Morgunblaðið - 15.02.1938, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 15. febrúar 1938
M 0 K G U N B liAÖltí
7
Sjötujlur:
Sigurður Gislason, trjesmiður
Dagbók.
I. O. O. F. == Ob. 1P. = 1192158V4
□ Edda 59382157 — Fyrl.
Siðurður Gíslason trjesmiður í
vinaminni á Eyrarbakka er
70 ára í dag. Hann er fæddur í
Eyjakoti á Eyrarbakka 15. febrú-
ar 1868, sonur Gísla Jónssonar og
Guðlaugar Jónsdóttur, er lengi
bjuggu þar og dvaldi hann hjá
þeim fram að tvítugu. Fór þá
▼innumaður til Jóns Sveinbjörns-
sonar, síðar óðalsbónda á Bílds-
felli og var.hjá honum í 6 ár, síð-
an 1 ár lausamaður, og giftist þá
fyrri konu sinni, Jónínu Björus-
dóttur, 1895. Hún dó 18. júní
1908, frá 5 ungum börnum, 4 son-
nm og einni dóttur. Þrír af< son-
ur hans, Sigurgeir, Gísli og Guð-
mundur, búa allir í Hafnar-
firði, Guðmundur er vjelstjóri, og
Guðm. Óskar trjesmiður í Reykja-
vík. Dóttir, Málfríður, býr á
Gamlahrauni á Eyrarbakka, með
Þorvaldi Jónssyni frá Alviðru. 011
eru börnin hin mannvænlegustu.
Síðar giftist Sigurður 1912, Sig
þrúði Sveinsdóttur, sem ættuð er
undan Eyjafjöllum, og hafa þau
lengi búið í Vinaminni á Eyrar-
bakka.
Árið 1887 rjeðist Sigurður há-
seti til Guðmundar Isleifssonar á
Stóru-Háeyri, sjógarpsins mikla,
þá 19 ára gamall. Var Guðmund-
ur þá sýslunefndarmaður, og’ var
sýslufundur þá vanalega haldinn
um sumarmál. Bað Guðmundur þá
Sigurð að vera með skipið til ver-
tíðarloka, og gerði hann það, en
næstu vertíð tók hann svo við
skipinu. og fylgdu honum þá
flestir hásetar Gúðmundar. Upp
frá því var hann formaður óslitið
í 33 ár, og vildi honum aldrei til
óhapp eða slys, allan þann langa
tíma, og ber það vott um dugnað
og' snild Sigurðar sem formanns,
því ekki var heiglum hent að vera
formaður á Eyrarbakka, sem er
hin allra versta brimveiðistöð á
landinu, og mátti með sanni segja,
það sem Jakob Thorarensen kvað:
„Oft mátti þar ei sigla sjðar,
svo var hinn krappi vegur mjór“.
Samtals stundaði Sigurður sjó í
48 vetrarvertíðir auk vor- og
haustvertíðar, og var að þeim
verkum sem öðrum hinn ágætasti
liðsmaður, snarráður, fljótur og
ákveðinn, og aflamaður hinn besti.
Þau eru orðin mörg og fjöl-
breytt störfin em Sigurður hefir
unnið um dagana, auk sjávar-
verkanna, því að í 35 ár hefir
hann unnið að allskonar hús^-
smíði, t. d. hefir hann staðið fyrir
byggingu 14 timburhúsa og bæ.ja
og 10 steinsteypuhiisa, auk fjölda
annara byggingarverka, bæði á
Eyrarbakka og til sveita.
Hann var til dæmis verkstjóri
við alla steinsteypuvinnu hælis-
o g
Sigurður Gíslason.
ins á Litla-Hrauni, en Eiríkur
Gíslason trjesmíðameistari var yf-
irsmiður við timburverkið. Enn-
fremur var hann verkstjóri við
hengibrúna á Soginu, en Halldór
rafmagnsfræðingur Guðmundsson
hafði umsjón með verkinu og
borgaði út vinnulaun. Ennfremur
bygði hann hina traustu og vel-
unnu stöpla í Hraunsá, sem stað-
.ist hafa áhlaup Ægis frá opnu
hafi í fjölda mörg ár.
SigurðUr Gíslason er einn af
þeim mönnum er halda hróðri ís-
lenskra verkamánua hátt á loft,
sjálfum þeim til heiðurs, öðrum
til eftirdæmis, þjóðinni til gagns
og nytsemdar.
Hinn sístarfandi verkamaður,
sem öll velgengni hennar, afkoma
og sjálfstæði byggist á í rjett-
bygðu þjóðskipulagi.
Sigurður býr nú í litía húsínu
'sínu, Yinaminni, í kyrð og' næði,
og vinnur eftir getu.
Allir vinir og kunningjar senda
honum í dag hlýjar kveðjur, þakk
ir fyrir unnið starf og óskir um
góð elliár. Bjarui Eggertsson.
LOKUN BÚÐA SÍÐASTL.
FIMTUDAG.
Vegna ummæla í Morgunhlaðinu
í dag um afmælisfagnað
Verslunarmannafjelags Reykjavík
ur, vil jeg taka það fram, að fje-
lag kjötverslana sá sjer ekki fært
að loka búðum sínum til kl. 1
daginn eftir hófið, sölram þess að
oss fanst það ónærgætni vegna
hinna mörgu bæjarbúa, sem þurfa
að kaupa í hádegisverð hjá oss.
Þetta var öllum kunnugt, þar sem
vjer auglýstum ekki lokun búð-
anna þennan dag.
Reykjavík, 11. febr. 1938.
Skúli Ágústsson.
Blindravinafjelag íslands liefir
stofnað sjóð til minningar um
prófessor Sigurð P. Sívertsen,
sem var fyrst formaður fjelags-
ins. Sjóðurinn er að upphæð 1000
krónur og heitir „Bókasjóður
blindra", og verður varið úr sjóðn
um fje til bókakaupa, eins og
nafn hans ber með sjer. Minning-
arspjöld verða seld til ágóða fyr-
ir sjóðinn.
Atkv.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Allhvass S. Rigning öðru hvoru.
Veðrið í gær (mánud. kl. 17) :
Fyrir sunnan og suðaustan land
er víðáttumikil hæð, en lægð fyr-
ir norðan Jan Mayen á hreyfingu
A og önnur við S-Grænland á
NA-leið. Hjer á landi er vindur
milli S og V, víðast hægur. Á
S- og V-landi er dálítil rigning
eða súld og sumstaðar á N-landi,
en þurt og víða bjart veður á A-
landi. Hiti er 3—7 stig.
Næturlæknir er í nótt Jón Nor-
land, Ingólfsstræti 21. Sími 4348.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Nýlega er lokið stjórnarkosn-
lingu í Hinu íslenska prentarafje-
lagi. I aðalstjórn voru kosnir:
Magnús H. Jónsson form. (endur-
lcosinn), Meyvant O. Hallgríms-
son gjaldkeri. 1. meðstjórnandi
Guðmundur Kristjánsson. Fyrir
voru í stjórninni Guðmundur
Halldórsson ritari og Samúel Jó-
hannsson 2. meðstjórnandi. I
varastjórn voru kosnir: Einar
Hermannsson varaform., Sigfús
Valdemarsson ritari, Jóliannes L..
Jóhannesson gjaldkeri, 1. með-
stjórnandi Jóhannes M. Zoega og
2. meðstjórnandi Kristmundur
Guðmundsson. Jóhannes Jóhann-
esson og Jón H. Guðmundsson, er
áður voru í aðalstjórn, báðust
undan endurkosningu.
Prá Englandi komu í gærmorg-
un togararnir Gyllir og Max
Pemberton.
Stefnir, fjelag ungra Sjálfstæð-
ismanna í Hafnarfirði hjelt að-
alfund sinn fimtud. 10. þ. m. I
stjórn voru kosnir: Form. Her-
mann Guðmundsson, varaform.
Stefán Jónsson, ritari Gunnar
Rúnar, gjaldkeri Jóhann Björns-
son, vararitari Magnús Guðlaugs-
son. Mikill áhugi ríkir meðal
ungra Sjálfstæðismanna í Hafnar
firði og ber fjelagslífið þess glögg
merki, að „Stefnir" er í miklum
uppgangi.
Stjórn Prestafjelagsins biður
alla prestvígða menn, sem fá því
við komið, að safnast saman
hempuklædda í skrúðhúsi Dóm-
kirkjunnar kl. 1.30—1.45 mið-
vikudaginn 16. febr.
„Þrír fóstbræður“, hin kunna
skáldsaga Alexanders Dumas hef-
ir enn einu sinni verið kvikmynd-
uð og verður kvikmyndin sýnd
í Gamla Bíó í fyrsta skifti í kvöld.
Óþarft er að rekja efni þessarar
kvikmyndar, það er svo vel kunn
ugt öllum almenningi. Efnið er
spennandi og þrungið af róman-
tik og hetjudáðum. Slíkar kvik-
myndir eru jafnan öruggar um
hvlli fjöldans.
Jón J. Dalmann ljósmyndari
varð 65 ára í gær.
ísfiskssala, Garðar seldi afla
sinn í Hull í gær, 1756 vættir fyr
ir 928 sterlingspund.
Bjarni Björnsson gamanleikari
skemtir enn í Gamla Bíó í kvöld
kl. 7.15. Nú er hver síðastur að
fá að lieyra og sjá Bjarna leika,
og er því ráðlegt að fá sjer að-
göngumiða í tíma.
Á morgun kl. 17.30 eftir ísl.
tíma flytur próféssor Shetelig frá
Osló fyrirlestur í danska útvarp-
ið um Vínlandsferðir norrænna
manna í fornöld. (FÚ)
Innanhúss róðraæfingar hjá
glímufjelaginu „Ármann“ eru
byrjaðar og verða framvegis í
Iþróttahúsinu við Lindargötu á
þriðjudögum kl. 9—10 e. h. og
föstudögum kl. 8.15—9.15 e. h.
U. M., F. Velvakandi heldur
fund í Kaupþingssalnúm í kvöld
kl. 9.
Dánarfregn. S.l. sunnudag and-
aðist á Isafirði Bergsveinn Árna-
son járnsmiður.
Jón Sigurðsson á Reynistað
kom liingað með Goðafossi á
sunnudag. Hann á sæti í mæði-
veikisnefndinni, teem tekur nú
aftur til starfa hjer í bænum.
Kvenfjelagið „Hlíf“ á ísafirði
hjelt alment samsæti á sunnudag-
inn fyrir gamalmenni bæjarins.
Væringjar: Munið fundinn í
kvöld í Varðarhúsinu kl. 8y^.
Mætið allir í búningum.
Umboðsmenn Ilappdrættis Há-
skólans í Reykjavík og Hafnar-
firði hafa opið til kl. 10 í kvöld.
Útvarpið:
Þriðjudagur 15. febrúar.
13.00 Setning Alþingis.
19.20 Þingfrjettir.
19.50 Frjettir.
20.15 Erindi: Fiðlusnillingurixm
Paganini (Theódór Árnason
fiðluleikari).
FUNDURINN I DAGS-
BRÚN.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
já um að stefna Alþýðublaðs-
ins breytist samkvæmt þessu,
þá skuli f jelagsstjórn
og trúnaðarmannaráð
víkja Jóni Baldvinssyni
úr fjelaginu, fyrir fram-
ferði hans í sameining-
armálum alþýðunnar,
enda hafi hann ekki
sagt sig úr fjelaginu
innan þess tímau.
Þessi tillaga var samþykt
með 460:27 atkvæðum.
Að lokum samþykti fundur-
inn að heimila fjelagsstjórninni
að verja 1000 kr. úr fjelags-
sjóði til styrktar útgáfu nýs
flokksblaðs, ef Alþýðublaðið
ekki breytir þegar um stefnu
gagnvart samejningunni.
Miklar og harðar umræður
urðu um þessi mál á fundinum.
Þar voru m. a. mættir Jón Bald
vinsson og Haraldur Guð-
mundsson ráðherra, en þeir
fengu mjög slæmt hljóð.
I sambandi við samþykt
fundarins um brottvikningu
Jóns Baldvinssonar úr Dags-
brún, hefir hann látið þess get-
ið, að hann hafi verið kosinn
í trúnaðarmannaráð Dags-
brúnar með 716 atkvæðum, en
brottvikningartillagan hafi að-
eins fengið 460 atkv. Bendir
þétta til þess, að Jón Bald-
vinsson ætli að hafa sömu að-
ferð og Hjeðinn, að hafa að
o'1"" samþyktina um brott-
reksturinn.
Jarðarför
prófessors Sigurðar P. Sívertseu
fer fram miðvikúdaginn 16. febrúar og hefst með húskveðju
á heimili hans, Garðastræti 40 kl. 1 e. h.
Þeir sem hafa í hyggju að senda minningarspjöld, eru
beðnir að minnast Blindravinafjelags íslands.
Reykjavík 14. febrúar 1938.
Steinunn og Gustav A. Jónasson. Áslaug og Helgi Sívertsen.
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðar-
för okkar kæru móður, tenmdamóður og ömmu
Elínar Jónsdóttur.
Guð launi öllum þeim, er rjettú henni hjálparhönd 1 veikind-
um hennar.
F. h. okkar og annara aðstandenda
Ágústa og Gúðmundur Hróbjartsson.
&A& ir 9
rcíftltmr
Vi5in
Innan um grafir dauðra.
Laugaveg 1.
ÚTBÚ, Fjölnisveg 2.
Hafið þjer lesið þessa bók?