Morgunblaðið - 20.03.1938, Síða 3

Morgunblaðið - 20.03.1938, Síða 3
3 Suhimdagur 2Ó. mars 1938. MORGUNBLAÐIÐ nú reynt að bjarga eða látið sökkva? Andstöðuðflin I F ra msóknar f lokltn- :ii togast á EKKERT hefir forsætisráðherrann látið frá sjer heyra ennþá um það, hvaða skipan hann hugs- ar sjer að hafa á ríkisstjórninni, og eru þó þrír dagar liðnir síðan Alþýðuflokkurinn sagði skilið við stjórnina. Með þessum drætti er traðkað freklega á þingræðinu. Þegar Alþýðuflokkurinn sagði samvinnunni slitið, bar for- sætisráðherra skylda til að gera annað tveggja: 1) AÐ biSjast lausnar fyrir alt ráðuneytið, eða 2) AÐ hafa tilbúna endurskipan á ráðuneytinu, svo að trygt yrði, að þingræðisstjórn ríkti í landinu. Forsætisráðherrann gerði hvorugt. Hann lætur sjer nægja að síma konungi og leggja til við hann, að forsætisráðherranúm verði „fyrst um sinn‘‘ falið að gegna störfum atvinnumálaráðherra. Gerðardómuíinn:- Kemur dómsniður staðan í dag? Gerðardómurinn í togara- kaupdeilunni sat á rök- stólum mikinn hluta dags í gær. Aðalstarf dómendanna til að byrja með fór í það, að kynna sjer málavexti frá báðum hliðum og framlögð gögn. Deiluaðiljar hafa hvor um sig fulltrúa til að mæta fyrir gerð- ardómnum. Þeir leggja fram gögn og skýra málið frá sjónar- miði sinna skjólstæðinga. Fyrir Fjelag ísl. botnvörpuskipaeigenda mætti Jón Asbjörnsson hrm., en fyrir Sjómannafjelögin Sigurjón A. Ólafsson og Guðmundur I. Guðmundsson lögfræðingur. Gerðardómurinn heldur áfram störfum í dag. Dómsniðurstöðunn ar má sennilega vænta í kvöld. * Strax og gerðardómslögin voru samþykt á Alþingi gerðu útgerð- armenn þá ákvörðun, að leggja engin bönd á skipin, því sjálf- sagt væri að hlýða dómsniður- stöðunni, hver sem hún yrði. Togararnir myndu því nú sem óðast búast til saltfiskveiða, ef Sjómannafjelögin hefðu ekki bann að sjómönnum að láta skrá sig á skipin, uns sjeð yrði hver yrði niðurstaða gerðardómsins. Slík samþykt var vitanlega gersam- lega óviðunandi og nánast hótun til gerðardómsins. Þrír togarar fóru hjeðan á veið- ar í gær, en ekki á þorsk-, heldur upsaveiðar, vegna banns Sjó- mannafjelaganna. Þó ætluðu Pat- reksfjarðartogararnir á þorsk- veiðar, en blaðinu er ókunnugt hvort fengist hefir að skrá á skipin. Kaupdeilan á Siglufirði: Sátta- semjari reynir að miðla málum. Stjórn síldarverksmiðja ríkis- ins fór þess á leit við sátta- *emjara ríkisins, dr. Björn Þórð- arson í gær, að hann reyndi að miðla málum í kaupdeilunni, sem i'isið hefir milli verksmiðjustjórn- arimiar og verkamannafjelagsins >,Þróttur“ á Siglufirði. Samning- arnir við „Þrótt“ eru útrunnir 1. maí, en verkamennirnir sögðu þeim upp með tilskildum fyrir- vara, þrem mánuðum. Samningar hafa staðið yfir und ^nfarið milli verksmiðjustjórnar- hinar og „Þróttar“, en þeir hafa engan árangur borið. K. F. U. M. og K., Hafnarfirði. 5 U. D.-fundur, stud. theol. Astráður Sigursteindórsson talar. Allir piltar 14—17 ára velkomn- lr- Almenn samkoma í kvöld kl. Páll Sigurðsson talar. K. F. U. M. Mánudagur: A. D. hindur kl. 8i/2, Jóel Ingv arsson ^nlar. Allir karlmenn velkomnir. Verður „Sklrn sem segir se*“ Næsla leikrit leikifelitgsins Leikfjelagið sýnir í kvöld „Fyrirvinnuna“ í 12. sinn. En síðan verður sýningum hætt á því vinsæla leikriti. Hefir blað- ið snúið sjer til formanns Leik- fjelagsins, Ragnars E. Kvaran og spurt liann hvaða leikrit yrði hið næsta, er Leikfjelagið sýndi. — Við höldum frumsýningu, segir hann, á fimtudaginn kemur á leikriti norska skáldsins Osear Braaten, „Den store Barnedaab“, er við í þýðiUgunni köllum „Skírn sem segir sex“. Leikrit þetta hef- ir verið sýnt um gervallan Nor- eg og kvikmynd var gerð af því. Hefir bæði leikurinn og myndin átt miklum vinsældum að fagna. Leikstjóri er Indriði Waage. Aðrir leikendur verða m. a. Soffía Guðlaugsdóttir, Arndís Björns- dóttir, Ingibjörg Steinsdóttir, Brynjólfur, Valur Gíslason og jeg. Þarna koma og nokkrir ung- ir leikendur fram á sviðið í fyrsta skifti. Okkur fanst ekki ástæða til, segir R. E. K. ennfremur, að draga það lengur að koma fram ineð síðasta leikrit fjelagsins á þessu leikári, þó Fyrirvinnan gæti haldið áfram. En það er hver síðastur með nýtt leikrit á þess- um vetri. Því næsta mánuð þurf- um við að nota til þess að undir- búa komu Reumertshjónanna. Þau koma hingað sem kunnugt er í maí, og þá þarf æfingum frá okk ar hendi að vera lokið á leikrit- um þeim, sem þau taka þátt í. Þangmjöl handa mjólkurkúm Nýtt innlent fóöurefni Austur í Ilveragerði er verið að reisa verksmiðju til þess að framleiða þar þangmjöl til skepnufóðurs. Hafa nokkrir inenn myndað með sjer fjelagsskap til jiess að koma þessari framleiðslu á laggirnar, og hafa trú á að hún geti komið að góðu gagni. Einn af forgöngumönnum þessa fyrirtækis er Sveinbjörn Jónsson byggingameistari. Hefir blaðið haft tal af honum og sagðist hon- um svo frá: Við höfum í 2—3 ár gert til- raunir með framleiðslu á þang- mjöli til fóðurs. Rannsóknir á fóðurgildi þess gerði Þórir heit- inti Guðmundsson. Hann fram- kvæmdi rannsóknir þessar á Víf- ilsstöðum. Hann komst að raun um, að þangmjöl væri mjög hent- ugt í fóðurblöndu handa mjólkur- kúm. Lagði hann til, að blandan yrði þannig: 40% þangmjöl, 30% síldarmjöl og 30%. mais eða rúg- mjöl. Við erum nú í þann veginn að fullgera verksmiðju í Hveragerði, sagði Svbj. Jónsson ennfremur, fyrir framleiðslu þessa. Ætlumst við til þess, að þar verði hægt að framleiða 1%—2 tonn af þang- FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Ríkisstjórnin er því nú skipuð tveim ráðherrum. sem aðeins hafa stuðning 19 þingmanna af 49. Bak við þessa 19[ þingmenn, sem stjórnina styðja, stendur tæpur fjórðungur kjósenda lands- ins Hvaða nafn hefir það stjórnar- fyrirkomulag, sem hjer hefir ver- ið upp tekið á íslandi? Ekki getur það heitið þingræði, þar sem stjórnin hefir aðeins stuðning 19 þingmanna af 49, sem sæti eiga á Alþingi. Ekki getur það heitið lýðræði, þar sem stjórnin liefir þrjá fjórðu hluta kjósenda landsins á móti sjer. En hvaða stjórnarfyrirkomulag er þetta þá? Er það ný tegund einræðis, sem hjer hefir verið upp tekin? Alþingi hefir nú setið 33 daga og bókstaflega ekkert gert, að| undanskildri hrotunni nú. í vik-, unni sem leið, þegar gerðardóms- lögin voru samþykt. Þetta að- gerðalausa þinghald hefir þegWr kostað þjóðina 90—100 þúsund krónur. ; Ýmsir hafa vafalaust gert sjcf: vonir um, að stefnubreyting yrði á Alþingi, eftir að Framsóknar- flokkúrinn sýndi þann dug, að kasta ráðherra sósíalista fyrir borð, og að nú yrði tekið föstuiri1 tökum á málunum. Ekkert bólttr i á neinu slíku. Sama deyfðin, logn- mollan og úrræðaleysið ríkir enn í sölum Alþingis. [ • * Úrræðaleysið, sem nú ríkir á Alþingi, á rót sína að rekja til hinna ósamstæðu afla, sem Fram- sóknarflokkurinn samanstendur, af og þar togast á. í Framsóknarflokknum eru til menn sem sjá, að framhald þeirr- ar stefnu í fjármálum o.g atvinnu málum, sem farin hefir verið í samstarfinu við sósíalista, hlýtur fyr eu síðar að leiða til glötunar fjárhagslega. En í flokknum eru einnig til menn — og þeir eru í meirihluta í þingflokknum — sem svo eru háðir sósíalistum og komm únistum í kjördæmunum, að þeir þora ekki að víkja liársbreidd frá rauðu stefnunni. Og það eru^þess ir menn, sem því ráða nú, að ekki, er tekin upp ný stefna. Það eru einnig þeir sem því ráða, að eins- konar einræðisstjórn heldur nú um stjórnartaumana. Þessir menn leggja alt kapp á, að vinna, áftur vinfengi rauðu flokkanita. Ennþá veit enginn hvað úr þessu öngþveiti verður. Hitt er aftur ljóst hverjum hugsandi manni, að framhald þeirrar stefnu í fjármáluni og at-, vinnumálum, sem ríkt hefir und-( anfarið, í sambúðinni við rauð1- liðá, getur ekki haft nema einn endir: Fjárhagslega glötun og um leið glötun sjálfstæðis þjóð- arinnar. Haraldur dreginn út „ Alþýðuflokkurinn hefir ákveðið að draga sinn ráðherra út úr stjóminni, ef gei’ðardómurinn verður lögfestur". Úr ræðu Haralds Guðmundssonar á Al- þingi aðfaranótt fimtudags síðastl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.