Morgunblaðið - 12.03.1938, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 12. mars 1938.
Hitlersstjórn í Austurríki
Ðr. Schussnigg'.
Alger
signr
Klukkan 1 í nótt.
Gjörvalt Austurríki virðist
vera á valdi nazista — án þess
að hafi komið til kasta þýska
hersins. — Óhemju fögnuður
ríkti í ¥ín langt fram á nótt
og um miðnætti eftir ísl. tíma
flutti hinn nýi kanslari, Seyss-
Inquart, ræðu, þar sem hann
tilkynti að fregnir væri að
berast frá hverri borginni af
annari um gjörvalt Austur-
ríki um það, að hakakrossfán-
inn hefði verið dreginn þar
að hún. Hvergi er getið um
nsinn mótþróa.
Hið nýja ráðuneyti dr.
Seyss-Inquarts er þegar full-
myndað. Ráðherralistinn var
lesinn upp í austurríska út-
varpið í nótt.
Þeir sem hlustuðu á útvarp
frá Austurríki hjer í nótt
skýrðu frá því að þar hafi
skiftst á „Heil Hitler“-hrópin
og þýsku þjóðsöngvamir
„Deutschland Deutschland.
og Horst-Wessel söngurinn.
í Þýskalandi rikir einnig
mikill fögnuður. Var útvarpi
frá Austurríki endurvarpað
um allar þýskar stöðvar.
Hitler kúgaði Schussnigg
til að leggja niður völd
Þýskur tier kominn tii Linz í Austurríki
FÖSTUDAG.
Austurríei er orðið nazistiskt. Hitler hefir í dag hjálpað
austurrískum nazistum til þess að taka völdin í sínar hendur.
Hann hefir 1) kúgað vdr. Schussnigg til þess að fresta þjóðar-
atkvæðagreiðslunni sem átti að fara fram á sunnudaginn »um óákveð-
inn tíma« 2) síðan kúgað Miklas forseta til þess að skipa dr. Seyss-
Inquart kanslara í stað dr. Schussniggs og 3) komið í veg fyrir að
stuðningsmenn dr. Schussniggs gerðu vopnaða uppreisn með því að
senda þrjár þýskar herdeildir inn í Austurríki.
Tilkynningin um frestun þjóðaratkvæðagreiðslunnar var gefin
út klukkan hálf sex í kvöld. Hálfri annari klukkustund síðar, eða
klukkan 7, flutti dr. Schussnigg ræðu í austurríska útvarpið og til-
kynti að hann hefði sagt af sjer.
Dr. Schussnigg sagði að hann hefði orðið að láta undan fyrir
ruddalegu ofbeldi. Hann skýrði frá því, að Miklas forseta hefði í dag
borist úrslita kostir frá þýsku stjórninni, þar sem honum væri gert, að
skipa nýjan kanslara í stað dr Schussniggs og nýja stjórn, samkvæmt
tilnefningu þýska ríkisins. Að öðrum kosti myndi þýskar hersveitir
fara yfir landamæri Austurríkis. — Miklas var ennfremur skýrt
frá því að þrjár herdeildir (36 þús. manns í hverri) hafi fengið skip-
un um að halda af stað frá Miinchen til austurrísku landamæranna.
Dr. Schussnigg sagði að hann hefði sagt af sjer til þess að forðast
blóðsúthellingar; hann hefði gefið austurríska hernum við þýsku landa-
mærin fyrirskipun um að hörfa undan, ef þýski herinn færi yfir landa-
mærin. Miklas forseti hefir leyft mjer að hafa eftir sjer, sagði dr.
Schussnigg, að við höfum verið neyddir til þess að láta undan fyrir of-
urefli. Síðustu orð hans voru: Guð verndi Austurríki.
í öðrum athyglisverSum kafla í ræðu dr. Schussniggs segist hann
(samkvæmt FÖ.) vilja lýsa yfir því við þetta tækifæri og kalla guð
til vitnis um það, að frjettir þær, sem birtst hefðu í þýskum blöðum í
dag um óeirðir af völdum jafnaðarmanna í Austurríki, um blóðsúthell-
ingar sem orðið hefðu í landinu og þetta hvorttveggja sem viínisburð
Um að hann væri búinn að missa tökin á austurrísku þjóðinni, væru
rakalaus ósannindi.
Strax og dr. Schussnigg hafði lokið máli sínu talaði dr. Seyss-
Iuquart. Hann sagði að það væri þýðingarlaust fyrir Austurríkismenn
að ætla að að veita þýska hernum viðnám, ef hann færi yfir landa-
mærin. Þýski herinn kæmi einungis til að tryggja frið 1 landinu.
ÞAÐ HEFIR UPPLÝSTST, AÐ DR. SEYSS-INQUART SENDI HITLER í DAG
SKEYTI OG BAÐ HANN AÐ SENDA ÞÝSKAN HER INN I AUSTURRÍKI TIL
ÞESS AÐ HALDA RÖÐ OG REGLU I LANDINU OG HJÁLPA HONUM TÍL
ÞESS AÐ KOMA I VEG FYRIR BLÓÐSÚTHELLINGAR.E — EN ÁLIT-
IÐ ER AÐ I HJÁLPARBEIÐNI DR. SEYSS INQUART SJE FÓLGIN BEIÐNI
UM AÐ ÞÝSKU -HERSVEITIRWAR VERÐI SENDAR ALLA LEIÐ TIL VÍN-
ARBORGAR. ÁSTÆÐAN GETUR EKKI VERIÐ ÖNNUR EN SÚ, AÐ DR.
SEYSS-INQUART ÓTTAST AÐ STUÐNINGSMENN DR. SCHUSSNIGGS REYNI
AÐ VEITA VOPNAÐ VIÐNÁM. HERINN VAR KOMINN TIL LINZ SEINT I
VÖLDL
í kvöld kom dr. Rudolf Hess, staðgengill Hitlers með flugvjel til Vínarborgar. —
Hermann Göring er væntanlegur á morgun.
I ÞYSKALANDI: „MISSKILNINGUR“!
Erlendir frjettaritarar, sem fóru í þýska utanríkismálaráðuneytið í dag til að leita
frjetta, fengu það eitt svar, að þar væri engar opinberar upplýsingar að gefa um ástandið í
Austurríki. En talsmaður stjórnarinnar hjelt því fram að fregnirnar um úrslitakostina, sem
þýska stjórnin hefði átt að setja Miklas forseta hlyti að vera á misskilningi bygðar. Ekkert
hefði gerst annað en að dr. Seyss-Inquart hafi tilkynt dr. Schussnigg álit sitt á þjóðarat-
kvæðagreiðslunni og þar með að austurríski herinn og lögreglan væru andvígir henni og
þessvegna hafi dr. Schussnigg ákveðið að segja af sjer.
NAZISTAÓEIRÐIR I GÆR.
1 allan dag voru að berast fregnir um það, að Hitler hafi sent herdeildir af stað frá
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Mótmæli Breta
oo Frakka:
Italir aðhafast
ekkert
Leon Blum stjórn
í Frakklandi
Frá frjettwitwa vorum.
Khöfn í gær.
Franska stjórnin ljet leggja þá
spurningu fyrir ítölsku
stjórnina í gær, hvort hún myndi
vilja hafa samvinnu við Frakka
til þess að koma í veg fyrir að
traðkað yrði á sjálfstæði Austur-
ríkis, en fekk það svar í dag, að
ítalir gæti ekki á þessu stigi máls-
ins haft samvinnu við Frakka.
En talsmaður ítölsku stjórnar-
innar sagði í dag við erlenda
blaðamenn, að ítalska stjórnin á-
liti að ástandið í Austurríki væri
mjög alvarlegt og vandasamt, en
þar sem svo væri myndi ítalska
stjórnin halda diplomatiskum
venjum og ekkert segja að svo
stöddu, sem gæti gert málið flókn-
ara.
Hjálpað Leon Blum.
London í gær. FÚ.
Leon Blum gaf út þá yfirlýsingu
síðdegis í dag ,að atburðir síð-
ustu klukkustunda í álfunni geri
það að verkum, að brýna nauðsyn
beri til að stjórn sje skipuð í
Frakklandi sem allra fyrst.
Seinustu Kalundborgarfregnir
segja, að radikali flokkurinn
franski hafi samþykt að mynda
stjórn með Leon Blum sem for-
sætisráðherra og með stuðningi
kommúnista.
„Alvarleg afleiðing“.
Breska stjórnin og franska
stjórnin hafa mótmælt þeirri að-
ferð sem Þýskaland hefir haft í
frammi til þess að koma ár sinni
fyrir borð í Austurríki og hef-
ir þeim mótmælum þegar verið
komið á framfæri í utanríkismála-
ráðuneyti Þýskalands í Berlín.
Hafa stjórnir beggja þessara
ríkja aðvarað Þýskaland um, að
þetta kunni að hafa mjög alvar-
legar afleiðingar.
von Ribbentrop, utanríkismála-
ráðherra Þjóðverja, er staddur í
London. Hann sat veislu með Mr.
Chamberlain og Halifax lávarði í
dag og Ijetu þeir þá báðir í ljós
við hann, að Bretar legðu mikið
upp úr að Þjóðverjar gerðu ekk-
ert til að skerða sjálfstæði Aust-
urríkis. En von Ribbentrop er
sagður hafa svarað að Þjóðverjar
gætu engar tryggingar gefið um
þetta, því að þeir neyddust til að
skakka leikinn ef þýsku hlóði yrði
úthelt.