Morgunblaðið - 26.02.1938, Qupperneq 7
Laugardagur 26. febr. 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Happdrætti
Háskóla íslands
Á ári hverju verða margir
menn efnaðir, er spila í happ
drættinu. 75 numer fá 1000
krónur hvert, 25 fá 2000 kr.
hvert, 10 fá 5000 kr. hvert,
5 fá 10.000 krónur hvert, 2
fá 15.000 krónur hvert, 3 fá
20,000 kr. hvert, 2 fá 25.000
kr. hvert og 1 fær 50.000 kr.
Auk þess smærri vinningar
(500 kr., 200 kr., og 100 kr.)
Frá starfsemi
Happdrættisins
15. Samvinnuf jelag á
sveitabæ.
I sveitaumboði komu upp 1934
1250 krónur á f jórðungsmiða.
Heimilisfólkið í O. fjekk þessa
peninga, því að þar var einskon-
ar samvinnufjelag um happdrættið.
Hafði kver einn fjórðungsmiða og
skiptu menn með sjer vinningum.
16. Guð hjálpar þeim, sem
hjálpar sjer sjálfur.
Þ. bóndi á Á. hlaut 5.000 króna
vinning 1936. Hann hefir átt fjölda
bama og lifað við þröngan kost
löngum. Nú era börnin komin vel
á legg og fjárhagur því allgóður.
En þetta mun hafa þótt hið
mesta happ þar á bæ og augljós
vottur þess, að guð hjálpar þeim,
sem hjálpar sjer sjálfur.
17. Kisa vinnur 2500 krónur.
Maður í Reykjavík segir frá: I
10. flokki 1934 kom miði upp á
10.000 krónur. Einu sinni í haust
vorum við hjónin að koma neðan
úr bæ að kvöldlagi. Það var norð-
angarri. Við gengum eftir -Skúla-
götu. Þegar við komum á móts við
Frakkastíg, heyrðum við eitthvert
angistarhljóð. Við gáfum því ekki
gaum fyrst í stað, en svo urðu
hljóðin sárari og sárari, og heyrð-
um við þá úr hvaða átt þau komu
og gengum á hljóðið. Loksins fund-
um við kattarnóru, sem hafði troð-
ið sjer milli þils og veggjar í skúr-
ganni, sem var þar niður við sjó.
Veslings skepnan var bæði köld,
svöng og lirædd. Við tókum hana
heim með okkur og ílengdist hún
hjá okkur. Svo kom að því, að kisa
litla eignaðist kettlinga, og ákváð-
um við þá að kaupa happdrættis-
miða og ánafna kettlingnum. Á
þenua miða komu upp 2500 kr.
Látið ekki Eiapp
ár hendi sleppa,
Umboðsmenn í Reykjavík eru:
Frú Anna Ásmundsdóttir & frú
Guðrún Björnsdóttir, Túngötu 3,
sími 4380.
Dagbjartur Sigurðsson, kaupm.,
Vesturgötu 45, sími 2814.
Einar Eyjólfsson, kaupm., Týs-
götu 1, sími 3586.
Elís Jónsson, kaupm., Reykja-
víkurveg 5, sími 4970.
Helgi Sivertsen, Austurstræti 12,
sími 3582.
Jörgen Hansen, Laufásvegi 61,
sími 3484.
Frú Maren Pjetursdóttir, Lauga-
veg 66, sími 4010.
Pjetur Halldórsson, Alþýðuhús-
inu.
Stefán A. Pálsson & Ármann,
Varðarhúsinu, sími 3244.
Umboðsmenn í Hafnarfirði eru:
Valdimar Long, kaupm., sími
9288.
Verslun Þorvalds Bjarnasonar,
sími 9810.
GAMLA BÍÓ:
San Francisco
Clark Cable og Jeanette Mac
Donald.
Qamla Bíó sýndi í fyrsta
skifti í gærkvöldi og sýnir
nú um helgina merkilega ame-
ríska kvikmynd, er „San Franeis-
co nefnist. Kvikmynd þessi mun
verða fjölsótt fyrir frábæran
leik, fyrir hve vel hún er tekin'
og fyrir áhrifaríkt og hugnæmt
efni.
Myndin gerist í San Francis-
co árið 1906. Borgin var þá enn
ungur bær og þangað höfðu safn-
ast saman æfintýramenn frá öll-
um löndum heims. I borginni þró-
aðist allskonar spilling og sið-
leysi, samfara óstjórnlegri skemt-
anafýsn almennings.
Hugsandi menn í borginni eru
áhyggjufullir út af ljettlyndi
fólksins, og þar á meðal er prest-
ur einn, sem þjónar í fátækra-
hverfi borgarinnar. Vinur hans
er veitingahtiseigandi, algerlega
trúlaus, en sarnt besti maður í
raun og veru. Þeir vinirnir höfðu
alist upp saman í fátækrahverfi
borgaripnar.
Dag nokkurn kemur ung söng
kona á fund veitingahúseigand-
ans og leitar atvinnu. Hann veit-
ir henni atvinnuna, en skilur
ekki í því, að hún er öðruvísi en
kvenfólk það, er hann hefir átt
að venjast. Takast síðar ástir
miklar með þeim.
Hjer skal ekki farið frekar út
í að lýsa efni myndarinnar. Um
leikinn má segja, að hann er ineð
afburðum góður, og þó sjerstak-
lega hlutverk, prestsins, sem leik-
ið er af Spencer Tracy. Clark
Gable mun nú eins og svo oft
fyr heilla kvenfólkið, en hann
leikur veitingahúseigandann. —
Söngkonuna leikur Janette Mac
Donald. Er lnin fríðari en nokkru
sinni fyr og söngröddin alveg ein-
staklega góð. Hún syngur ljett
skemtilög, sálmalög og aríur úr
óperunni „Faust“ og aríur eftir
Puccini. Nýtur hún sín langsam-
lega best í aríunum og sýning-
arnar iir „Faust“ muhu hrífa
margan söngelskan manninn.
Ahrifaríkasti kafli myndai’inn-
ar er þó, er jarðskjálftarnir
miklu ganga yfir borgina. Hús
hrynja, götur klofna og vatns-
og gasæðar springa. Fólk ferst
og slasast í hundraða tali, en
frávita konur og menn æða um
göturnar — í ]eit að ættingjum
og ástvinum.
Sýningarnar ai' jarðskjálftun-
um eru meistaralega vel teknar
og hljóta að hafa kostað of fjár
: og fyrirhöfn.
DagbóN.
□ Edda 5938317 = 6.
Veðurútlit í Rvík í dag: V- eða
NV-átt með allhvössum snjójelj-
um.
Veðrið (föstudagskvöld kl. 5):
Djúp lægð við vesturströnd ís-
lands á hreyfingu austur eftir.
Vindur er allhvass SA með ring-
ingu og 7—9 st. liita um alt land,
en á vestanverðu Grænlandshafi er
N-læg átt með 12 st. frosti. Má því
búast við kaldara veðurlagi og
snjókomu hjer á landi.
Næturlæknir er í nótt Daníel
Fjeldsted, Hverfisgötu 46. Sími
3272.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Messur í dómkirkjunni á morg-
un: Kl. 11, síra Bjarni Jónsson
(altarisganga). Kl. 2, barnaguðs-
þjónusta (sr. Fr. H.). Kl. 5, síra
Friðrik Hallgrímsson.
Messað í fríkirkjunni á morgun
kl. 2, síra Arni Sigurðssou.
Messað í Laugarnesskóla á
morgun kl. 5, síra Árni Sigurðs-
son fríkirkjuprestur.
Barnaguðsþjónusta í Laugar-
nesskóla á morgun kl. lOþ^.
Messað í Hafnarfjarðarkirkju á
morgun kl. 2, síra Garðar Svav-
arsson.
Messað í Keflavíkurkirkju kl.
2 á morgun, síra Eiríkur Brynjólfs
son.
Messað í Aðventkirkjunni á
morgun kl. 8.30 síðd. O. J. Olsen.
Hjónaefni. f gær opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Jóna Þor-
láksdóttir frá Norðfirði og Jón
M. Guðmundsson vjelstjóri, Berg-
staðastræti 2.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman í hjónaband í Frederiks-
berg Kirke (Kaupmannahöfn)
tannlæknarnir frk. Ellen Yde og
Björn Br. Björnsson (Brynjólfs
Björnssonar tannlæknis). Heimili
brúðhjónanna verður Studiestræde
67.
Togararnir Júpíter og Venus
eru lagðir á stað frá Noregi til
Englands.
Sextíu ára verður á morgun
Agnar Magnúson innheimtumað-
Hr, Freyjugötu 36.
Eimskip. Gullfoss kom til Leith
í gær. Goðafoss er í Hamborg.
Brúarfoss var á Kópaskeri í gær.
Dettifoss var á Patreksfirði í gær.
Lagarfoss er í Kaupmannahöfn.
Selfoss kom til Hull í gærmorgun.
Gamla Bíó hefir tvær sýningar
á kvikmyndinni San Francisco í
kvöld kl. 6.45 og kl. 9.
B.v. Sindri kom af upsaveiðum
í gærmorgun með 100 smálestir
af upsa eftir, stutta útivist.
Línuveiðarinn Sigríður kom af
veiðum í gær með um 80 skippund
fiskjar, eftir 4 daga veiðiför.
í. R.-ingar fara í skíðaferð að
Kolviðarhóli á morgun kl. 9 f. h.
Farið verður frá Söluturninum.
Farmiðar verða seldir í dag í
Stálhúsgögn, Laugaveg 11, til kl. 6
í kvöld. Engir farmiðar verða seld
ir við bílana í fyrramálið.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman í hjónaband uugfrú Evelyn
Hobbs og Hróbjartur Bjarnason
káúpmaður. Heimili þeirra verður
á Njálsgötu 106.
Skíðafjelag Reykjavíkur fer í
skíðaferð á morgun kl. 9 f. h. ef
veður og færi leyfir, Snjór er enn-
iá talsverður á heiðinni ög ef eitt-
hvað kólnar í veðri og nýr snjór
fellur, má búast við sæmilegu
skíðafæri.
Leikfjelag Reykjavíkur sýndi
síðastl. fimtudag sjónleikinn „Fyr-
irvinnan“ fyrir troðfullu húsi og
við sjerstaklega góðar viðtökur.
Vinsældir þessa ágæta leiks auk-
ast með hverri sýningu, enda er
mikið um leikinn talað. Næsta
sýning verður á morgun og hefst
aðgöngumiðasala í dag.
Útvarpið:
20.15 Færeyskt kvöld:
a) Erindi, upplestur, söngur o.
fl.
b) Leikrit: „Ranafell", eftir
■William Heinesen. (Leikstjóri:
Lárus Sigurbjörnsson).
YFIRGANGUR ER-
LENDRA TOGARA.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SfÐU.
var borin fram svofeld tillaga og
samþykt með 11 samhl. atkvæðum:
„Þar sem upplýst er, að útvegs-
menn á Suðurnesjum hafa orðið
fyrir svo miklu veiðarfæratjóni af
völdum útlendra togara á síðast-
liðnum fjórum sólarhringum, að
ekki nemur minna en 20 þúsund-
um króna, þá skorar Fiskiþingið
á hæstv. ríkisstjórn að gera taf-
arlaust ráðstafanir til þess, að
einu af varðskipunum verði falið
að annast um eftirlit og gæslu
veiðarfæra á fiskimiðum Suður-
nesja og í Faxaflóa, og leita
skaðabóta fyrir þau spjöll, sem
gerð eru“.
Ý
V
Hjartanlega þakka jeg öllum, sem á einn eða annan hátt, %
T
hafa sýnt mjer vinsemd á 60 ára fæðingardegi mínum. £
\ \
I *
% *
♦**«****4*,*t*****«****4tHt*,*******Mt**WM«*****vM«****4«*******4****M«*****t4*«********«M»*4***»*4«********t*+******t*****»f,****'M*****,t**«*********f*
Ólöf Hafliðadóttir. \
Hammalisfarnir
k o kh o I r,
einniff tilbúnir
rammar.
Verslun og
innrömmun,
Laugaveg
AXEL CORIES
io
Sími 1380. LITLA BILSTOÐIN Er nokkuð stðr.
Opin alian sólarhringinn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu við fráfall
og jarðarför konunnar minnar,
Guðrúnar (Dædí) Sigurðardóttur.
Kristján Hannesson og aðrir aðstandendur.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum að
Guðrún Vigfúsdóttir
andaðist í dag að Elliheimilinu hjer í bæ.
Hafnarfirði, 25. febrúar 1938.
Bjarni Snæbjörnsson.
Jarðarför móður minnar,
Rannveigar Gísladóttur,
fer fram mánudaginn 28. þ. m. frá dómkirkjunni og hefst með
húskveðju kl. 1 e. m. frá heimili hennar, Njálsgötu 11.
Jarðað verður í Fossvogi.
Guðmundur Sveinbjörnsson.
Jarðarför föður míns,
Sigurðar Jónssonar frá Bygðarenda,
fer fram frá fríkirkjunni mánudaginn 28. febrúar, og hefst kl.
1 með húskveðju á heimili mínu, Laugaveg 147. Jarðað verður
í gamla kirkjugarðinum.
Sigríður Sigurðardóttir.
Innilegar þakkir til allra er auðsýndu okkur vinsemd og
hluttekningu við andlát og útför mannsins míns, föður, sonar
og bróður,
Árna Gíslasonar frá Miðdal.
Guðrún Magnúsdóttir og börn.
Þóra Guðmundsdóttir. Óskar Gíslason.