Morgunblaðið - 22.02.1938, Blaðsíða 7
l>riðjudagur 22. febr. 1938.
7
Happdrætti
Háskóia ístands
Á hverju ári eru dregnir út
5000 vinningar af 25000 núm-
erum. Að meðaltali fær þá 5.
hvert númer vinning, allt frá
50,000 krónum, niður í 100
krénur, eftir heppni hvers
vinnanda. Á fyrstu 4 árum
happdrættisins hefir verið
greitt í vinninga yfir 2% mil-
jón krónur.
Frá starfsemi
Happdrættisins
8. Sagan um fjölina og
númerið.
I Vestmannaeyjum bað verslnnar-
maður einn um ákveðið númer af
eftirfarandi ástœðum: Fjöl úr vöru-
kassa var sífelt að flækjast fyrir
honum. Fjórum sinnum ljet bann
fara með f jöl þessa niður í miðstöðv
arherbergi í þeim tilgangi að brenna
henni, en í fimta sinn varð fjölin
fyrir honum og var hún þá komin
nPP í glugga í herbergi inn af versl-
unarbúðinni. Þótti honum þetta ein-
kennilegt og tók eftir því, að tölur
voru á fjölinni. Skrifaði hann þær
upp og keýpti happdrættismiða með
sama númeri. Hefir hann hlotið
vinninga á númer þetta frá upphafi
og stundum tvisvar á ári.
9. Hætti á miðju ári og missti
af 25,000 krónum.
Maður nokkur hætti við númer,
hálfmiða, vorið 1936 af því, að því
er hann sagði, að hann taldi útsjeð
um, að á það myndi vinnast. Annar
keypti seðilinn eftir nokkra daga,
og í 10. flokki þess árs vanst á núm-
erið 50.000 krónur. Fekk þessi nýi
eigandi á miðann og sá, er átti hinn
hálfmiðann á móti honum og hafði
átt frá byrjun, sínar 25,000 krón-
urnar hvor. Báðir voru efnalitlir
menn í alþýðustjett.
10. Vantaði viStæki og fekk.
Mann í Hafnarfirði langaði að
afla sjer viðtækis, en treysti sjer
ekki til þess sökum fjárskorts. HanD
keypti sjer 1/4 miða í umboðinu og
Ijet svo um mælt, að nú skyldi á það
reynt, hvort forsjónin vildi gefa sjer
viðtæki. Maðurinn vann á miðann
svo að nægði fyrir viðtæki og keypti
það.
Hvað fær sá, sem
einkis freistar?
Umboðsmenn í Reykjavík eru:
fjjrú Anna Ásmundsdóttir & frú
Guðrún Bjömsdóttir, Túngötu 3,
sími 4380.
Dagbjartur Sigurðsson, kaupm.,
. Vesturgötu 45, sími 2814.
Einar Eyjólfsson, kaupm., Týs-
götu 1, sími 3586.
Elís Jónsson, kaupm., Reykja-
víkurveg 5, sími 4970.
Helgi Sivertsen, Austurstræti 12,
sími 3582.
Jörgen Hansen, La'ufásvegi 61,
sími 3484.
Frú Maren Pjetursdóttir, Lauga-
veg 66, sími 4010.
Pjetur Halldórsson, Alþýðuhúsinu.
Stefán A. Pálsson & Ármann,
Varðarhúsinu, sími 3244.
Umboðsmenn í Ilafnarfirði eru:
Valdimar Long, kaupm., sími
9288.
Verslun Þorvalds Bjarnasonar,
síini 9310.
Dagbók.
□ Edda 59382227 — 1.
I. O. O. F. Rb. st. 1 Bþ. 852228%
III.
VeSnrútlit í Rvík í dag: Hæg-
viðri. Úrkomtilaust.
Veðrið (mánudagskvöld kl. 5):
Hægviðri með 3—5 st. hita um alt
land. Lægð við vesturströnd Græn
lands á hreyfingu NA-eftir og
veldur hún e. t. v. vaxandi SV-átt
á Vestfjörðum á morgun.
Næturlæknir er í nótt Björgvin
Finnsson, Vesturgötu 41. Sími
3940.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Stúdentafjelag Reykjavíkur
heldur árshátíð sína og aðaldans-
leik að Hótel Borg á öskudaginn.
Hefst hófið með borðhaldi kl. 7
síðdegis.
Trúlofun. S.l. laugardag opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Vig-
dís Bbenesardóttir, Laugaveg 85,
og Bárður Sveinsson, Lindargötu
17.
Sextugur er í dag Guðmundur
Olafsson netagerðarinaður í Hafn-
arfirði.
Bjarni Bjömsson gamanleikari
ætlar enn einu sinni að endur-
taka skemtun sína í Gamla Bíó
vegna fjölmargra áskorana. Verð-
ur sú skemtun annað kvöld og
ætlar Bjarni þá að bjóða alþing-
ismönnum að hlusta á sig. Gamla
Bíó var þjettskipað á sunnudag-
inn er Bjarni skemti þar.
Skíðafæri var allsæmilegt um
helgina í Skálafelli og í Insta-
dal, en frekar fátt var á skíðum
þar, eða um 120 manns. Snjór
fell þar eystra á sunnudagsmorg-
un og í fyrrinótt snjóaði aftur.
Skíðafæri er orðið allgott aftur.
Við Kolviðarhól voru um 200
manns á snnnudaginn og einnig
var skíðafólk við K. R.-skálann og
Ármanns-skálann í Jósefsdal.
E.s. Hekla var í Vestmannaeyj-
um í gær og hlóð ísfisk og salt-
fisk til Englands. Þýskt skip af-
fermir í Vestmannaeyjum saltfarm
til Tómasar M. Guðjónssonar. Afli
var ágætur í Vestmannaeyjum á
sunnudag eða alt að 1700 á bát,
en í gær var afli tregari, liæst
um 800 á bát.
Samsætið í tilefni af 75 ára af-
mæli þjóðminjasafnsins 24. þ. m.
Þeir sem ætla að taka þátt í sam-
sætinu ættu að skrifa sig á lista,
sem liggur frammi hjá Eymund-
sen og á Hótel Borg í dag og á
raorgun. Eftir borðhaldið verður
dans stiginn til kl. 2.
Eimskip. Gullfoss er í Kaup-
mannahöfn. Goðafoss fer frá Hull
í kvöld. Brúarfoss var á Blöndu-
ósi í gærmorgun. Dettifoss er í
Reykjavík. Lagarfoss kom til Ham
borgar í fyrradag og fer þaðan í
dag. Selfoss er á leið til Leith frá
Vestmannaeyjum.
Póstferðir á morgun. Frá Rvík:
Mosfellssveitar-, Kjalarness-, Kjós
ar-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóa-
póstar. Ilafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. — Til Rvíkur: Mosfellssveit-
ar-, Kjalarness-, Kjósar-, Reykja-
ness-, Ötfúss- og Flóa-póstar. Hafn
arfjörður. Seltjarnarnes. Laxfoss
frá Akranesi og Borgarnesi.
M OR G JJN RLA,ÐIÍ)
Baráttan um fyrirtæki Alþýðuílokksins
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
kosningu stjórnar fyrir fjelag-
ið. Hjeðinsmenn lögðu fram
lista með þessum nöfnum, sem
allir eru úr liði sameiningar-
manna: Hjeðinn Valdimars-
son (formaður), Sigfús Sigur-
hjartarson, Steinþór Guð-
mundsson, Jón Guðlaugsson og
Sigurbjörn Björnsson.
Haraldur Guðmundsson
lagði nú fram svohljóðandi
tillögu:
„Þar sem stjórn Alþýðusam-
bands Islands hefir samþykt að
víkja Hjeðni Valdimarssyni úr
sambandsstjórn og Alþýðu-
flokknum, telur fundurinn að
Hjeðinn Valdimarsson geti
ekki verið kjörgengur í for-
mannsstöðu eða til annara
trúnaðarstarf a f yrir fj elagið
lema sambandsþing hafi áður
felt ályktun sambandsstjórnar
úr gildi".
Sigfús Sigurhjartarson bar
nú fram rökstudda dagskrá um
að vísa tillögu Haralds frá, þar
sem formannskosningin myndi
sýna álit f jelagsins á því máli.
Dagskrá Sigfúsar var samþykt
með 284:106 atkv.
Haraldur gengur
af fundi.
Eftir að dagskrártillaga Sig-
fúsar Sigurhjartarsonar hafði
verið samþykt, skoraði Harald-
ur Guðmundsson á sitt lið að
ganga af fundi. Gekk þvínæst
Haraldur af fundi og með hon-
um um 100 manns.
Var síðan kosin stjórn fje-
lagsins og þeir atlir kosnir, er
voru á fyrnefndum lista sam-
einingarmanna. Hlutu þeir 292
—295 atkvæði.
Þá voru kosnir 7 fulltrúar
til þess að mæta á Alþýðusam-
bandsþingi, og voru þeir allir
sameiningarmenn.
Traust og vantraust.
Þessu næst var borin upp og
samþykt nálega einróma til-
laga er lýsti trausti á minni-
hluta sambandsstjórnar, van-
trausti á meirihluta sam-
bandsstjórnar og bæjarfulltrú-
um Alþýðuflokksins, mótmæli
gegn brottvikningu Hjeðins og
áskorun um að vinna áfram að
sameiningu flokkanna.
Ennfremur var samþykt til-
laga um að gefa út eða
styrkja nýtt flokksblað og um,
að setja upp skrifstofu fyrir
ijelagið.
Nýtt fjelag.
Haraldur Guðmundsson og
Iið hans, sem vjek af fundin-
um í Nýja Bíó kom strax
saman í Alþýðuhúsinu og sam-
þykti þar að stofna nýtt AI-
þýðuflokksfjelag í Reykjavík.
Segir Alþýðublaðið að um 200
manns hafi skráð sig í þetta
nýja fjelag.
Vijrið úr Alþýðu-
sambandinu.
Stjórn Alþýðusambandsins
kom saman á fund í gærmorg-
un og samþykti þar, að víkja
Jafnaðarmannaf jelagi Reykja
víkur úr Alþýðusambandinu. 1
ályktuninni er þess jafnframt
getið, að fulltrúar fjelagsins
geti ekki lengur átt sæti í'Full-
trúaráði verklýðsf jelaganna í
Reykjavík.
Baráttan um fyrir-
tækin.
Fulltrúaráð verklýðsfjelag-
anna í bænum hefir með hönd-
um stjórn ýmsra fyrirtækja,
sem tengd eru við Alþýðu-
flokkinn, svo sem Alþýðu-
brauðgerðarinnar, samkomu-
hússins Iðnó og að einhverju
leyti Alþýðuhússins við Hverf-
isgötu.
Hjeðinn hóaði saman
fundi í Fulltrúaráðinu á laug-
ardagskvöld og ljet þar kjósa
sína menn í stjórn Alþýðu-
brauðgerðarinnar og Iðnó;
einnig til að mæta á aðal-
fundi h.f. Alþýðuhússins. Mun
nú ætlan Hjeðins, að taka í
ínar hendur stjórn þessara
flokksfyrirtækja. En það mun
ekki ganga greitt eða hljóða-
laust, að komast að þessum
fyrirtækjum og ekki ósenni-
legt, að fógetinn komi þar við
sögu áður en langt líður.
ÚtvarpiS:
Þriðjudagur 22. febrúar.
8.30 Dönskukensla.
12.00 Hádegisútvarp.
18.45 Þýskukensla.
19.20 Þingfrjettir.
19.50 Frjettir.
20.15 Erindi: „Menskir menn“,
IV: Friðarhöfnin (Grjetar
Fells rithöfundur).
20.40 Hljómplötur: Ljett lög.
20.45 Húsmæðratími: Sálfræðilegt
uppeldi barnsins innan þriggja
ára, II. (frú Aðalbjörg Sigurð-
ardóttir).
21.10 Symfóníu-tónléikar:
a) Tónleikar Tónlistarskólans.
b) (21.45) Tónverk eftir Chopin
(plötur).
HRAÐSKÁKIN.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
Eyþór Dalberg, vákti ungur at-
hygli á sjer fjyir það hve fljótur
hánn er að sjá það sem hann sjer
í skák, en það er eins og gefur
að skilja mjög mikilsverður hæfi-
leiki í slíkri kepni sem þessari.
Úrslit urðu þessi (tölUrnar una-
ar skákir):
Eyþór Dalberg 19, Baldur Möll-
er 18, Eggert Gilfer 17, Einar
Þorvaldsson 16%, Guðbjartur Vig-
fússon 15%, Magnús G. Jónsson
15, Sigurður Gissurarson 15,
Kristján Sylveríusson 14%, Ás-
mundur Ásgeirsson 14, Egill Sig-
urðsson 15, Steingrímur Guðmundi
Son 14, Hjálmar Theódórsson 18,
Benedikt Jóhannsson 12%, Frí-
mann Ólafsson 11%, Guðmundur
Ágústsson 11%, Sæmundur Ólafs-
son ll, Guðjón Tómasson 8%, Jó-
hann Jóhannsson 6%, Halldór
Bergmann 6, Magnús Bergmann 6,
ívar Þór 5%, Bolli Thoroddsen
4%, Ólafur Einarsson 4, Stefán
Þ. Guðmundsson 4.
Bragi Steingrímsson dýralæknir
var meðal farþega á Dronning
Alexandrine til Norðurlands í gær.
Gegnir hann störfum Sigurðar
Hlíðar dýralæknis á Akureyri
meðan hann er á þingi.
í matinn i dag:
Glæný lúða
Saltfisksbúðin
Hverfisgötu 62. - Sími 2098.
EGGERT CLAESSEN
hæstarjettarmálaflutningsmaður.
Skrifstofa: Oddfellowhúsið,
Vonarstræti 10.
(Inngangur um austurdyr).
LITLA BILST08IN
Opin allan sólarhringinn.
Er nokkuð stór.
Það tilkynnist hjer með, að konan mín og móðir okkar,
Bjarney Hafberg,
andaðist í Landspítalanum 20. þ. mán.
Helgi Hafberg og böm.
Jarðarför föður míns og tengdaföður,
Jóns Magnússonar Melsteð,
fer fram miðvikudaginn 23. febrúar og hefst með húskveðju að
heimili okkar, Ránargötu 6, kl. 1 e. h.
Ólafur L. Jónsson. Guðrún Karvelsdóttir.
Jarðarför móður minnar,
Herdísar Jónasdóttur,
sem andaðist að Sólheimum 14. þ. m., fer fram frá heimili hinn-
ar látnu, Bókhlöðustíg 7, miðvikudaginn 23. þ. m. kl. 10 f. h.
og hefst með bæn.
Fyrir hönd okkar bræðranna og annara vandamanna.
Kristján Sæmundsson.
í