Morgunblaðið - 08.03.1938, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 8. mars 1938.
aiiyiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimuiimiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiniMi
I Rekur erindi Hitlers f
í Austurríki I
Guido Schmidt,
utanríkismálaráðherra Austurrík-
ismanna, einn þeirra manna, auk
dr. Seyss-Inquarts, sem Hitler
heimtaði að gerður yrði ráðherra.
Það er talið eiga að verða hlut-
(verk Schmidts, að samræma utan-
ríkismálastefnu Austurríkismanna,
stefnu Berlín—Róm—öxulsins.
Stalin unöirbýr ný stórfelð
rjettarhölö
Gegn 14 hershöfð-
ingjum og 16
stjórnarerindrekum
Fyrir tivað
Mr.Chamberlain
vill fara i strið
London í gær. FÚ.
Mr. Chamberlain, forsætis-
ráðherra Breta sagði í
breska þinginu 1 dag, að til-
gangurinn með vígbúnaði Breta
væri fjórfaldur.
Fyrst að vera við'því búinn að
verja bresku eyjarnar;
í öðru lagi að vernda siglinga-
leiðir breska verslunarflot-
ans;
í þriðja lagi að aðstoða sam-
veldislöndin viið landvarnir
sínar og
í fjórða lagi, að geta farið til
liðs við þá bandamenn, sem
Bretar kynnu að þurfa að
styðja ef til ófriðar kemur.
Komast hjá stríði.
Chamberlain kvaðst hvorki
hneigjast að fasisma, nazisma
eða bolsjevisma.
Sjálfur kvaðst hann mundi
berjast fyrir lýðræðinu ef til
stríðs kæmi og það hyggði hann
að flestir samlandar hans
mundu einnig gera.
Tilgangur bresku stjórnar-
innar væri sá, að búa svo í hag-
inn, að enginn þyrfti að berjast.
HAILE SELASSIE.
London 7. mars F.Ú.
Haile Selassie hefir opin-
berlega lýst yfir, að
hann mun ekki ganga að nein-
um skilmálum, að því er
snerti Abyssiníu, sem ekki sje
í samræmi við fullkomið sjálf-
stæði ríkisins.
Ferðafjelag íslands heldur
skemtifund í kvöld. Frú Oddný
Sen segir frá Kína.
Rauðliðar hafa
sökt besta her-
skipi Francos
Sjóorusta í fyrrakvöld
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Tundurskeyti frá einu af skipum Valen-
ciastjórnarinnar sökti í gærkveldi
besta herskipi Francos, 10 þús. smá-
lesta beitiskipinu Baleares út af Cartagena á aust-
urströnd Spánar.
Talið er að 650 menn af 750 manna áhöfn skipsins hafi
farist.
MIKIL SPRENGING I SKIPINU.
London í gær. FÚ.
Þrjú af beitiskipum uppreisnarmanna voru þarna á ferð,
Balearis, Canarias, og eitt hið þriðja, er tvö gömul beitiskip
stjórnarinnar ásamt tundurspilladeild bar að. Hófu beitiskip
stjórnarinnar þegar skothríð og hæfði tundurskeyti Balearis.
Mikil sprenging varð í skipinu og eldur blossaði upp, en síðan
tók skipið að sökkva.
af völdum
ofviðris
í Norepi
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Tjón af völdum stór-
viðris sem geisaði í
Vestur-Noregi um helgina
er metið á miljónir króna.
Fióðalda spóaði á einum
stað 35 húsum í burtu og
braut 30 skip og bála í
spón.
í skógum gerði storm-
urinn ógurlegan usla,
feykti um koll' trjám svo
tugum þúsunda skiftir.
Fimtíu hús í Surnadals-
öra brunnu, þ. á m. 3 verk-
smiðjubyggingar og birgða
hús og 22 íbúðarhús. Engu
varð bjargað úr húsun-
um.
Þýska beitiskipið Köln,
sem statt var skamt út frá
Þrándheimi, þegar veðrið
skall á, sendi frá sjer
neyðarmerki, vegna vjel-
arbilunar. Ekki er talið að
skipinu sje nein hætta bú-
in. „Köln“ hefir verið við
fiskirannsóknir í Norður-
Atlantshafi undanfarið.
Flugvjelar stjórnarinnar
Vörpuðu sprengjum yfir
skipið og önnur skip upp-
reisnarmanna á meðan
Baleares sökk.
Tvö bresk herskip, Boreas og
Campenfelt, voru þarna í
grendinni, og skunduðu þau til
hjálpar. (Frjettaritari vor sím-
ar, að þau hafi bjargað úr
sjónum 100 manns af 750
manna áhöfn skipsins). Sumir
þeirra, Sem bjargað var, voru
fluttir yfir í beitiskip Fran-
cis, en aðrir teknir til Palma á
Mallorca.
Brot úr sprengikúlu varð ein-
um breskum sjóliða að bana, en
þrír særðust lítilsháttar.
Ríkisskip. Esja fór frá Reykja-
vík í gærkvöldi í strandferð vest-
ur og norður um land.
Færeyingar
kaupa tvo
togara
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Færeyjafjelagið Kimbil hef-
ir keypt togarann Stella
Argus frá Hull, 132 smálestir,
bygðan árið 1925. Söluverðið
var hundrað og sextíu þúsund
krónur.
Færyjafjelagið „Trolarafje-
lagið“ hefir keypt togarann
„Sancte Verne“ frá Grimsby,
132 smálestir, bygðan árið
1920, söluverð 80 þús. krónur.
HANN STAL VERÐ-
LAUNUM OSSIETZKY.
London 7 mars F.Ú.
Wannow 'lögfræðingur í
Berlín hefir verið dæmd-
ur í tveggja ára fangelsi, missi
borgaralegra réttinda í þrjú ár
og háar fjársektir fyrir að
draga sér hluta af Nobels-
verðlaunafé Ossietsky.
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Stalin hefir ákveðið að láta tvö ný rjett-
arhöld hef jast í Moskva innan skamms
að því er hermir í skeyti frá Varsjá til
danska blaðsins Politiken.
Hin fyrri gegn 14 hershöfðingjum rauða
hersins þ. á m. Jegorof marskálki varahermála-
ráðherra, sem var einn af þrem hershöfðingjum
er dæmdu Tuchatjevsky marskálk og fjelaga
hans til dauða í júní síðastliðnum. Hershöfðingj-
amir eru ákærðir fyrir morðsamsæri gegn Stalin.
Hin síðari gegn 16 stjórnarerindrekum, þ. á
m. Tikmenef fyrverandi sendiherra Rússa í Kaup-
mannahöfn og Jakubovitsj, sendiherra Rússa 1
Osló, sem kallaður var heim til Moskva um jólin.
„HREINSUN“ STALINS OG LITVINOFF.
Krestinski nefndi nafn Jakubovitsjs í yfirheyrslunum á
laugardaginn, í sambandi við samninga þá, sem hann sagði að
hinn svokallaði Rykofflokkur hefði átt við Trotsky.
Yfirleitt hefir útanríkismálastarfsemi Rússa beðið mikinn
hnekki við ,,hreinsun“ Stalins undanfarið, sem hefir komið hart
niður jafnvel á nánustu samstarfsmönnum Litvinoffs. G.P.U.-
leynilögreglan hefir í raun og veru lagt rússneska utanríkis-
málaráðuneytið undir sig. Sextíu og þrír starfsmenn ráðuneyt-
isins voru nýlega teknir fastir.
En á meðan þannig er ver-
ið að undirbúa ný mála-
ferli, ný morð, heldur yf-
irheyrslum gegn Rykof,
Bukarin og fjelögum
þeirra áfram.
Bucharin neitar.
London í gær F.Ú.
I rjettarhöldum í dag
vakti sjálfsvörn Bucharins
mesta athygli. Hann hefir ját-
að sekt sína í nokkrum atrið-
um ákærunnar, en neitar því
gjörsamlega, að hann hafi
nokkru sinni tekið þátt í sam-
særi eða ráðagerðum til að
myrða Lenin.
Ennfremur bar hann það al-
gerlega af sjer, að hann héfði
nokkru sinni unnið að njósnum
í þjónustu erlendra ríkja, nje
heldur kvatt nokkurn mann til
þess að gera slíkt.
Loks bar hann á móti því, að
hann hefði átt nokkurn þátt í
því að espa bændur til upp-
reisnar gegn stjórninni, en
þeirri sök er hann einnig bor-
inn.
Vishinsky hinn opinberi á-
kærandi tilkynti það í rjettin-
um að nefnd sjerfróðra lækna
mundi verða leidd fyrir rjettinn
til þess að Vitna um hvernig
andlát Maxim Gorki hafi bor-
ið að höndum.
Hræöslan
grípur um sig
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Hin síendurteknu mála-
ferli í Moskva hafa haft í
för með sjer að óstjórnleg
hræðsla hefiy gripið um sig
meðal fólksins í Moskva.
Engir þykjast óhulíir.
Engir þjónar eða þernur
fást á heimili útlendinga í
Moskva, og þeir, sem áður
hafa verið vistráðnir hjá
þeim, segja upp hver um
annan þveran.
Læknar neita að stunda
útlendinga, nema með leyfi
G.P.U.-leynilögreglunnar.
Þeir óttast að öðrum kosti að
verða ákærðir fyrir njósnir.
SÍLDARVERÐIÐ
FELLUR.
Síldarafli Norðmanna er nú
orðinn 4,37 milljónir
hektólítra, en var 2,60 miljón-
ir hektólítra á sama tíma í
fyrra.
Síldarverðið hefir fallið
nokkuð vegna þess hve mikið
berst að og víða hafa orðið erf-
iðleikar á löndun síldarinnar,
vegna þess hve þjett skipin
hafa komið. (FÚ.).