Morgunblaðið - 04.12.1937, Síða 7
jjLaugardagur 4. des. I9S7.
MORGUNBLAÐIÐ
Mú þcgar
höfum við feitffið alt í
1
Kenfektmassa.
Makronumassa.
Súkkulaði Overtr*ík.
Flórsykur.
Cocosmjöl.
\ alhnetur.
Heslihnetur
Möndlur
Cacao.
Skrautsykur, 10 teg.
Rosenvatn.
Essensa.
Kirsiber í glösum.
Litur,
rauður, gulur, grænn,
blár.
j CUUaimML
Sót-
lúguc
fást hjá
Biering
Laugaveg 3. Sími 4550.
DagbóÞ?.
M.s. Dronning
Alexandrine
fer mánudaginn 6. b. m. kl.
8 síðd. til Kaupmannahafn-
ar (um Vestmannaeyjar og
Thorshavn).
Farþegar sæki farseðla í
dag fyrir kl. 3 eða fyrir há
degi á mánudag.
Tilkynningar um vörur
komi sem fyrst.
Skipaafgr, Jes Zimsen
Tryggvagötu. — Sími 3025.
Til jólagjafa
Spænskar smásogur
Fæst í næstu bókabúð-
Veðurútlit í Rvík í dag: SV-
gola. Skúrir eða slyddujel. Hiti
um frostmark.
Veðrið (föstudagskvöld kl. 5):
S- og SV-gola um alt land. Hiti
0—4 st. Rigning austan lands, en
snjókoma sumst á Norðurlandi.
Lægðarmiðja yfir Grænlandshafi
vestur af Snæfellsnesi á hægri
hreyfingu austur eftir.
Næturlæknir er í nótt Páll Sig-
urðsson, Hávallagötu 15. Sími
4959.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Messur í dómkirkjunni á morg-
un: Kl. 11 síra Friðrik Hallgríms-
son, kl. 5 síra Bjarni Jónsson
(altarisganga).
Messur í fríkirkjunni á morg-
un kl. 2 (barnaguðsþjónusta),
síra Árni Sigurðsson. Bngin síð-
degismessa.
Bamaguðsþjónusta í Laugarnes-
skóla á morgun kl. 10.30. Bngin
síðdegismessa.
Messað í Hafnarfjarðarkirkju á
morkun kl. 2, síra Garðar Þor-
steinsson.
Messað í aðventkirkjunni sunnu
daginn 5. des. kl. 8.30 síðd. O. J.
Olsen.
Jarðarför síra Ólafs Ólafssonar,
fyrverandi fríkirkjuprests, fer
fram í dag kl. 1.45 frá fríkirkj-
unni.
ísfisksölur. Garðar seldi afla
sinn í Grimsbv í fyrradag, 1523
vættir, fyrir 768 sterlingspund. í
gær seldi Egill Skallagrímsson
afla sinn í Hull, 1468 vættir, fyrir
1025 stpd.
Sjötugsafmæli á í dag frú Sig-
ríður Björnsdóttir, Hjalla í Höfn-
um.
Lögreglan hefir náð tali af reið-
manninum, sem var orsök í slysi
)ví, sem sagt var frá í blaðinu í
gær. Reiðmaðurinn segist hafa
riðið mjög hratt framhjá mann-
inum og muni hann hafa rekið
hnjeð í manninn um leið og hann
fór fram lijá honum. Fanst reið-
manninum áreksturinn svo lítill að
hann leit ekki aftur fyrir sig, þar
eð hann taldi víst að ekkert slys
hefði lilotist af.
Til Strandarkirkju: G. í. H. 5
kr., A. K. 2.50, N. N. 5 kr., verka
maður 5 kr., Þ. 5 kr.
Handavinna. í sýningarglugga
Vöruhússins eru til sýnis ýmsir
munir og leikföng, sem gert hefir
verið í barnaheimilinu Sólheimum
í Grímsnesi. Eru það pentudúka-
töskur, kertastjakar, hrúður,
brúðurúm, dvergar, knettir o. fl
og er á því öllu talsvert annar
svipur en menn eiga að venjast,
en alt mjög snoturt. Þetta er um
leið sýnishorn þeirrar handavinnu-
kenslu, sem fram fer í Sólheimum,
og er þar lagt kapp á að glæða
lijá börnunum fegurðarsmekk fyr-
ir litum og formi, svo að þau fái
áhuga fyrir því, sem þau eru að
gera. Það er í ráði að selja þessa
muni á bazar einhvern næstu daga,
og ganga þeir eflanst fljótt út,
því að menn munu hafa ánægju
af að eiga þá, þar sem þetta er í
fyrsta skifti að handavinna frá
barnahæli er á boðstólum hjer.
Farþegar með Brúarfossi frá
útlöndum í gærkvöldi: Pjetur
Halldórsson borgarstjóri, Valgeir
Björnsson bæjarverkfræðingur,
Þórarinn Kristjánsson hafnar-
stjóri, Hjalti Jónsson konsúll,
Haraldur Árnason kanpm., Gísli
Johnsen stórkaupm., Sturlaugur
H. Böðvarsson, Kristín Theodórs-
dóttir og Kreslanoff, búlgarskur
blaðamaður.
Ljóskastarakvöld verður í Sund
höllinni í kvöld kl. 5—7 fyrir
börn og 8—10 fyrir fullorðna.
í byrjun næstu viku mun Vetr-
arhjálpin, með aðstoð skáta, sækja
heim bæjarbúa í þeim erindum að
)eir láti af mörkum notaðan fatn-
að, peninga eða aðrar þær gjafir,
sem fólk vill láta af hendi rakna
til starfsemi Vetrarhjálparinnar.
Er þess vænst að fólk taki vel á
móti skátunum og hafi gjafirnar
tilbúnar er þeir koma.
Tilkynning frá Vetrarhjálpinni.
Vetrarhjálpin hefir skrifstofu í
Varðarhúsinu við Kalkofnsveg,
sími 4546. Skrifstofan er opin
daglega kl. 10—12 f. h. og 2—6
e. h., en viðtalstími umsækjenda
er frá kl. 2—4 e. h. og er fram-
kvæmdastjórinn ávalt til viðtals
á þeim tíma. Hverskonar gjöfum
matvælum, fatnaði, peningum o.
s. frv. er veitt móttaka á skrif-
stofunni á ofangreindum tíma,
einnig verða gjafir sóttar hvert
sem er í bæinn, ef tilkynt er í
síma 4546. 3?á er og gjöfum veitt
móttaka í Franska spítalanum all-
an daginn.
Flugmyndasýning. Samkvæmt
fjölda áskorana verða myndirnar
frá landmælingunum í sumar, þær
er sýndar voru á afmæli Ferða-
fjelags íslands, sýndar í Nýja Bíó
kl. 7 í kvöld. Steinþór Sigurðs-
son magister flytur erindi og skýr
ir myndirnar. Vita þeir, sem sjeð
hafa og hlustað á, að það er góð
skemtun. Komið hefir til orða að
hafa einnig bráðlega sýningu á
myndunum fyrir börn.
Píanóhljómleikar ungfrú Sess-
elju Stefánsdóttur eru í Gamla
Bíó í kvöld kl. 7.15. Hún hefir að
baki sjer mikið nám hjá nafn-
kunnum kennurum, t. d. var hinn
heimsfrægi píanósnillingur Lam-
ond um tíma kennari hennar. Er
hún orðin mjög fær, eins og verk-
in bera með sjer, sem hún ætlar
að leika, en það eru meistaraverk
eftir Liszt, Bramhs, Chopin o. fl.
Ættu söngvinir, sem kunna að
meta góðan píanóleik, að fjöl-
menna á hljómleikana.
Þorlákur þreytti verður leikinn
annað kvöld kl. 8 í Iðnó.
„Ingólfur“. Gerist meðlimir í
fjelaginu Ingólfi.
tJtvarpið:
Laugardagur 4. desember.
8.30 Dönskukensla.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 ,Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
18.45 Þýskukensla.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfrjettir.
19.50 Frjettir.
20.15 Leikrit: Tveir íslenskir leik-
þættir: a) „Vald ástarinnar“,
eftir Kristján Sig. Kristjánsson;
b) „Hinn týndi sonur“, eftir
Jónas Baldursson (Friðfinnur
Guðjónsson, Anna Guðmunds-
dóttir, Gestur Pálsson, Gunnþór-
unn Halldórsdóttir, Hanna Frið
finnsdóttir).
21.05 (milli leikþáttanna): Söng-
kveðja Karlakórsins „Fóst-
bræðra“ til Karlakórsins „Geys-
is“ á Akureyri.
21.50 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
Minningarorð um
Þórunni Jðnsdóttur
frá Hlíðarenda
FISKVEIÐAR VIÐ
GRÆNLAND.
Jarðneskar leifar þessarar
merku konu verða til moldar
bornar frá Hjalla í Ölvesi í dag
og jarðsettar þar.
Frú Þórunn var fædd að Þor-
lákshöfn 3. júní 1861, dóttir
þeirra Jóns Dbrm. Árnasonar
kaupm. og konu hans Jórunnar
Sigurðardóttur frá Skúmstöðum í
Landeyjum, Magnússonar í Þor-
lákshöfn, Beinteinssonar, Ingi-
mundssonar, Bergssonar frá
Brattsholti, sem Bergsætt er kend
við. Hinn 7. nóv. 1879 giftist
Þórunn Jóni Jónssyni frænda sín-
um og bjuggu þau að Hlíðarenda
í Ölvesi um 50 ára skeið með mik-
illi atorku og dugnaði við land-
búnað og sjávarútveg jöfnum
höndum; var Jón einn meðal
hinna framsæknustu og afla-
drýgstu formanna í Þorlákshöfn
um 46 ára skeið, hreppstjóri Öl-
veshrepps fjöldamörg ár og þau
hjón jafnan talin meðal hinna
fremstu styrktarmanna sveitar
sinnar. Þau eignuðust 8 börn og
eru. 4 þeirra á lífi.
Þórumx Jónsdóttir var stöðug-
lýnd kona, góðsöm og guðelsk-
andi. Hin mörgu hjú þeirra hjóna
og einvalalið háseta Jóns munu
minnast þeirra nú með virðingu
og þakklæti, þá er hún hefir
kvatt þau hinstu' kveðju sinni og
hann, háaldraður mjög, skilur við
hinn trúa og trygga íörunaut
sinn.
Frú Þórunn andaðist 24. f. m.
í gistihúsinu á Eyrarbakka, 76
ára að aldri og þrotin að öllu,
en þar hafði liún dvalið um 6
mánaða skeið síðasta kafla æfi
sinnar og notið þar framúrskar-
andi góðrar aðbúðar og um-
hyggju hjá ekkju Gunnars sál.
Jónssonar trjesmíðameistara og
hinum góðkunnu börnum þeírra.
Fornvinir þeirra Jóns og Þór-
unnar frá Hlíðarenda, hinir
mörgu, sem enn eru á lífi, hafa
nú margs og mikils góðs að minn-
ast frá sambúð þeirra á fyrri tíð
og blessa minningu hennar með
þakklátum huga og honum hið
áliðna æfikvöld hans.
Reykjavík, 4. des. 1937.
Jón Pálsson.
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
eyingahafnar þessa dagana, meí
fult dekk, gátu ekki saltað meir#,
urðu að hætta og fara heixn.
Skipstjórarnir Jaeob Nielsen og
Jon Jacob Simonsen eru lögþing*-
meim. Lögþing Færeyinga er akip
að vinnandi atorkumönnum af
öllum stjettum.
Allir skipstjórarnir báru það
einum rómi, að þeir töldu þaö
fullsannað, að hvergi í Norðurhöf-
um fyndist jafnmikil fiskigengd,
eins og væri á miðunum við Ye»t-
ur-Grænland á sumrin. Fiskurinn
er innikróaður í Davisflóanum
við suðvesturströnd Grænland» og
gengur svo norður með ströndinni
á sumrin.
Að notfæra sjer þennan afla
er illmögulegt. Vegalengdin er
svo mikil. En þar sem Færey-
ingahöfn er nú frjáls til notk-
unar, og birgðir til útgerðar verða
að líkindum sendar þangað næ»ta
ár, og fiskikaup gerð þar á staðn,-
um; þá koma möguleikar fyrir
lítil skip og mótorbáta að geta
rekið þaðan veiðar um sumartím-
ann, ef Um eru gerðir samningar
í simá.
Grænland er hrjóstrugt og kalt
og síst fýsilegt til búsetu. Hn
útgerðar- eða verstöðvar eiga að
geta þrifist þar um sumartím-
ann. Fjöldi fiskigrunna finnagt
þar, sem ekki eru kortlögð.
Matth. Þórðarson.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Áheit frá E. F. 3 kr., frá ónefndri
konu á Blönduósi 10 kr., afh. af
sr. Sigurjóni Guðjónssyni áheit frá
Ó. M. 50 kr., úr safnbauk á Fer-
stiklu kr. 27.35, afh. af E. J.
áheit frá konu 5 kr., afh. af sr.
Sigurjóni Árnasyni frá Helgu
Soffíu Helgadóttur Laufholti Ve»t
mannaeyjum 5 kr., áheit frá S. G.
5 kr., afh. af Guðríði Jónsd. áheit
frá ónefndri 6 kr. Kærar þakkir.
Ól. B. Björnsson.
Búnaðarbanki íslands opnar í
dag í hinum nýju húsakynnum
bankans í Austurstræti 9 (áður
Verslun Egils Jacobsen). Hefir
húsinu verið mikið breytt að inn-
an vegna flutnings bankans.
MÁLTÆKIÐ SEGIR:
BLINDUR ER BÓK-
LAUS MAÐUR.
REYKVÍKINGAR SEGJA;|
BLINDUR ER
SÁ SEM EKKI
LES
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför
Jóns Jónssonar.
Fyrir hönd okkar og aðstandenda.
Jóhanna Bjaraadóttir. Anna Jónsdóttir.
Þorgils Guðmundsson.