiskur fyrir. f byrj- un agust höfðu nokkur hin stærri færeysku skip fiskað 60—65 þús. Eitt skip hafði fengið 85 þús. talsins. Alt var fullorðinn þorsk- ur. Einn skipstjóri skýrði mjer frá, að hann hefði í maímánuði siglt frá Færeyjum til Spitsbergen, því þar hefði hann árið áður fengið góðan afla. Nú fjekk hann á þeim slóðum engan fisk. Þaðan hjelt hann svo alla leið til Vestur- Grænlands, 2700 mílna veg, og var þá kominn fyrir 14 dögum og á þeim tíma aflað 100 smá- lestir af söltuðum þorski. Hinir minni færeysku kiittarar fiskuðu flestir á svæðinu frá Fiskinesi til Friðriksvon, fyrir sunnan Færey- ingahöfn, en stærri skipin, sem notuðu lóðir jafnframt handfær- 'um, fiskuðu á svæðinu frá Syk- urtoppinum til Holsteinsborgar. I sumar fiskuðu þau skip öllu betur, er hjeldu sig á hinum suð- lægari miðum. Fiskurinn norður frá er að jafnaði vænni. En yf- irleitt var allur fiskurinn feitur og stór. Við lok ágústmánaðar fóru flest; skipin að búa sig til heim- ferðar og komu við í Færeyinga- höfn til að undirbúa heimferð- ina. Jeg kom um borð í nokkur skip, á meðal þeirra var „Haf- fari“, sem Sigurður Jónsson í Görðum átti fyrir st.ríðið, og „Jósephine“, sem þá var eign „Sjávarborgarútgerðarinnar", eða Edinborgarverslunar. * Jeg minnist þess, að árið 1912, sem var dágott aflaár, fiskaði „Josephine“ yfir vetrarvertíðina 17.500 af fiski, en „Haffari" 28.000, og vorafli þessara skipa var rúmlega 12.000. — Nú lágu þessi sömu skip — 35 árum síð- ar — við Grænland, voru færeysk eign og með færeyskar skipshafn- ir, annað með 65.000, en hitt með 75.000 af þorski yfir rúmlega 7 vikna tíma. Fljótlega álitið sá jeg engan mun á skipunum hvað útlit snertir, eftir heilan manns- aldur. Auðvitað hafa þau verið endurbætt margoft yfir þennan tíma. * Af viðtali við fjölda færeyskra sldpstjóra skal jeg aðeins herma frásögn fárra þeirra. Þorvaldur Johansen í Vaag, skipstjóri á skonnortunni „Sunbeam“, sem kom inn til Færeyingahafnar þ. 27. ágúst til að undirbúa heim- ferð sína, sagði, að veðráttan hefði verið vindasöm og stirð alt sumarið, en þrátt fyrir það hefði fiskur verið svo mikill, að tæp- lega he’fði verið hægt að komast yfir meira. Venjulega var fiskað á 20—30 föðmum, á grynning- unum nokkuð langt frá landi, en síðari hluta sumars upp við land, en fiskurinn var jafnmikill við yfirborðið, „upp í sjó“, eins og við botninn. Oft var það svo dag eftir dag, að það var hægt að fiska eins mikið og maður hafði þrek til að draga, hreinsa og koma undan að hirða, þegar sjó- veður var gott. I þoku og dimmviðri var oft misjafn afli. Tímum saman ekki neitt, þegar ekki var hægt að „sjá til miða“. En svo varð fisk- ur alt í einu nægur, ef straum- urinn bar skipin á miðin. Einn dag um hádegisbilið hafði hann aðeins 100 fiska „á dekki“, en kl. 7 um eftirmiðdaginn hafði hann hálft fjórða þús’und af ríg- gyldum þorski. — Þegar bjart var veður var enginn vandi að finna fiskinn. Þá athugar skip- stjórinn hvar fuglinn heldur sig, og þar sem hann er, þar er loðn- an í vöðum, eins og síldin við Norðurland á sumrin. Þangað er farið, og þá fiskast venjulega eins og hver maður getur tekið á móti. * Færeyingar hafa þann sið, að hvíla sig frá því síðari hluta laug- ardags til mánudagsmorguns. Á Grænlandsmiðum er það hentugt að hafa þennan sið, því erfiðið er mikið. Fyrst að draga fiskinn stanslaust, eins mikið og hægt er að taka á móti, — venjulega milli 2—3000 „á dekk“ á dag, og svo að hreinsa aflann og salta. Það kemur ekki ósjaldan fyrir, að það fiskast 5000 fiskar á sól- arhring og dæmi eru til, að ein- stöku skip hafa fengið meira, feða 7000 af þorski. Johansen skipstjóri sagðist eitt sumar hafa fiskað 38.000 af stórum þorski á einni viku, frá 27. júlí til 3. ágúst. Alt á handfæri, og fiskur- ínn „upp í sjó“ og upp undir borði. í sumar fiskaði portúgölsk skonnorta 48.000 af þorski á 6 dögum á „Litla heilagfiskis banka“. Alt á handfæri, því Porútgalar nota ekki annað veið- arfæri. En þar eru líka 60—70 menn sem fiska. * Jacob Nielsen skipstjóri á kútt- er „Gratia“ í Yaag kom þann 28. ágúst til Færeyingahafnar með fult dekk af fiski. Ekkert rúm í lestinni fyrir meira. Hann varð að hætta og fara heim. Þetta var í annað skifti sem hann hafði feng- ið fullfermi í sumar, frú því hann kom í júlí. Jón Jacob Simonsen, á skonn- unni „Solaris”, kom einnig inn sama dag og hafði þá aflað 120.- 000, og ætlaði sjer að halda áfram til miðs september, því skip hans gat tekið 30—40.000 í viðbót, því hann hafði áður losað helming aflans í fl'utningaskip snemma mánaðarins. Mörg skip komu inn til Fær- FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.