Morgunblaðið - 08.03.1938, Page 3

Morgunblaðið - 08.03.1938, Page 3
Þnðjudagur 8. mars 1938. 3 MORGUNBLAÐIÐ Ný sáttatilraun í togara- verkfallinu t Þrír menn tilnefndir af Hæstarjetti vinna að sætt- um ásamt sáttasemjara Forsætisráðherrann ritaði f.h. ríkisstjórn- arinnar, í gær Hæstarjetti brjef og óskaði þess, að rjetturinn tilnefndi þrjá menn til þess, ásamt sáttasemjara ríkisins að vinna að lausn kaupdeilunnar milli togarahá- seta og útgerðarmanna, í sa<mráði við fulltrúa frá báðum aðilum. Hæstirjettur varð þegar við ósk forsætisráð- herrans og tilnefndi þessa þrjá menn: Gunnlaug 1 Briem fulltrúa í atvinnumálaráðuneytinu, Hilm- ar Stefánsson bankastjóra og Einvarð Hallvarðs- son, formann Gjaldeyris- og innflutningsnefnd- ar. — Sáttasemjari ríkisins í vinnudeilum, dr. Björn Þórðarson lögmaður hefir boðað þessa þrjá menn, ásamt samninganefnd- um útgerðarmanna og sjómanna á sinn fund kl. 10 árd. í dag. Málaferlin í Moskva Æðstu lierforingjar Rússa. Einn þeirra, Jegorof (lengst t. h.) er nú fallinn í ónáð. Hinir eru (talið frá v.) Budenny yfirmað- ur setuliðsins í Moskva, Vorosjiloff hermálaráðherra og Biúeher yfirmaður rauða hersins í Austur-Asíu. — Hefst þá sáttatilraun að nýju. Þess skal getið, til þess að fyrirbyggja misskilning, að hjer er aðeins um sáttastarf að ræða, en sáttanefndin hefir ekkert vald fengið til að úrskurða í deilunni. Er ekki nema gott eitt um það að segja, að ríkisstjórnin hefir stigið þetta spor og vonandi að það beri árangur. Hver dagur, sem líður án þess að togaradeilan sje leyst, er dýr. Skemdir á Eskifirði Yfir 100 (iðtttakendur i skfðamðtinu Pátttakendur í Thule-skíða- mótinu, sem hefst við Skíðar skálann á laugardaginn, verða á annað hundrað, að því er L. H. Miiller skýrði Mbl. frá í gær. Þátt- takendur utan af landi eru komnir og famir að æfa sig af kappi undir mótið. Á sunnudaginn voru um 400 manns á skíðum við Skíðaskálann, skála Ármenninga 1 Jósefsdal og skála K. R.-inga í Skálafelli. Færi var ekki, gott, hörsl og skaflar í milli. En í gær var að því er L. H. Muller segir, en hann kom ofan frá Skíðaskálanum í gær- kvöldi, komið besta skíðafæri, sem verið hefir í vetur. Hafði frosið í fyrrinótt. Það slys vildi til við Skíðaskál- ann á sunnudaginn að Árni Har- aldsson (Árnasonar kaupmanns) fótbrotnaði um öklann. Milliþinganefnd í tolla- og skatta- málum imm stjórnarliðar flytja f. h. fjármálaráðherra svohljóð- andi þingsályktunartillögu í sam- einuðu þingi: „Sameinað Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa þriggja manna milliþinganefnd samkvæmt tilnefningu frá þrem- ur stærstu flokkUm þingsins, til þess að endurskoða tolla- og skattalöggjöf landsins, þar á með- al öll lagaákvæði og fyrirmæli um skatt- og tollinnheimtu og tollgæslu. — Fjármálaráðherra velur formann nefndarinnar. Kostnaður við störf nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði". Aukafundi S. t. F. lokið. Aukafundi Sölusambands ís- lenskra fiskframleiðenda var lokið á sunnudags kvöld og hafði fundurinn þá staðið í tvo daga. Fundurinn gerði ýmsar álykt- anir og tillögur til þings og stjórnar, en ekkert verður birt af þessu fyrst um sinn. Alþingi fær nú þessi inál til meðferðar. Þegar þingið kynnist skýrslum þeim, um hag og rekstr- arafkomu útgerðarinnar, sem fram komu á fundinúm, mun það kom- ast að raun um, að skjótra og róttækra aðgerða þarf hjer til bjargar útveginum. Fornar dygðir, revyan, verður leikin í kvöld kl. 8. Er það í 9. sinn sem revyan er leikin. Skrifstofu- stjóri fyrir ut- anríkismálin Prír þingmenn, þeir Jónas Jónsson, Sigurjón Á. Ól- afsson og Jóhann Þ. Jósefsson flytja í efri deild frumvarp um sjerstakan skrifstofustjóra í stjórnarráðinu. fyrir utanríkis- málin. 1 greinargerðinni segja flutn- ingsmenn: „Störf við afgreiðslur utanrík- ismála í stjórnarráði íslands hafa aukist á hinum síðari árum, þann ig, að í stað þess, að fyrst í stað var að þeim unnið sem einskonar aukastörfum af einkaritara for- sætisráðherra, útheimta þau nú starfskrafta og starfsskilyrði á við aðrar deildir stjórnarráðsins. Mun þegar hafa verið ákveðin, að skrif- stofa utanríkismálanna fái aukin húsakynni, svo sem nauðsyn kref ur, en flutningsmenn telja og rjett, að ekki verði lengur dreg- ið, að skipaður verði skrifstofu- stjóri fyrir skrifstofu utanríkis- mála, enda er þeim og kunnugt um, að ríkisstjórn og utanríkis- málanefnd eru því samþykk". Meðal farþega á Dettifossi í gærkvöldi. var Ásgeir Einarsson dýralæknir frá Reyðarfirði. Ætlar hann að kynna sjer meðferð og sjúkdóma loðdýra, bæði í Þýska- landi og Noregi. Hann verður utan í 3—4 mánuði. Símabilanir: 60 staurar brotnuðu á austurlinunni Sextíu staurar brotnuðu á austurlínunni í ofviðrinu að- faranótt laugardags. Síðdegis í gær náðist gott talsamband austur að Kirkjubæjarklaustri og til Eyja en sambandslaust hafði verið þangað síðan á laug- ^ardag. Talsímasamband er við Seyðisfjörð um norðurlínuna. Af staurunum, sem brotnuðu voru 15 milli Garðsauka og Æg- issíðu, 20 norðan við Affallið, 20 sunnan við Affallið, 3 í öl- vesi og 2 fyrir sunnan Kefla- vík. Viðgerð heldur áfram á símalínunni austan Kirkju- bæjarklausturs. SKÍÐAMÓT í NOREGI Khöfn í gær F.Ú. skíðakappmótinu á Holm- enkollen hefir Norðmað- urinn Kvanli unnið konungsbik- arinn. Næstur varð Svíinn West- berg, þá Norðmaðurinn Lien. Westberg varð sigurvegari í 17 km. skíðagöngu. Næstur varð Norðmaðurinn Gjöslien,’ og þriðji Svíinn Danielson. Við þingkosningar, sem farið hafa fram í Búlgaríu, hafa stjórn- arflokkarnir hlotið mikinn meiri hluta. (FÚ.). Keisarinn (sem átti að verða) í Kína myrtur London 7 mars F.Ú. how Feng Chi, sá er Jap- anar höfðu ráðgert að gera að lepp-keisara í Kína, hefir verið skotinn til bana, og er álitið að banamaður hans hafi verið kínverskur. Japanar hafa gert stórskota- liðsárásir á kínverska herinn við Lo-yang, á bökkum Gula- fljóts. Að því er næst verður komist, hafa Japanar hvergi komist suður yfir fljótið. 300.000 GESTIR Á LEIPZIGER-MESSUNNI Berlín 5. mars F.Ú. aupstefnan í Leipzig hófst í gær og var hún formlega sett af Funk viðskifta- og fjármálaráðherra. Vörusýn- endur eru um 10 þúsund. Til Leipzig eru komnir um 300 þúsund gestir úr öllum löndum heims. ÓVEÐRIÐ: TJÓN í NÆRSVEITUM. fárviðrinu aðfaranótt 5. mars fauk á Reynisvatni í Mos- fellssveit fjárhúsasamstæða (2 hús sambygð) og hlaða við þau, ásamt heyi því, er í henni var. Einnig bílskýli, er tók upp í heilu lagi, fauk langa leið. Á Korpúlfsstöðum rauf að mestu þak af húsi, er notað var sem fjós, áður en hið nýja fjós þar var bygt. Á Leirvogstungu rauf þak af hlöðu og nokkuð af heyi fauk. Á Álafossi og Laxnesi fuku nokkrar þakplötur af húsum. í laugardagsveðrinu nema tugum þúsunda Greinilegar fregnir af of- viðrinu á Eskifirði aðfara- nótt laugardags hafa nú borist og eru þær svohljóð- andi, samkv. FÚ.: árviðrið á Iaugardags- nótt olli stórfeldu tjóni; braut vlug-ga í flestum hús- um í miðju kauptúninu, reif járn víða af húsum og sum- staðar gersamleg;a; svifti þökum af og jafnaði heil hús við jörðu. Síma- og ljósa- kerfi kauptúnsins eru stór- skemd og kauptúnið síma- laust og; ljóslaust. Náði veðrið hámarki frá kl. 3—4 um nóttina, en þó hjelst ofsaveður fram til kl. 9 að morgni. Mestan hluta þaks rauf af kola- húsi svonefndar Andra-eignar. Var það næststærsta hús þorpsins. Fauk mikill hluti þaksins, bæði járn og viður, um 200 metra langa leið, og lenti á ljósastaur vestan við liús Kristrúnar Gísladóttur. Brotnaði staurinn og rakst á end- ann gegnum vestur-stafn nefnds húss, alla leið inn 1 bíósal, sem er í húsinu. Aðalrekaldið breytti stefnu og lenti fyrir ofan íbúðar- hús Kristrúnar, skall þar á stein- steyptri útbyggingu og braut fjögra metra breitt og meir en mannhæðar hátt skarð í hann. Er hinn brotni steinveggur þó níu þumlunga þykkur. Ef rekaldið hafði lent á húsinu sjálfu, mundi það sennilega hafa farið í rustir. Tvö hús önnur skemdust, íshúsið og svonefnd Mörbúð. Af hinu fyr- talda, sem er nýlegt, fauk alt járn, og rúmlega hálft þakið, eða FBAMH. Á SJÖTTU SÍHU.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.