Morgunblaðið - 11.02.1938, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.02.1938, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 11. febr. 1938. MORGUNBLAtUÐ Verður landaKnæriiiii Þýskalands lokað? Oltasl flóltamanna- slraum frá landinu Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Frjettir frá Þýskalandi bera með sjer að enn er ekki alt kyrt eftir breytingar þær, sem Hitler gerði á §tjórn her- málanna og annara opinberra embætta, um síð- ustu helgi. Berast jafnvel frjettri um það, að ýms ríki, sem liggja að Þýskalandi sjeu að hugsa um að loka landamærunum, vegna þess að búast megi við flóttamannastraumi frá Þýskalandi. Þau ríki, sem nefnd eru í þessu sambandi, eru (samkv. Lundúnafrjett F.Ú.) Frakkland, Belgía og Svissland. I þessari sömu Lundúnafrjett segir; Þessi frjett er sett í samband við orðróm um að leynilögregl- an í Þýskalandi eigi nú í hinu mesta annríki og að húsrann- sóknir sjeu látnar fara fram hjá öllum sem eru grunaðir um að hafa samúð með fjelagsstarf- semi ríkishersins. Þá ganga einn jg flugufregnir um óeirðir við setuliðsstöðvarnar í Pommem Austur-Prússlandi. Frjettaritari vor í Kaupmanna- höfn símar: Berlínarskeyti til „Tirnes" í sLondon segir fá því, að enn hafi þrír þýskir hershöfðingjar lagt niður embætti sín vegna breyting- anna, sem Hitler gerði á her- stjórninni þýsku. Innan hersins hafa breytingar Hitlers mælst mjög misjafnlega fyrir. Herinn er skiftur í tvo flokka: Þá sem eru með gömlu hershöfð- ingjumim og stjórnarsinna. Margir foringjar í hernum ótt- ast að ný hreinsun standi fyrir dyrum innan hersins og að at- burðirnir s.l. föstudag er fjöldi herforingja voru leystir frá störf- um, sje aðeins byrjunin. Hinir gömlu herforingjar ótt- ast að smátt og smátt verði lier- inn skipulagður eftir stefnu Naz- istaflokksins. Herforingjarnir spyrja t. d.: Á að taka upp nazista-kveðju í hernum í stað hinnar gömlu her- kveðju ? Verða eftirleiðis aðeins tekn ir nýir liðsforingjar í herinn, sem koma frá herskólum naz- istafloksins? Á eftirleiðis að setja politísk- an leiðtoga í hverja herdeild? Menn búast við, að Hitler sje á báðum áttum um það, hvort hann eigi að framfylgja stefnu nazista í hermálum að öllu feyti. Þessi óvissa um hvað yerður ofan á, vekur mikinn óhug innan hersins og getur haft hinar alvarlegustu pólitísku af- leiðingar. (Juðspekif jelagið. Reykjavíkur- stúkan heldur fund í kvöld (föstu dag) kl. 9 e. h. Páll Einarsson fyrv. liæstarjettardómari flytur erindi. Skákþingið 7. umferð Qjöunda umferð var tefld , í fyrrakvöld. Meistaraflokkur: Guðbjartux Vigfússon 1, Eggert Gilfer 0; Ás- mundur Ásgeirsson y2, Baldur Möller 1/2; Sfeingrímur Guðmunds son og Einar Þorvaldsson biðskák. Guðbjartur hafði hvítt. Ljek drotningarbragð og fekk betri stöðu upp úr byrjuninni. Sótti eftir mannakaupum í miðtaflinu, sem voru honum þó í óhag, og þegar ekki var eftir annað en riddari og nokkur peð hjá Guð- bjarti á móti biskup og jafnmörg- um peðum hjá Gilfer var staðan jöfn, en svo virtist sem Gilfer vildi heldur tapa en gera jafntefli. Ásmundur hafði hvítt. Byrjunin var óregluleg. Baldur sótti fast eftir mannakaupum snemma í mið taflinu og vann peð, sem Ásmund- ur náði svo nokkru seinna. Einar ljek Slavnesku vörnina í drotningarbragði. Staðan varð svipuð upp i'ir byrjuninni, en þó tvísýn. Steingrímur fórnaði peði, að því er virtist að ástæðulausu, en náði seinna tveim peðum. Heildarúrslit í T. flokki A: Sæ- mundur Ólafsson 5 vinninga, Jón Guðmundsson 4, Óli Valdimarsson 3, Helgi Kristjánsson og Hersveinn Þorsteinsson 2y2 hvor, Garðar Þor steinsson og Ingimundur Guð- mundsson 2 hvor. I. flokkur B: Sigurður Lárus- son 514, Jón Þorvaldsson 414, Arnljótur Ólafsson og Jóhann Snorrason 4 hvor, Egill Sigurðs- son 3y2, Hjálmar Theodórsson 3, Óli Hermannsson 2, Höskuldur Jó- hannesson iy2. Tveir efstu mennirnir úr A og B keppa síðan til úrslita og hófst sú kepni í gærkvöldi. I kvöld verður tefld 9. og næst- síðasta umferð í meistaraflokki. Hafrannsóknaskipið „Dana“ er nú byrjað fyrir nokkru á ferðum sínum og virðist alt benda til að það sje ágætt sjó- skip og mjög vel fallið til rann- sóknarstarfa þeirra, sem því eru ætluð. (F.Ú.). Facistastjórmn i Rúmenfu fallin Qoga og ráðuneyti hans hefir sagt af sjer og er talið, að orsökin til þess sjeu harðorð mótmæli, sem stjórnin í Rúmeníu hafa bori.st frá stjórn Sovjet- Rússiandi, vegna hins leyndardómsfulla hvarfs rússneska sendiherrans í Búkarest, síðastliðinn sunnudag. Goga og stjórn hans hef- ir aðeins setið við völd í sex vikur og hefir aðallega beitt sjer fyrir lögum, sem skerða frelsi og rjett Gyð- inga. Karol konungur hefir kallað á fund sinn sex fyr- verandi forsætisráðherra til að ræða við þá um nýja stjórnarmyndun. Hefir það vakið athygli, að Codreanu, leiðtogi „járn varðaliðsins“ var ekki með- al þeirra stjómmálaleið- toga, sem Karol konungur kvaddi á fund sinn til að ræða um stjómarmyndun. Er þess vegna búist við að lýðræðissinnuðu flokkarnir kcmi sjer saman um stjóm- armyndun. (Samkv. F.Ú. frjettum frá London. Kosningarnar í Norður-írlandl: Sambandsinnar öruggir um meirf hluta Craigavon lávarður og flokk ur hans er nú öruggur um meirihluta í þingi Norður-Ir- lands Unionistar, eða sambands- sinnar, (þ. e. þeir sem vilja samband við England) hafa þegar hlotið 29 þingsæti af 52, en ennþá er ófrjett um úrslit í nokkrum kjördæmum. Óháðir sambandssinnar hafa hlotið eitt þingsæti, Þjóðernis- sinnar, (þ. e. þeir sem vilja sameiningu við írska Fríríkið) hafa fengið 8 sæti, verkamanna flokkurinn 2 og flokksleysingj- ar 1. Sambandssinnar hafa unn ið tvö þingsæti frá öðrum flokk- um. Nokkrar óeirðir úrðu í sam- bandi við kosningarnar og varð lögreglan sumstaðar að skerast í leikinn. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn. ^•iiiiiiiimimmiiiiiiuiiiiiiiiiiiiimiiiiitiiiiiiiiiiiiiimiiiiiHmimiiiiiiiiiiimiHfiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiniiiitmiimiminittútminL Tugum þus. smálesta fetærri orustuskip en þetta? 1 Stærsta herskip heimsins, „Hood“, 42 þús. smálestir. — Rússarnir —j sjá til Grænlands Frá frjettaritara vorum. K-höfn í gær. apinin - leiðangursmennina hefir undanfarna daga rekið 55 kílómetra á sólarhring. Eru þeir nú staddir 70 kíló- metra frá Austurströnd Græn- lands, á 72. breiddargráðu og 19. gráðu vestlægrar lengdar. Leiðangursmenn hafa sent skeyti til Moskva, þar sem þeir segjast sjá til lands á Græn- landi. Búist er við að ísjakann, sem þeir f jelagar halda sig á, reki nær landi á næstunni. Leiðangursmenn segja í skeyt- inu að þeim líði vel. TogaraverhfalliÖ Sáttasemjari hóf viðræður í gær Sáttasemjari ríkisins, dr. Björn Þórðarson, kvaddi í gær þá Kjartan Thors og Sigurjón Á. ( Ólafsson á sinn fund, til þess að ræða við þá um togaraverkfallið. Var sáttasemjari að kynna sjer frá báðum aðilum hvemig málið stæði. Enga uppástungu eða til- lögu lagði hann fram í gær, enda stóð það ekki til. Sáttasemjari heldur rni áfram að reyna að koma á sættum og telur Morgunblaðið fyrir sitt leyti sjálfsagt, að friður ríki sem mest um málið á meðan. Mun blaðið því ekki hirða um að svara öllu því moldvirðri bleklcinga og ó- sanniuda, sem stjórnarblöðin þyrla nú daglega upp um málið. Síðan flotaveldasamningurinn var gerður 1923 hefir engin þjóð mátt byggja stærri orustu- skip en 35 þús. smálestir: En 1936, þegar endurnýja átti þenna. samning, sögðu Japanar slitið sam vinnu við aðrar flotaþjóðir, og síðan þykjast bæði Bretar og Baudaríkjamenn hafa fengið vissu fyrir því, að Japanar væru að byggja orustuskip, sem eru 43 þús. "smálestir og þar yfir. Sumar fregnir herma, að heilum bæjum í Japan hafi á síðastliðnu ári vei ið breytt í skipasmíðastöðvar Þessi óvissa um herskipabygging ar Japana hefir leitt til sameig inlegrar fyrirspurnar þriggja stærstu flotaveldanna, næst Jap- önum, Breta, Bandaríkjamanna og Frakka, í Tokio um herskipabygg- ingar þeirra árið 1937. En Jap- anar eru: tregir til þess að svara þessari fyrirspurn. Árið 1923 skrifaði kunnur sjer- fræðingur á þá leið, „að fyrir- myndar orustuskipið hefði verið dæmt úr leik næstu 10 ár með Washington-sáttmálanum“. Þar til 1922 keptust flotaveldin um að byggja æ stærri herskip; þetta var kallað að draga hina „rjettu álykt i:n af kenningum heimsstyrjald- arinnar“. Árið 1920 ljetu Bretar smíða 42 þús. smálesta skipið „Hood“ og önnur ríki voru að undirbúa smíði 40 þús. og jafn- vel 45 þús. smálesta skip. En þess ar fyrirætlanir fjellu riður 1923. er hámarkið var sett 35 þús. smái. Nú virðist kapphláupið vera að hefjast að nýju. Japanir tru sagð ir vera að byggja 43 þús. smálesta skip, Bandaríkjamenn hafa ákveð- ið að smíða tvö orustuskip, sem eigi að kosta ca. 300 miljón krón- ur hvort, en um stærð slíkra skipa má nokkuð marka af því, að 42 þús. smál. skipið „Hood“ kostaði aðeins ea. 120 milj. krónur. Breskn skipin „Nelson“ og „Rodney“ (34 þús. smál. hvort) kostnaður ca. 140 milj. kr. Næturlæknir er í nótt Jón ö- Nikulásson, Freyjugötu 42. Sí®1 3003. 1 i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.