Morgunblaðið - 11.02.1938, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.02.1938, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Happdætti Háskóla Islands. Frá Happdrættinu. Sala happdrættismiða er nú í fullum gangi um land alt. Nú eru allir miðar í umferð, sem leyfilegt er samkvæmt happdrættislögunum. Athugið: Til 15. febrúar hafa menn forrjettindi að númerum sínum, eftir þann tíma eiga menn á hættu, að þau verði seld öðrum. Vmboðsmenu í Reyhjavífe eru: Frú Anna Ásmundsdóttir & frú Guðrún Björnsdóttir, Túngötu 3, sími 4380. Dagbjartur Sigurðsson, kaupm., Vestur- götu 45, sími 2814. Einar Eyjólfsson, kaupm., Týsgötu 1, sími 3586. Elís Jónsson, kaupm., Reykjavíkurveg 5, sími 4970. Helgi Sivertsen, Austurstræti 12, sími 3582. Jörgen Hansen, Laufásvegi 61, sími 3484. Frú Maren Pjetursdóttir, Laugaveg 66, sími 4010. Pjetur Halldórsson, Alþýðuhúsinu. Stefán A. Pálsson & Ármann, Varðarhús- inu, sími 3244. Uinhoðsmenn í Hafnariirði cru: Valdimar Long, kaupm., sími 9288. Verslun Þorvalds Bjarnasonar, sími 9310. imiT'iiri m — — ———b — 111 — jrmmTTTTTr~Ti —a STEFÁN STEFÁNSSON: Plöiiturnar III. útgáfa er komin út. Verð kr. 9.00. Fæst hjá bóksölum. BókawersL Eymundssonar og Bókabúð Austurbæiar B. S. E., Laugavegi 34. Minningarorð um Jónas Jónsson, verkamann Idag verðnr til grafar borinn Jónas Jónsson verkamaður, Hverfisgötu 66. Hann varð bráð- kvaddur þar sem hann var við vinnu sína niður við höfn 1. þ. m. Er þar í valinn hniginn al- þektur dugnaðar- og sómamaður úr verkamannastjett þessa bæjar. Jónas var fæddur að Svalbarða á Álftanesi 22. des. 1864. Var hann því röskra 73 ára er hann ljest. Æfisaga Jónasar er ekki marg- brotin fremur en annara verka- manna eldri kynslóðarinnar. Hann misti foreldra sína þegar hann var barn að aldri. Fór hann þá til vandalausra hjóna á Álfta- nesi og ólst upp hjá þeim. Hann byrjaði snemma sjómensku, eins og algengt, var að piltar yrðu að gera í þessu bygðarlagi. Reri hann lengi á opnum skipum hjer á inn- nesjum og víðar. Var hann einn _af þeim fáu eldri mönnum, sem mundi nöfn á flestum fiskimiðum hjer innanvert við Faxaflóa. — Þegar Jónas hvarf úr átthögun- um, fór liann til Magnúsar Ein- arssonar í Melkoti í Reykjavík, en Magnús var föðurbróðir Jón- asar að móðurinni. Hjá honum var haml svo alllengi vinnumað- ur. Og ineðal verkamanna var hann ávalt síðan kendur við Mel- kot og varla öðruvísi nefndur en Jónas í Melkoti, og við það kunni hann sjálfur mætavel. Meðan hann var í Melkoti stundaði haun sjóróðra, og svo þar á milli ýmsa aðra vinnu. T. d. fór hann í vega- vinnu alloft, og til Austfjarða fór hann einu sinni og var þar á iannað ár. En frá aldamótum stundaði hann lijer um bil eingöngu hina svonefndu eyrarvinniT hjer í Reykjavík. Jónas gekk jafnan að vinnu sinni með fjöri og áhuga, meðan kraftarnir voru lítt bilað- ir, og vinna var næg fyrir alla. En nú síðari árin var þrekið held ur farið að láta undan, en þó gekk hann að vinnu, ef hún var fyrir hendi, því að starfslöngun og áhugi virtist lítt bilað. Enda bar hann aldur sinn flestum mönnum bctur. Var ljettur á fæti og snar í öllum hreyfingum til síðustu stundar. — Það geymist góður vitnisburð- nr um Jónas frá mætum og merkum manni, sr. Þórarni Böðv- arssyni í Görðum, en hjá honum lærði hann undir fermingu. Vitn- isburðurinn er innifalinn í þessari stuttu setningu: „Ilegðun ágæt“. Þessum vitnisburði hefir ekkert haggað síðan hann var gefinn, því að það munu flestir mæla, sem eitthvað kyntust Jónasi, að hegð- un hafi ávalt verið ágæt. Hann var þægilegur og ræðinn við hvern sem var, en hann gerði ekki alla jafnt að trúnaðarmönnum sínum, því að hann var dulur um eigin tilfinningar og flíkaði þeim ekki við marga. Jónas var reglusam- nr, áreiðanlegur og athugull um flesta hluti, og.þótti honum vænt um, þegar hann hitti eitthvað líkt í fari annara. Hann var ávalt ráðgefandi og ráðhollur, og hon- um þótti vænt um, þegar ráð hans voru virt og þau báru góð- an árangur. Lífsstefna hans var í fæstum orðnm þetta: Alt sje gert rjett í stóru og smáu og ráðdeild og liagsýni sje viðhöfð í öllum greinum. Og þessari stefna tókst honum sjálfum manna best að framfylgja í lífinu. — Jónas var greindur maður og sagði vel og greinilega frá því, sem í frásög- ur þótti færandi, enda var hann vel minnugur. Hann var vel hugs andi í trúarefnum. Trúði á kær- leika guðs og forsjón og vænti sjer náðar þaðan. Jónas kvæntist 3. janúár 1902 Margrjeti Magnúsdóttur frá Hofstöðum í Garðahreppi. Hefir hún verið honum dyggur og trúr förunautur, og hefði verið leitun á öðrum slíkum. Þau eignuðust eina dóttur, er það Guðlaug, seinni kona Þorláks Guðmunds- sonar skósmíðameistara. Jeg þakka þjer svo fyrir góða viðkynningu, Jónas, og óska þjer fararheilla inn á ókunna landið. M. G. Sumargjöf hefir unnið miKið og þaitt starf Arsskýrsla Barnavinafjelagsins Sumargjöf fyrir 1937 er komin út. Skýrslan er samin af ísak Jónssyni, gjaldkera fjelags- ins. Við lestur skýrslunnar kemst maður að raun um, að það er ó- metanlegt starf, sem fjelagið vinn- ur hjer í bænum fyrir börnin og foreldra þeirra. Stærsta framkvæmd fjelagsins á árinu var að setja á stofn nýtt dagheimili barna í Vesturbænum — Vesturborg. Bæjarráð Reykja- víkur Ijet fjelaginu í tje ókeyp- is land á Grnndarbletti við Kapla skjólsveg og rústir gamla elli- heimilisins Grund. Ljet Sumar- gjöf reisa þarna liið myndarleg- asta hiis, leikvelli og annað, sem þarf á dagheimili bama. Hið ágæta dagheimili fjelags- ins, „Grænaborg“, er nú orðið alt of lítið og varð á s.l. ári reist skýli við „Grænuborg". Rúmlega 100 börn dvöldu að meðaltali á dag í „Grænuborg“ s.I. sumar. 80 börnum varð þó að vísa frá sökum rúmleysis. 247 börn dvöldu alls á báðum dag- heirriilum fjelagsins í fyrrasumar í lengri eða skemri tíma. I ársskýrslunni er skýrt frá framförum barnanna á meðan þau dvöldu á heimilunum. Meðal þyngdarauki var 1,0 kg. og meðal hæðarauki 1,5 cm. Heilsufar barn anna var yfirleitt ágætt, þrátt fyrir sólarlítið sumar og óhag- stæða veðráttu, sem mjög dró úr útiveru barnanna. Stjórn fjelagsins skipa: Stein- grímur Arason, formaður, ísak Jónsson, gjaldkeri og Arngrímur Kristjánsson, ritari. Meðstjórn- endur: síra Árni Sigurðsson, frú Bjarndís Bjarnadóttir, frú Ragn- bildur Pjetursdóttir og Sigur- björn Þorkelsson kaupm. 1937 var 14. starfsár fjelagsins. Föstudagur 11. febr. 1938. Sexliignr: Þorgeir Pálsson útgeröarmaður Sextugur er í dag Þorgeir Pálsson framkvæmdastjóri. Hann er fæddur í Bergvík í Leiru 11. febrúar 1878. Hann misti snemma föður sinn og varð þá fyrirvinna og hjálp móður sinnar, sem barðist áfram við mikla fátækt. Var þá hvorki tími nje fje til reiðu fyrir hann að afla sjer mentunar, en þó má segja, að hann sje mjög vel að sjer, þegar þess er gætt, að hann er að mestu sjálfmentaður maður. Gáfur hans eru mjög fjölþættar; hann er söngelskur mjög og var fyrrum söngstjóri og organleik- ari við Útskálakirkju, er hann átti heimili suður þar, ágætur tungumálamaður og hefir það komið honum að góðu liði í því starfi, er hann síðar valdi sjer að æfistarfi. Þorgeir Pálsson fluttist til Reykjavíkur laust eftir aldamót. Frarnan af stundaði hann hjer sjómensku ýmist á bátum eða togurum uns hann 1915 gerðist ritgerðarmaður og framkvæmda- stjóri togarafjelaga hjer og hefir síðan mætt blíðu og stríðu eins og gengur um þá, sem við þá at- vinnugrein hafa fengist og fást. En við, sem þekkjum hann best, vitum að hann leggur fram alla sína krafta og fjölþættu og hald- góðu þekkingu við störf sín og við vitum einnig, að sú hamingju- ósk væri honum kærkomin, að verkin hans mættu blessast og bera árangur til góðs. Þeir erui vissulega margir, sem við þessi tímamót í æfi Þorgeirs Pálssonar þakka honum viðkynn- ingu, viðmót og velvild og óska honum heilla og blessunar á ó- farinni æfi. N. N. Þrír leynisalar dæradir Prír leynivínsalar vorui dæmdir í lögreglurjetti í gærmorg- un. Voru þeir allir dæmdir í fang- elsi auk fjársekta, enda allir áð- ur gerst brotlegir . Þyngsta hegningin var 15 daga fangelsi við venjulegt fangaviður- væri og 800 lcr. sekt. Hinir tveir fengu 10 daga fangelsi hvor og 600 króna sekt. Hjónaefni. Nýlega hafa opin- berað trúlofun sína Ágústa Sum- arliðadóttir, Túngötu 18 og Sig- urður Helgason, Fálkagötu 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.