Morgunblaðið - 20.03.1938, Side 4
*
'‘MORGUNBLAÐIÐ
Suimudagur 2Ö. mars 193&.
Hann á að gera
Austurríki
nazistiskt
Sandgerði: Míklir örðugleikar
vegna veiðarfæraskorts og
~ flutningavandræða
Yfirgangur erlendra
togara á miðunum
Sandgerði.
Undanfarna daga hafa verið hjer góðar gæftir
og ágætur afli. En bátar hafa tapað mikilli
línu. mest af völdum erlendra togara. Síðast
í gær töpuðu margir bátar 4—10 bjóðum.
Lína hefir fengist mjög takmörkuð síðan snemma í febrúar, þar
sem Yeiðarfæragerðin hefir ekki haft undan, en ekkert fengist inn-
flutt. Og nú sem stendur er engin lína fáanleg, eða að minsta kosti
ekki þær tegundir, sem bátarnir nota hjer, og verður ekki á næst-
unni, þar sem efni vantar til þess að vinna úr.
Br því ekki annað sjáanlegt en að eitthvað af bátum verði að
hætta veiðum, í bili, af þeim ástæðum, þar sem sumir eiga nú þegar
rjett í aðra setninguna.
skyldi verða verkfall í vegavinn-
unni, sem virðist jafnvel vofa yfir.
Sagðist hann alls ekki geta bætt
úr því, þar sem peningarnir væru
ekki til í þetta.
Sjómennirnir hjer eiga bágt
með að skilja þetta, að ekki sje
hægt að gera nauðsynlegustu end-
urbót á veginum hjer, sem er
skilyrði fyrir því að þeir geti
stundað atvinnu sína. En þegar
þeir koma inn fyrir Hafnarfjörð,
þá er fjöldi manna að díitla við
að leggja veg þar, við hliðina á
ágætum vegi, sem fyrir er. Og
þessum mönnum er hægt að greiða
kaup, sem er þrefalt á við það
sem sjómennirnir hafa (miðað við
vinnutíina).
Svona er þá ástandið. Bátarnir
geta naumast róið, vegna veiðar-
færaskorts, sökum þess að þau
fást ekki innflutt. (Rjett er að
geta þess, að í morgun var talað
við gjaldeyris- og innflutnmgs-
nefnd, og beðið um að mega taka
nokkur dúsín af línu með e.s.
„Lyra“, sem kemur eftir helgina,
en því var algerlega neitað).
Erlendir togarar liirða og eyði-
leggja daglega mikið af því litla,
,sem bátarnir eiga ennþá af veið-
arfærum, sökum þess að ekkert
varðskip fæst til þess að gæta
þeirra.
Flutningar eru að teppast, sök-
um þess að engir peningar eru til,
til þess að halda vegunum við.
Er ekki þetta spegilmynd af
ástandinu í landinu yfirleitt! Eru
ekki atvinnuvegir og viðskiftalíf
að lenda í sjálfheldu eða stöðv-
astf, sem er auðvitað einnig af
ýmsum fleiri ástæðum en hjer
koma fram. Hverju er um að
kenna, og hvernig verður bætt
úr þessu? Því svarar náttúrlega
hver og einn eftir því sem hann
lítur á málinu. En fara ekki augu
almennings bráðum að opnast fyr-
ir hinum raunverulegu ástæðum
fyrir ástandinu?
Sandgerði, 13. mars 1938.
Ólafur Jónsson.
Himmler, foringi þýsku ríkisleynilögreglunnar (Gestapo) mað-
urinn, sem Hitler hefir falið ,,að samræma hið pólitíska líf í
Austurríki“. Hann ræður mestu um það hverjir eru teknir fastir
og hverjir sviftir atvinnu.Hann sjest hjer í hóp fylgismanna sinna
HöfiKKift m)ög góðar
PORTÚGALSKAR SARDÍNUR
i olivi og tóxnai.
H. Benediktsson & Co.
En hjer er einnig annar erfið-
leiki við að stríða. Allir flutning-
ar fara hjer fram á landi, á bíl-
um, um Keflavík og Reykjavík.
Sökum þess hve höfnin hjer er
grunn, svo að stærri skip fljóta
ekki inn, enda engar hafnarbætur
verið gerðar hjer. Á vertíð eru
flutt 10—20 þús. tonn á milli
Sandgerðis og Keflavíkur eða
Reykjavíkur, til og frá. Mest fer
um bryggjuna í Keflavík. Það er
því geysimikil umferð um veginn
milli Sandgerðis og Keflavíkur,
því auk þess vörumagns, sem
flytja þarf og áður er nefnt, er
auðvitáð mikið af fólksbílum og
tómum bílum, sem um veginn
fara.
Vegur þessi er upphaflega illa
lagður og ofaníburðurinn mjög
moldarkendur. Hann verður því
mjög fljótt slæmur þegar blautt
er um, þar sem bílarnir, sem um
hann fara, eru líka yfirleitt mjög
þungir. Hann þyrfti því mjög
mikils viðhalds, ef vel ætti að
vera. En það er nú öðru nær en
að svo sje, því að viðhaldið á
vegi þessum er yfirleitt mjög lje-
legt og vanalegast farið að gera
við hann í ótíma. Vegurinn er
því all-oft þannig á vertíð, að ill-
farandi er um hann.
Nú. er vegurinn að verða alveg
ófær. Vörubílar eru nú á annan
klukkutíma á milli Sandgerðis og
Keflavíkur, sem ekki tekur þá
nema 15—20 mínútur, sje vegur-
inn góður. Verði ekki mjög fljót-
lega gert við veginn, verður ekki
hægt að komast eftir honum eftir
fáa daga. Eru þá allir flutningar
teptir til og frá Sandgerði, og
þýðir það stöðvun á útgerðinni
hjer, að mestu.
Jeg átti tal um þetta við vega-
málastjóra í gær. Sagði hann að
engir peningar væru til til þess
að gera við veginn, eða að minsta
kosti ekki neitt svipað því, sem
þyrfti til þess. Benti jeg honum
á hina brýnu nauðsyn þess að
vegurinn væri fær yfir vertíðina,
og einnig að viðgerðinni þyrfti að
vera lokið fyrir 1. apríl, ef þá
Hvað er verk-
efni Friðar-
fjelagsins ?
Eftir Guðlaug
Rosenkranz
Par sem mjög mikils misskiln-
ings gætir í grein í Morg-
unblaðinu í gær, um friðarfjelagið
Mellanfolkligt samarbete og hlut-
verk nefndar, sem kosin var ný-
skeð á fundi fjelagsins, vil jeg
biðja blaðið að gjöra svo vel áð
taka eftirfarandi leiðrjettingu til
birtingar. — Hlutverk þessarar
umræddu nefndar er ekki, „að
gera Island að gróðrarstíu fyrir
flakkandi erlendan landshorna-
lýð“, heldur, eins og undirritaður
tók fram þegar tillagan var flutt,
meðal annars, að vinna gegn því
að fjöldi fólks, sem enginn veit
deili á, komi hingað til dvalar.
Nefndin á að hafa samvinnu við
samskonar nefndir, sem starfandi
eru í nágrannalöndunum, og 4
ekki að taka á móti öðrum til
fyrirgreiðslu heldur en þeim, sem
full skiiríki hafa frá þessum
nefndum og flæmdir hafa verið
frá ættjörð sinni sökum trúar-
eða stjórnmálaskoðana sinna og
hafa þar ekki annars að bíða en
fangelsis eða lífláts. Fjelagið tel-
ur það mannúðarskyldu okkar Is-
lendiuga, eins og annara menn-
ingarþjóða, að leggja eitthvað
fram til þess að veita því fólki,
sem þannig er ástatt um, griða-
stað og björg.
Þá skal það tekið fram, að
stjórn fjelagsins liafði, áður en
umrædd nefnd var skipuð, rætt
við þann ráðherrann, sem fer með
utanríkismál; var nefndin því
stofnuð í fullu samræmi við vilja
ráðherrans, enda er það vilji fje-
lagsins að starfa í samvinnu og í
fullu samræmi við vilja ríkis-
stjórnarinnar, hverjir svo sem
hana skipa. — Fjelagið er al-
gjörlega ópólitískt og er deild úr
fjölmennu friðarfjelagi, sem starf-
andi er á öllum Norðurlöndum.
Islandsdeildin er stofnuð eftir ein-
dreginni ósk aðaldeildar fjelags-
ins, sem aðsetur á í Stokkhólmi.
I íslandsdeildinni eru fjelagsmenn
úr öllum stjórnmálaflokkum og
heil fjölmenn algjörlega ópólitísk
fjelög og fjelagasambönd, eins og
U. M. F. íslands og Prestafjelag
íslands. Fjelagið telur því merka
máli, sem }>a ð tekur þátt í að
vinna fyrir, mikinn greiða gerðan
með því að blanda því ekki inn í
pólitískar deilur í blöðum eða
manna á milli, þar sem svo fjarri
er að nokkur ástæða sje til þess.
Reykjavík 18. mars 1938.
Guðlaugur Rosinkranz,
formaður íslandsdeildar friðarfjel.
Mellanfolkligt samarbete.
Tómafa
er hægt að rækta í jurta-
pottum í stórum og björtum
stofugluggum. Það er hinn
rjetti tími að panta nú. Verð
50 aura pr. stk. 10 stk. og
þar yfir 35 aura pr. stk.
Garðyrkjan á Reykjum
Mosfellssveit.
P.O. Box 782.