Morgunblaðið - 22.02.1938, Blaðsíða 3
3
; J>riðjudagur 22. febr. 1938.
MO RGUNBLAÐIÐ
miHiiimiiiiiiiiMtiiiiiiiiiiniiiiiiimmiiiniiiiiiiiMiiiiimimiiv
Hjeðinn helt velli í Jafn-
aðarmannafjelaginu
Fjelaoið rekið úr Alþýðusam-
bandinu og nýtt tjelag stofnað
s" I M 1> J " - 1!S
Sœbjörg siglir inn hafnarmynnið.
Björgunarskúta
Faxaflóa er komin
Frá vígsluathöfninni
á sunnudaginn
ÞÚSUNDUM samán safnaðist fólk saman á hafn-
arbakkanum og kringum bryggjurnar við Ver-
búðirnar á suimudaginn um það leyti, sem bú-
ist var við björgunarskútunni „Sæbjörgu“ hingað.
Skip í höfninni voru hátíðafánum skreytt og er „Sæ-
björg“ sigldi inn höfnina, var blásið í eimpípur allra skipa
á höfninni til að bjóða hina nýju björgunarskútu vel-
komna.
,,Sæbjörg“ kom á ytri höfnina klukkan um 1. Póru þá stjórn
Slysavarnafjelagsins og kvennadeildarinnar ásamt, liafnarstjóra og
nokkrnm öðrum gestum nm, borð. En klukkan 2 lagði björgunarskút-
an upp að Grófarbryggjnnni.
Á bryggjunni voru mættir ræðismenn erlendra ríkja og vígslu-
biskup, ennfremur fulltrúar frá ríkis- og bæjárstjórn, ásanlt konum
úr Kvennadeild Slvsavarnafjelagsins.
Hjeðinn seilist 1 fyrirtæki
Alþýðuflokksins
AÐALFUNDUR Jafnaðarmannaf jeiags
Reykjavíkur, sem haldinn var í Nýja
Bíó s.l. sunnudag, varð viðburSaríkur
og sögulegur eins og Dagsbrúnarfundurinn fyrra
sunnudag.
Fundinn sóttu um eða yfir 400 manns og var
Hjeðinn þar í meirihluta. Þegar Hjeðni var stilt
upp sem formanni fjelagsins áfram, var því mót-
mælt af Haraldi Guðmundssyni, en fundurinn
hafði þau mótmæli að engu.
Varð það ti! þess, að Haraldur gekk af fundi og með hon-
um um 100 manns, sem ákváðu að stofna nýtt fjelag.
Héðinn var kosinn formaður í Jafnaðarmannafjelaginu, en
stjórn Alþýðusambandsins svaraði með því, að reka fjelagið úr
sambandinu.
Fjárlagaræðan |
á morgun j
Fj árlagafrumvarpið verður s
lagt fyrir Alþingi á|j
morgun. Svo sem venja er||
flytur fjármálaráðherra viðs
það tækifæri fjárlagaræðu sína, =
þar sem hann gefur yfirlit um|
Ífjárhaginn og afkomu ríkis-g
Ésjóðs. Pjárlagaræðunni verður =
iútvarpað, svo og fjórðungs-g
Estundar ræðum fulltrúa annarai
sflokka.
lllllllll.IIIIIIIUIIIIIIIIII.IIIIIIIIIIIIIIIllllllllllll..
Erlendur Pjetursson
forstjóri
Erlendur Pjetursson befir ver-
ið ráðinn forstjóri skipaaf-
greiðslu Sameinaða gufuskipafje-
lagsins hjer í Reykjavík.
Erlendur hefir unnið á skrif-
stofu Sameinaða fjelagsins hjer í
bæ í 23 ár, fyrst sem skrifstofu-
maður og síðan sem fulltrúi. Er
Erlendur því manna kunnugastur
um alla starfrækslu og viðskifti
fjelagsins og þarfir viðskifta-
manna þess hjer á landi.
, , .
Reynt að kveikja
í bát í Eyjum
Vestmannaeyjum, þriðjudag'.
Inótt var gerð tilraun til að
kveikja í vjelbátnum „Ósk-
ari“, sem lá utan á öðrum bát við
Básaskersbryggjuna.
Ikveikjutilraunin var gerð með
þeim hætti, að farið hafði verið
niður í vjelarrúm bátsins og tek-
inn þar þur tvistur. Hafði síðan
verið skrúfað frá olíugeyminum
og tvisturiun vættur í olíu og
borinn eldur að. Síðan hafði vjel-
arrúminu verið vandlega lokað.
Af þessu varð ekki mikill eldur
vegna þess að ekki komst loft að
vjelarrúminu.
Eigendur bátsins eru bræðurnir
Karl og Ásmundur Guðmundssyn-
ir á Steinum í V estmannaeyjum.
Málið er í rannsókn og hefir
enn ekki tekist, að hafa upp á
þeim sem valdnr er að íkveikju-
tilrauninni.
Áður hafa þráfaldlega verið
verðar tiirauiiir til að kveikja í
bátum í Vestmannaeyjum.
EyfJór Dalberg vann
hraðskákakepnina
Hraðskákakepni fór fram í
Varðarhúsinu á. sunnudag-
inn var. Kept var um bikar sem
Garðar Þorsteiusson hrm. hafði
gefið í þessu skvni.
Stjórnandi kepninnar fyrir hönd
Skáksambands Islands, var Elís
Ó. Guðmundsson. Alls voru tefldar
276 skákir á rúmum 5 klukku-
stundum.
Sigurvegarinn í þessari kepni,
PRAMH. Á SJÖXJNDU SÍÐU.
Formaður Slysavarnafjeiágs ís-
lands, Þorsteinn Þorsteinsson skip
stjóri, mælti nokkur orð, er skiþ-
ið var lagst við festar. Sagði frá
sögu björgunarskútumálsins í
höfuðdráttunuúi: 10 ár eru liðin
síðan því ’máli var fyrst hreýft,
og nú er þessi drauihur orðinn að
veruleika. Ótal márgir innán
Síýsavarnáfjelagsins og utan hafa
lagt fram fje til björgunarskútu-
sjððsins. Jafnvel frá sjúklinguin
á sjúkrahúsum hafa Slysavarna-
fjelaginu borist gjafir, sem neifla
nokkur lmndruð krónum.
Þá mintist Þ. Þ. á þann skerf,
sem konurnar hafa lagt til hjörg-
unarskútmnálsins, og er hann
ekki lítill.
25 þús. kr. gjöf.
Þar næst talaði formaður
Kvennadeildar Slysavarnaf jelags-
ins í Reykjavík, frú Guðrún Jón-
asson. Talaði hún um óskabarnið,
sem nú væri loks komið. og bað
skútunni og áhöfn hennar allrar
blessunar í framtíðinni. I lok
ræðu sinnar tilkynti frúin, að
kvehuadeildin hefði ákveðið að
gefá 25 þúsund krónur til starf-
rækslu björgunarskútunnar, og
væru þeir peningar handbærir nú
þegar.
Þá var ætlast til að atvinnu-
málaráðherra hjeldi ræðu, en í
lians stað mætti fyrir hönd ríkis-
stjórnarinnar Vigfús Einarsson,
fulítrúi, sem hjelt ræðu.
Vígsluræðan.
Þá stje mn borð í björgunar-
skútuna vígslubiskup sr. Bjarni
Jónsson. Er ræða hans birt á öðr-
urn stað hjer í blaðinu.
Á meðan vígslan fór fram stóð
skipshöfnin berhöfðuð á dekki
skipsins og gestir á hryggjunni,
meðan vígslubiskup sagði frani
blessunarorðin. Var athöfn þessi
hin virðulegasta og mjög hátíðleg.
Veður var gott á meðan á mót-
tökuhátíðinni og vígsluathöfninni
stóð. Öll nærliggjandi skip í höfn
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Fyrsti varaþingmaður
Alþýðutlðkksins tekur
ssti á Alþingi
Veíkindi Jóns
Baldvinssonar
ón Baldvinsson forseti Samein-
aðs Alþingis hefir ekki getað
gegnt þingstörfuin ennþá, sakir
veikinda. Hann hefir legið rúm-
fastur síðan þing kom saman og
liggur ennþá.
Porseta efri deildar barst í
fyrradag brjef frá Jóni Baldvins-
syni, þar sem hann óskaði eftir
að fyrsti varamaður Alþýðuflokks
ins tæki nú sæti á Alþingi, því
að J. Bald. bjóst ekki við, að
heilsa hans leyfði honum þingsetu
fyrsta hálfan mánuðinn.
Pyrsti varamaður Alþýðuflokks
ins er Erlendur Þorsteinsson,
skrifstofustjóri Síldarútvegsnefnd-
ar á Siglufirði. Hann var fram-
bjóðandi flokksins í Evjafirði við
síðustu kosningar.
Erlendur er staddur hjer í bæn-
uni, og var skotið á fundi í Sþ. í
gær, til þess að samþykkja kjör-
brjef hans. Gekk það hljóðalaust.
En þegar hinn nýi þingmaður
skyldi vinna drengskaparheit að
stjórnarskránni, var lionum feng-
inn rauður penni í hönd, er liann
skyldi sltrifa nieð, en svo ein-
kennilega vildi til, að penninn gaf
ekkert blek frá sjer og var þó ný-
búið að fylla hann. Var þingmann-
inum þá fenginn penni með öðr-
um lit og stóð þá ekki á blekinu.
Erleudur tekur sæti í Ed.
hafa haft talsverðan viðbúnað
undir þennan aðalfund Jaín-
aðarmannafjelagsins, þvi fyr-
irfram var vitað, að þar yrðii
hörð átök ekki síður en á Dags-
brúnarfundinum á dögunum.
Þegar fundur var settur um
kl. 1.30 var Nýja Bíó troðfult.
Varaformaður fjelágsins, Öig-
fús Sigurhjartarson var fuhd-
arstjóri. Hann byrjaði fundar-
stjórnina með því að lesa pp
nöfn 175 manna, er sóttu um
inntöku í fjelagið. Haraldur
Guðmundsson o. fl. mótmæltu
því, að þessir menn fengju að
svo stöddu inngöngu í fjelag-
ið, en fundurinn samþykti þá
með yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða. Munu þessir nýliðar
sjálfir hafa verið mættir á
fundinum og tóku þátt í at-
kvæðagreiðslunni.'
Sameiningarmálið.
Hófust nú umræður um
sameiningarmálið og hafði
Hjeðinn Valdimarsson fram-
sögu. Hann rakti sögu málsins*
gerðir sambandsþingsins s. 1]
haust, skýrði frá samfylkunni
við bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningarnar og loks frá sam-
þykt meirihluta sambands-
st j órnar, um brottvikningu
hans úr Alþýðuflokknum.
Haraldur Guðmundsson tal-
aði næst á eftir Hjeðni og varð
all-þungorður í hans garð.
Hann skýrði að öðru leyti mál-
ið frá sjónarmiði meirihluta
sambandsstjórnar.
Töluðu nú ýmsir úr hóp
beggja deiluaðila.
St j ór narkosning.
Var þvínæst gengið til
PRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.