Morgunblaðið - 13.03.1938, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.03.1938, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ 3 Sunnudagur 13. mars 1938. Stjórnmálanámskeið SjálfstæSisflokksins. (Sjá grein á bls. 4). Ný miðlunartillaga í togara- deilunni á morgun Sjömannafjelögin og útgerðar- menn taka ákvörðun um tillöguna annað kvöld Sáttasemjari 'ríkisins í vinnudeilum, dr. Björn Þóraðarson, skrifaði síðdegis í gær fulltrúum útgerðarmanna, og sjómanna og tjáði þeim, að hann myndi á mánu- dag (á morgun) leggja fram miðlunartillögu til lausnar^, deilunni. Tillögu þessa flytur sáttasemjari í samráði við sáttanefnd þá, sem unnið hefir að því s. 1. viku, að reyna að koma á sættum í deilunni. 1 brjefinu bað sáttasemjari fulltrúa útgerð- armanna og sjómanna, að leggja miðlunartillög- una fyrir fund í f jelögum deiluaðila eigi síðar en á mánudagskvöld. Skyldi svar komið í hendur sáttasemjara eigi síðar en kl. 12 á mánudags- kvöld. Fulltrúar útgerðarmanna og sjómanna eiga að láta sáttasemjara vita hvenær fundir verði haldnir í f jelögunum, Fjelagi ísl. botnvörpuskipa- eigenda og Sjómannafjelagi Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Sáttasemjari afhendir þeim miðlunartillöguna áður en fundirnir hef jast í f je- lögunum. Sjómannafjelag Reykjavíkur heldur fund um málið í Nýja Bíó kl. 8 annað kvöld. Á sama tíma mun fundur verða haldinn í Fjelagi ísl. botn- vörpuskipaeigenda. Ofviðristjón á Landi Landmannahreppi varð mikið tjón í ofviðrinn 5. þessa mán- aðar. Þetta er það helsta: Hjá Guðmundi Árnasyni hrepp- stjóra í Múla fauk heyhlaða og ónýttist að mestu. Hjá Páli hónda Jónssyni í Hjallanesi fauk hey- lilaða og ónýttist alveg og fauk sumt af henni tveggja til þriggja km. leið. Hjá Árna hónda Jóns- syni í Iloltsmúla ónýttist heyhlaða að mestu. Hjá Jóni bónda Ólafs- syni á Snjallsteinshöfða fauk hev- hlaða — þar fuku einnig 30—40 hestar af heyi. Ennfremur urðu víða skemdir á f jenaðarliúsum og einnig fauk sumstaðar nokkur hluti af hey- hlöðum og aðrar skékktust á grunni. (FU.). SKULDIR BANKANNA VIÐ ÚTLÖND. Skuldir bankanna við út- lönd námu í janúarlok síðastl. kr. 9.023.000, eða 300 þús. kr. meir en á sama tíma í fyrra (þá kr. 8.739.000). Sæluvika Skaglirðinga Sýslunefndarfundur hefir stað- ið yfir á Sauðárkróki und- anfarna viku og heldur áfram fram í þessa viku. En í sambandi við fundinn hafa farið fram viku hátíðahöld á Sauðárkróki og lýk- ur þeim í dag. Hátt á þriðja hundrað aðkomumanna hefir tek- ið þátt í þessum hátíðahöldum. „Hjer hefir verið margt um inanninn", sagði frjettamaður Morgunblaðsins í gær — „og gleð- skapur inikill alla vikuna“. Nóg hefir verið til skemtunar. Hafa skemtanirnar hafist kl. 1 á daginn og staðið þar til kl. 5 og 6 á morgnaná. Til skemtunar hefir verið: Sjón- leikir á hverju kvöldi, stundum tveir á kvöldi. Leikirnir sem sýndir hafa verið heita „Ráðs- kona Bakka.bræðra“, „I sæluhöfn“ (bæði eftir ísl. höfunda) og „Við þjóðveginn“. „Ráðskonan“ hefir verið sýnd á hverju kvöldi alla vikuna. Karlakór Sauðárkróks heíir sungið tvisvar. Tveir einsöngvar- ar hafa látið til sín heyra, Daníel Þórhallsson og Sigurjón Sæ- mundsson. Sigvaldi Indriðason kvæðamaður hefir skemt, og leik- fimissýningar kvenna hafa farið fram undir stjórn frú Bang. Stúlk urnar í Kvennaskólanum á Blöndu ósi komu í heimsókn í vikunni og skemtu með söng. Á hverju kvöldi hefir dans ver- ið stiginn fram undir morgunn. Fólkið hefir venjulega getað valið milli þriggja skemtiatriða á hverju kvöldi. Meðal annars hafa farið fram umræðufundir á kvöldin og hafa þá flutt fyrirlestra Helgi Kon- ráðsson (fyrsta kvöldið) um „bæk- ur og bókalestur", Hákon Bjarna- son um „uppblástur landsins", síra Lárus Arnórsson o. fl., en á eftir fyrirlestrunum hafa farið fram umræður. Skíðamélið: Skfðafjelagið Siglfirðingur vann Tbule-bikarinn Jón Þorsteinsson enn sigurvegari í 18 km. kappgöngunni Sigurvegarinn í skíðakappgöngunni í gær varð Jón Þorsteinsson frá Skíðafje- lagi Siglufjarðar. Gekk hann vega- lengdina á 1 klst. 6 mín. 38 sek. Jón vann einn- ig kappgönguna á Landsmótinu 1 fyrra. Hann er aðeins 16 ára gamall og varð landsfrægur af af- rekum sínum á landsmótinu þá. Annar varð Rögnvaldur ólafsson í Skíðafjelagi Siglufjarð- ar á 1 klst. 7. mín 10 sek. Þriðji varð Magnús Kristjánsson, frá Skátafjelaginu Ein- herjar á ísafirði á 1. klst. 7 mín. 45 sek. Magnús varð annar á landsmótinu í fyrravetur. Fjórði varð Björn Blöndal úr Skíðafjelagi Reykjavíkur á 1 klst. 8 mín. 6 sek. og fimti varð Jónas Ásgeirsson frá Skíða- fjelaginu Siglfirðingur, á 1 klst. 8 mín. 23 sek. Skíðafjelagið Siglfirðingur vann kappgönguna og þar með Thule-bikarinn í þetta skifti. Munaði þó aðeíns 38 sek. á samanlögðum tíma fjögurra bestu manna ,,Sigl- firðings“ og fjögurra bestu manna Skíðafjelags Siglu- fjarðar. Samanlagður tími 4 bestu manna Siglfirðiiigs var 4 klst. 39 mín. 10 sek. Áttu þeir 5., 6., 7. og 8. mann. Samanlagður tími 4 bestu manna Skíðafjelags Siglu- fjarðar var 4 klst. 39 mín. 48 sek. Þeir áttu l.,2.,9. og 15. mann. — Skíðafjelag Siglufjarðar vann Thule-bikar- inn í fyrra. Göngukeppnin er flokka- kepni, þannig að tími 4 fljót- ustu mannanna úr hverju fje- lagi er lagður^ saman og þeir sem hafa besta tímann hafa unnið gönguna. Verðlaun eru silfurbikar, Thule-bikarinn, sem Líftryggingarfjelagið Thule gaf til verðlauna í fyrra. Var í fyrsta skifti kept um bikarinn í fyrra og þá vann sveit úr Skíðafjelagi Siglufjarðar bik- arinn. í reglugerð bikarsins er svo fyrir mælt, að bikarinn skuli vinnast til eignar þrisvar í röð, eða 5 sinnum alls. Þegar kappgangan hófst kl. 1 var veður slæmt, bleytu- hiúð og strekkings vindur, en veður batnaði brátt. Færi var misjafnt, sumstaðar ágætt; verst var færið þar sem nýjan snjó hafði hlaðið niður. Gangan hófst hægra megin við Hellisheiðarveginn, rjett fyrir ofan Skíðaskálann. Var fyrst gengið upp með veginum og upp að Flengingarbrekku. Þaðan var haldið austur og svo niður í áttina að Skarðsmýrar- fjalli. Gengið var inn Fremsta dal og þar snúið við og haldið aftur í Flengíngar- brekku. Flengingarbrekkan var eina brekkan, sem á leiðinni var svo teljandi sje. Er hún mjög brött, en þar áttu göngumenn að fara niður. Aðeins 4 menn stóðu brekkuna af 49 þátttak- endum. Reyndist brekka þessi erfiðasti kafli leiSar- innar, því 3 keppendur brutu skíði sín í henni. Jón Þorsteinsson. Tveir fengu lánuð skíði, (en það er leyfiiegt að halda áfram göngu þó ann- að skíði brotni). Einn keppendanna, sem þarna braut skíði sitt, Gunnar Hannesson, úr Skíðafje- lagi Reykjavíkur varð að hætta göngunni. Frá Flengingarbrekkunni lá gangan aftur suður ytir Hell- isheiðarveginn, suður með fjöllum framan við Skíðaskál- ann og síðan til baka a-5 mark- inu, þar sem gangan hófst. Göngunni var þannig hagað, að 30 sekúnda millibil var á milli keppendanna, er þeir hófu gönguna. Þannig lagði síðasti keppandinn 241/2 mínútu síð- ar af stað en sá fyrsti. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.