Morgunblaðið - 20.03.1938, Side 5

Morgunblaðið - 20.03.1938, Side 5
Sunnudagur 20. mars 1933. MORGUNBLAÐIÐ 5 1 orgtmHaftift Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Ritatjörar: J6n KJartansson og Valtýv Stefánsson (ábyrgOarsoaCur). Auglýsingar: Árnl Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgrelOsla: Austurstnetl S. — Slml 1600. Áskriftargjald: kr. S,00 6. m&nuOi. í lausasölu: 15 aura elntaklO — 25 aura saeO Lesbök. KASTAÐ FYRIR BORÐ! HVAÐ kemur næst? Þessi spurning hefir verið á -allra Vörum síðustu dagana, ■«ftir að Alþýðuflokkurinn ljet af því verða, að „draga“ sinn ráðherra út úr stjórninni og slíta samvinnu við Framsókn- arflokkinn. Orðrómur gengur í bænum um það, að Alþýðuflokkurinn hafi í hyggju að veita stjórn Fr am só k n a r f'l ök kvsi n s hlutleysi og að Steingrímur Steinþórsson eigi að koma inn í stjórnina. Einnig hefir heyrst talað um það, að Alþýðuflokkurinn iðrist svo eftir samvinnuslitin, að hann muni jafnvel fús til að biðjast afsökunar á frum- hlaupinu og mynda stjórn á ný með Framsókn; eigi þá Stefán Jóh. Stefánsson að koma inn í stjórnina í staðinn fyrir Har- ald. Sjeð frá þingræðislegu sjón- armiði virðast báðar þessar leiðir með öllu óhugsanlegar. Hvað er það, sem hefir skeð? Það, að Alþýðuflokkurinn sleit samvinnu við Framsóknarflokk- inn á hreinum málefnalegum grundvelli. Framsóknarflokkur- inn gerði sig sekan í athæfi á sviði löggjafarstarfsins, sem Alþýðuflokkurinn taldi svo víta verðan, að hann gæti, ekki leng- ur átt samleið með Framsókn. Alþýðuflokkurinn taldi sam- þykt gerðardómslaganna svo freklega móðgun við sína stefnu, að hann sleit allri sam- vinnu við Framsókn. Þingræðislega sjeð virðist það því gersamlega óhugsan- legt, að Alþýðuflokkurinn fari — 2—3 dögum eftir þenna at- burð — að veita sama flokki hlutleysi eða ganga í samstarf við hann aftur. * Öll meðferð gerðardómsins á Alþingi var og á þann veg, að Alþýðuflokkurinn hlýtur að vera stórmóðgaður, ef hann hefir minstu sómatilfinningu. Hvað gerðist daginn og nótt- 'ina, sem gerðardómslögin voru samþykt? Fyrst gerðist það, að Har- aldur tilkynnir Hermanni, að hann fari, ef lögin verði sam- þykt. Hann býður Hermanni allar hugsanlegar leiðir til að leysa kaupdeiluna — bara ekki gerðardóm. Þetta hafði engin áhrif á Hermann. Svo kemur sjómannafjelags- fundurinn um kvöldið. Þar koma kommúnistar með tillögu um, að gengið verði að tillögu sáttanefndar óbreyttri, því að skilyrðið sem sett var viðvíkj- andi úthaldi skipanna á salt- fisksveiðunum var engin breyt- ing frá því, sem verið hefir. Þessari tillögu var vísað til fje- lagsstjórnar og jafnframt kos- in nefnd til að semja á þessum : grundvelli. Við umræður um málið á Alþingi síðar um kvöldið, segir Haraldur frá þessari samþykt fjelagsins og grátbiður Her- mann, að fresta afgreiðslu gerðardómslaganna. Herrnann svarar kalt og rólega: Gerðar- dómslögin fara áfram. Ekkert getur hindrað þau. Það verður og að játa, að ekki gat það að neinu leyti breytt hugarfari Framsóknar til málsins hvort umræðurnar um frumvarpið á Alþingi urðu 5 eða 6. Af öllu þessu er því augljóst, að hjer hefir manni verið kast- að fyrir borð. ¥ Það, sem skeð hefir er þetta: Alþýðuflokkurinn hefir ekki „dregið“ Harald Guðmunds- son út úr stjórninni og ekki hefir Hermann mist mann fyrir borð, heldur hefir hann kastað Haraldi útbyrðis. Þessvegna er það, að enda þótt alveg sje lokað augunum fyrir hinni þingræðislegu hlið málsins, sem að framan var get- ið, hlýtur Alþýðuflokkurinn, ef annars nokkur manndáð er til í þeim flokki, að vera stórmóðg- aður eftir þessa meðferð, og framhaldandi samvinna virðist útilokuð meðan sárin eru að gróa. Og þó að játa verði, að Al- þýðuflokkurinn sje nú nauðu- lega staddur frá hvaða sjónar- miði sem litið er, verður flokk- urinn, úr því sem komið er, að mæta erfiðleikunum með karlmensku og manndómi. Alt annað er dauði fyrir flokkinn í nútíð og framtíð. Meðal kjósenda Alþýðu- flokkins hefir sú skoðun verið mjög ríkjandi í seinni tið, að flokkurinn hugsaði aðeins um hag fárra ráðamanna flokks- ins, manna, sem í stjórnarsam- vinnunni við Framsókn hafa fengið feit embætti, stöður og bitlinga. Yrði nú það ótrúlega ofan á, að Alþýðuflokkurinn, ofan á alt, sem á undan^ er gengið, legðist marflatur fyrir fætur Framsókn, myndi það auglýsa fyrir alþjóð auðmýkt og vesal- dóm flokksins og um leið sanna ltjósendum, að það erju feitu embættin, stöðurnar og bitling- arnir sem alt snýst um. Flokkakepni í fiinleikum verð- ur háð 26. apríl. Kept verður um Farandbikar Oslo Turnforening, handhafi Glímufjelagið Armann. Öllum fjelögum innan í. S. í. er heimil þátttaka. Keppendnr gefi sig skriflega fram við Glímu fjelagið Ármann og sendi stunda- skrá flokkanna eigi síðar en 11. apríl n.k. íþróttanefnd K. R. boðar alla íþróttamenn fjelagsins á fund ann að kvöld kl. 8 í K. R.-húsinu uppi. Mörg mál á dagskrá. Fjölmennið stundvíslega. -■Hei)kjavíkurbrjef~- ------- 19. mars. -- Af linn. iskafli á öllu landinu var nokkuð meiri 15. mars síð- astl., en á sama tíma tvö undan- farin ár. Samtals var aflinn tæp 6 þús. smálestir, en 4.2 milj. smál. 15. mars 1937. En fyrir þremur árum var aflinn á sama tíma 8.266 smál. Mjög heíir aflinn ver- ið misjafn í hinum ýmsu ver- stöðvum. I Vestmannaeyjum hefir hann t,. d. verið minni en í fyrra, sem stafar hvorttveggja af fiski- leysi og gæftaleysi. Á Akranesi hefir liann aftur á móti orðið talsvert meiri (1000 smál., 700 smál. 1937) og meiri hefir hann orðið í flestum verstöðvum á Suð- urnesjum. Á Stokkseyri og Eyrar- bakka er veiði enn lítil, enda voru bátarnir ekki settir niður fyr en upp úr mánaðamótunum síðustu. Togaraveiði byrjaði seint í fyrra og hafði ekkert veiðst á reykvíska og hafnfirska togara- flotanum fyrir 15. mars. I ár var afli togaranna orðinn tæp- ar 560 smálestir, þar af tæpar 300 smálestir upsi. En lijer með er einnig talinn afli hafnfirsku togaranna Júpíter og Venus og Reykjaborgarinnar, sem voru á veiðum við Bjarnarey. Lagt hefir verið á land miðað við slægðan fisk: 1.233.000 kg. af upsa til herslu: og 563.000 kg. til flökunar. Loðdýraræktin. oðdýraræktin hefir aukist mik ið á undanförnu ári, og á- hugi manna fyrir henni orðið al- mennari. Nú eru 430 fjelagsmenn í Loðdýraræktarfjelaginu. Af silfurrefum eru nú um 3000 í landinu. Af þeim munu vera um 2000 læður. Má gera ráð fyrir að silfurrefir verði yfir 8000 á næsta hausti. Er sá stofn orðinn svo mikill, að engin ástæða er til að flytja fleiri undaneldisdýr til landsins, einkum þar eð hinir 100 refir, sem fengust frá Noregi í haust, eru hinir álitlegustu til kynbóta. Talsverð áliersla er nú lögð J. að ala upp blárefi. Og eftirspurn eftir minkum er nú svo mikil, að öll viðkoman í vor er þegar seld til manna, sem ætla sjer að koma upp minkabúum, og jafnvel farið að panta minka, sem eigi að koma í heiminn fyrri en næsta vor. Brottför Haraldar. U Jk jjt argt er skrítið í Harmon- J[V» íu“. Haraldur Guðmunds- son farinn úr ríkisstjórninn. Á þessu áttu menn ekki von. Svo þaulsetinn hefir hann verið. í fyrravor ljet hann svo um mælt, að liann greindi á við Framsókn- arflokkinn um öll lielstu áhuga- mál sósíalista. Og upp á það var efnt til kosninga í sumar sem leið. En síðan sat Haraldur í stjórn- inni eftir sem áður, þrátt fyrir allan ágreininginn. , Eftir það alt þótti tilefnið til brottferðar lians úr ráðherrastóli furðulega lítið. Allir flokkar þingsins eru sam- mála um það, að þingið þyrfti að láta til sín taka'í togaradeilunni. En Ilaraldur og þeir Alþýðu- flokksmenn vildu láta lögfesta á- jkveðið kaup við saltfiskveiðar og láta svo reka á reiðanum með það hvort samningar tækjust um síld- veiðarnar. Þegar H. G. sá að Framsóknar- flokkurinu vildi ekki verða við ósk hans um að takmarka afskifti þingsins við saltfiskveiðarnar, þá reyndi hann að koma því til leiðar á síðasta augnabliki, að ekki þyrfti að koma til gerðardóms. Sjómenn fengjust til að sam- þykkja tillögu sáttanefndar, er þeir áður liöfðu felt. Ilann fær kommúnistann Björn Bjarnason í lið með sjer. Þeir ganga á fund sjómanna og segja við þá: Ef þið ekki samþykkið tillögu sátta- nefnda, þá er úti um þátttöku Alþýðuflokksins í ríkisstjórninni. En enda þótt þarna kænm tilmæli frá ráðherranum og frá komm- únistaflokknum til sjómanna um að bjarga ráðherradómi Harald- ar, þá fyrirfundust ekki nema 130 sjómenn, sem vildu framlengja stjórnarsetu lians. Kommúnistastefnan. á er það ekki síður eftirtekt- arvert, hve kommúnistum var umhugað um að stjórnarsam- vinna Framsóknar- og Alþýðu- flokksins fengi að lialda áfram. Verður þetta ekki skilið nema á einn veg. Kommúnistaflokkur íslands er kostaður af rússnesku fje, til þess að starfa gegn íslensltu sjálfstæði, andlegu og efnalegu. Flokkurinn er marg yfirlýstur byltingaflokkur Þeim mun meiri sem vandræðin eru í þjóðfjelaginu, þeim mun meiri glundroði, örbyrgð, atvinnu- leysi, bágindi, þeim mun auðveld- ara telja þeir kommúnistar það verða, að koma fram byltingaá- formum sínum. Fyrir þeim er því aðalatriðið, að í landinu sje sú stjórn, og það sem lengst, er vanrækir alt sem styrkir þjóðina, bæti efnahag hennar o. s. frv. Þeir vita sem er, kommúnistar, að ráðalaus vinstri- stjórn, sem auk þess á tilveru sína að verulegu leyti að þakka bein- um stuðningi kommúnista í ýms- um kjördæmum, er hin besta stjórn til þess að undirbúa her- hlaup kommúnismans á hið veikl- aða þjóðfjelag. Máltækið segir: „Segðu mjer hverja þú umgengst, þá skal jeg segja þjer hver þú ert“. Dálæti kommúnista á stjórnar- samvinnu Framsóknar- og Al- þýðuflokksins er hið skýlausasta vottorð um það, hvílík óhollusta þjóð vorri stafar af ráðsmensku þessara flokka í landinu. Austur-„mörk. tburðirnir í Austurríki um síð- ustu helgi eru þess eðlis, að enginn hugsandi maður í heimin- um getur leitt þá hjá sjer, þegar miljónaríki er gleypt á fám klukkustundum með húð og hári. Menn spyrja agndofa: Hvernig má slíkt ske? Tlvernig getur það komið fyrir ? En svarið er fyrst og fremst þetta. Landsmenn sjálfir, Austurríkis- menn, hafa árum saman unnið áð þessu með þýsku stjórninni. Naz- istar Austurríkis hafa haft hina nánustu samvinnu við skoðana- bræður sína í föðurlandi nazism- ans. Einmitt þessi þáttur málsins er sjerstaklega athyglisverður fyrir okkur Islendinga. Ekki vegna þess að hjer sje um neina Nazista- hættu að ræða. Heldur vegna þess að feður og forráðamenn annarar einræðisstefnu, kommúnismans, hafa hjer allmarga menn í þjón- ustu sinni, til þess með liverskon- ar áróðri að eitra þjóðfjelagið svo þjóðin einn góðan veðurdag standi magnþrota gegn hinni blóðidrifnu einræðisstjórn komm- únista. Gjaldeyrismálin. egar Eysteinn Jónsson tók að sjer fjármálastjórn ríkisins, fyrir 4 árum, birti hann þjóðinni það eindregna áform sitt, að laga gjaldeyrismálin, og koma hagstæðum greiðslujöfnuði á, svo fjárliag landsins yrði borgið, og kreppunni afljett. Hann ætlaði að kippa þessu í lag með því að draga úr inn- flutningnum. Einn af þeim mönnum sem bar ekki mikið traust til fjármála- stjórnar Eysteins, spurði hann að því á þinginu, hve langan tíma þessi lagfæring myndi taka hann. Hann svaraði því með drembilæti hins fáfróða, og sagði að hann gæti vitaskuld ekki sagt livort það tæki hann eitt ár eða tvö. Alla stund síðan hefir fjárhags- ástandið sigið á ógæfuhlið. Það takmark sem Eysteinn ætlaði að ná á einu ári eða tveim, hefir fjarlægst æ meira og meira þessi fjögur ár sem liðin eru síðan hann tók við. Því öllum sem við við- skifti fást kemur nú saman um, að aldrei hafi vanskilin og óreið- an í viðskiftunum við útlönd ver- ið svipuð því sem nú er. Niðurskurður. ngu að síður bendir margt til þess, að fjármálaráðherran- um liafi ekki enn skilið, að nið- urskurðarstefna hans er hrein og bein helstefna fyrir þjóðina. Undanfarinn áratug hefir yfir helmingurinn af innflutningi til landsins verið framleiðsluvörur. Þegar innflutningur er skorinn niður í stórum stíl, eins og Ey- steinn ráðherra er að berjast við, þá fer það altaf svo, að' niður- skurðurinn lendir að verulegu leyti á framleiðsluvörunum. En þegar svo langt er gengið, þá verkar niðurskurðurinn beinlínis gagnstætt því, sem til fer ætlast, minkar greiðslugetu þjóðarinnar. Vegurinn til lífsins. ina leiðin út úr ógöngunum er þessi: Að koma fram- leiðslu landsmanna á öruggan fjárhagslegan grundvöll. Að þeir sem veiða fiskinn eða rækta jörð- ina geti * átt von á að hafa hag af erfiði sínu. Að finna nýjar framleiðsluleiðir, atvinnugreinar, og auka þær sem fyrir eru. Eins og t. d. síldarverksmiðjurnar, sem geta gefið þjóðinni fljótteknastan gróða. Á meðan það er vanrækt eins og nú, að ljetta undir með framleiðslunni,- þá versnar gjald- eyrisástandið, þjóðarhagurinn FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.